Lögberg - 10.11.1955, Blaðsíða 4

Lögberg - 10.11.1955, Blaðsíða 4
4 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 10. NÓVEMBER 1955 Lögberg Gefiö út hvern flmtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA , J. T. BECK, Manager Utanáskrlft ritstjörans: EDITOR LÖGBERG, 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram The “Uögberg” is printed and published by The Columbia Press Ltd. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa PHONE 743 411 Orð í fíma talað Víðkunnur læknir og fyrirlesari, heimsótti Reykjavík snemma í haust og flutti þar erindi um atvinnusjúkdóma, sem stafa af rangri vöðvabeitingu og röngum stellingum við störf; hefir hann samið og gefið út bók, sem að þessu vanda- máli lýtur og náð hefir geisimikilli útbreiðslu á Norður- löndum; læknir sá, sem hér um ræðir, Henrik Seyffarth, telur þörfina fyrir heilsugæzlu á vettvangi atvinnumálanna mjög hafa færzt í vöxt síðustu áratugina; hin vaxandi tækni eykur verkaskiptinguna og gerir störf mannanna einhæfari; í fyrirlestri sínum um starfsþreytu og atvinnusjúkdóma, komst Seyfarth læknir þannig að orði: „Vér verðum að gæta þess að vernda einstaklinginn, svo hann varðveiti persónuleika sinn, en verði eigi eins og hlutur í stórri vél. Gott er að kunna ráð við sjúkdómum og geta læknað þá, en það getur oft orðið dýrt og það á tvennan hátt, bæði að því er varðar sjúkrakostnað og vinnutap. Miklu æskilegra er því að geta komið í veg fyrir sjúkdóma. ' Menn verða að læra að sitja rétt, standa rétt, ganga rétt, anda rétt, þannig að þeir leggi ekki óþarfa áreynslu og spennu á sérstaka vöðva, er valdi ofþreytu eða varanlegu tjóni. Vér verðum að vernda hið mannlega í hverjum ein- staklingi fyrir hinu vélræna. Líkamleg vanlíðan veldur oft andlegri vanlíðan. Má t. d. fullyrða að eigi minna en 25% af þeim sjúklingum, sem nú eru lagðir inn á dönsk sjúkra- hús, séu með taugaveiklunarsjúkdóma, er stafi af ofþreytu í starfi. Það er því nauðsynlegt að vér lærum að beita líkama vorum rétt og hvíla hann rétt. Líkamleg vellíðan eykur mjög starfsgleði manna og gerir hverjum einstaklingi auðveldara að rækja það hlutverk, sem hann hefir valið sér í þjóð- félaginu." ☆ ☆ ☆ Stofnanir, sem almenningi ber að styðja Innan vébanda þessa fylkis, eru starfræktar tvær stofn- anir, sem hljóðara er að jafnaði um en vera ætti; en hér er í rauninni um tvenn sjúkrasamlög að ræða, The Blue Cross og The Manitoba Medical Service; báðar eru þessar stofnanir starfræktar í þágu almennings og þær eru heldur ekki reknar í gróðaskyni; takist svo giftusamlega til, að tekjur og útgjöld standist á, eru forráðamenn þeirra í sjöunda himni, og jafnvel þó svo sé ekki, stefna þeir öruggir og vongóðir að settu marki. Mánaðarleg framlög í sjóði þessara stofnana eru hvorki há né tilfinnanleg; en þegar sjúkdóma ber að höndum, er gott til þess að vita, að eiga nokkra fyrirfram greidda skild- inga inni hjá sjálfum sér til greiðslu á sjúkrahússvist og læknisaðgerðum; í báðum tilfellum er hér um mikilsverðar heilsutryggingar að ræða, sem fylkisbúum ber að leggja al- menna rækt við. ☆ ☆ ☆ Minna má nú gagn gera Við byrjun októbermánaðar síðastliðins, námu smjör- birgðir í þessu landi 126,365,000 punda, eða 42 miljónum punda umfram það, sem við hefir gengist um það leyti árs síðustu fimm árin; framleiðsla mjólkur er enn langt ofan við meðallag, og má því vel ætla, að afgangsbirgðir í lok þessa árs umfram heimilisnotkun, nemi 65 miljónum punda, eða freklega það. Af öllum þessum miklu smjörbirgðum, hefir sambands- stjórn í fórum sínum að minsta kosti 100 miljón pund og mun það vera sem næst einum þriðja af því magni, sem stjórnin hafði í vörzlu sinni 1954. Sumum telst svo til, að minna megi nú gagn gera varð- andi allar þessar smjörbirgðir, en kælihúsin í landinu verði troðfull, og spyrja sem svo, hvort sambandsstjórn ætli ein að kaupa þær til heimilisþarfa. Ofbirgðir smjörs engu síður en ofbirgðir hVeitis, ráða lítt fram úr markaðsvandkvæðum bændanna. Canadastjórn mælir með íslenzku dúnhreinsunarvélinni Frá því var sagt í Lögbergi í desember s.l., að íslenzkur hugvitsmaður, Baldvin Jóns- son, Vegamótum á Seltjarnar- nesi, hefði fundið upp dún- hreinsunarvél. Hafði Canada- stjórn pantað eina þessa vél til reynslu við æðardún- framleiðslu Eskimóa. Lög- bergi barst s.l. viku frétta- bréf frá stjórninni um ár- angurinn af þessari rannsókn. Hér fylgja kaflar úr bréfinu: Hin aldagamla þraut, að hreinsa æðardún fljótt og vel, hefir nú verið leyst af íslenzk- um hugvitsmanni og getur þetta orðið til þess að bæta efnahag Eskimóa við austur íshafið í Canada. Þessi nýja vél, sem rannsökuð hefir verið í Ottawa, hreinsar dún- inn betur en hægt er með nokkurri þekktri aðferð. Stjórnarmenn, sem hafa um- sjón með málefnum við austur-íshafið, hafa áhuga á að nota þessa vél í viðleitni sinni til að vernda æðarfugl- inn í Norður-Canada og auka framleiðslu dúnsins. Áætlað er, að sýna vélina og reyna hana næsta ár í byggðum við austur-íshafið, þar sem mikið er um æðar- fugl og er vonast til að það hvetji Eskimóa til að tína saman meira af dún. Fram að þessu hefir verið ákaflega seinlegt og óhreinindaverk að hreinsa æðardún og er það ástæðan til þess að ekki hefir verið meira tínt af honum þar nyrðra, en þar er hann sums staðar notaður í fatnað. Það er markaður fyrir æðar- dún í Suður-Canada; enn- fremur mætti selja hann til Evrópu og Bandaríkjanna. — Æðardúnn, sem framleiddur er á íslandi, selst fyrir alt að $18 pundið. Hreinsunaraðferðir þær, sem nú eru notaðar, eru áfar frumstæðar. Fyrst er dúnn- inn hitaður til að svíða óhreinindin, svo nudda eski- móa-konurnar honum yfir röð af strengjum, sem þær festa upp, þar til hann er hreins- aður. Hreinsa verður dúninn fljótt eftir að búið er að tína hann og ekki er hann not- hæfur fyrr en mest af óhrein- indunum hafa verið numin burt. Hin nýja vél, sem slær dúninn og snýr honum í luktum kassa, gerir mesta vinnuna við að hreinsa dúninn. Æðarfuglinn hópast saman á sumrin víðsvegar á norður- ströndinni, sérstaklega út í smá'eyjum. Þegar hreiðrin eru gerð þá fóðra æðarkollurnar þau með dún, sem þær reita af af sér. Dúnninn, sem breiðist út yfir barma hreiðursins, er tekinn fyrst, og svo þegar ungarnir fara úr hreiðrinu, þá er alt tekið sem eftir er. Stjórnarformenn vænta þess, að í framtíðinni muni Eskimóar stofna æðarfugls- varplönd lík þeim sem eru á íslandi, þar sem æðarfugla „bú“ eru rekin á strang-vís- indalegan hátt. Þar er farið með æðarfugla, þótt þeir séu viltir, á líkan hátt og hænsni; og æðarfuglarnir eru farnir að leita verndar mannanna gegn ránfuglum svo sem fálkum og máfum, sem leita á hreiður þeirra. Islenzkir bændur gera umgerð fyrir hreiðrin í klettaskorum til að verja fuglana gegn vindi og regni meðan á varpinu og út- ungun stendur. Sumir setja upp fuglahræður og mikið er unnið að því að halda varp- landinu hreinu, því að það gerir æðarkollunum hægra með að halda eggjunum volg- um og þurrum. Þannig er framleiðslan aukin. Æðar- fuglinn lætur bændum í té mikinn dún fyrir þeirra fyrir- höín. Er dúnframleiðslan arð- væn atvinnugrein, sem rekin hefir verið á íslandi í alda- raðir. Síðastliðið ár var gerð til- raun til þess að sýna Eski- móum aðferðir Islendinga við framleiðslu æðardúns og nú er talið að hin nýja dún- hreinsunarvél muni hvetja þá enn meir til þess að auka dún- tekjuna þar nyrðra og vernda æðarfuglinn. Ef þetta tekst er það spor í áttina til að bæta efnahag nyrztu þjóðfélags- þegna Canada. Það gat hann ekki skilið — Ég get skilið ýmislegt, sem kemur mönnum einkenni lega fyrir sjónir, sagði þekkt- ur stjórnmálamaður, en eitt er mér óskiljanlegt og það er þegar konan mín er að slíta sér og hamast við að gera allt húsið hreint í hólf og gólf, áður en hreingerningarkonan kemur! Heimsins bezta munntóbak Veltið athygli hinum nýju Wampole’s VI-CAJj-FER 12 málmbætiefna MÆÐUR! inntökum — einkum gerðar fyrir vaxandi börn — gott handa fnllorðnu fólki lfka. — 60 daga birgðir $1.95. Góður skamtur af fjörcfni I), kalki og ln-ennisteini er nauðsynlegt lúimum, sem eru að vaxa, svo þau fál sterk og hcilsusamleg liein og tennur. Fullorðnir þurfa þess einnig sér til hcilsubótar. Wampole’s Extract af þorskalýsi er mikilsvert vegna innihalds þess af jámi, malti og öðmm jarðeínum. Til velferðar fjölskyidu þinni fyrir ýmsum vetrar- kvillum, gefið henni Wampole’s reglulega. Biim eru áfjáð í það. Inniheldur enga olíu. ujnmpoLE’s 3SL Fæst hjá öllum lyfsölum — AÐEINS $1.35 2-W-55

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.