Lögberg - 03.02.1955, Qupperneq 7
7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 3. FEBRÚAR 1955
Með slægð tókst tékkneskum
kommúnistum oð nó völdum
Þúsundir Tékka úr andspyrnu-
hreyíingunni írá slríðsárunum
sitja nú í fangelsi
I eftirfarandi grein skýrir
skáldkonan Anna Kvapílova,
hvernig tékknesku kommúnist-
unum tókst að ná völdum í sam-
bandi fyrrv. pólitískra fanga
eftir stjórnlagarofið í Tékkósló-
vakíu 1948. Sitja nú margir fang-
ar frá Ravensbruck í fangelsum
tékkneskra kommúnista.
Mörg hundruð þúsund Tékkar
tóku þátt í andspyrnuhreyfingu
gegn nazistum á stríðsárunum,
og margir þeirra voru handtekn-
ir eða urðu að flýja í útlegð. Það
er áætlað, að meira en eitt hundr
að þúsund Tékkar hafi komið
hei ma ðlokinni styrjöldinni, þar
af há tala manna, sem verið
hafði í fjöldafangabúðum. I
Tékkóslóvakíu voru stofnuð fél-
ög og sambönd fyrrverandi land-
flóttamanna, pólitískra fanga og
annarra hluttakenda í barátt-
unni gegn nazistum. Öll þessi
félög voru sameinuð í tvö megin-
sambönd: 1. Samband fyrrv. pól-
itískra fanga, skammstafað SOP
VP. 2. Þjóðlega byltingarsam-
bandið, skammst. SNR.
Hið fyrrnefnda samband, SO
PVP, átti að fjalla um hin félags
legu avndamál, er upp kæmu í
sambandi við skaðabætur o. fl.
Hinu sambandin uvar ætlað að
vinna fremur á stjórnmálasvið-
inu og að áætlun um menningar-
mál og reyna að hafa áhrif á
þjóðfélagsskoðanir.
Þegar er þessar stofnanir
höfðu verið settar á laggirnar,
reyndu kommúnistar að gera
þeim allt til erfiðis, þar eð þeir
fengu enga menn úr sínum
flokki kjörna til forystu í þeim.
Til þess að flýta fyrir því, að þess
ar stofnanir gætu tekið til starfa,
var látið undan þunganum, sem
kom frá kommúnistum. Á þeirri
stund.var enginn, sem gerði sér
grei nfyrir, hver hætta fólst í
þeirri undanlátssemi. Allt frá
upphafi beittu kommúnistar bar
áttuaðferðum, sem reyndust á-
hrifaríkar fyrir þá. P fundum og
ráðstefnum héldu þeir uppi mál-
þófi, svo að fundarmenn, sem
ekki fylgdu kommúnistum, gáf-
ust upp á fundarsetunum og yfir
gáfu fundarstaði, þannig að eftir
urð umestmegnis kommúnistar
til þess að greiða atkvæði. Með
þess háttar þreytandi málæði
tókst kommúnistu mvenjulegast
að fá sín mál fram.
Komu sínum mönnum aS
Með þessum hætti tókst þeim
að koma að sínum mönnum til
forystu í SOPVP. Fulltrúum ann
arra flokka sem í upphafi voru
valdir til þess að sitja í miðstjórn
inni, var smám saman bolað úr
áhrifastöðum með ýmsum hætti,
ekki sízt þannig, að þeir gerðust
þreyttir á karpi og mál þófi og
fengu sig fullsadda á því að vera
sífellt á varðsbergi fyrir árásum
aftan frá og öðru moldvörpu-
starfi.
Það fyrsta, sem kommúnistar
gerðu, var að tryggja sér menn í
þær stöður, er fjölluðu um skaða
bótagreiðslur til þeirra manna,
er verið höfðu pólitískir fangar.
Þetta átti t. d. við um skiptingu
á góssi fjandmanna og um skipt-
ingu fyrirtækja nazista sem
skaðabætur fyrir missi annarra
fyrirtækja fyrir ólöglegt eign-
arnám. Á þessu sviði voru komm
únistar orsök mikillar spillingar.
Smám saman komst það í almæli
að til þess að fá skaða sinn bætt-
ANGEL CHIMES
from Sweden
Ideal Gift for Valentine
$2.50
MUIR'S DRUG STORE
789 Ellice Ave.
Phone 74-4422
an, svo að nokkru munaði, var
tiltækilegasta ráðið að gerast
félagi í kommúnistaflokknum.
Að vísu fór þetta leynt í fyrstu,
því að fólk vildi ógjarnan viður-
kenna, hvernig því hafði tekizt
að fá mál sín til lykta leidd, og
kommúnistar voru heldur ekki
áfjáðir í að andstæðingar þeirra
hefðu of greiðan aðgang að upp-
lýsingum, er afhjúpuðu starfs
hætti þeirra.
Menn flokkaðir
Það er vitað, að þegan innan
múra fjöldafangabúðanna höfðu
kommúnistar þann sið að flokka
menn , tvenns konar hópa: 1. þá,
sem voru ákveðnir andstæðingar
kommúnista, 2. þá, sem voru
reikulir í stjórnmálum og likleg-
ir voru til þess að geta orðið
ginningarfífl kommúnista. Um
hina síðarnefndu snerist allt
þeirra starf. Þeir beittu öllum
huganlegum ráðum til þess að
vinna sálir fyrir flokkinn. Ein
aðferðin var heronlega sú að
kaupa þá með þjóðfélagslegum
og efnahagslegum forréttindum.
Landssamband það, er nefnt
var síðar (SRN) virtist í fyrstu
ætla að verða þeirrar blessunar
aðnjótandi að vera óháð einstök-
um flokkum. Frumkvæði að
stofnun sambandsins var hjá
tveimur ágætum mönnum, sem
nærri stóðu Benes í stjórnmál-
um. Var annar Prokop Drtina,
síðar dómsmálaráðherra ,en hinn
var Vladimar Krajina, prófessor.
Báðir þessir menn höfðu unnið
ágætt starf á styrjaldarárunum
og áttu því hug allrar þjóðarinn-
ar. En hinn sama dag, er form
þessara manna skyldu birtast
opinberlega, komu kommúnistar
og gerðu sínar ráðstafanir. Þeir
komu í veg fyrir birtinguna. Þeir
gátu ekki þolað Drtina það, að
verða kjörinn formaður samtak-
anna. Þá var leitað málamiðlun-
ar. I stað Drtina var annar pró-
fessor, Jósef Grna að nafni, kjör-
inn formaður. Maður þessi var
sósíaldemokrati, prófessor í hag-
fræði við háskólann í Brno.
Fra mtil þessa var hann óþekkt-
ur maður í stjórnmálaheimi
landsins. Hann var að vísu þekkt
ur sem ágætur baráttumaður í
leynihreyfingunni gegn nazist-
um á stríðsárunum, og það var
ekki nein skömm að því í sjálfu
sér að gera hann að formanni
samtakanna. En því miður kom í
ljós, að hann var með eindæm-
um óákveðinn og sífellt tilbúinn
til málamiðlana. Gerði hann því
kommúnistum auðveldan leik-
inn að ná undir sig sambandinu
og útrýma þeim öflum, sem
stóðu í vegi fyrir útþenslu þeirra
Samstarfsvilji Grnag prófessors
var vissulega af heilum huga
gerður, en kommúnistar notuðu
hann ekki lengur en þeir töldu
sig hafa þörf fyrir hann. Nokkru
eftir stjórnlaga rofið var honum
bolað brott eins og öðrum sósíal-
demokrötum, og í dag situr hann
í fjötrum í einu hinna mörgu
fjöldafangelsa landsins.
Hömruðu á byliingu
Of seint gerðu menn sér ljóst,
að kommúnistar h ö f ð u alla
stund unnið markvist eftir fyrir-
fram gerðri áætlun. Það var t. d.
sérlega áberandi, sve mjög þeir
reyndu að hamra orðið „bylting“
inn í huga þjóðarinnar með því
að nota það í öllum opinberum
táknum og nöfnum. Það var t. d.
að þeirra fyrirlagi, að stofnun
sú, sem við höfum verið að ræða
u ma ðundanförnu, var nefnd
þjóðlega byltingarsambandið.
Þeir fengu einnig ráðið því, að
kommúnistinn Jaroslav Oralek
var gerður að framkvæmda-
stjóra sambandsins.
Einnig í SNR hófu kommúnist
arnir kerfisbundið niðurrifsstarf
Þeir komu af stað kviksögum um
það, að ýmsir þekktir og mætir
menn úr fylkingum lýðræðis-
sinna hefðu á styrjaldarárunum
staðið í sambandi við Gestapo og
starfað sem umboðsmenn þess.
Voru þessar sögur uppspuni frá
rótum og áttu sinn þátt í því að
vekja tortryggni. Einnig var
þeim komið af stað til þess að
gera þá, er urðu fyrir barðinu á
söguburði þessum, fráhverfa því
að vinna fyrir sambandið. Eitt
ráðið enn var að móðga andstæð
ingana og sýna þeim, að návistar
þeirra væri ekki óskað. Niður-
staðan varð sú, að fyrr eða síðar
þreyttust menn á þess uog drógu
sig í hlé með þeim árangri, að
aðrir menn komu í þeirra stað.
Kommúnistar sáu ávalt fyrir
því, að þeir, sem komu þannig
inn nýir til stjórnarstarfa í sam-
bandinu, voru ekki velþegkktir
flokksmenn. Þeir hylltust frem-
ur til þess að velja lítt þekkta
menn, sem ólíklegir voru til þess
að vekja deilur. En það kom allt-
af í ljós, að mennirnir, sem vald-
ir voru, voru áður ófélagsbundn-
ir menn, sem ekki höfðu neitt
sérstakt við að vera, en voru fús-
ir til fylgilags við kommúnista
vegna vonarinnar um betri
stöðu. Þessi baráttuaðferð var
þrauthugsuð og árangursrík, því
að hinir nýju stjórnarmeðlimir
voru einskis metnir og bornir
ofurliði fyrir ofríki kommún-
ista. Reyndist andstaða gegn
þessu með öllu um seinan.
„Hinir fjórir sterku"
1 fylkingarbrjósti SRN var
fjögurra manna ráð, sem nefnt
var „hinir fjórir sterku.“ Sátu
í því fultrúar stjórnmálaflokk-
anna fjögurra: Benes-flokksins,
kommúnista, kristilegra demo-
krata og sósíaldemokrata. 1 ráð-
inu sátu Drtina, dómsmálaráð-
herra, Rudolf Slansky, sem þá
var framévæmdastjóri kommún-
istaflokksins, Hala, póstmálaráð-
herra og prófessor Grna. Þegar
eitt hvert erfitt, stjórnmálalegt
vandamál bar fyrir og virtist ó-
leysanlegt, komu hinir fjórir
sterk usaman og ræddu málið í
friði og spekt og mesta bróðerni.
Oft tókst að firra vandræðum,
eftir að þessir menn höfðu kom-
ið sér saman um málið, einkum
í byrjun, áður en hlutirnir höfðu
snúizt til þess, sem átti eftir að
koma.
Á meðan SOPVP varð komm-
úniskt á einu ári tók sú þróun
enn lengri tíma í SRN. Og ýmsar
stöður innan samtakanna voru í
höndum lýðræðissinna allt til
ársins 1948. Krajina var einn
þeirra, sem bolað var burt í
fyrstu lotu. Hann réðst hatramm
lega gegn kommúnistum, enda
spöruðu þeir ekki ofsóknirnar á
hendur honum. Sem dómsmálaö
ráðherra gat Drtina heldur ekki
tekið virkan þátt í starfi sam-
bandsins, en gerði sér manna
fyrst ljóst, hvað var að gerast
innan vébanda sambandsins.
Eftir stjórnlagarofið r e y n d i
'hann að svipta sig lífinu, en
hann var gripinn áður en honum
tækst það, og nú situr hann vafa-
laust í fangelsi, svo fremi að
hann sé á lífi.
Lamað samband
SRN var lamað að ofan og að
neðan var hafið skipulegt inn-
streymi komúnista. Fyrr en
nokkurn varði voru allar deildir
sambandsins komnar undir yfir-
ráð kommúnista. Pður en efnt
var til funda, voru kommúnistar
kallaðir á flokksskrifstofuna til
þess að fá leiðbeiningu um þau
hlutverk, er hver og einn átti að
leika.
Því miður eru ekki til neinar
heimildir um það, hve margir
Tékkar sitja í fangsbúðum, eru
landflótta eða hafa verið gerðir
höfðinu styttri. En það er áreið-
anlega há tala.
Skömmu eftir stjórnlagarofið
voru hin tvö nefndu sambönd
sameinuð í eitt undir nafninu:
„Samband baráttumanna fyrir
frelsi,“ SBS. Ekkert er lengur til
af uprunalegri stefnuskrá sam-
bandanna. SBS er eins og aðrar
fjöldasamkundur kommúnista,
sem greiða atkvæði nákvæmlega
eftir því sem ákveðið er á „æðri“
stöðum.
Framhald af bls. 3
Hann vann mikið að því að
draga úr höndum útlendinga
margs konar framkvæmdir í
landinu, t. d. lét hann þjóðnýta
allt járnbrautarkerfið árið 1946.
Og nú hafa landsmenn sjálfir
yfirleitt alla framleiðslu og við-
skipti með höndum.
Perón óx einnig upp meðal
fólksins og er sagður vinna mjög
mikið, 14—16 klst. á dag, kl. 6
á morgnana er hann mættur í
Casa rozara (Bleika húsinu) til
að sinna embættisstörfum sín-
um. Perón gekk í herskóla og
hefir ritað nokkrar bækur um
hermál, sem kenndar eru við alla
herskóla í Suður-Ameríku. Hann
hóf stjórnmálaferil sinn sem
sendiherra í Chile árið 1939 og
gerði§t síðar hermálafulltrúi
stjórnarinnar í ítalíu og Þýzka-
landi.
Perón er einráður og flokkur
hans stærsti flokkur landsins,
Perónistar, á fylgi þriggja fjórðu
hluta þjóðarinnar. Demókratar
og aðrir andstöðuflokkar lands-
ins eiga sæti á þingi, en eru svo
fámennir, að þeir hafa mjög lítil
eða engin áhrif á stjórn landsins.
„Við hjónin bjuggum í Buenos
Aires, borg listigarðanna, eins og
hún er kölluð, enda getur hún
státað af 200 hundruð slíkum, er
skarta pálmatrjám og öðrum
suðrænum gróðri. Þar að auki á
hver borgarbúi sinn litla garð,
sem hann hlúir að eftir föngum.
Borgin er mjög fögur með bein-
um strætum og breiðum trjá-
göngum“.
Elzti hluti bæjarins er byggð-
ur í renaissance-stíl, hins vegar
eru öll nýrri hverfin, einkum út-
hverfin, mjög í nýtízku stíl.
Mjög er áberandi hve margar
fjölskyldur búa í einbýlishúsum,
enda nær borgin yfir mjög stórt
svæði.
Buenos Aires, sem þýðir „Gott
loft“, stendur við LaPlata fljótið
— Silfurfljótið. A borgin nafn
sitt að rekja til þess, er Spán-
verjinn Pedro de Mendoza steig
á land þar, sem nú er Buenos
Aires, árið 1536, og varð honum
þá að orði — „Que buenos aires!“
— hvílíkt gott loft! Borgin tók
samt ekki að vaxa verulega fyrr
en 1857, en þá var fyrsta járn-
brautin lögð þaðan inn í landið.
En nú er Buenos Aires stærsti
bær fyrir sunnan miðbaug og
stærsta hafnarborg landsins og
er miðpunktur þeirra vöru-
skipta, er eiga sér stað. milli
Suður-Ameríku annars vegar og
Norður-Ameríku og Evrópu hins
vegar.
Aðaltorgið er Plaza de Mayo,
er Casa rozario og dómkirkjan
standa við. Frá torginu liggur
Avenida de Mayo, 2 km. á lengd,
og ys og þys viðskiptalífsins ein-
kennir þessa götu, enda aðalgat-
an og við hana stendur þing-
húsið. I miðbænum er einnig
dýragarður, gróðrarstöð og stór
hringleikahús undir beru lofti.
Þjóðleikhúsið Columbus Teater,
sem heitir eftir Columbusi, er
heimsfrægt, og þangað kemur
listafólk frá öllum löndum
heims.
Af öðrum merkum borgum
má nefna: La Plata, sem nú
heitir Eva Perón, liggur við La
Plata fljótið, Rose Ario er næst-
stærsti bærinn og liggur 350
mílur suðvestur af Buenos Aries,
enn sunnar er Bahia Blanca,
önnur mikilvæg hafnarborg og
loks Commodoro, frægust fyrir
útflutning sinn á steinolíu, er
unnin er úr. geysimiklum olíu-
lindum Patagóníu og heitir eftir
forsetanum Commodoro Rivida-
via, einni af þjóðhetjum Argen-
tínumanna.
Argentína er í miklum upp-
gangi sem menningarland, en
landið er svo ungt og árlega
flytzt inn svo geysilegur fjöldi
innflytjenda, að erfitt er að gera
sér grein fyrir á hvaða mennt-
unarstigi þjóðin stendur. En ó-
neitanlega eru þeir margir, sem
hvorki eru læsir né skrifandi og
nota t. d. fingraför sín í stað
undirskriftar. Tveir þriðju hlut-
ar þjóðarinnar eru taldir læsir
og skrifandi og er það gott miðað
við önnur lönd í Suður-Ameríku.
Eva Perón lét reisa skóla um
allt landið og börn eru skóla-
skyld frá 6 ára aldri. Hún kom
því einnig á, að börnin klæðast
hvítum sloppum í skólunum, til
þess að ekki sé gerður mismunur
á stéttum“.
Einn merkasti menningar-
frömuður landsins lét svo um
mælt: „Þetta verður Evrópa hjá
okkur eftir nokkur ár“.
Einnig lét Eva Perón reisa
sjúkrahús um allt landið og er
fátæklingunum veitt læknis-
hjálp óskeypis. Sjúkrahúsin eru
búin öllum beztu tækjum og var
ekkert til sparað. Öllu þessu kom
Eva til leiðar með stofnun sinni,
Fundacion Eva Perón.
Annars eru Argentínumenn
Vilja vera „Evrópumenn"
þrifnir og mikið er gert til að
verjast sjúkdómum. Argen-
tínska húsmóðirin er álitin mjög
þrifin og er sagt, að hún standi
við þvottabalann allan daginn.
—Mbl., 24. des.
OILNITi IGNITE
Try
ELKHORN and OILNITE
Stoker Coal Mix 50/50
$16.40 per Ton
Our Most Popular Stoker Coal
Oil Treated
A HAGBORG FUEl/g-afyl
PHOWt 74-5451 J------- |
PHONE 3-7340
John Olafson, Representative.
BLOOD BANK
T H I S
SPACE
CONTRIBUTED
B Y
DREWRYS
MAN ITOBA
D I V I S I O N
WESTERN
CANADA
BREWERIES
L I M I T E D
HD-352
Þessi eru þau skref, sem taka þarf
varðandi þegnréttindi
Ef þér hafið flutzt til Canada á löglegan hátt, eruð 21 árs að aldri og
eigið heima í landinu, sem vafalítið má telja, og hafið dvalið þar samfleytt í
fimm ár, getið þér sótt um leyfi til að öðlast þegnréttindi. Við lok slíks
tímabils skuluð þér koma umsókn yðar á framfæri.
1. IJmsókn um þegnréttindi lögð fram.
Umsóknin skal fengin í hendur ritara héraðsréttar í þeirri dóm-
þinghá, sem þér eigið búsetu.
2. Þá gangið þér fyrir dómara.
Þér verðið að hafa óflekkað mannorð, ráða yfir nægri þekkingu í
frönsku eða ensku og skilja ábyrgð þegnréttinda.
3. Þér sverjið drottningunni hollustueið.
Eftir eiðtökuna afsalið þér yður með eiði yðar fyrra þjóðerni.
Varðandi frekari upplýsingar skuluð þér skrifa The Registrar of
Canadian Citizenship eða Citizenship Branch
DEPARTMENT OF CITIZENSHIP & IMMIGRATION
HON. J. W. PICKERSGILL, P.C., M.P., LAVAL FORTIER, O.B.E., Q.C,,
Minister of Citizenship and Deputy Minister of Citizenship
Immigration and Immigration
— TÍMINN, 3. des.