Lögberg - 03.03.1955, Page 6
6
J." " ...^
GUÐRÚN FRÁ LUNDI:
DALALÍF
r
LOFA SKAL DAG AÐ KVÖLDI
„Hvað verður nú um kindurnar hennar Línu? Ætlar hún að
eyðileggja þær allar í haust?“ spurði sú umhyggjusama kona,
Borghildur, einu sinni, þegar allir sátu að snæðingi.
Þær verða hérna í vetur“, svaraði Jón. „Hvað hún gerir við
þær í vor, veit ég ekki. En ég þykist vita, að hún ætli að flytja
aftur í sveitina, því að hún setur öll lömbin á“.
„Varla hafa þau öll verið gimbrar“, svaraði hún.
„Hún skipti við Sigga. Svo nú á hún tólf höfuð. Það má kalla
góðan bústofn handa henni. Ef hún sálast þá ekki úr kulda í vetur.
Mér sýnist hún alltaf krókloppin, þegar ég sé henni bregða fyrir,
sem sjaldan er. Þetta er líka óskaplegt að sjá, hvernig kvenfólkið
er farið að klæða síg í kaupstöðunum. Bert ofan á brjóst og með
handleggina bera upp að öxlum“.
„Það þykir víst ákaflega fínt“, sagði Borghildur. „Það er lán
með, ef þær gera sig ekki heilsulausar með slíkum klæðnaði“.
„Þetta kemst strax í vana“, gegndi Gróa fram í. „Það er verst,
þegar þær eru kannske ekki í öðru en ermalausum léreftsskyrtun-
um innan undir. Þá getur verið kalt að hengja út þvottinn að
vetrinum til“.
Morguninn eftir kom Anna húsfreyja með fangið fullt af
hvítri vorull og fékk Gróu hana og bað hana að taka ofan af og
gera það vel. Manga átti að vinna með henni. Sláturstússið var
búið og kvenfólkið farið að hugsa til tóvinnunnar. Manga fann til
vankunnáttu sinnar og bað um að mega vera við eldavélina; Borg-
hildur kynni svo vel til tóvinnunnar. Það var látið eftir henni.
Borghildur tók af sér eldhússkýluna og setti fyrir sig hreina
svuntu og tók til starfa með svip þeirrar konu, sem veit vel, að
hún er því starfi vaxin, sem hún tekur að sér. Gróa var óhikandi.
Hún þóttist kunna að tæta sæmilega. En nú komst hún brátt að
því, að hún var léttvæg fundin. Borghildur leit á það, sem hún
var búin að vinna og var ekki ánægð.
. „Þú verður að læra þetta betur, Gróa“, sagði hún. „Anna vill
láta vanda þetta“.
„Á þetta að fara utan á hana sjálfa?“ spurði Gróa fálega.
„Nei, hún ætlar að farga því“.
Og Gróa mátti láta sér vel lynda, að Bolghildur aðgætti hvern
lagð og færi yfir þá suma. Henni var misboðið, en samt lét hún
ekki á neinu bera, því þarna sat hún móti ofjarli sínum. Svo
varð hún að fara að kemba. Ekki var það vandaminna, því að nú
kom sjálf húsmóðirin fram fyrir með rokkinn sinn og fór að
spinna. Borghildur spann líka. En Dísa, sem aldrei var ánægð, ef
hún fékk ekki að vita allt, sem gerðist á heimilinu, fór upp um
hálsinn á fóstru sinni og spurði, hver ætti að fá þessi fínu nærföt,
sem verið væri að spinna í. Hún hvíslaði því að henni. Og áður en
dagurinn var liðinn, vissu allir á heimilinu, að það var Lína, sem
átti að fá þessi fínu nærföt, svo að hún dæi ekki úr kulda í eld-
húsinu hjá lækninum. Eftir það bauðst Þórður til að kemba á
kvöldin. Þá fór spuninn að ganga enn fljótar, og Gróu var sagt að
fara að tvinna. Allt þetta gekk eins og í sögu, og prjónavélin var
ekki lengi að breyta þessu fína bandi í dásamlegar spjarir, sem
húsmóðirin saumaði saman og prýddi með litlum, bleikum, hekluð-
um laufum um hálsmálið. Svo voru þær þvegnar og hengdar
út á snúru.
„Aldrei á ævi minni hefi ég séð annan eins tóskap“, sagði
Gróa næstum klökk af aðdáun, „og þetta á að fara utan á eina
vinnukonuna, sem hérna hefur unnið. Það mætti heldur ætla, að
það ætti að fara utan á einhverja frúna. Satt að segja, datt mér í
hug, svona þér að segja, Borghildur, að hún ætlaði henni frú
Matthildi þetta, því þær eru svo vel til vina“.
Borghildur setti bara upp kuldasvip og sagði:
„Hún getur líklega spunnið utan á sig sjálf, konan sú. Það
hefði víst ekki verið mikil þörf á að fara að stússast við það.
Annað er með hana Línu litlu, sem hefur verið hérna síðan
fermingarárið hennar. Hún er líka ágætis stúlka“.
„Já, svona er það að koma sér vel“, sagði Gróa. „Þú trúir því
ekki, hvað mig langar til að eiga svona falleg og mjúk nærföt“.
„Það er líka það, sem þú þarft að eignast — og það strax.
Ég hef tekið eftir því, að þú átt ekki annað en flónels- og lérefts-
nærföt, og drengurinn ekki heldur. Þetta er ekkert líf að vetrinum.
Við verðum ekki lengi, ef við leggjumst allar á eitt, þegar þetta
er búið“.
Þá bara vafði Gróa handleggjunum um hálsinn á þessari
gæðakonu og lagði hana undir vanga. En Borghildur, sem var óvön
svona blíðuatlotum, fór að brosa að ákafa hennar. En hún skildi
lyndiseinkanir hverrar manneskju, sem á heimilinu vann, og vissi,
að það varð að taka hvern eins og hann var gerður. Gróa var blíð-
lynd og áhrifagjörn, en hún var dugleg og gæðahjú, þótt hún
talaði helzt til mikið stundum, hafði öllum fallið prýðilega við
hana, þessa mánuði, sem hún var búin að vera á heimilinu.
En það var ekki allt búið, sem Línu var ætlað. Það var spunnið
í þrenna sokka; þeir voru prjónaðir, þæfðir og litaðir, og það
voru gerðir sauðskinnsskór og fallegir leppar látnir innan í.
Allt var þetta svo látið ofan í tösku, innan í hvítum lérefts-
poka, og Þórður var beðinn að koma því til skila einu sinni, þegar
hann var að fara ofan í kaupstað til að sækja fisk til Steina, sem
var við sjó, og færa honum mat. Það var gert einu sinni í viku,
en Þórður hafði aldrei farið fyrr. Venjulega var það Jakob, sem
fór ofan eftir með matinn, en hann flutti aldrei neitt til baka.
Anna var óánægð yfir því, að drengurinn var látinn fara í svona
slarkferðir, eins og hún kallaði það, en lét þó svo vera, vegna þess
að Borghildur sagði henni, að Jón hefði alltaf farið með nesti til
sjómannsins, þegar hann var á hans aldri.
„Þú færð Línu þetta sjálfur“, sagði Anna við Þórð, „og segðu
henni, að ég sendi henni peysu seinna, svo að hún sálist ekki úr
kulda í vetur“.
Þórður tók hlýlega í hönd henni og sagði brosandi: „Þakka
þér fyrir“. ,
Samt var það ekki venjulegt, að hann kveddi með handabandi,
þótt hann færi út af heimilinu. En þakklætið gat verið þessi venju-
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 3. MARZ 1955
legu kurteisisorð, ef einhver bað að heilsa. Samt fannst honum, að l
hann hefði komið upp um sig með þessu. En Anna tók ekkert eftir
því, að hann hafði rétt henni höndina og þakkað henni fyrir,
hvað hún væri góð við stúlkuna hans.
Hann reið ánægður út dalinn. Nú gæti hann farið heim til
Línu, því að hann átti erindi við hana. Kannske gæti hún talað
fáein orð við hann. Það var ekki víst, að læknirinn þyrfti að
svolgra í sig viský og sódavatn núna, eins og seinast þegar hann
kom. Veðrið var yndiselegt. Blæjalogn og sólskin. Túnin voru
græn, þótt komið væri fram yfir veturnætur. Allar skepnur nutu
ennþá sumarfrelsisins, nema kýrnar. Dalurinn var svo dásamlega
fallegur, að hann gat ekki hugsað sér, að nokkur sveit væri til,
sem líktist honum, og enginn maður ætti fegurri framtíð en hann
og stúlkan, sem hann elskaði. „Lofa skal dag að kvöldi“, hugsaði
Þórður oft, þegar hann lifði þennan dag upp í huganum. Það var
samt engin veðrabreyting í náttúrunni, en það voru sólhvörf í
hans eigin lífi.
Fyrir nokkrum dögum hafði húsbóndi hans spurt hann, hvort
hann yrði ekki kyrr eftirleiðis, eins og vant væri. En hann hafði
ekki orðið; en „um það tölum við seinna“, sagði hann.
gert hann hissa með því að segja honum, en það gæti nú líklega
„Þú ert þó líklega ekki að hugsa um að fara að yfirgefa
dalinn?“
„Nei, það dettur mér ekki í hug. Samt verður það líklega þú,
sem ræður því“.
Hann hafði ætlað að tala um Selið. Jón hafði oft sagt, að það
væri sjálfsagt að hann fengi það, þegar hann færi að hugsa til
búskapar. En það var ekki víst, að það hefði verið alvara. Hann
sagði svo margt, sem ekki var alvara. En þá þurfti einhver endi-
lega að ónáða þá, svo að málið var óútkljáð ennþá. Það hefði
verið gáman að geta sagt henni, að ábúðarjörðin væri fengin.
Bara að systkinin í Ameríku gætu séð kotið þeirra, þegar búið væri
að byggja þar upp nýjan bæ og falleg húsfreyja komin í hann.
Hann reið ofan með læknishúsinu og gaf eldhúsglugganum
hornauga um leið og hann fór framhjá. Gluggatjöldin voru dregin
fyrir, líklega af því að sólin var komin í vestrið, og þá var víst
óþolandi hiti í eldhúsinu. Varla var hann svo óheppinn, að húsið
væri mannlaust.
Hann fór að hestaréttinni, og lét klárana inn. Þarna stóð þá
reiðhestur húsbónda hans og tók vingjarnlega á móti félögum
sínum, þegar þeim var hleypt inn til hans. Jón hafði farið út á
Strönd daginn áður, til að bjóða upp einhverjar reytur eftir
karlanga, sem hafði burtkallazt á þessu sumri. Þórður hafði búizt
við að mæta honum einhvers staðar, en hann var þá ekki kominn
lengra en þetta. Hann var heldur ekki vanur því að sneiða hjá
Ósnum. Þeir yrðu þá samferða heim í kvöld. Þá yrði hægt að tala
samat> í næði um jarðnæðið.
Sjómennirnir voru komnir og farnir að skipta aflanum, þegar
Þórður kom ofan í fjöruna.
„Bærilegur afli núna, Þórður minn“, kallaði Siggi á móti
honum. „Það hefur gert gott, að þú varst á ferðinni, alltaf fengsæll
í öllum greinum. Nú verðurðu að koma hérna inn í sjóbúðina og
fá kaffi hjá okkur. Þar rázkar kærastan mín, þó að hringarnir séu
ekki komnir ennþá, þá vita það allir. Ég er ekki svoleiðis maður,
að ég sé að pukra, eins og sumum finnst sjálfsagt“.
„Það er þá óþarfi, að vera að setja upp hringa, þegar allir vita
um trúlofunina“, sagði Þórður. „Annars finnst mér þú tala helmingi
fleira en þú gerðir fram í dalnum, og þótti þó flestum nóg um
þig þar“.
„Það veitir ekki af að nota talfærin hérna niður frá, enda býst
ég við því, að jafnvel eins fátalaður maður og þú yrðir orðinn
símasandi eftir vikudvöl í þessu kjaftabæli“.
Þegar búið var að skipta aflanum, fóru allir sjómennirnir inn í
sjóbúðarkofa þar skammt frá. Þar beið þeirra heitt kaffi, og þar
stóð ung blómarós við eldavélargarm og steikti kleinur með
kaffinu. Það var Rósa, kærasta Sigga. Hann heilsaði henni líka
með kossi, ófeiminn, þó að allir sjómennirnir horfðu á hann.
„Finnst þér hún ekki heldur álitleg, þessi blessuð stúlka.
Sjáðu bara, hvað hún hefur stór brjóst og er þéttholda. Þú ert
alltaf svo holdvandur, Þórður minn. Hún var ekki lengi að bíta á
hjá mér, skal ég segja þér. Og við ætlum að fylgjast að í lífinu,
svona án prestlegra aðgerða. Það fer vonandi eins vel fyrir því“.
„Ég er hissa á því, að þú skulir hafa náð hylli hennar með
þessum vaðli“, sagði Þórður.
En stúlkan var laus við alla feimni og bar fram kaffið á eitt-
hvert borðskrifli, sem Þórður var hálfhræddur um að myndi detta
um koll með öllum bollapörunum. Ekki gæti hann boðið sinni
stúlku önnur eins húsakynni og aðra eins búslóð. Reyndar var
þetta ekki heimili þeirra. En hann gat heldur ekki hugsað sér Línu
í svona stöðu, að elda mat og hita kaffi fyrir marga sjómenn, sem
allir horfðu á hana í einu. Hún átti bara að elda handa honum
einum fram á afrétt. Hann athugaði Rósu vandlega, þótt hann
hefði séð hana áður. Hún var kafrjóð holdahnyðja, góðleg á svip,
ósköp mikið síðri en stúlkan hans.
„Ætlarðu að setja upp hringa?“ spurði hann Sigga.
„Já, það erum við nú að hugsa um að gera á jólunum. Það
verða þá kannske fleiri, sem gera slíkt hið sama, að minnsta kosti
hún Lína hjá lækninum og ekkjumaðurinn utan af Ströndinni,
sem sagt er að heiti Gísli. Það verður svei mér gaman að kynnast
honum, þeim kauða“.
„Já, líklega verður hann dálítið einkennilegur, sá maður“,
sagði Þórður brosandi.
Björn gamli, faðir Rósu, sem var ákaflega upp með sér yfir
því að fá fóstursoninn frá Nautaflötum fyrir tengdason, hneggjaði
og tísti af kæti yfir grófgerðu spaugi, sem sjómennirnir létu óspart
fjúka um hina tilvonandi hjónarúmssælu, sem ungu hjónaefnin
ættu í vændum.
Og Siggi, sem alinn var upp á heimili, þar sem slíkt orðbragð
heyrðist aldrei, skemmti sér ágætlega, og Rósa lagði ófeimin orð
inn í samræðurnar.
Svona lagað gæti hann ekki Mustað á um stúlkuna sína,
hugsaði Þórður. Enda hafði hann aldrei getað fellt sig við sjó-
mannstalið meðan hann var við sjó, og því síður tekið sér snið af
því. Hann varð því sárfeginn, þegar kaffidrykkjunni var lokið.
Það var komið undir rökkur, þegar hann var búinn að búa upp á
hestana. Þó var það allra skemmtilegasta eftir, að fara með
töskuna til Línu.
Fálki var enn í réttinni, en Jón sást hvergi. Hann sat sjálfsagt
hjá lækninum að víndrykkju. Læknishúsið stóð efst af öllum
húsunum, og þangað stefndi Þórður með töskuna í hendinni. Það
stóð heima við það, sem hann hafði rétt verið að enda við að
hugsa. Þarna kom Jón á móti honum frá læknishúsinu, svo þétt-
kenndur, að hann reikaði. Þá var hann þó búinn að smakka
talsvert.
„Þú ert þá kominn Þórður, heilladrengurinn. Það er bærilegt
að fá þig til samfylgdar heim. Er virkilega farið að bregða birtu?
Svona gleymir maður tímanum, þegar flaskan er annars vegar.
Varstu að koma, væni minn?“ masaði hann, þegar hann sá Þórð.
„Ég er rétt að fara“,- sagði Þórður. „Það er langt síðan ég kom,
og því lengra síðan Siggi kom að“.
„Jæja, þú ert að fara, það er ágætt. Mér veitir ekki af samfylgd
núna. Engum trúi ég betur fyrir sjálfum mér en þér, Þórður minn.
En ég hefði hvergi verið smeykur að fara einn fram dalinn, ef ég
hefði setið á gamla Fálka mínum. Hann er óstilltur, folaskömmin,
ætlar aldrei að læra að verða stilltur og fullorðinn“.
„Það gengur oft erfiðlega að læra það“, sagði Þórður og hélt
áfram. „Þú bíður mín við réttina. Ég verð ekki stund“, sagði hann,
þegar þeir voru komnir kippkorn hvor frá öðrum.
Hann fór að eldhúsdyrunum. Þær voru hálfopnar, en engin
manneskja sjáanleg þar inni. Lína var víst heima; það var búið
að draga gluggatjöldin frá, enda þurfti ekki að óttast sólbirtuna
lengur, og það sauð á gljáfægðum katli á eldavélinni. Hann beið
dálitla stund í von um að einhver kæmi fram, og litaðist um í
eldhúsinu. Þar var allt fínt og fágað. Á hvítskúruðu borðinu stóðu
tvenn bollapör, sykurker og rjómakanna, og kökufat með fínu
kaffibrauði, flaska með skrautlegum miða og tvö staup. Þórður
horfði tortryggnisaugum á flöskuna. Einhver rödd hvíslaði því
að honum, að það hefði verið húsbóndi hans, sem hefði tæmt
þessaflösku og drukkið úr þessum pörum. En sú fjarstæða, andæfði
skynsemi hans. „Skyldi honum hafa verið boðið sæti í eldhúsinu?
Auðvitað hafði þetta verið borið fram innan úr stofunni frá ein-
hverjum gestum. Hann barði á hurðina, til þess að einhver kæmi
fram, en enginn kom. Skyldi húsið vera mannlaust? hugsaði hann
og barði öllu fastar. Þá heyrðist einhver hreyfing uppi á loftinu,
og létt fótatak nálgaðist stigann. Lína kom hægt ofan stigann og
studdi sig með annari hendinni. Skyldi hún vera lasin? var fyrsta
hugsun hans. Hún stanzaði neðst í stiganum, og honum fannst
hún horfa á flöskuna og pörin á borðinu með vandræðalegum
hræðslusvip. Hún var í ljósleitum léreftskjól, með hvíta, blúndaða
svuntu. Um hvítan hálsinn hékk gullhjarta á flauelsbandi. Hárið
var vafið utan um höfuðið, og einhverjar hornsylgjur, ákaflega
fallegar, festar í það á vögunum. Hann gleymdi öllu öðru en því,
að þetta var stúlkan hans, svona fín og falleg. Hann tók hana í
faðm sinn og bar hana fram að dyrunum.
„En hvað þú ert falleg, elsku stúlkan mín“, sagði hann og
kyssti hana.
En var þetta virkilega hans stúlka? Hann sneri andliti hennar
móti birtunni og horfði rannsakandi í augu henni. Þau voru vot
og þokukennd.
„Guð hjálpi þér, Lína!“ sagði hann ásakandi. „Ertu farin
að drekka?“
Hún faldi höfuðið við barm hans og hló hátt og óviðkunnan-
lega. Þetta var ekki fíngerði, lági hláturinn, sem hann þekkti
svo vel.
„Taktu þetta ekki alvarlega, vinur minn. Þetta er bara eins og
hver annar kjánaskapur úr mér. Það skal svei mér ekki henda mig
aftur. Geiri bróðir var hér með vín í flösku, og ég fór að bragða á
því, en ég þoli víst ekki mikið, því að ég finn bara talsvert á mér“.
„Ég skil ekkert í þessu“, sagði hann alvarlega. „Ekkert er eins
viðbjóðslegt og drukkin kona. Að minnsta kosti vona ég, að stúlkan
mín geri sig ekki seka í svo ókvenlegu athæfi“.
Hún strauk yfir enni hans, eins og hún vildi strjúka burtu
hrukkurnar, sem komu á það.
„Vertu nú ekki svona alvarlegur, alveg eins og þú værir faðir
minn“, sagði hún. „Þetta kemur ekki fyrir aftur, því skal ég
lofa þér“.
Hann opnaði töskuna og fékk henni böggulinn.
„Þarna sendir Anna þér hlý og falleg nærföt. Seinna færðu
peysu“, sagði hann.
Hún tók sundur fötin og skoðaði þau með fálmandi, óvið-
kunnanlegum handatiltektum. „En þau fínheit og gæði. Hún er
víst búin að fyrirgefa mér það, að ég þekkti hestana í sundur í
sumar?“ sagði hún og hló ennþá þessum óviðfelldna hlátri, sem
Þórði fannst óþolandi. Hann tók súkkulaðistykki úr brjóstvasa
sínum og rétti henni. Tíu króna seðli var stungið undir miðann
eins og vant var.
„Alltaf eru að gefa mér, blessaður dalakarlinn minn“, sagði
hún. „Þú ættir bara að sjá, hvað ég er búin að kaupa mér fyrir
peningana frá þér. Borðdúk, bakka, bollapör og kaffikönnu, og
allt í búið okkar . . .“
Hún masaði og gjálfraði svo kveljandi líkt Gróu, að Þórður
var alveg eyðilagður. Hann, sem var búinn að hlakka svo mikið
til þessa fundar, og þá varð hann svona. Hann hugsaði allt annað
en hlýlega til þessa tilvonandi mágs síns. Svona voru þessir
sjóstrákar. Hann fór suður til sjóróðra á hverjum vetri. Þar var
sjálfsagt algengt, að kvenfólk drykki með karlmönnum. Og svo
hafði honum fundizt sjálfsagt að gæða systu rsinni á víni, svo að
hún liti eins út. Og endilega þurfti að hittast svo á, að hann sæi
hana svona leiðinlega útlítandi. Hann gat ekki flutt heim með sér
fallegu myndina í huganum, eins og seinast. Eina bótin var, að
þetta kæmi ekki aftur fyrir. Það var hann viss um. Hún gat ekki
verið svo breytt, þessi góða stúlka.
„Seztu niður, góði. Nú tefurðu lengi hjá mér“, sagði Lína og
kyssti hann frekjulega. „Nú getum við rabbað saman um fram-
tíðina og búskapinn. Nú er ég bóndinn og húsfreyjan í húsinu,
skal ég segja þér. Hjónin og krakkarnir riðu út að Kárastöðum í
morgun; veðrið var svo indælt. Ó, mikið var nú gott að ríða honum
Skjóna þínum. Ég á eftir að margkyssa þig fyrir það“.
Þórður var setztur á annan stólinn, en stóð snögglega upp aftur.
Grunur hans var að verða að vissu. Mýflugan var að blása sig út
og verða að úlfalda á svipstundu.
„Hefurðu verið ein í húsinu í allan dag?“ spurði hann.
„Já, svo má það heita, nema meðan Geiri stanzaði hjá mér“.
Honum veittist erfitt að stynja upp næstu spurningu. Samt
tókst það.
„Kom Jón í heimsókn til þín?“
„Hvað?“ spurði hún og greip annan yfirbollann, fyllti hann af
köldu vatni og drakk það áfergjulega.
„Ég var að spyrja þig, hvort Jón hefði heimsótt þig“, sagði
hann.
„Hvaða Jón?“ spurði hún skilningssljó.
„Jón hreppstjóri, ef þú kannst við hann?“ svaraði Þórður
fastmæltur.