Lögberg - 11.08.1955, Blaðsíða 1

Lögberg - 11.08.1955, Blaðsíða 1
ANYTIME — ANYWHERE CALL Transit - Sargent Silverline Taxi 5 Telephone Lines 20-4845 ANYTIME — ANYWHERE CALL Transit - Sargent Silverline Taxi 5 Telephone Lines 20-4845 68. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 11. ÁGÚST 1955 NÚMER 32 Fréttabréf fró ríkisútvarpi íslands 24. JÚLÍ Tíðin var með svipuðum hætti síðastliðna viku og hin- ar næstu á undan, óstöðug og vindasöm, vindáttin oftpst á milli suðurs og vesturs. Ekk- ert lát hefir orðið á óþurrkun- um sunnanlands og vestan, en á norðausturlandi var oft bjart og gott veður í vikunni °g stundum mikil hlýindi. ☆ Undanfarna viku hefir ver- ið mjög misjafnt veður á síld- srmiðunum fyrir 'Norður- iandi, suma dagana hefir hvassviðri hamlað veiðum, en þó hefir afli verið dágóður. í hyrjun vikunnar fengu all- mörg skip töluverðan afla og sömuleiðis um og eftir miðja vikuna. Um síðustu helgi nam heildaraflinn á síldveiðunum samtals rösklega 47 þúsund ^álum og tunnum og var það aflamagn nálega helmingi uúnna en á sama tíma í fyrra, en hins vegar var aflaverð- *nætið því nær sama og í fyrra Vegna þess að meginhluti aflans hafði verið saltaður. Urn síðustu helgi hafði At- vinnumálaráðuneytið veitt 143 skipum síldveiðileyfi, en þá voru ekki öll þeirra farin fil veiða. Þá höfðu 115 skip fengið nokkurn afla og 37 þeirra 500 mál og tunnur hvert eða meira og aflahæst voru Jörundur með 2060 mál °g tunnur og Snæfell með 2027 mál og tunnur. Á mið- n*tti síðastliðinn þriðjudag nam heildarsöltunin á öllu Isndinu 60,745 tunnum. Á Siglufirði hafði þá verið salt- a® í 28,288 tunnur, á Raufar- böfn í 15,174 tunnur og á Dal- v*k í 5,975 tunnur. Mjög lítið af síldaraflanum fram að þessu hefir farið til bræðslu. fhðastliðinn fimmtudags- Itlorgun hvessti snögglega í S^ennd við Lundey og missti þá vélbáturinn Von II. bæði. nringnótabát sinn og nótina vélbáturinn Hrafn Svein- jarnarson missti nót sína í þessu veðri. ☆ Síðastliðinn þriðjudag von Iðin 25 ár frá því að fyrsti ahdin var lögð á land hj< ddarverksmiðjum ríkisins < Iglufirði. Þingályktunartil aga frá Magnúsi Kristjáns ®yni var samþykkt á Alþing arið 1927 um rannsókn á kosti aði við að byggja fullkomn; Sl darverksmiðju á hentugun stað á Norðurlandi. Áðu: hafði Óskar Halldórssoi y^stur manna hreyft hug ^yndinni um að ríkið setti ; stofn síldarverksmiðjur. Jóni Þorlákssyni var falin þessi rannsókn og að henni lokinni var samþykkt frumvarp þeirra Erlings Friðjónssonar og Ingvars Pálmasonar um stofnun síldarbræðslustöðvar á Norðurlandi. Var fyrsta síldarverksmiðjan reist á Siglufirði 1929—’30. Alls hafa síldarverksmiðjur ríkisins tekið á- móti um níu milljón- um mála síðan þær hófu starf- semi sína árið 1930. Einnig hafa þær tekið á móti miklu magni af karfa, ufsa og fisk- úrgangi. Með núverandi verð- lagi á lýsi og mjöli myndi útflutnirigsverðmæti fram- leiðslu Síldarverksmiðja rík- isins frá upphafi nema um 1150 milljón«m króna. Þegar allar sjö verksmiðjurnar eru starfandi vinna við þær 5—600 manns, en hin síðari ár hafa ekki verið nema 250 menn til starfa hjá verksmiðj- unum vegna aflaleysis. Fyrsti formaður í stjórn S.R. var Þormóður Eyjólfsson ræðis- maður á Siglufirði, en formað- ur verksmiðjustjórnar nú er Sveinn Benediktsson fram- kvæmdastjóri. Framkvæmda- stjórar eru Sigurður Jónsson og Vilhjálmur Guðmundsson. ☆ Samkomulag hefir nýlega verið gert milli ríkisstjórna Islands og Ungverjalands um að stofna til stjórnmálasam- bands milli landanna. Ráð- gert er að bráðlega verði skip- aðir sendiherrar í löndunum, sem þó munu hafa búsetu í þriðja landi. ☆ Vöruskiptajöfnuðurinn í síðasta mánuði varð óhag- stæður um 76,3 milljónir króna. Inn voru fluttar vörur fyrir rösklega 131 milljón króna og útflutningurinn nam 54,8 milljónum króna. Fyrstu sex mánuði þessa árs hefir vöruskiptajöfnuðurinn orðið óhagstæður um samtals 146,2 milljónir króna. Út hafa verið fluttar vörur fyrir 371,9 millj- ónir króna, en inn fyrir 518,1 milljón króna. Fyrstu sex mánuði ársins 1954 varð vöru- skiptajöfnuðurinn óhagstæð- ur um 119,5 milljónir króna. Fyrstu sex mánuði þessa árs hafa verið fluttir inn bílar fyrir 41,5 milljónir króna, en á sama tímabili í fyrra voru fluttir inn bílar fyrir 10,8 milljónir króna og hefir bif- reiðainnflutningurinn fyrstu sex mánuði þessa árs nær því Framhald á bls. 4 SJÖTÍU OG FIMM ÁRA EINAR PÁLL JÓNSSON (Sjá afmælisgrein dr. Richards Beck á ritstjórnarsíðu) Úr borg og bygð Á þriðjudaginn 9. þ. m. barst séra Robert Jack í Ár- borg símskeyti frá Biskups- skrifstofunni í Reykjavík þess efnis að hann hafi hlotið lög- lega kosningu sem prestur í Tjarnar- og Vesturhópshóla- sóknum í Húnavatnsprófasts- dæmi. Gerir hann ráð fyrir að flytja til íslands í næsta mánuði, og taka við embætti þessu. ☆ Séra Haraldur S. Sigmar á Gimli hefir nýlega fengið prestsköllun frá söfnuði í bænum Kelso í Washington- ríkinu. Gerir hann ráð fyrir að taka köllun þessari og flytja vestur í næsta mánuði. ☆ Séra Ólafur Skúlason hefir hlotið einróma köllun frá Mountain prestakalli í Norður Dakota. Hefir hann tekið kölluninni og mun bráðlega hefja starf sitt þar syðra. ☆ Séra Bragi Friðriksson að Lundar hefir hlotið einróma köllun frá Gimli prestakalli. Hefir hann tekið kölluninni og mun flytja til Gimli í næsta mánuði. ☆ Mr. Björgvin Guðmundsson tónskáld, sem dvelur um þessar mundi hér í borginni biður þess getið, að síma- númer hans sé 74-8004. Mr. Sigurður Torfason frá Vancouver, B.C., leit inn á skrifstofu blaðsins nýlega; hann hefir verið hér eystra á ferðalagi í heimsókn til gam- alla kunningja og vina. Bændur fró Ontario í heimsókn Hinn 20. júlí síðastliðinn komu hingað til borgarinnar níutíu bændur austan frá Ontario til að kynnast með eigin augum búnaðarháttum stéttarbræðra sinna í Sléttu- fylkjunum þremur, Manitoba, Saskatchewan og Alberta; til heimsóknar þessarar er stuðl- að af hálfu þeirra samtaka, er ganga undir nafninu The Ontario Crop Improvement Association; þessir sendiboðar góðviljans að austan, heim- sóttu megin búnaðarhéröðin umhverfis Winnipeg, Saska- toon, Edmonton, Calgary og Regina og þeir fóru einnig í skemtiferð til Jasper Natíonal Park. Fararstjóri var W. J. Schneller frá Baden, Ont., sem er víðkunnur sérfræðingur í kornrækt og kvikfjárrækt. — Heimsóknir þessarar tegund- ar hafa mikið og holt kynn- ingargildi. Þetta blað er gefið út í fjar- veru ritstjórans, sem er nú, ásamt frú sinni, á skemmti- ferð suður í Bandaríkjum. íslenzk myndasýning Kjartan Ó. Bjarnason sýnir litkvikmynd sína af íslandi þriðjudagskvöldið 16. ágúst kl. 8.30 í Góðtemplarahúsinu við Sargent. Á undan sýningunni mun Finnbogi Guðmundsson segja frá ferðalagi þeirra félaga um íslenzku byggðirnar undan- farnar vikur. Eins og áður hefur verið getið, verður lögð áherzla á að sýna ýmsa þá þætti ís- lenzks þjóðlífs, er menn vestra hafa lítt eða ekki séð áður á kvikmynd. SamskoJ verða tekin í sýningarlok. Þinglausnir Síðari hluta fimtudags, 28. júlí s.l., fóru fram þinglausnir í Ottawa og hafði sambands- þing þá setið á rökstólum í 140 daga, haft til meðferðar mikinn sæg nýrra mála, auk margra og róttækra laga- breytinga;v umræðurnar um fjárlagafrumvarp stjórnarinn- ar urðu langar og næsta heitar með köflum; í öllum atriðum þar að lútandi hafði stjórnin sitt fram, enda hefir hún nægu þingfylgi á að skipa; áætluð útgjöld á fjár- hagsárinu 1955—1956 nema $4,507,900,000, en þó er gert ráð fyrir nokkrum rekstrar- ágóða. Aðaldeilumálið á þingi snerist um það, hvort verzl- unar- og birgðamálaráðherr- anum, Mr. Howe, skyldi veitt ótakmarkað einveldi varðandi framleiðslu til hervarna eða ekki, en slíks valds krafðist hann; stjórnarandstaðan var undantekningarlaust mótfall- in slíku einræði, og að lokum slakaði stjórnin þannig til, að valdaheimild ráðherrans skyldi bundin við þrjú ár. Vísa Farinn að dalla ögn við elli, um það spjalla fátt; stend í halla á hálu svelli, hlýt að falla brátt. Lárus Nordal ----0--- Nýja húsið Alt fram í Ragnarökkur — um rjúkandi örlaga sæ — hamingjan blessi og haldi hendi yfir Nordals-bæ. Jónbjörn 'UBH ‘S Sadiuut^ riS Sutuueg S9i UBf uosuaofg g 1 •

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.