Lögberg - 07.04.1955, Side 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 7. APRÍL 1955
5
WVW www wwwwvwwwwv www ww ^www^
AHUG4M4L
rVENNA
Ritstjón: INGIBJÖRG JÓNSSON
AÐ BORÐA OFT EN LÍTIÐ í EINU
Flestum læknum og heilsu-
fræðingum virðist koma saman
um, að offita sé manninum ekki
einungis óþægileg heldur og
heilsuspillandi og geti stytt hon-
um aldur. Um þetta vandamál
er því mikið ritað og rætt. Ný-
lega hefi ég lesið í tveimur tíma-
ritum greinar um þetta, eftir
Dr. Fredrick J. Stare, for-
mann næringarrannsóknardeild-
ar Harvard-háskólans. Telur
hann, að það fólk, sem þjáist af
offitu sé miklu hættara en öðru
fólki við æðakölkun, hjartabilun
og sykursýki, auk þess sé því
meiri hætta búin, ef það þarf að
ganga undir uppskurð.
Dr. Stare segir, að algengasta
og venjulegasta orsök offitu sé
ofát, en afát orsakast vitanlega
af góðri matarlyst; þess vegna
verði hið feitlagna fólk að finna
ráð til þess að draga úr matar-
löngun sinni. —
Næringardeild Harvard-há-
skóla hefir verið að rannsaka
hvað valdi því að menn finni
til hungurs og hefir komist að
þeirri niðurstöðu, að það fari
mikið eftir sykurmagninu í
blóðinu. Þegar sykurmagnið
lækkar niður fyrir ákveðið stig
verður maður svangur.
Flestar fæðutegundir mynda
blóðsykur og ekki þarf nema
lítinn bita af einhverju matar-
kyns til þess að hækka sykur-
magnið í blóðinu og draga þann-
ig úr sultartilfinningunni.
Dr. Stare ráðleggur, að borða
góðan og nærandi morgunverð,
því þá sé sykurmagnið í blóðinu
á lágu stigi; drekka glas af
mjólk um kl. ellefu, í stað þess
að drekka það með miðdegis-
verðinum, því það hækki aftur
sykurmagnið og maður sé því
ekki eins lystugur um hádegið;
borða epli éða smábita af ein-
hverju kl. 3 e. h., létta máltíð
um kl. 6, og svo glas af mjólk,
ávöxt eða smábita um hátta-
tíma. — Galdurinn er að borða
næringargóða fæðu, en lítið af
henni við venjulegar máltíðir,
en draga úr lystinni, með því að
fá sér smábita milli máltíða. —
íturvöxnu konurnar
á Bali-eyjunni
Vorið 1953 ferðaðist Dr. Stare
ásamt mörgum öðrum heil-
brigðisfræðingum á vegum
World Health Organization til
Indónesia. Þeir voru tvo mán-
uði í ferðinni og voru lengst af
á Bali-eyjunni. Þar sem nær-
Tvær nýjar sundlaugar í Reykjavík
Á Islandi eru nú lil 88 sund-
laugar og sundhallir
Síðustu 6-8 árin hefur verið
varið 8 millj. kr. til sundlauga
framkvæmda
ingarfræði var sérgrein Dr.
Stares, vakti það sérstaka at-
hygli hans, að hann sá aldrei
Bali-konu, sem var of feit. Þær
fáu feitu konur, sem hann sá,
voru undantekningarlaust ann-
að hvort kínverskar eða hol-
lenzkar, en aldrei baliniskar
konur! Þótt þetta stafi að ein-
hverju leyti af því, að þær hafa
nægilega líkamsáreynslu og
hreyfingar, þá telur Dr. Stare
aðalástæðuna vera matarvenjur
þeirra; þær borða ekki þrjár
stórar máltíðir á dag svo sem
venja er hér í landi heldur smá-
bita fram eftir deginum. Bolla af
kaffi með sykri um kl. sex að
morgni; klukkustund síðar
^munnbita (aðeins munnbita) af
grjónum í bananalaufi; að ann-
ari stund liðinni eitt banana
eða annan ávöxt; næst kannske
glas af sætum drykk. Þær borða
ekki endilega á hverri klukku-
stund, en oft á dag og ofurlítið í
einu. Þær narta kannske í soy-
baunaköku, fisk, kókóhnetu,
grjón, ávöxt eða drekka ofur-
lítið af ávaxtasafa. Maturinn,
sem vafinn er í bananalauf, er
aldrei meiri en ein eða tvær
matskeiðar. Það er ekki stór
»
skammtur, en þykir nægilegur.
Þannig halda Bali-konurnar
blóðsykrinum á því stigi, að þær
verða aldrei mjög svangar og
borða því aldrei yfir sig. Að öll-
um þessum daglegu matar-
skömmtum samanlögðum, telur
Dr. Stare, að þær borði minna á
dag, en ef þær neyttu þriggja
stórra máltíða daglega, eins og
hér er venja. En það er ekki
síður mikilsvert, að fæða þeirra
er fjölbreytt og kjarngóð: grjón,
baunir, ávextir, grænmeti, fiskur
og kjöt. —
Fjölbreytt fæða nauðsynleg
Sú skoðun hefir lengi verið
ríkjandi að þeir, sem vildu
megra sig, ættu að forðast að
borða vissar fæðutegundir svo
sem brauð, sykur og kartöflur.
Þetta telur Dr. Stare ekki nauð-
synlegt. Hann segir, að undir-
staða hins rétta mataræðis sé
fjölbreytt fæða og það sé engin
ástæða til að hætta að borða
kartöflur, sykur eða brauð
fremur en annan mat; hins vegar
ætti fólk að borða minna af öll-
um mat, en vera þó viss um að
neyta nægilega af þeim mat,
sem ríkur er af eggjahvítuefni
(prosteins).
Gera má ráð fyrir að unnið
verði að tveimur nýjum sund-
laugabyggingum í Reykjavík á
þessu ári, en það er annarsvegar
Sundlaug Vesturbæjar og hins-
vegar hin nýja og mikla Sund-
laug íþróttasvæðisins í Laugar-
dalnum, og er þegar byrjað að
grafa fyrir henni.
Að því er íþróttafulltrúi ríkis-
ins Þorsteinn Einarsson, hefur
tjáð Vísi, er aðstaða til fram-
kvæmda sundskyldu í skólum ó'
víða jafn erfið og hér í Reykja-
vík. Þessir erfiðleikar skapast
annarsvegar af hinum mikla
mannfjölda og hinsvegar mikla
nemendafjölda, sem fer vaxandi
með hverju árinu sem líður,
sama tíma og enginn nýr sund-
staður hefur verið byggður
Reykjavík frá því 1937, er Sund
höllin tók til starfa. Aðrir sund
staðir hér í bænum eru gömlu
Sundlaugarnar, sem eru í svip-
uðu eða sama ásigkomulagi og
þær voru fyrir nær hálfri öld og
loks er svo sundlaug til við
Austurbæj arbarnaskólann.
Lítil aukning
Ef borið er saman daglegt með
altal Sundhallargesta árið 1937
og árið 1952 kemur í ljós að sú
tala hefur lítið sem ekkert
breytzt enda þótt íbú,Unum í
Reykjavík hafi fjölgað um 22
þúsund, eða rösklega þriðjung.
Árið 1937 sóttu 466 baðgestir
Sundhöllina á degi hverjum, en
árið 1952 nam meðaltal bað-
gesta í henni 470.
Þessi slæmu skilyrði til sund-
kennslu fyrir skólana og daglega
sundiðkana fyrir borgarana hafa
verið viðurkennd af forráða-
mönnum bæjarfélagsins og nú
hafa íbúarnir sjálfir hafizt handa
og byrjað fjársöfnun til bygging-
ar Sundlaugar í Vesturbænum.
Hefur sú Sundlaug nú þegar
verið staðsett við Hofsvallagötu
og er Bárður Isleifsson í þann
veginn að ljúka við frumteikn-
ingar af henni. Sérstök nefnd
vinnur að undirbúningi þessa
máls og er Birgir Kjaran hag-
fræðingur formaður hennar.
★ ★ ★
UNGBÖRN EIGA EKKI AÐ GRÁTA LENGI
AFSKIPT AL AUS
Enskur prófessor vill láta
hugga ungbörn, sem vakna á
nóttunni og skœla
Ef ungbarn vaknar á næt-
urnar og byrjar að gráta,
þá takið það upp, vaggið því
og gælið við það þangað til
það fer aftur að sofa.
Það er rangt að beita þeim
ráðum að láta barnið halda á-
fram að skæla, því að með því
verður það óvært og rellið og
sennilega geðstirt.
Þetta segir prófessor Illing-
worth, sérfræðingur í barna-
sjúkdómum við háskólann í
Sheffield. Þessar skoðanir hans
þykja stinga í stúf við hinar ný-
tízkulegu hugmyndir sálfræð-
inga, sem mjög hafa rutt sér til
rúms upp á síðkastið.
„Börn gráta til þess að fá að
njóta umhyggju og ástríkis eða
vegna þess, að þau eru einmana,
hrædd, svöng, eða þeim leiðist.
Það er háskalegt andlegu heil-
brigði ungbarna, að þau gráti
tímum saman, eða að móðir sé
fjarri þeim lengi í einu“.
Próf. Illingworth hefir ritað
grein í British Medical Journal
(Brezka læknablaðið) um þetta,
og segir meðal annars á þessa
leið:
„Aðskilnaður móður og barns
fyrstu þrjú ár barnsins getur
haft varanleg áhrif á skapferli
barnsins, gert það ásækið, til-
litslaust og eigingjarnt. Það er
ekki fært um að sýna né með-
taka ástríki, og það skeytir ekki
um rétt annarra. Þá er mjög
sennilegt, að langvarandi grátur,
þegar móðirin neitar að skipta
sér af barninu, geti haft mjög
skaðleg áhrif á barnið og síðar
meir orsakað alvarlega skap-
gerðarbresti. Það á ekki að ala
börn upp undir járnhæl, heldur
eiga foreldrar að koma til móts
við börnin, því að þá sýna börn-
in ástríki á móti. Hins vegar á
maður ekki að hlaupa til og taka
upp barn, þó að það skæli svo-
lítið eða það liggur rólegt. Með
því móti skemmir maður barnið
með of miklu eftirlæti, og það er
líka slæmt“, segir prófessor
Ulingworth.
Laugardalur
Skömmu fyrir síðustu áramót
var hafizt handa um að grafa
fyrir hinum nýju Sundlaugum
íþróttasvæðisins í Laugadalnum.
Jafnframt er byrjað að leggja
leiðslur frá laugunum og er
hugmyndin að almenningslaugin
verði steypt í ár. Laugarnar eru
staðsettar beint norður af leik-
vanginum út við Sundlaugaveg-
inn og eru nokkru austar og
sunnar en gömlu laugarnar.
Þetta verður mikið mannvirki
og leysir af hólmi gömlu laug-
arnar, sem hafa verið meira eða
minna í notkun til baða og sunds
í fimm aldarfjórðunga eða frá
því 1824.
Iþróttafulltrúinn tjáði Vísi
ennfremur að af 13 kaupstöðum
landsins vanti nú orðið hvergi
sundlaug nema í Húsavík og á
Sauðarkróki, en á báðum þessum
stöðum eru sundlaugabyggingar
nú hafnar svo að innan skamms
verða allir kaupstaðir á landinu
búnir að fá sundlaugar.
Sundlaugarnar á Sauðárkróki
og Húsavík hafa báðar verið
teiknaðar sem yfirbyggðar laug-
ar, þ. e. sundhallir og báðar njóta
þær jarðhita til hitunar. Sund-
laugin á Húsavík er það á langt
á veg komin að búið er að steypa
sjálfa þróna ásamt stéttunum í
kringum hana og ennfremur er
laugarhúsið, þ. e. búningsher-
bergi, baðherbergi, salerni, and-
dyri o. fl. nú fokhelt. Á Sauðár-
króki hafa undirstöðurnar verið
lagðar.
Laugar í kauptúnum
í kauptúnum með 300 íbúa og
fleiri, en þau munu vera 31 tals-
ins á öllu landinu, eru sundlaug-
ar til í 12 þeirra, en verið að
byggja sundlaugar í 5 til við-
bótar, þ. e. á Þingeyri, Selfossi,
Hrísey, Borgarnesi og Eskifirði.
Aðeins eina sýslu vanlar sund-
laug
Af 24 sýslum á Islandi er að-
eins sundlaugar vant í einni, en
það er Gullbringusýsla. En íbú-
arnir þar njóta sundstaða í nær-
liggjandi kaupstöðum, fyrst og
fremst í Hafnarfirði og Kefla-
vík en- einnig að meira eða
minna leyti í Reykjavík.
I Norður-Þingeyjarsýslu eru
tveir ófullnægjandi sundstaðir,
annarsvegar þró sem alls ekki er
ætluð sem sundstaður, en hefur
gufu til hitunar, hinsvegar uppi-
staða í á með tilheyrandi sund
skýli og er vatnið í ánni 15 stiga
heitt jafnt sumar sem vetur.
1 Vestur-Skaftafellssýslu er til
lítil sundlaug við heita upp-
sprettu í Skaptártungunum, en
vegna lágs hitastigs hefur þessi
laug verið minna notuð en skyldi.
Með tilliti til þess sem frá
hefur verið skýrt hér að framan
má segja að íbúar allra sýslna
landsins hafi orðið aðstöðu til
þess að senda börn sín til sund-
náms, án þess að um miklar
vegalengdir sé að ræða. En þrátt
fyrir það þarf að sjálfsögðu að
þétta laugakerfi landsbúa frá
því sem nú er* og miða nýjar
framkvæmdir fyrst og fremst
við staðháttu, svo sem landslag,
samgöngur og þéttbýli og koma
fyrst upp laugum í þeim sýslum,
sem hafa þess mesta þörf.
Endurbælur á sundstöðum
Verið er um þessar mundir að
lagfæra ýmsa sundstaði á land-
inu, gera þá og umhverfi þeirra
vistlegra, auka hollustuhætti við
þá og þar fram eftir götunum.
Má þar til nefna Reyki á Reykja
braut í Húnavatnssýslu, Efri-
Hrepp í Borgarfirði og þá síðast
en ekki sízt Akureyrarsundlaug,
en það er langstærsta aðgerð á
þessu sviði eins og sakir standa.
Þar er verið að byggja laugar-
hús og er þeirri framkvæmd svo
langt á veg komið að fyllstu
vonir eru til þess að Akureyring-
um megi auðnast að njóta þess-
ara endurbóta nú á þessa ári,
enda leggja þeir kapp á að ljúka
þeim. I laugarhúsi því, sem verið
er að byggja verður m. a. lítil
inni sundlaug, enda hafa Akur-
eyringar þess fulla þörf, því hit-
inn í aðallauginni bregzt jafnan
þegar kólnar í veðri og er þá
með öllu ónógur.
Fjárframlög
Sveita- og bæjasjóðir viðkom-
andi staða standa undir sund-
laugabyggingunum en oft hlaupa
ýms áhugafélög undir bagga
með fjársöfnunum og loks styrk-
ir íþróttasjóður þessar fram-
kvæmdir að allverulegu leyti.
Eins og kunnugt er veitir Al-
þingi íþróttasjóðnum, fé til fram
kvæmdanna, en undanfarin 6 ár
hefur sú fjárveiting verið nokk-
uð af skornum skammti, ekki
sízt með tilliti til hinna miklu
sundlaugaframkvæmda í land-
inu á þessum sama tíma. Fyrir
bragðið stendur íþróttasjóður í
allverulegri skuld við fram-
kvæmdaaðila. Á síðustu fjárlög-
um var fjárveiting til íþrótta-
sjóðs hækkuð nokkuð, en þó
ekki svo að hún mæti þörfunum
að fullu.
Láta mun nærri að þær sund-
laugar sem verið hafa í smíðum
undanfarin 8 ár, kosti um 8
milljónir króna. Upp í þann
kostnað hefur íþróttasjóður í
allverulegri skuld við fram-
kvæmdaaðila.
Láta mun nærri að þær sund-
laugar sem verið hafa í smiðum
undanfarin 8 ár, kosti um 8
milljónir króna. Upp í þann
kostnað h e f u r íþróttasjóður
greitt 1.6 millj. krónur, en skuld-
Skuggsjá
IndversJc harmsaga
Enda þótt hin framfarasinnaða
indverska stjórn leitist við að
koma í veg fyrir barnahjóna-
bönd, hafa 6,3% allra indverskra
drengja á aldrinum 5—14 ára og
14,5% allra indverskra stúlku-
barna á sama aldri þegar verið
látin stofna til hjúskpar!
Hvers vegna er höggorms-
tungan á sífelldu iði?
Hjá flestum dýrategundum
hefir eitt eða fleiri skilningarvit
þroskazt sérstaklega vel á
kostnað hinna — til dæmis sjá
fuglarnir býsna vel, en þefskynj
unin er á lágu stigi. Slöngurnar
sjá og heyra tiltölulega illa, en
aftur á móti hafa. þær óvenju
næma bragðskynjan í löngu,
klofnu tungunni, sem stendur í
sambandi við sérstök skynjunar-
líffæri. Þegar slangan teygir út
úr sér tunguna og hreyfir hana í
sífellu til og frá, verður hún vör
við bráð sína, þótt hún sé all
langt í burtu, því að lyktarefnin,
sem berast með vindinum, leys-
ast upp í tunguslíminu og berast
þaðan upp í skynjunarlíffærin,
svo að slangan veit, hvað á ferli
er, löngu áður en hún heyrir eða
sér nokkuð.
Vesalings sæfílarnir!
Sæfíllinn, sem er risavaxin
selategund, allt að fimm metr-
um að lengd, er alkunnur fyrir
hið háværa öskur sitt, sem sum-
um finnst líkast sársaukaöskri,
og hinn súra svip. Fyrir
skömmu tóku nokkrir vísinda-
menn sér fyrir hendur að rann-
saka, hvort sæfíllinn hefði
nokkra ástæðu til að vera svona
dapur í bragði — og þeir komust
að þeirri niðurstöðu, að hann
hefði fyllstu ástæðu til þess!
Rannsóknin leiddi nefnilega í
ljós, að flestallir sæfílar, jafnt
karlkyns sem kvenkyns, þjást af
magasári, og eins og menn vita,
bætir sá sjúkdómur alls ekki
skapsmunina!
Lífsháski við krýninguna
í London
Westminster Abbey, kirkjan,
þai: sem Englandsdrottning var
krýnd í fyrra, er á hraðri hrörn-
unarleið, eftir því, sem blaði
einu ensku sagðist frá fyrir
skömmu. — Múrveggir kirkj-
unnar eru orðnir svo tærðir og
lausir í sér af völdum rigninga,
þoku, frosts og ekki hvað sízt
eiturefna úr púströrum bifreið-
anna, að víða er nú hægt að
mylja veggina niður með berum
höndunum; súlurnar eru orðnar
svo hrörlegar, að þær standa
tæpast undir sjálfum sér og ein-
falt tréverk er því til varnar, að
þaksvalirnar falli niður í kirkj-
una. — Þessar upplýsingar hafa
fengið mikið á Englendinga, því
þeim datt fyrst í hug, hvað hefði
getað skeð, er orgeltónarnir
glumdu við á krýningardaginn.
Ungur stjórnmálamaður
gerir upp reikningana
Einn frambjóðendanna við
síðastliðnar kosningar í Ame-
ríku hefir tekið saman eftirfar-
andi yfirlit: Ég missti 1,360
klukkustunda svefn, og auk þess
ar orðið annað eins. Eins og að
líkum lætur hefur þetta lamað
verulega sundlaugaframkvæmd-
ir á ýmsum stöðum og það svo
að jafnvel hefur ekki verið snert
á verki árum saman, þar sem
annars var byrjað á byggingum.
Nær 90 sundslaðir til á landinu
Alls eru nú til 88 sundlaugar
og sundhallir á íslandi. Þar aí:
eru 7 opinberar sundhallir, 10
sundhallir við skóla og 1 sem er
í einkaeign. Opinberar sundlaug-
ar á landinu eru 46 að tölu, auk
þess 4 sundlaugar við skóla og
2 í einkaeign. Að flatarmáli
nema sundlaugar landsins yfir
12 þús. ferm.
— VISIR, 4. febr
missti ég tvær framtennur og
nokkra hártoppa, er ég lenti í
persónulegum útistöðum við
andstæðing minn. Ég varð að
kyssa 150 ungbörn, ég tók þátt
í slökkvistarfi við 25 eldsvoða
og bar við þau tækifæri samtals
75 fötur af vatni. Ég tókst í hend-
ur við rúmlega 9,000 manns,
sagði hérumbil 500 mismunandi
lygar og talaði svo mörg orð, að
nægt hefði til að fylla 10,000
bindi bóka. Ég hringdi 2,000
dyrabjöllum, og 39 hundar bitu
mig. Og svo féll ég við kosn-
ingarnar!
Fiskikönguló
Eitthvert furðulegasta dýrið í
hinum dæmalausa dýraheimi
Ástralíu er „fiskiköngulóin“.
Þegar kvöldar, kemur hún sér
fyrir á trjágrein og spinnur 4—5
cm. langan þráð, og er á enda
hans límkenndur hnúður. Síðan
heldur hún á þræðinum með
fremsta fætinum, réttir hann út
frá sér og kippir honum eld-
snöggt upp og niður, og lokkar
það næturfiðrildin í áttina til
hennar. Þegar fiðrildið er komið
nógu nærri henni, sveiflar
köngulóin þræðinum ofurlítið
lengra frá sér, svo að hnúðurinn
slæst í fiðrildið og það festist —
og eftir það á það sér engrar
undankomu auðið, en verður
köngulónni að bráð.
í stuttu máli sagt
Nýfæddur fílsungi er rúmlega
100 kg. að þyngd, en nýfæddur
kengúru-ungi er minni en mús.
— Á Montparnasse í París er
minnsta kaffihús í heimi. Þar
eru aðeins sæti fyrir fjóra gesti.
— Ameríkumaðurinn Laurens
Hammond, sá, sem fann upp
Hammondorgelið, er laglaus
með öllu og getur ekki lesið
nótur. — Sú fæðutegund, sem
mest er borðað af í heiminum,
er hrísgrjón. — Það tekur nærri
því heit ár að smíða, stilla og
setja saman hluti þá, sem þarf í
vandað armbandsúr.
Og sólin rann upp — ,
Austurrískt tónskáld, Heinz
Provost, tók árið 1953 þátt í
keppni, sem sænskt kvikmynda-
tökufélag efndi til. Semja átti
ag í kvikmyndina „Intermezzo“,
sem Ingrid Bergman varð fyrst
kunn fyrir að leika í. Provost var
aðeins stundarfjórðung að semja
lagið, en þrátt fyrir það vann
hann fyrstu verðlaun, 100
sænskar krónur. — Skömmu
síðar lögðu nazistar Austurríki
undir sig, og svo hófst stríðið,
og að því loknu var Provost
orðinn bláfátækur og veikur. —
Útlitið var allt annað en gott —
hann átti ekki völ á neinu starfi,
og oft urðu þau hjónin að fara
svöng 1 rúmið. En svo, fyrir ekki
ýkjalöngu, datt honum í hug í
þessum vandræðum sínum að
skrifa sænska tónskáldafélaginu
— það hafði þá haldið, að hann
væri látinn — og spyrja, hvort
hann hefði haft nokkrar auka-
tekjur af „Intermezzo“-laginu.
Svarið var á þessa leið: „Komið
strax! Við geymum 80,000 krón-
ur handa yður og peningarnir
streyma ennþá inn“.
Hernaðarháttvísi
Enskur hermaður, sem lokið
hafði herskyldu sinni í fótgöngu-
liðinu, tók í sig kjark eftir hina
löngu og erfiðu herþjónustu og
skrifaði höfuðsmanni þeim, er
hann hafði verið hjá, svofellt
bréf: „Eftir allt það, sem ég hef
orðið að þola í þjónustu yðar
undanfarin tvö ár, er mér sönn
ánægja að því að biðja yður og
herdeild yðar að fara til hel-
vítis!“ Skömmu síðar fékk hann
eftirfarandi bréf frá höfuðs-
manninum: „Allar tillögur um
tilfærslu á herdeildum Hennar
Hátignar verður að senda beint
til hermálaráðuneytisins á sér-
stöku eyðublaði, sem ég legg hér
með“.
— Heimilisblaðið