Lögberg - 22.09.1955, Qupperneq 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 22. SEPTEMBER 1955
Slíkt hrakviðrasumar hefir ekki komið á
Suðurlandi á þessari öld
Úr borg og bygð
Séra Robert Jack, fyrrum
prestur í Árborg, lagði af stað
síðastliðið sunnudagskvöld
austur til Toronto og dvelst
þar 1 nokkra daga; fjölskylda
hans kemur til móts við hann
í Montreal og siglir þaðan til
Skotlands. Séra Robert hefir,
svo sem kunnugt er, verið
kjörinn prestur í Tjarnar-
prestakalli í Húnavatnssýslu
og tekur við embætti sínu
jafnskjótt og heim til Islands
kemur. Mrs. Jack mun dvelja
á Skotlandi í vetur hjá tengda
móður sinni ásamt börnum
sínum.
Lögberg árnar séra Robert
og sifjaliði góðs brautar-
gengis.
☆
Allan Björn Frederiksson,
sonur prestshjónanna í Glen-
boro, lagði af stað s.l. viku til
Minneapolis, þar Sem hann
stundar nám við University of
Minnesota. Allan var í her-
þjónustu í tvö ár og rúmt ár
í Japan og Korea. Hann legg-
ur fyrir sig Agriculture and
Animal Husbandry.
☆
Jón Hördal að Lundar varð
85 ára á sunnudaginn, 18.
september. Kvöldið áður
söfnuðust vinir hans og
frændfólk saman honum til
heiðurs á heimili sonar hans,
Vigfúsar. Jón er allvel ern;
hann var fyrrum hinn mesti
hlaupagarpur og vann mörg
verðlaun fyrir sigra í þeirri
íþrótt. — Lögberg flytur hon-
um heillaóskir í tilefni af
afmælinu.
☆
Þeir Mr. J. Th. Beck for-
stjóri og Mr. Stefán Einarsson
ritstjóri, komu heim um helg-
ina vestan frá Vancouver,
B.C., þar sem þeir sátu árs-
þing vikublaðasambandsins
canadiska.
☆
Sunnudaginn þ. 11. septem-
ber voru skírð í Argyle presta
kalli, Aslene Gay, dóttir Mr.
og Mrs. F. B. Björnsson,
Melvin Roy og Richard
Kenneth, synir Mr. og Mrs.
S. J. Shristie.
☆
Framar Eyford frá Vogar
gekk undir uppskurð á mánu-
daginn á General Hospital, er
tókst vel, en hann getur ekki
tekið á móti vinum sínum fyrr
en hann nær sér aftur og fer
að hressast.
☆
Jon Sigurdson Chapter Tea
The Jon Sigurdson Chapter,
I.O.D.E., will hold its annual
P’all Tea and Sale, on Satur-
day, September 24, from
2—4.30 in the afternoon, at the
T. EATON Assembly. Hall
(seventh floor).
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Allir ævinlega velkomnir
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Súnnud. 25. sept.:
Ensk messa kl. 11 árd. —
Church Parade of Business,
Professional Women’s Club of
Selkirk.
Sunnudagaskóli á hádegi.
íslenzk messa kl. 7. síðd.
Fólk boðið velkomið.
S. Ólafsson
☆
United Lutheran Mission
of Silver Heights
Services in the St. James
Y. M. C. A., Ferry Road, (just
off Partage).
Sunday, Sept. 25th:
Sunday School at 9.45 a. m.
Worship Service 11 a.m.
This Sunday is “Laymen’s
Sunday” at United Lutheran.
Three laymen will take
charge af the service: Mr.
Neil Bardal will bring the
message on “Spiritual Ex-
periences in a Prison Camp.”
Mr. Bill Pálsson will read the
liturgy, and Mr. G. Morris
will read the Scripture
lessons.
Eric H. Sigmar
Séra Eric H. Sigmar fór
austur til Toronto á sunnu-
dagskvöldið til að sitja þar
fyrir hönd Kirkjufélagsins
fund í Evangelism Confer-
ence„ sem verður haldinn 20.
og 21. þ. m. Þaðan fer hann
til Appleton, Wis., og flytur
þar ræðu á ársfundi Lutheran
Men’s Clubs í ríkinu. Séra
Eric er væntanlegur heim
þann 28. þ. m.
☆
Á laugardaginn var fór fram
mjög fjölmenn hjónavígslu-
athöfn í Fyrstu lútersku
kirkju. Gaf séra Valdimar J.
Eylands þá saman þau
Alvin Kristján Sigurðsson og
Auroru Joyce Thordarson.
Er brúðguminn einkasonur
Kristjáns B. Sigurðssonar
kennara og Bjargar konu
hans; en brúðurin er einka-
dóttir Johns skrifstofustjóra
Thordarson og Auroru konu
hans. Eru brúðhjónin hin
glæsilegustu ungmenni. Brúð-
armær var Betty Thordarson,
kona Donalds læknis í Mad-
dock, N.D. bróður brúðar-
Enn rigndi mikið á Suður-
landi í fyrrinótt og gær,
svo að bændur gátu ekk-
ert átt við að bjarga heyi
því, sem flatti í hvass-
viðrinu í fyrradag, og
innar. Brúðarsveinn var O.
Donald Olsen, stud. theol. frá
Minneapolis. Mrs. Unnur
Simmons, móðursystir brúð-
arinnar, söng einsöngva. Að
afstaðinni hjónavígslu fór
fram mjög myndarleg brúð-
kaupsveizla á Hotel Assini-
boine í St. James. Mr. Hugh
Hannesson mælti fyrir minni
brúðarinnar. — Ungu hjónin
munu mynda heimili í Winni-
peg. — Lögberg óskar þeim til
hamingju.
☆
Hr. Guðni Þórðarson með-
ritstjóri Tímans í Reykjavík,
sem verið hefir undanfarandi
daga á ferð hér um slóðir
ásamt frú sinni, Sigrúnu Jóns-
dóttur, kom norðan úr Nýja-
íslandi á miðvikudagskvöldið
í fyrri viku; höfðu þau hjón
heimsótt Gimli, Riverton og
Árborg, og farið alla leið
norður til Mikleyjar; þau
fengu. ágætt veður og nutu
mikillar ánægju af heim-
sókninni; þau heilsuðu upp á
Guttorm skáld í Riverton og
kváðust hafa átt þar ógleym-
anlegum viðtökum að fagna.
Þau Guðni og frú fóru héð-
an á fimtudaginn vestur til
Vatnabygðanna í Saskat-
ohewan, en þaðan var ferð-
inni heitið til Markerville til
að skoða minnismerki og býli
Stephans G. Stephanssonar,
en úr því ætluðu þau að halda
til Vancouver og Seattle, en
leggja svo af stað til íslands
um miðjan októbermánuð
næstkomandi.
☆
The Women’s Association of
the First Lutheran Church,
Victor St., will sponsor “The
Home Hour” at the audi-
torium of the Westinghouse
plant, Ellice Ave. & St. James
Street on Tuesday Sept. 27th
at 1.45 p.m.
Tickets 25c.
☆
BOARD & ROOM
Kindly care elderly couple
or 3 persons.
Private home and Tray
Service. Phone 44-4195.
verður óálitlegra um
björgun nokkurs þess
með hverjum rigningar*
deginum sem líður. Svo
hefir nú kastað tólfunum
síðustu daga, að elztu
menn segja, að ekki hafi
komið annað eins sumar á
Suðurlandi í 68 ár.
Bændur þeir, sem komnir
eru á efri ár fullyrða, að svo
illt sumar hafi ekki komið á
þessari öld. Árið 1887 kom að
sögn elztu manna svo slæmt
heyskaparsumar á Suður-
landi, að helzt mætti líkja við
þetta.
Sleypiskúr á flait hey
Fréttaritari Tímans í Bisk-
upstungum sagði í gær, að
þurrkurinn á miðvikudaginn
hefði orðið bændum á stóru
svæði þar efra verri en eng-
inn, þótt ekki fyki hey til stór-
skaða á eftir. Um morguninn
var glatt sólskin og blástur,
og breiddu menn mikið af
heyi. Þegar kom fram yfir há-
degl, gerði allt í einu helli-
rigningu, og kom steypiskúrin
svo brátt, að ekkert náðiát
upp. Þessi rigning náði yfir
efri hluta Tungna og Hreppa
en neðar í þessum sveitum
hélzt þurrt og sólskin allan
daginn og náðu menn þar
nokkru upp. Síðan hvessti og
flatti sætið nokkuð, en hey
fauk ekki til stórskaða.
Fréttaritarar Tímans í
Rangárþingi sögðu í gær, að
þar hefði rignt mikið og eng-
in tök að ná saman nokkru af
fokheyinu.
-—TÍMINN, 21. ágúst
COPENHAGIN
Heimsins bezta
munntóbak
EATON’S
Stærsta smásöluverzlunin í
brezka þjóðarsambandinu
Smásöluverzlanir EATON’S ná
yfir Canada frá strönd til strandar,
auk þess sem hið risavaxna póst-
pöntunarfyrirtæki, svo sem ráða
má af verðskránni, nær til svo að
segja allra vorra viðskiptavina í
landinu. Hin óbrigðula reynsla vor
í verzlunarsökum og hin ófrávíkj-
anlega regla, að peningum sé skilað
aftur sé fólk ekki ánægt með
vöruna, hefir reynzt canadískum
kynslóðum mikil hjálparhella.
EATON'S of CANADA
ÁRSFUNDUR
Islendingadagsnefndarinnar verður haldinn í
GOOD TEMPLARS HALL, Sargent Avenue,
mánudagskveldið 26. september n.k., kl. 8
Fyrir fundi liggur að kjósa menn í nefnd til næsta árs
og bera fram fjárhagsskýrslur nefndarinnar.
Nefndin óskar eftir að fólk fjölmenni á þennan fund og
láti álit sitt í ljósi viðvíkjandi framtíð þessarar þjóð-
hátíðar Íslendinga í Manitoba.
%
JÓN K. LAXDAL, riiari nefndarinnar