Lögberg - 07.04.1955, Blaðsíða 1

Lögberg - 07.04.1955, Blaðsíða 1
ANYTIME — ANYWHERE CALL TRANSIT - SARGENT SILVERLINE TAXI S Telephone Lines 20-4845 ANYTIME — ANYWHERE CALL TRANSIT - SARGENT SILVERLINE TAXI 5 Telephone Lines 20-4845 •68. ARGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 7. APRÍL 1955 NÚMER 14 Eftirminnilegt kvöld Eitt vestrænt Gleym mér ei lesið í kveðjusamsœti Þjóðræknisjélagsins fyrir Gunnar Thoroddsen borgarstjóra og frú Mér yljar í sálu hvert ár og hvern dag hver ómur af föðurlandsströnd; þá skýrist mér árdegi uppruna míns þó önnur ég dáð hafi lönd. Að eilífu jafnast ei auðlegð nein til við útrétta systkina hönd. Þið komuð til okkar í kulda og byl svo karlmennum naumast var stætt. En nú hefir leysingin komið á kreik og klakann að mestöllu brætt. Og svo hafa kveðjurnar kveikt hjá oss líf og kulnuðu neistana glætt. Þið komuð að heiman með sóldægrasvip og söng inn í tómlætisþögn og túlkuðuð helgi vors íslenzka arfs í óði og fagurri sögn, og seidduð til vöku og sumarlangs starfs ýms syfjuð og dreymandi mögn. f norðri var fædd okkar frostbitna þjóð og fóstruð við hríðar og rok; það gaf henni bolmagn og byltingaþrótt til að brjóta af sér helsi og ok. — Eitt Gleym mér ei vestrænt í góðhug og þökk skal goldið í heimsóknarlok. Einar P. Jónsson Síðdegis sunnudaginn þann 27. marz var óvanalega mikil umferð á vegum öllum til Ashern, Manitoba; þangað dreif fólk úr byggðum íslendinga austan Manitobavatns, frá Lundum að sunnan og Steep Rock að norðan og öllum byggðum þar á milli. Þjóð- ræknisfélag Islendinga í Vestur- heimi hafði efnt til samkomu að Ashern þetta kvöld, þar sem gafst kostur á að kynnast ágæt- um gestum frá íslandi, þeim hr. Gunnari Thoroddsen, alþingis- manni og borgarstjóra í Reykja- vík og konu hans frú Völu Ás- geirsdóttur Thoroddsen. Var fyrst gengið til kirkju lúterska safnaðarins á Ashern og hlýtt messu. Séra Bragi Frið- riksson prédikaði, umræðuefni hans: „Kirkjan“. Herra Ólafur Hjartarson frá Steep Rock söng einsöng: Kvöldbæn, eftir Björg- vin Guðmundsson, fór þar sam- an fagurt lag og fögur rödd. — Undirspil annaðist hr. Gunnar Erlendsson frá Winnipeg. Frú B. Johnson frá Vogum spilaði fyrir sálmasöngnum. — Þessi ís- lenzka guðsþjónusta, ég hygg hin fyrsta að Ashern, var mjög hátíðleg, og fagurlega hljómaði íslenzki sálmasöngurinn. Eftir messu var haldið til samkomu- húss bæjarins og fylgt eftir- fylgjandi dagskrá: O, Canada — Ég vil elska mitt land. 1. Samkoman sett: Séra Bragi Friðriksson. 2. Almennur söngur. 3. Ávarp: Hr. Björn Jónasson, oddviti Siglunessveitar frá Silver Bay. 4. Ræða: Hr. Gunnar Thor- oddsen, borgarstjóri. 5. Kveðja frá Þjóðræknis- félaginu: Ólafur Hallsson. 6. Tvösöngur: Ungfrú Heiða Jóhannesson og ungfrú Patricia Kristveig Jóhannes- son. 7. Framsögn, kvæði: Ungfrú Oddný Johnson. 8. Ávarp: Prófessor Finnbogi Guðmundsson. 9. Almennur söngur. 10. Myndasýning. Eldgamla ísafold — , God Save The Queen. Ég reyni ekki að lýsa, hvernig tókst með hvert einstakt atriði dagskrárinnar, læt nægja að segja, að samkoman var sérstak- lega ánægjuleg. Séra Braga fórst stjórnin þannig, að allir voru í léttu skapi, skemmtu sér auðsjáanlega vel og nutu þess nýnæmis að vera á samkomu, sem öll fór fram á íslenzku. Ræða Gunnars Thoroddsen, „Um Reykjavík fyrr og nú“, var bæði fróðleg og skemmtileg og ágætlega vel flutt. Hr. Björn Jónasson færði heiðursgestunum gjöf frá sam- komunni, blómker úr silfri með þessari áletrun: Til minningar um samkomu að Ashern, 27. marz 1955. Lítil og ljóshærð þriggja ára gömul dótturdóttir Björiís Jón- assonar færði frú Völu skrúð- blóm og ávarpaði frúna á ís- lenzku. Þennan vináttuvott þökkuðu gestirnir með vel völdum orðum, lýstu gleði sinni yfir viðkynn- ingunni við þennan fjölmenna hóp góðra landa (um tvö hundruð) og þakklæti fyrir hlýjar viðtökur. Óhætt er að segja, að koma Thoroddsen hjónanna til Ashern varð samkomugestum og öllum, sem kynntust þeim, óblandið gleðiefni, mega þau vel taka undir með gagnorða Rómverj- anum, sem sagði: „Ég kom, sá, sigraði“. Þau fönguðu hug allra; þau eru skemmtileg í viðræðum, glæsileg útlits, virðuleg, en þó látlaus og hlýleg í framkomu. Gestir sem þau vinna þjóð- ræknisviðleitni okkar ómetan- legt gagn, treysta bræðrabandið á milli heimaþjóðarinnar og þjóðarbrotsins hér vestra. Heiður og þökk sé þeim ágætu hjónum fyrir komuna. Um samkomuna í heild leyfi ég mér að segja, að auðfundið var, að þar ríkti bróðurhugur og innileg gleði yfir að hafa komið saman — sem íslendingar á trú- ræknis- og þjóðernislegum grundvelli. Gefur þetta góða von um vaxandi áhuga á þessum málum í framtíðinni. Þökk sé séra Braga Friðrikssyni og prófessor Finnboga Guðmunds- syni, sem áttu upptökin að þess- ari samkomu og skipulögðu hana; þökk sé þeim, sem tóku þátt í dagskránni; þökk sé hin- um ágætu konum úr öllum ís- lenzku byggðunum, sem sáu um hinar rausnarlegu veitingar, og litlu svo vel eftir vellíðan heið- urstgestanna, á meðan þeir dvöldust hér nyrðra. Ólafur Hallsson Harðskeytt-ur blaðamaður látinn Síðastliðinn föstudag lézt í Chicago heimskunnur blaða- maður, Col. Rutherford Mc- Cormick, ritstjóri og aðaleigandi stórblaðsins Chicago Tribune, 74 ára að aldri; hann var hvass- yrtur einangrunarsinni, er hat- aðist við stefnu þeirra Roose- velts og Trumans í utanríkis- málunum og hélt því fram að Bandaríkin hefðu öðru þarfara að sinna en þátttöku í alþjóða- styrjöldum; en er ráðist var á Pearl Harbor kom annað hljóð í strokkinn, því þá brýndi hann þjóð sína til samstiltra átaka. Mr. McCormick barðist af kappi miklu fyrir því, að R*obert Taft hlyti útnefningu sem for- setaefni Republicana við síðustu forsetakosningar, því hann var dauftrúaður á forustuhæfileika Eisenhowers á vettvangi stjórn- málanna. Lætur af stjórnarforustu Hinn 24. marz s.l., birti Lög- berg mynd af Sir Winston Churchill og lét þess þá getið, að hann myndi láta af stjórnar- forustu þann 5. apríl, og nú er þetta komið á daginn, og tókst þá á hendur forsætisráðherra- embættið Sir Anthony Eden; nú þykir sýnt að þing verði brátt rofið og nýjar kosningar fyrir- skipaðar einhvern síðustu dag- anna í maí. Celebration in Utah To commemorate the estab- lishment of the first Icelandic settlement in America, we, the Icelandic Association of Utah, extend an invitation to you of Icelandic descent to join us in an Icelandic Centennial Cele- bration to be held in Spanish Fork, Utah, beginning Wednes- day, June 15th through Friday, June 17th, 1955. The event will begin with a religious service on the evening of June 15th. The following evening, Thursday, the 16th, a pageant, depicting the history of Icelandic people in America, will be presented. On Friday, the 17th, an all-day series of events beginning with a parade will be held. Plans are far-reaching, and a very successful celebration is anticipated by the committees in charge. We heartily extend this in- vitation to you and your friends*' in the hope that you will join us here in Spanish Fork in June. The committee in charge of housing arrangements assures us that all needing accommo- dations will be well cared for in Spanish Fork and the nearby towns of Springville and Provo. ICELANDIC ASSOCIATION OF UTAH, William M. Johnson, Chairman, Invitations Committee. Sögulegur viðburður Hinn 1. þ.m., voru liðin 200 ár síðan að verzlun á íslandi var gefin frjáls, en með því hófst, svo sem vænta mátti, nýtt og mikilvægt þróunartímabil í sögu þjóðarinnar; var mikið um dýrð- ir á íslandi áminstan dag vegna afmælisins og höfuðborg lands- ins öll fánum skrýdd. Ægilegt tjón vegna landskjólfta Seinnipart fyrri viku ollu geigvænlegir landskjálftar afar miklu manna- og eignatjóni á Filippseyjum; um fimm hundr- uð manns höfðu látið lífið af völdum náttúruhamfaranna, tvö þúsund voru fluttir á sjúkrahús, en um tólf þúsund stóðu uppi ráðþrota án skýlis yfir höfuð sín. Komust til óra sinna Síðastliðið ár létust þrjár per- sónur, sem komnar voru til ára sinna og urðu tilefni til sér- stakra blaðaummæla. Carl Glöckner frá Frankfurt í Vestur Þýzkalandi varð hundrað og sjö i ára og lifði lengst þeirra her- manna, er þátt tóku í fransk- þýzka stríðinu 'frá 1870. Mrs. Jane Mitchell, amerísk kona, varð hundrað og sex ára og hafði aldrei séð kvikmynd; en Robert Woodbridge frá Leeds á Englandi, sem varð hundrað og eins árs, hafði unnið fyrir sér með innbrotsþjófnaði þangað til hann varð níutíu og fjögra ára að aldri og var mesti hreysti- skrokkur til dánardags. Nefndarskipun Dómsmálaráðherra Manitoba- fylkis, M. N. Hryhorczuk, hefir nýverið skipað borgarnefnd, er vera skuli stjórnarvöldunum til aðstoðar varðandi umbætur fangavistar, ásamt því að stuðla að atvinnu þeim til handa, er lokið hafa fangavist og komast þurfa á réttan kjöl í mannfélag- inu; formaður nefndarinnar er G. R. Hunter lögfræðingur, en meðnefndarmenn hans eru úr hinum ýmsu velferðarmálasam- tökum borgarinnar. Kjörinn í formannsstöðu Dr. P. H. T. Thorlakson í fyrri viku var hinn óþreyt- andi eljumaður, Dr. P. H. T. Thorlakson, kjörinn formaður þeirra mikilvægu og umfangs- miklu samtaka, er ganga undir nafninu Manitoba Medical Ser- vice og grípa djúpt inn í vel- farnan fylkisbúa í heild. Dr. Thorlakson er gæddur frábær- um skipulagningar hæfileikum, og hvar, sem hann gengur til verks, verður ávalt eitthvað undan að láta. Síðastliðinn laugardag áttu hin þjóðkunnu hjón, Sigurður Júlíus Jóhannesson læknir og frú Halldóra gullbrúðkaup, en þau voru gefin saman í hjóna- band í Chicago fyrir hálfri öld af Dr. Birni B. Jónssyni; margt manna heimsótti þau hjónin þá um daginn, þar sem þeim var þökkuð ljúf samfylgd og þau Um hópferðina til íslands Enn er beðið eftir endanlegum upplýsingum frá íslandi, og skulu mönnum því á meðan veittar eftirfarandi leiðbeining- ar um öflun vegabréfs og ann- arra nauðsynlegra farargagna: Þeir, sem eiga ekki gilt kana- diskt vegabréf, verða að sækja um það til Ottawa. Skulu þeir fyrst skrifa eftir eyðublaði til Department of External Affairs, Passport Office, Ottawa. Er það hefur verið fyllt út og þeim skilyrðum fullnægt, er þar eru sett, skal það endursent, og fá menn þá kanadiskt vegabréf. Næsti áfangi er að fá vega- bréfsáritun hjá Gretti L. Jó- hannssyni ræðismanni, Icelandic Consulate, 76 Middlegate, Win- nipeg. Þarf fyrst að skrifa eftir eyðublaði til hans, fylla það út og senda Gretti það ásamt 2 vegabréfsmyndum (þ. e. sams konar myndum og eru í vega- bréfinu) vegabréfinu sjálfu og $3.40 áritunargjaldi. Mun Grettir annast þessa fyrirgreiðslu fram til 11. maí, en um það leyti fer hann af landi burt, og verða menn úr því að leita um áritun til Icelandic Legation, 1906 23rd Street N.W., Washington 8, D.C. Væntanlegir farþegar, búsettir í Bandaríkjunum, munu afla sér vegabréfs eftir þeim leiðum, sem þar eru farnar, og að sjálfsögðu sækja um vegabréfsáritun til ís- lenzka sendiráðsins í Wash- ington. THOR VIKING, 515 Simcoe Street, Winnipeg 10, Man. íslenzk tónlist í útvarpsþætti Maður er nefndur Jan Rubes, söngvari góður og stjórnandi þáttar, er heitir Songs of my People og útvarpað er um allt Canada frá CBC-stöðinni í Toronto á hverju föstudags- kvöldi kl. 11—11.30 eftir Winni- peg-tíma. Eru í þætti þessum sungin og leikin lög frá ýmsum löndum. Hefur Jan Rubes sér til aðstoðar úrvalshljómsveit og kór, en fær jafnframt iðulega gesti til að syngja, fulltrúa hinna mörgu þjóðarbrota í Canada. Síðastliðið föstudagskvöld, 1. apríl, var leikið í þætti þessum lag Sigurðar Þórðarsonar: Sjá dagar koma, ár og aldir líða, og þess getið um leið, að fleiri ís- lenzk lög yrðu flutt í þættinum eitthvert föstudagskveldið á næstunni. hylt af öllum stéttum úr sam- ferðasveit sinni. Fáir menn hafa komið eins mikið við sögu okkar Vestmanna og Sigurður Júlíus læknir; hann hefir frá upphafi vega verið djarfmæltur málsvari þeirra, er höllustum fæti stóðu í lífsbar- áttunni og með ritgerðum sínum og ljóðum unnið að mannbetrun hvar, sem starfssvið hans hefir legið; ævistarf hans hefir verið fórnfúst svo að til fyrirmyndar má telja. Sigurður Júlíus læknir er gæfumaður; hann hefir notið langvarandi sambúðar við ást- ríka konu, sem verið hefir ljós á vegum hans og lampi hans fóta. Gullbrúðhjónin eiga tvær stór- hæfar og ágætar dætur, búsettar í Ottawa, er báðar komu vestur til að samfagna foreldrum sínum vegna gullbrúðkaupsins. Haust-ósk (Eftir Marian L. Rafen) Ég það eitt vona, að þá ég dey, að þyrpist árin kring um mig, sem fölnuð blöð um friðsælt haust, er fögrum litum skreyti sig. Þar litum ráði rautt og gult, í ríki fölvans — skerpu rænt: í daufri minning dáins vors þar drottinn hafi valið grænt. Er blöðin verða gleymsku grá, og gálaust troðin ótal skóm, þá vona ég að verði sagt í vonarglöðum bernskuróm: „Sko, mamma! líttu á lítið blað! og líttu á hvað það fallegt er! Og fallið hefir þarna það til þess að vera handa mér!“ Svo færi litli hnokkinn heim, og hefði með sér þetta blað. Á milli blaða — og brosti um leið — í bókinni sinni að pressa það. Sig. Júl. Jóhannesson þýddi. To Sigurður and Halldóra Johannesson On Their Golden Wedding Day Fifty years together on life’s rough and winding road As each sustained the other and made light the heavy load. Fifty years of striving for the benefit of all. Fifty years of answering the sick-bed’s anxious call. Fifty years of poetry, with her his inspiration. Fifty years of comradeship and love and adoration. Fifty years of happiness that overflows and pours To fill the cup of everyone whose life has met with yours. —ART REYKDAL. Þjóðkunn hjón eiga gullbrúðkaup i

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.