Lögberg - 03.03.1955, Page 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 3. MARZ 1955
Páll V. G. Kolka héraðslæknir
SEXTUGUR
Úr borg og bygð
F ramkvœmdarnefnd
Þjóðræknisfélagsins f
Að afstöðnum kosningum á
síðasta þingi, er framkvæmdar-
nefnd Þjóðræknisfélagsins, auk
forseta og varaforseta þannig
skipuð:
G. L. Johannson, féhirðir
Steindór Jakobsson,
varaféhirðir
Ingibjörg Jónsson, skrifari
Finnbogi Guðmundsson,
varaskrifari
Guðmann Levy, fjármálaritari
Úlafur Hallsson,
aðstoðar-f j ármálaritari
Ragnar Stefánsson,
skjalavörður.
Endurskoðendur:
Davíð Björnnsson
J. Th. Beck.
☆
Hinn 27. febrúar síðastliðinn
lézt að heimili sínu, 302 Mont-
rose Street hér í borginni, Dr.
Wesley Grant Beaton, 66 ára að
aldri, vinsæll maður, er naut
virðingar og trausts jafnt innan
læknastéttarinnar sem utan;
auk konu sinnar, Önnu Stefaníú,
dóttur Dr. Björns B. Jónssonar,
lætur hann eftir sig eina kjör-
dóttur.
Útförin var gerð á þriðjudag-
inn frá Westminster United
kirkjunni.
☆
Mr. Steindór Jakobsson kaup-
maður, sem rekið hefir áratug-
um saman matvöruverzlunina
The West End Food Market við
góðan orðstír og miklar vin-
sældir, hefir nú selt þetta fyrir-
tæki svo sem ráða má af aug-
lýsingu í blaðinu frá hinum nýja
eiganda verzlunarinnar; hinir
mörgu vinir Steindórs sakna
hans af Sargent Avenue, og þá
ekki síður hans ágætu konu, sem
verið hefir hans önnur hönd við
verzlunina langtímum saman;
munu þau hjónin taka sér nokk-
ura hvíld frá störfum, en að þau
setjist í helgan stein kemur víst
hvorki þeim sjálfum né nokkr-
um öðrum til hugar.
Bolir handa
íþróttamönnum
Óviöjafnanleg Watson’s ger8! Allir
íþróttamenn kunna a8 fullu a8
meta hina ágætu íþróttafatavasa,
teygjanleg mittisól. er sty8ur maga
holið á þrjá vegu. Saumað af sér-
fræ8ingum, au8þvegi8 og þarfnast
ekki strokningar. Endist von úr
viti. Vigeigandi Jersey’s.
Á nýafstöðnu þjóðræknisþingi
tilkynnti forseti á fundi að Elli-
heimilið Stafholt í Blaine óskaði
eftir konu eða stúlku, sem gæti
tekið að sér ráðskonustörf á
heimilinu. Hafði heimilið nýlega
ráðið mjög myndarlega og hæfa
stúlku frá Islandi til þessa starfs,
en hún hafði dvalið þar aðeins
skamma stund er hún giftist
rússneskum manni, sem hún
hafði kynnzt á leiðinni vestur.
Ýmsir hagyrðingar voru á
þingi, og hraut einum þeirra
þessi vísa af vörum samstundis:
Ráðskonan fór til Rússíá,
raun var mér þessi lestur.
Finnum nú meyju fríða á brá
sem fljótast, og sendum vestur.
Gefin saman í hjónaband að
heimili íslenzka sóknarprestsins
í Selkirk, 25. febrúar Gerald
Joseph Rebillord, Sommerset,
Man., og Clarice Joyce Jacobson,
Árborg, Man. Ungu hjónin voru
aðstoðuð af Miss Aunette Mary
Rebillord og Mr. Kristinn M.
Jacobson. — Framtíðarheimili
ungu hjónann verður í Som-
merset, Man.
Gefin saman í hjónaband sama
dag og á sama stað: Walter
Sopher, Selkirk, Man., og Lyla
Cromarty, sama stað. Við gift-
inguna aðstoðuðu Miss Shirley
Mabel Cromarty, systir brúðar-
innar og Mr. Theodore
Guttowski.
☆
The Viking Club News
Arthur A. Anderson, newly
appointed consul for Sweden,
was elected president for the
second year of the Viking Club
of Winnipeg at its 12th annual
meeting, Friday, February 25th,
in the Scandinavian Clubrooms,
470 Main St. William C. Jacob-
seh was elected vice president,
while H. A. Brodahl was re-
elected secretary and A. J.
Bjornson received re-election as
treasurer. Plans were finally
passed for the 12th annual
Viking Banquet and Ball, to be
held Friday, March 25th, at
Rancho Don Carlos, Pembina
Highway.
It was unanimously agreed to
that the Viking Club affiliate
with the Canadian Scandinavian
Foundation, of Montreal, as the
Manitoba Chapter No. 2 of this
organization, whose main pur-
pose is the exchange of students
between Canada and the Scand-
inavian countries.
In addition the following
members were elected to the
executive: H. Thorgrimson and
Mrs. J. R. Cross, representing
the Icelandic group; S. R.
Rodvick, Reidar Chelswick and
Caspar Jacobsen, for the
Norwegians; S. W. Goerwill and
Carl Larson, the Swedish people;
Mesdames M. Norlen, B. Berthel-
sen and E. Erickson, for the
Finnish group, and Mrs. Dagny
Simon for the Danish group.
Appointed to the Program
committee were: S. R. Rodvick,
convener, Mrs. Kay Palmer,
Mrs. M. Norlen, Jon K. Laxdal
and H. Jacob Hansen.
☆ /
2 Semi Automatic Knitting
Machines — Also 1 Looper to be
sold as a Unit, 794 Strathcona
Street. Phone 3-6017.
Kveðjur . . .
Framhald af bls. 4
neinn dóm á kveðjuílutning
minn eða okkar, en hitt væri
rammasta vanþakklæti að láta
þess eigi getið, hversu frábærum
viðtökum við áttum að fagna, og
hve næman hljómgrunn kveðj-
urnar héðan að vestan fundu
hjá íslenzkum tilheyrendum og
hve ágætlega þeim var tekið.
Leyfi ég mér sem dæmi þess að
vitna til eftirfarandi ritstjórnar-
greinar, sem birtist í Morgun-
blaðinu í Reykjavík 20. júní s.l.
undir fyrirsögninni „Kveðja frá
V estur-íslendingum“:
„Vestur-lslendingar sendu
heimaþjóðinni kveðju sína og
árnáðaróskir með 10 ára afmæli
hins íslenzka lýðveldis. Dr.
Richard Beck prófessor kom
hingað heim sem fulltrúi þeirra
á þjóðhátíðinni og flutti þar
skörulegt ávarp.
Fyllsta ástæða er til þess að
þakka löndum okkar fyrir vest-
an hafið ræktarsemi sína og
tryggð við heimaþjóðina. Hún
er okkur ómetanlega mikils
virði. Margir Islendingar í Vest-
urheimi hafa barizt merkilegri
baráttu fyrir viðhaldi íslenzkrar
tungu og menningar. Fjölmargir
þeirra hafa einnig getið sér
ágætt orð í hinum nýju heim-
kynnum sínum og þannig orðið
íslandi til hins mesta sóma.
Við skulum ekki vanrækja
sambandið við frændur og vini
í Vesturheimi. Þeir eru tengdir
okkur traustum böndum þjóð-
ernis og tungu. Við þökkum
dr. Richard Beck þess vegna
fyrir komuna hingað og biðjum
hann að flytja Vestur-íslending-
um kærar kveðjur og velfarnað-
aróskir“.
Þeim hlýju kveðjum hins víð-
lesnasta dagblaðs á Islandi og
hlutaðeigendum þess er mér
ljúft að koma hér á framfæri, og
eru þær í fullu samræmi við um-
mæli annarra íslenzkra blaða og
hinar mörgu aðrar og jafn
hjartahlýjar kveðjur, sem ég
var beðinn að flytja heiman um
haf vestur yfir álana.
Hið síðasta, sem Ásgeir Ás-
geirsson, forseti íslands, sagði
við okkur hjónin, er við kvödd-
um þau forsetahjónin á Þing-
völlum daginn áður en við flug-
um heiman-heim vestur loftin
blá, var að biðja okkur fyrir
hjartanlegar kveðjur og bless-
unaróskir til Islendinga vestan
hafs.
I sama streng tóku þeir
drengilega Ólafur Thors, for-
sætisráðherra Islands, og dr.
Ásmundur Guðmundsson biskup,
er ég kvaddi daginn, sem við
lögðum af stað heímleiðis. Og
jafn djúpstæðan góðhug til vor
íslendinga vestur hér fann ég í
samtölum við aðra forráðamenn
hinnar íslenzku þjóðar, svo sem
Steingrím Steinþórsson ráð-
herra. Þá fór Gunnar Thorodd-
sen borgarstjóri í Reykjavík
miklum viðurkenningarorðum
um landkynningarstarf Vestur-
íslendinga í ræðu sinni á lýð-
veldishátíðinni. Ekki hefir held-
ur neinn fölskvi fallið á áhuga
vors gamla velunnara, Jónasar
Jónssonar fyrrv. ráðherra, fyrir
málefnum vorum.
Frá gömlum sóunherjum, þeim
prestunum séra Benjamín Krist-
jánssyni, Friðrik Friðrikssyni og
Jakob Jónssyni, og frá Ragnari
H. Ragnar söngstjóra, Pétri
Sigurðssyni erindreka, og frúm
þeirra, á ég að bera kærar
kveðjur.
Gildir hið sama um marga þá,
er nýlega hafa gist byggðir vorar
hér, og eru í þeim hópi dr.
Alerander Jóhannesson, þáver-
andi rektor Háskóla íslands, og
núverandi eftirmaður hans, dr.
Þorkell Jóhannesson rektor, og
nýlega kjörinn forseti Þjóð-
ræknisíélagsins á Islandi, enn-
fremur Páll Kolka læknir og
séra Einar Sturlaugsson, að
nokkrir séu nefndir.
Fjölmargir aðrir, svo sem þeir
Jóhann Gunnar Ólafsson, bæjar-
fógeti á ísafirði, og Jón Kjart-
Þegar forvígismenn hérað-
anna, eða aðrir vinir vorir eiga
merkilegt afmæli, þá eru slík
tímamót heppilegt tækifæri til
þess, að minnast opinberlega á
æviferil þeirra og störf. Hefir sá
siður færzt í vöxt á síðari árum
og miðar vel í þá átt, að auka
þekkingu almennings á þeim
mönnum, sem bera af fjöldan-
um.
I dag er það Páll Kolka héraðs
læknir á Blönduósi, sem á 60 ára
afmæli. Hann er þjóðkunnur
maður fyrir margra hluta sakir,
en þó er til þess rík ástæða á
þessum tímamótum ævi hans, að
rekja í aðaldráttum æviferil
hans og minna á einkenni hans
og störf.
Páll Valdimar Guðmundsson
Kolka, svo heitir hann fullu
nafni, er fæddur á Torfalæk 25.
janúar 1895. Foreldar hans
voru Guðmundur Guðmundsson
bóndi á Torfalæk og Ingibjörg
Ingimundardóttir smáskammta-
læknis Sveinssonar. Er í báðum
þessum ættum margt fjölhæfra
manna og gáfaðra, bæði þeirra,
er liðnir eru og lifandi. Föður-
ætt sína kallar Páll sjálfur Berg-
mannsætt en víða hér um sveitir
er hún kölluð Marðarnúpsætt.
Er margt þeirra frænda afburða-
menn að gáfum og dugnaði og
var einn hinn þekktasti og fjöl-
gáfaðasti í þeim hópi Guð-
mundur Björnsson landlæknir.
I móðurætt Páls Kolka eru
líka mjög margir ágætir menn,
hafa sterkar gáfur og mikil ein-
beittni verið mjög ríkjandi
meðal þess fólks. Var þekktasti
og fjölhæfasti maður þeirrar
ættar Þorsteinn Björnsson kaup-
maður á Blönduósi.
Páll Kolka tók stúdentspróf
18 ára gamall árið 1913 og lækna
skólapróf 1920. Stundaði síðan
framhaldsskólanám í New York
um tveggja ára skeið. Lagði
hann einkum stund á skurð-
lækningar og dvaldist auk þess á
fæðingarstofnun þar.
Árið 1926 fór hann til Ham-
borgar og var þar á skurðlækn-
ingastofnun um skeið. Hann
byrjaði sinn læknisferil í Vest-
mannaeyjum og var þar fyrst
praktiserandi læknir og síðan
sjúkrahúslæknir frá 1930—’34.
Árið 1934, þann 16. marz, var
Páll svo skipaður héraðslæknir
á Blönduósi og hefir starfað þar
síðan við sívaxandi vinsældir og
traust. Hann er fyrir löngu
frægur innan héraðs og utan
sem mjög slyngur skurðlæknir.
Eru þeir orðnir nokkuð margir,
yngri og eldri Húnvetningar og
aðrir, sem hann hefir bjargað
frá langvarandi heilsuleysi og
hinir eru heldur ekki fáir, sem
hann hefir forðað frá yfirvof-
andi líftjóni. Hann er fljótur til,
ansson, bæjarstjóri á Siglufirði,
er báðir eiga nákomin skyld-
menni hér vestan hafs, báðu
fyrir kveðjur til ættingja sinna
og íslendinga almennt. Á öllum
samkomum, þar sem við hjónin
vorum viðstödd, og í samsætum,
sem okkur voru haldin, var við-
lagið ávalt hið sama: „Flytjið
kærar kveðjur vestur!“
En um allar þessar kveðjur
ber að sama brunni: Þær eru
sprottnar upp úr djúpstæðum
ræktarhuga íslendinga heima á
ættjörðinni til vor landa þeirra
hérna megin hafsins. Og ómetan-
legt er það oss að eiga þann góð-
vildarsjóð að bakhjalli, og skylt
að mæta honum á miðri leið með
sama bróðurhuga, því að aldrei
verður of mikil áherzla á það
lögð, hvert grundvallaratriði
framhaldandi ættartengsl og
mepningarleg samskipti vor Is-
lendinga yfir hafið eru í þjóð-
ræknislegri starfsemi vorri í
landi hér. Það er hinn vígði þátt-
ur, sú líftaug þjóðrækninnar,
sem aldrei má slitna.
I þeim anda bið ég þessu þingi
blessunarríks starfs.
öruggur að þekkja sjúkdóma og
úrræðagóður í hverjum vanda,
þar sem úrræði er að finna.
Hefir og jafnan svo til gengið,
að þegar vandasamar aðgerðir
hefir þurft að gera í nálægum
læknishéruðum, þá er leitað til
Páls Kolka. Sýnir það traust
hans og öryggi. Má með sanni
segja, að hann hefir verið gæfu-
samur læknir, því oft er úr
vöndu að ráða og ekki alltaf víst
um árangur, þó vel lærður og
æfður læknir eigi hlut að máli.
I félagslífi og stjórnmálum
hefir Páll læknir jafnan verið
virkur starfsmaður. Hann var
bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum
1926—’34 og forseti bæjarstjórn-
ar þar síðustu fjögur árin. Hann
var ritstjóri tveggja blaða, er
þar voru gefin út: Skjaldar 1923
og ’24 og Gests 1932. Sýnir þetta
að hinn ungi og óþekkti læknir
var á þessum stað fljótur að fá
traust fólksins.
Á Blönduósi hefir ha'nn starf-
að í mörgum stjórnum og nefnd-
um. Verið sýslunefndarmaður
alla tíð frá því frændi hans,
Þorsteinn Bjarnason, féll frá
1937 og hvað eftir annað sjálf-
kjörinn, þ. e. enginn boðinn
fram gegn honum. Formaður
Sjálfstæðisfélags Austur-Húna-
vatnssýslu hefir hann lengi
verið og enn lengur í stjórn
þess. Formaður skólanefndar á
Blönduósi, sjúkrahúsnefndar
o. fl.
Af verklegum framkvæmdum,
sem hann hefir staðið fyrir er
bygging héraðssjúkrahússins
stærsta átakið. Er dugnaður
Páls læknir, áhugi og fórnfýsi í
því máli annálsvert og mun
lengi minnzt verða. En hér skal
eigi um það stórmál fleiri orðum
fara, enda mun það. verða nánar
rakið af öðrum.
Á stjórnmálasviðinu er Páll
Kolka stefnufastur, hiklaus og
harður í horn að taka. Hefir
hann skrifað fjölda greina um
ýms mál á því sviði og hefir hvað
eftir annað komið í ljós, að and-
stæðingum Sjálfstæðisflokksins
finnst ekki auðvelt að eiga
vopnaviðskipti við hann.
Um skáldið og rithöfundinn
Pál Kolka skal ég eigi skrifa
margt hér, því þar væri um víð-
tækt og vandmeðfarið sérstakt
ritgerðarefni að ræða. Hann
hefir gefið út þrjár ljóðabækur,
sem allar eru merkilegar í sinni
röð og sýna hver um sig, að á
Ijóðasviðinu er maðurinn enginn
meðal maður.
Einnig mun um þessar mund-
ir vera von á nýju leikriti frá
hans hendi og má ætla að það
sé eigi af verri endanum.
Bók Páls: „Föðurtún“ er stór-
kostlegt verk og einstakt í sinni
röð. Er það héraðslýsing Húna-
vatnssýslu allrar og ættfærsla
fjölda þeirra manna, karla og
kvenna, er búið hafa í hverri
sveit sýslunnar á undangengn-
um árum og búa nú. Er í bók-
inni mikill fjöldi mynda af eldra
fólki. Mun vafasamt að úr nokk-
urri annarri sýslu þessa lands sé
til slíkt myndasafn. Veit ég að
margir menn annara héraða líta
öfundaraugum til okkar Hún-
vetninga vegna þeirrar eignar,
sem í þessari bók er. Hitt var og
er vitað, að þarna er af höfundi
gengið inn á svo víðtækt svið,
að ekki gat komið til mála að
slíkt rit væri tæmandi, hvorki í
ættar- eða mannlýsingum. En
þessi bók, ljóðabækurnar, og all-
ar ritgerðir Páls læknis er þess
valdandi, að margir ókunnugir
spyrja: „Hvaða undramaður er
þessi Páll Kolka?“ Hann er hér-
aðslæknir og sjúkrahúslæknir í
stóru héraði, hann yrkir ljóð og
gefur út ljóðabækur. Hann
stundar ættfræði og gefur út
stórkostlegt rit um ættir og
héraðséinkenni, og hann stendur
í stórræðum sem forystumaður
fyrir miklum framkvæmdum og
merkilegum.
Þegar ég er spurður um þetta,
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. TheoL
Heimili 686 Banning Street.
Sími 30 744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
Messur í Norður-Nýja-íslandi
Sunnudaginn 6. marz:
Víðir, kl. 2 e. h.
Riverton, kl. 8 e. h.
Prédikað á ensku á báðum
stöðum.
Robert Jack
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 6. marz:
Ensk messa kl. 11 árd.
Umtalsefni:
The Man Who Might have
been.
Sunnudagaskóli kl. 12
íslenzk messa kl. 7 síðd.
S. ólafsson
hefi ég eigi önnur svör á reiðum
höndum en þetta: „Maðurinn er
fjölhæfur gáfumaður og ham-
hleypa við alla þá fjfölþættu
vinnu, sem hann gefur sig að“.
„Þetta hlýtur að vera rétt,“ segja
menn, en ég finn það á sumum,
að þeim finnst svarið ófullnægj-
andi. Er og von að mönnum lítist
svo, þegar athugað er, hversu
mörgum hæfileikamönnum í
okkar landi verður lítið úr tím-
anum nú um skeið.
I sínu persónulífi hefir Páll
læknir notið mikillar hámingju.
Hann kvæntist 3. nóvember 1916
ágætri konu, Guðbjörgu Guð-
mundsdóttur frá Hvammsvík í
Kjós. Er hún alsystir hinna
þjóðkunnu bræðra, Gísla gerla-
fræðings og Lofts ljósmyndara,
sem báðir féllu í valinn fyrir
aldur fram. Frú Guðbjörg er
framúrskarandi valkvendi, sem
á öllum sviðum kemur fram til
góðs. Hún er skörungur í sjón
og raun, glaðlynd og alúðleg við
hvern sem er. Gestrisni hennar
er framúrskarandi og má þó eigi
á milli sjá hvort hjónanna hefir
meiri hug á að gera sem bezt í
þeim efnum. En þar sem annars
staðar kemur erfiðið á því sviði
meira á konunnar hendur.
Þau hjón e/gnuðust fjögur
börn. Einn dreng og þrjár stúlk-
ur. Eru þau öll fullorðin og nú
gift og eiga samtals sjö börn. Er
alltaf eitthvað af þeim hjá afa
sínum og ömmu á Blönduósi,
báðum til ánægju eins og
gengur.
Hjónabandshamingja Páls
læknis hefir áreiðanlega verið
honum það ljós og sá hiti, sem
auðveldað hefir mikil og örðug
verk og gert honum fært að sýna
þann árangur og þau afköst,
sem raun er á.
Páll er gleðimaður mikill og
viðræðugóður heima og annars
staðar. Hann leynir því ekki, að
honum er ánægja að því, að
ræða við vini sína, og kemur þá
margt til mála, svo sem að líkum
lætur, þar sem svo fjölfróður
maður á í hlut. Hann er frjáls-
lyndur í skoðunum, svo sem ljóð
hans og greinar allar bera vott
um. Allt óeðlilegt ófrelsi, höft og
bönn eru honum andstyggð.
Hann vill láta sjálfsbjargarvið-
leitni og einkaframtak fólksins
njóta sín sem bezt og hefir enga
trú á, að hægt sé að gera heimsk-
ingja og ónytjunga jafna þeim
sem mesta hæfileika hafa.
Á þessum merkilegu tímamót-
um í lífi Páls Kolka þakka ég
honum fyrir öll hans merkilegu
og þýðingarmiklu störf héraði
okkar, héraðsbúum og landinu í
heild til gagns og heilla. Ég
þakka honum vináttu og traust
og margar ánægjustundir fyrr
og síðar.
Ég óska honum, konu hans og
allri fjölskyldu hans hamingju
og blessunar nú og framvegis.
Óska þess að við og þjóðin öll
fái sem lengst að njóta hans
krafta og vitsmuna.
Jón Pálmason
—ísafold og Vörður, 1. feb.
LEIKFÉLAG LANDANS
sýnir þætti úr
GULLNA HLIÐINU
eftir Davíð Stefánsson
laugardagskvöldið 5. marz og mánudagskvöldið 7. marz
í neðri sal SAMBANDSKIRKJUNNAR við Banning St.
KLUKKAN 8.15
Aðgöngumiðar á $1.00 fást í bókabúð Davíðs Björnssonar,
702 Sargent Ave., og við innganginn, ef nokkrir verða óseldir.
Tryggið ykkur miða í tíma.
Á undan leiksýningunni syngja 4 stúlkur nokkur íslenzk lög.