Lögberg - 15.09.1955, Page 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 15. SEPTEMBER 1955
Úr borg og bygð
Hr. Guðni Þórðarson með-
ritstjóri við dagblaðið Tímann
í Reykjavík, kom hingað til
borgar á fimtudaginn var
ásamt frú sinni, Sigrúnu Jóns-
dóttur; er hér um að ræða
glæsileg hjón, sem ánægju-
legt var að kynnast; frú Sig-
rún á móðurbróðir hér í borg,
Gunnar Erlendsson hljóm-
listarkennara; þau Guðni og
frú höfðu þegar heimsótt
ýmissar íslendingabygðir í
Bandaríkjunum, svo sem
Washington Island, Minneota
og North Dakotabygðarlögin;
þeim var umhugað um, að
kynnast Islendingum norðan
landamæranna og þess vegna
brugðu þau sér norður til
Nýja-íslands í lok vikunnar.
Guðni er maður óvenju víð-
förull; hann hefir heimsótt
Tyrkland, Grikkland, Meso-
potamíu, Egyptaland, og ferð-
ast um eyðimerkur Arabíu, og
um þessi ferðalög'hefir hann
svo ritað pistla fyrir blað sitt
Tímann, sem vakið hafa mikla
athygli, og er heim kemur
mun hann rita nokkrar grein-
ar um heimsókn þeirra hjón-
anna til Islendingabygðanna
vestan hafs.
☆
Stefán Einarsson ritstjóri
Heimskringlu fór vestur til
Vancouver, B.C., á fimtudags-
morguninn í vikunni, sem
leið, til að sitja þar ársþing
vikublaðasambandsins, sem
stendur yfir þar í borg frá 12.
til 14. þ. m. En hann átti einnig
BLOOD BANK
T H I S
SPACI
CONTRIBUTED
BV
WINNIPEG
BREWERY
L I M I T E D
MD-365
fleiri erindi vestur, því sonur
hans er búsettur í Vancouver
og dóttir í Seattle, Wash.
☆
Mr. P. O. Einarsson kaup-
maður að Oak Point, Man.,
brá sér flugleiðis til íslands
frá New York á mánudaginn
í fyrri viku; gerði hann ráð
fyrir að dvelja um hálfsmán-
aðartíma á íslandi.
* ☆
Norræna félagið The Viking
Club hefir nú lokið undirbún-
ingi að Smorgasbord og dans-
skemtun í Vasalund Park,
Charleswood, á laugardaginn
hinn 17. þ. m., og hefst borð-
hald kl. 6.30 e. h. Má þess
vænta, að fjölmenni mikið
safnist þar saman með því að
þetta verður fyrsta samkoma
klúbbsins eftir sólríkt sumar-
frí; gert er ráð fyrir að dans
hefjist um níuleytið.
Aðgangur að máltíð og
dansi $2.50, auk hressingar-
miða fyrir skuldlausa með-
limi; aðgöngumiðar fyrir
utanklúbbsmeðlimi $3.00, en
$1.00 fyrir þá, er einungis
sækja dansinn.
Dragið ekki á langinn að
tryggja yður aðgöngumiða hjá
framkvæmdarnefndinni, eða
hringið til Mrs. M. Norlen, 283
Beverlev Street. SU-33962.
☆
Jon Sigurdson Chapter Tea
The Jon Sigurdson Chapter,
I.O.D.E., will hold its annual
Fall Tea and Sale, on Satur-
day, September 24, from
2-4.30 in the afternoon, at the
T. Eaton Assembly Hall
(seventh floor).
Mrs. A. F. Wilson is general
convener, with Mrs. G. Gott-
fred, Mrs.. H. A. Bergman and
Mrs. H. Skaptason as tea table
conveners. Mrs. T. Hannesson
and her aids will be in charge
of the home cooking table,
where all manner of delec-
table goodies will be for sale.
Mrs. E. W. Perry and Miss
Vala Jonasson will, as usual,
have a wonderful display of
all kinds of novelty goods,
some of them most excep-
tional values to be carried
away by gleeful customers for
only a few cents.
Mrs. E. J. Helgason will be
in charge of the handicraft
Booth, which last year was a
new innovation at the tea and
which met with immediate
success.
Tþe regent Mrs. Benson
will receive the guests, as-
sisted by Mrs. N. A. McMillan,
Municipal regent and Mrs. W.
A. Trott, Provincial president.
Every year our friends look
forward to this first tea of the
fall where friends can meet
and compare notes on their
varied and interesting sum-
mer activities.
H. D.
☆
Kristjana læknir Helga-
dóttir frá Hafnarfirði kom til
borgarinnar í fyrri viku; hefir
hún í hyggju að dvelja hér í
vetur og stunda sérfræðinám
i kvensjúkdómum.
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Allir ævinlega velkomnir
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 18. sept.
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli á hádegi
Ensk messa kl. 7 síðd.
Fólk boðið velkomið!
S. Ólafsson
☆
United Lutheran Church
of Silver Heights
Services in the St. James
Y. M. C. A., Ferry Road, (just
off Partage).
Sunday Sept. 18th:
Sunday School at 9.45 a. m.
Worship Service 11 a.m.
Sermon: “Why worry?”
Eric H. Sigmar
Giftingar framkvæmdar af
séra Sigurðí Ólafssyni:
í kirkju Selkirksafnaðar 2.
júlí:
Percy Ray Crawford (Sid-
ney, N. S.) R.C.A.F, Gimli,
og Georgia Margaret Isfeld,
Gimli, Man.
í kirkju Selkirksafnaðar, 16.
júlí:
Gerhard Gustav Beck, Sel-
kirk, Man, og Beverley Joan
Fiebelkom, sama stað.
í kirkju Selkirksafnaðar, 3.
september:
Freeman Arthur Mclntyre
(Louisburg, Cape Breton,
N. S.) R.C.A.F, Gimli, og
Doris Helen Uuschrum, Pen-
brandt, Man.
í Fyrstu lútersku kirkju, 3.
september:
Robert Aifred Schnerch,
Winnipeg, og Hilda Elenore
Skagfjörð, sama stað.
í kirkju Selkirksafnaðar, 4.
september:
Leonard Murry Ogilvie (Glou
Bay, N. S.) R.C.A.F, Gimli,
og Shirley Arline Miller,
Gimli, Man.
☆
Mr. ólafur Hallsson kaup-
maður frá Eriksdale kom til
borgarinnar á mánudaginn á
leið í heimsókn til vina sinna
í Vatnabygðum í Saskat-
chewan.
☆
Mr. Einar Svanbergsson for-
stjóri frá Antikokan, Ont,
kom til borgarinnar á þriðju-
daginn og ráðgerði að dvelja
hér nokkra daga.
Á sunnudaginn kemur, 18.
sept. kl. 2 e. h. verður séra
Ólafur Skúlason settur í em-
bætti í Mountain-prestakalli.
Auk forseta Kirkjufélagsins,
dr. Valdimars J. Eylands, taka
þátt í athöfninni þeir séra S.
Guttormsson í Calavalier,
N.D, séra Haraldur Sigmar,
fyrrum Gimli-prestur, og ef
til vill einnig séra Robert
Jack. Séra Ólafur flytur að-
fararræðu sína við þetta tæki-
færi.
☆
Séra Eric H. Sigmar, stýrir
guðsþjónustunni og flytur
prédikun á íslenzku í Fyrstu
lútersku kirkju á sunnudags-
kvöldið kemur, 18. sept. kl. 7
e. h. Ræðuefni hans verður:
,,Brennandi í andanum.“
☆
Mr. Bjarni Sveinsson frá
Vancouver, B.C, sem dvalið
hefir hér eystra í mánaðar-
tíma, lagði af stað heimleiðis
á mánudaginn; kom hann víða
við á dvöl sinni á þessum slóð-
um og hitti fjölda vina, er
fögnuðu komu hans, enda vel
liðinn maður hvar, sem spor
hans hafa legið. Hann bað
Lögberg að flytja öllum vin-
um sínum hjartanlegar kveðj-
ur fyrir ástúðlegar viðtökur.
☆
Síðastliðinn mánudagsmorg-
un lézt að heimili sínu, 22
Fermoré Rd, St. Vital, Hall-
dór Jóhann Olafson, fæddur
14. september 1894 að Hensel,
N. Dak, en fluttist á barns-
aldri til Winnipeg. Hann tók
þátt í fyrri heimsstyrjöldinni
sem meðlimur í 3rdBattalion
Royal Canadian Engineers;
hann gaf sig lengi við múr-
húðun og annari byggingar-
vinnu; hann lætur eftir sig
aldurhnigna móður, frú Thor-
gerði Olafson og tvö systkini,
Jenny og Kjartan.
Útförin fer fram í dag
(fimtudag) kl. 2 e. h. frá
Gardiner útfararstofu. Dr.
Valdimar J. Eylands jarð-
syngur.
☆
Hinn 9. ágúst síðastliðinn
voru gefin saman í hjónaband
í St. Peters Anglican Church
þau Miss Elaine Doris Erick-
son og Raymond Ólafur John-
son; foreldrar brúðarinnar eru
Mr. og Mrs. Arnold Erickson
að Campbell River, B.C, en
brúðguminn er sonur Mr. og
Mrs. Ólafur Johnson að Vogar,
Man. Rev. J. Pitus fram-
kvæmdi hjónavígsluna. Svara
menn voru Miss Beverley
systir brúðarinnar og bróðir
brúðgumans, Leo. Að vígslu-
athöfn aflokinni var setin
virðuleg veizla í Scout Hall.
☆
Ian M. Morrow og Miss
Doreen West voru gefin
saman í hjónaband laugar-
daginn 3. ágúst í Deer Lodge
United Church. Brúðguminn
er sonur Emmu Jóhannesson
M^rrow og dr. James Morrow,
bæði látin. Hann stundar
læknisnám í Winnipeg. —
Heimili ungu hjónanna verð-
ur í Elsinore Apts. hér í borg.
Dánarfregn
Hinn 21. ágúst s.l. lézt í
bænum Brisbane, California,
Mrs. Frank Wolf. Banamein
hennar var heilablóðfall; hún
var fædd í Brandon, Man, 6.
janúar 1895; foreldrar hennar
voru þau Mr. og Mrs. Guð-
mundur Guðbrandsson —
(Brown). Árið 1899 fluttist
hún með foreldrum sínum til
Winnipegosis og naut þar
barnaskólamnntunar; fram til
26 ára aldurs vann hún sleitu-
laust að margbreyttum störf-
um, unz hún innritaðist til
hjúkrunarnáms í Youngstown
í Ohioríkinu, en framhalds-
nám stundaði hún við Mount
Sinai-sjúkrahúsið í Chicago,
og einnig við sjúkrahús að
Spokane, Wash, og í Oakland.
Hinn 6. dag janúarmánaðar
giftist þessi hógværa kona
eftirlifandi manni sínum, Mr.
Frank Wolf. Hún lætur eftir
sig fjóra bræður og fjölskyld-
ur þeirra, Georg og Markús í
San Francisco, Ingvar (James)
í Pasadena, Cal, og Harald
(Harry) í Winnipegosis; um
hina látnu má réttlega segja,
að hún hafi helgað ævi sína
því göfuga hlutverki, að lina
þjáningar sam^erðamanna
sinna, þeirra, er hún náði til;
megi sá friður, sem æðri er
öllum skilningi umvefja sál
þessarar horfnu systur.
George Brown
San Francisco, Cal.
Metór freðfisk-
framleiðslunrtar . . .
Framhald af bls. 1
nýjung þar vestra. Hin blokk-
frystu fiskflök eru söguð
niður í renninga, sem lagðir
eru í brauðmylsnu og mjólk
og síðan steikt. En að því
loknu er búið um hinn til-
búna mat í litlum pappaöskj-
um og hann hraðfrystur og
síðan seldur í matvörubúðir
sem tilbúinn matur, sem að-
eins þarf að hita upp. Verk-
smiðja þessi er tvímælalaust
ein merkasta nýjnung á sviði
fisksölumála , íslendinga um
árabil.. Eru miklar vonir við
þessa stofnun tengdar, um að
hún eigi eftir að skapa enn
aukinn markað í Bandaríkj-
unum fyrir íslenzk fiskflök. —
Síðan árið 1945 er S. H. tók
að hefja innflutning á fisk-
flökum til Bandaríkjanna,
hefir markaðurinn þar aukizt
með hverju ári.
—Mbl, 15. júní
NIGHT SGH001
Grades 7-8-9-10-11
OPENING THIS WEEK
FRITH SCHOOL
462 Furby St. Winnipeg
(at Ellice)
SUnsel 3-6297