Lögberg - 15.09.1955, Blaðsíða 1
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
Transit - Sargent
Silverline Taxi
5 Telephone Lines
20-4845
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
Transit - Sargent
Silverline Taxi
5 Telephone Lines
20-4845
68. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 15. SEPTEMBER 1955
NÚMER 37
Metár freðfiskframleiðslunnar
„Fishsficks" vestur í Ameríku
Frá aðalfundi Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna
AUK FULLTRÚA og stjórn-
** ar taka þátt í fundar-
störfunum framkvæmdastjór-
ar S. H., Björn Halldórsson og
Jón Gunnarsson, svo og for-
stjóri skrifstofu S. H. í New
York, Gunnlaugur Pétursson
°g Magnús Z. Sigurðsson for-
stjóri fyrir skrifstofunni í
Hamborg. Hafa þeir flutt
skýrslur um söluhorfur í hin-
ýmsu Evrópulöndum og
Handaríkjunum.
Metárið 1954
Sem fyrr segir var árið
1954 metár í framleiðslu
Ókeypis berklaskoðun
Sanitorium Board of Mani-
toba ætlar nú i fyrsta skipti
að framkvæma X-geisla
berklaskoðun meðal fiski-
^anna á Winnipegvatni. Er
skoðunin ókeypis. Er talið að
kér sé um 900 fiskimenn að
r*ða. Skoðunin byrjar 20.
september og henni lýkur 8.
okt. Fylkisstjórnin hefir lánað
stóran bát til að flytja hin
nauðsynlegu rannsóknartæki
a nailli fiskistöðvanna.
Lögð af stað til íslands
Ungfrú Lilja Eylands
Síðastliðið sunnudagskvöld
lagði af stað héðan úr borg
austur til New York og þaðan
aleiðis til íslands, ungfrú Lilja
%lands, er lauk Bachelor of
Arts prófi við Manitoba-
^áskólann í vor, sem leið, og
la§ði meðal annars mikla rækt
Vlð íslenzkunám við íslenzku
^ensludeildina; hlaut hún að
loknu prófi álitlegan styrk,
svo sem áður hefir verið skýrt
lra. til ársnáms í íslenzkri
^ngu og bókmentum við
Háskóla Islands.
frystihúsanna innan vébanda
Sölumiðstöðvar hraðfrystL
húsanna. Nam framleiðslan
alls 40,000 lestum, á móti
23,000 lesta framleiðslu árið
á undan. Árið 1954 hækkaði
fiskverð um 15% og margs
konar annar tilkostnaður
hækkaði. Langsamlega mest
var framleitt af þorsflökum,
eða 24,800 lestir, af karfa
11,400 lestir. Þá voru fram-
leiddar fyrir Pólland og
Austur-Þýzkaland rúmlega
900 lestir af frystri síld, og
470 lestir af söltuðum þorsk-
roðum til límframleiðslu í
Bandaríkjunum.
Af fiskframleiðslunni var
mest selt til Bandaríkjanna
16,000 lestir og til Sovét-
Rússlands 14,300 lestir, Tékkó
slóvakíu 5,800, ísrael rúm-
lega 1,100 og Austur-Þýzka-
lands rúmar 1000 lestir. —
Alls voru markaðslöndin 10
og nam heildarsalan alls um
54 milljónum króna.
Vaxandi gæðakröfur
Kröfur markaðslandanna
um gæði og frágang fara stöð-
ugt vaxandi. Enn verður að
leggja áherzlu á vöruvöndun,
enda þótt stórt spor hafi verið
stigið í þá átt á liðnum tveim
árum, segir í skýrslu stjórn-
arinnar, en hana flutti á fund-
inum Elías Þorsteinsson fram
kvæmdastjóri og formaður fé-
lagsstjórnar Sölumiðstöðvar-
innar.
„Fishslicks"-verksmiðjan
Á árinu 1954 keypti S. H.
vélar og leigði hús í Mary-
land-fylki á austurströnd
Bandaríkjanna til þess að
framleiða hinn vinsæla fisk-
rétt Bandaríkjamanna „Fish-
sticks‘“. Þessi fiskréttur er
Kjörinn í
virðingarstöðu
Mr. John A. Vopni
A nýafstöðnu ársþingi viku-
blaðasambandsins canadiska,
The Canadian Weekly News
papers Association, var Mr.
John A. Vopni, kjörinn forseti
þessa áhrifamikla og út-
breidda félagsskapar; þingið
var haldið í Vancouver. Mr.
Vopni er eigandi og útgefandi
vikublaðsins The Davidson
Leader, Davidson, Sask., sem
orðið er fyrir löngu víkunnugt
og vandað mjög að frágangi;
hann er starfsmaður mikill og
vinsæll að sama skapi; viku-
blaðafélagið á honum mikið
upp að unna, svo sem ráða má
af því, að í tilefni af hálfrar
aldar afmæli Saskatchewan-
fylkis, átti hann bróðurhlut-
ann í því að vikublöðin þar
vestra fengju yfir $50,000 í
auglýsingum í hátíðarútgáfur
sínar.
Hinn nýi forseti er fæddur
í Winnipeg 1898, sonur hinna
kunnu hjóna, Mr. og Mrs. J. J.
Vopni, sem bæði eru á lífi \
þessari borg; hann nam prent-
iðn sína í prentsmiðju Lög-
bergs; fjórir bræður hans
gerðu einnig prentiðn að lífs-
starfi sínu.
Vinir Johns og þeir eru
margir, samfagna honum í
hans nýja og ábyrgðarmikla'
verkahring.
Úr borg og bygð
FRÓNS-fundur
Eins og áður hefir verið
auglýst verður Frónfundur í
G. T.-húsinu 3. október n.k..
Helzta skemmtiatriðið verður
kappræða, og verða þátttak-
endur, sem hér segir:
Frú Hólmfríður Danielson
Frú Ingibjörg Jónsson
Tryggvi J. Oleson
Heimir Thorgrímsson.
Rætt mun verða málefni,
sem snertir þjóðræknisvið-
leitni Islendinga hér vestra og
verður nánar frá því skýrt í
næsta blaði. FRÓNS-nefndin
☆
Miss Linda Hallson, dóttir
Mr. og Mrs. Paul Hallson,
Winnipeg, hefir dvalið í
Traverse City, Michigan, í
sumar. Þar lék hún í leikriti
með hinni frægu sænsku leik-
konu, Signe Hasso; enn-
fremur teiknaði hún og útbjó
leiktjöld fyrir leikfélagið þar.
Miss Hallson lauk prófi í
Interior Design við Manitoba-
háskóla og tók mikinn þátt í
leikstarfsemi skólans; var hún
tvisvar valin til að fara með
aðalhlutverkin í leiksýningum
hans og hlaut mikið lof fyrir
frammistöðu sína.
☆
Vinsæl ritgerð
Ritgerð sú um fimmtíu ára
afmæli skilnaðar Noregs og
Svíþjóðar, sem dr. Richard
Beck birti nýlega í Grand
Forks Herald og getið var í
ritstjórnargrein í Lögbergi,
hefir vakið athygli og orðið
vinsæl meðal Norðmanna
vestan hafs. Var hennar getið
sérstakléga í ritstjórnargrein
í Decorah-Posten, útbreidd-
asta blaði þeirra, og endur-
prentuð í ágústhefti Sons of
Norway, málgagni hins víð-
tæka þjóðernislega félags-
skapar þeirra með því nafni,
sem hefir fjölda deilda í
Bandaríkjunum og Kanada.
☆
Litmyndir frá Utah-hátíðinni
Marga íslendinga mun fýsa
að fá fréttir af 100 ára hátíða-
haldi landa vorra suður í
Spanish Fork, og mun Hólm-
fríður Danielson segja frá því
og ýmsar aðrar fréttir af ís-
lendingum þar syðra á sam-
komu, sem eldra kvenfélagið
heldur í Fyrstu lútersku
kirkju í Winnipeg á fimtu-
dagskvöldið 15. þ. m., kl. 8.
Kristín Johnson sýnir lit-
myndir frá hátíðinni og Salt
Lake City, Utah, og ferðalagi
sínu meðfram ströndinni;
einnig af Blaine-hátíðinni o. s.
frv.
Kaffiveitingar — samskot
tekin.
Framhald á bls. 8
Grettir!
Nú hverfið þið vestur frá regni og rosa,
í reyndinni samt mun í hug ykkar brosa
landið með jöklana og jarðgrænar sveitir,
það jafnan í hjarta ykkar töfraland heitir.
Þó úti á sléttunum auðurinn bíði
er afrekið mesta sú brúgerð og smíði,
er saman má föður- og fósturland tengja,
þó fjörður sé milli hinna kynbornu drengja.
Það ættarhnoss mun ykkar æfilangt bíða
með íslenzkri mannslund að vinna og stríða,
Þó einhverjum verðmætum forlögin fargi
skal fagurt um Gretti og Ásdísi á Bjargi.
Þinn,
15. ágúst 1955 ÁRNI G. EYLANDS
Mrs. B. S. Benson
Honored
At the meeting of the Jon
Sigurdson Chapter, I.O.D.E.,
held at the University
Women’s club, Westgate, last
Friday night, the chapter pre-
sented Mrs. B. S. Benson, the
regent, with a life member-
ship in the Manitoba Pro-
vincial chapter of the Imperial
Order Daughters of the Em-
pire, in recognition of her
long and faithful service to the
chapter. Mrs. Benson has
served as vice-regent for six
years and as regent for ten
years.
Mrs. J. B. Skaptason, honor-
ary regent of the chapter,
reád a tribute to Mrs. Benson
expressing the deep apprecia-
tion of the chapter members,
and presented her with the
life membership certificate
and a corsage of roses. Mrs.
N. A. McMiIlan, Municipal
regent, presented the life
membership pin to Mrs. Ben-
son, and Mrs. W. A. Trott,
Provincial president, who was
absent from the city, sent a
telegram of congratulations.
Letters of congratulations.
were also read from two
members of the Jon Sigurdson
chapter, who could not be
present.
Mrs. Benson warmly than-
ked the members for thus
honoring her, and expressed
her appreciation and thanks
to the members for loyal sup-
port and cooperation during
her years of office. H. D.
Stofna til sljórnmálasambands
Heimsókn Dr. Adenauers
ríkiskanslara til Moskvu hefir
leitt til þess, að V.-Þýzkaland
og Rússland hafa ákveðið að
stofna til sendiherrasambands
sín á millum.