Lögberg - 10.11.1955, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 10. NÓVEMBER 1955
5
ViVVV
AHIGAMAL
rVENNA
«
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Sorgarsaga prinsessunnar
Hann var ein bjartasta
stjarnan í flugsveitum Bret-
lands, er verndaði landið frá
innrás 1940; einn af „þeim
fáu“, er Churchill átti við, er
hann sagði: „að aldrei hefðu
eins margir átt eins fáum eins
mikið upp að unna“. Og
Georg konungur VI. skipaði
hann hirðmann sinn 1943. Þá
var litla prinsessan 13 ára.
Ekki er ólíklegt að Ijóminn,
sem þá lék um nafn þjóð-
hetjunnar, hafi snortið hana.
Faðir hennar fékk brátt mikl-
ar mætur á hinum unga flug-
manni og lét svo um mælt, að
ef hann hefði átt son, þá hefði
hann óskað þess að hann væri
h'kur Peter Townsend.
Margaret prinsessa elskaði
föður sinn mest allra manna;
staða hennar einangraði hana
að nokkru leyti frá jafnöldum
sínum; það var því ekki að
undra þó hin hrifnæma
unglingsstúlka hændist að
þessum manni, sem var heima
gangur við hirðina og föður
hennar þótti svo vænt um.
Um ástir var þó ekki að ræða;
hún var enn svo ung; hann
var fimmtán árum eldri en
hún og kvæntur maður.
Svo liðu árin; litla prins-
sessan varð glæsileg ung
stúlka, er öll þjóðin dáði. Og
nú hófust getgáturnar um
væntanlegan eiginmann henn-
ar. Hin glaðlynda og orð-
heppna prinsesSa var hrókur
alls fagnaðar í þeim félags-
skap ,er hún kaus sér, en ekki
festi hún ást á neinum af hin-
um mörgu ungu aðalsmönn-
um, er hún kynntist. Þessir
áhyggjulausu hamingjudagar
liðu fljótt undir lok; hún
misti sinn ástkæra föður
1952. 1 sorg sinni leitaði hún
hluttekningar hjá vini hans,
Peter Townsend, og styrks
hjá kirkju sinni og formanni
hennar, erskibiskupnum af
Kantaraborg, en Margaret
prinsessa hefir jafnan verið
mjög trúrækin.
Systir hennar var nú gift,
átti tvö yndisleg börn og var
mjög hamingjusöm í hjóna-
bandinu. Hún tók við rík-
inu eftir föður sinn; varð
Elizabet II. drottning brezka
sambandsþjóðveldisins. Þær
systurnar höfðu jafnan verið
mjög samrýmdar, en nú flutt-
ist Margaret prinsessa ásamt
móður sinni úr konungshöll-
inni til Clarence House. Peter
Townsend hafði eftir sem
áður umsjón með heimilis-
haldi þeirra mæðgna í hinum
nýja bústað. Hann hafði nú
skilið við konu sína vegna
þess að hún hafði fengið ást
á öðrum manni. Þótt Margaret
prinsessa í einstæðingsskap
sínum hallaðist nú meir að
þessum gamla vini fjölskyld-
unnar heldur en áður, datt
engum í hug, að hún hefði
felt ástarhug til hans fyrr en
við krýningarathöfn systur
hennar. Þá var það, að einn
fréttaritaranna, sem alls stað-
ar eru á gægjum, tók eftir
því, að prinsessan, sem beið í
hliðarherbergi ásamt Peter
Townsend offursta, strauk fis
af kragahorni hans. Ekki
þurfti nú meira til; blöðin
fluttu þegar frásagnir af þessu
atviki, fanst það í meira lagi
ástúðlegt í garð Townsends.
Winston Churchill ráðlagði
drottningunni að fjarlægja
Townsend frá Clarence House
og var hann sendur í brezku
sendisveitina í Brussel; og þar
var hann í nokkurs konar út-
legð í þrjú ár.
Ekki var það þó á allra vit-
orði, að um alvarlegan sam-
drátt hefði verið að ræða
milli prinsessunnar og offurst-
ans. Hún lét á litlu bera og
byrjaði að taka þátt í skemmt-
unum vina sinna eins og fyrr
meir, og leysti daglega af
hendi opinber skyldustörf
fyrir drottninguna, systur
sína, og þótti gera það með
prýði.
Svo leið að tuttugu og fimm
ára afmæli hennar, þá töldu
allir að hún yrði sjálfráð að
því hverjum hún giftist, svo
framarlega sem hún afsalaði
sér ríkiserfðaréttinum, en
hún er þriðja í röðinni; syst-
urbörn hennar, Charles og
Anne, eru fyrstu tveir ríkis-
arfar, og því harla ólíklegt að
það kæmi í hlut Margaretar
prinsessu að taka við því em-
bætti. Var fólk almennt því
fylgjandi, að hin vinsæla
prinsessa fengi að ráða sér
sjálf í hjúskaparmálum sínum.
Afmæli prinsessunnar var í
sumar, en um miðjan október
kom Peter Townsend offursti
til London og heimsótti hana
að heimili hennar í Clarence
House; höfðu þau þá ekki
sést í þrjú 4r. Er skemmst, frá
því að segja, að næstu vik-
urnar voru þau í stöðugum
heimboðum hjá vinum þeirra
beggja og sáust svo að segja
daglega. Bæði ljómuðu þau
af gleði og var búist við því,
að þá og þegar myndu þau
opinbera trúlofun sína. Blöð-
in og útvarpið fylgdust með
hverju þeirra fótspori; ekki
bar á öðru en almenningur
gerði sig ánægðan með þetta.
En nú þótti forustumönnum
kirkjunnar nóg komið. Brezka
ríkiskirkjan hefir jafnan verið
mótfallin giftingum fráskilins
fólks, ekki sízt ef fólk af
konungsfjölskyldunni á í hlut,
eri kirkjan er öflug á Bret-
landi. Sem dæmi þess, tókst
henni með aðstoð íhaldsins
undir forustu Stanley
Baldwin að hrekja Játvarð
VIII. frá konungdómi 1936,
þegar hann ákvað að kvænast
konu, sem skilið hafði við tvo
menn. Þótt nú væri ekki um
eins þýðingarmikið mál að
ræða þar sem hin unga prin-
sessa átti í hlut, þá þótti það
viðsjárvert að leyfa henni að
giftast manni, er skilið hafði
við konu sína, því það myndi
hnekkja áliti konungsfjöl-
skyldunnar, sem á að vera al-
menningi fyrirmynd í hví-
vetna, ennfremur myndi
kirkjuvaldinu þannig verða
boðið byrginn og dregið úr
áhrifum þess.
London Times, eitt áhrifa-
mesta dagblað Bretlands, sem
þagað hafði um málið fram að
þessu, birti nú langa rit-
stjórnargrein, þar sem leitast
var við að sýna prinsessunni
fram á villu hennar vegar, en
skriftafaðir hennar og vinur,
erkibiskupinn af Kantaraborg
á sæti í stjórnarnefnd þess
blaðs. Varaði blaðið hana við
að ganga í það hjónaband, er
fjöldi af þegnum systur henn-
ar teldu ekki verulegt hjóna-
band; hún myndi þannig auka
erfiðleika drottningarinnar og
veikja brezka sambandsþjóð-
veldið; hún myndi lækka
mjög í tigninni; móðir hennar
og systir gætu ekki verið við-
staddar giftingu hennar, því
drottningin er höfuð brezku
ríkiskirkjunnar o. s. frv.
Þessi grein mun hafa verið
prinsessunni sem reiðarslag,
ekki sízt, að hún myndi gera
systur sinni illt með þessu,
því sambandið milli þeirra
hefir verið náið og ástúðlegt.
Ekki vantaði að önnur blöð
tæki málstað elskendanna,
svo sem hið virðulega blað
Manchester Guardian og
Daily Mirror. Þau bentu á, að
æðsti valdamaður Bretlands,
forsætisráðherrann Anthony
Eden, hefði skilið við konu
sína og gifst aftur. Samt er
það hann, sem skipar biskupa
kirkjunnar í embætti. Fanst
þeim tími til kominn að
skerða að nokkru vald hinna
afturhaldssömu kirkjuvalda
yfir einkalífi konungsfjöl-
skyldunnar, en þau öfl unnu
þó sigur í þetta skipti. Hertog-
inn af Edinburgh kvað og
hafa verið mjög mótfallinn
því, að tengdasystir hans tæki
þetta spor. Loks þoldi ekki
prinsessan mátið lengur og lét
hún birta þessa tilkynningu á
mánudaginn 31. október:
„Ég vil kunngera, að ég hefi
ákveðið að giftast ekki Peter
Townsend offursta.
Mér hefir verið það ljóst,
að ef ég afsalaði mér ríkis-
erfðarétti mínum, myndi mér
mögulegt að ganga í borgar-
legt hjónaband.
En minnug á kenningar
kirkjunnar, að kristið hjóna-
band sé órjúfandi, og vitandi
um skyldur mínar gagnvart
sambandsþjóðveldinu (Com-
monwealth) hefi ég tekið þær
aðstæður til greina fram yfir
aðrar.
Þessa ákvörðun hefi ég tek-
ið algerlega af sjálfsdáðum,
en mér veittist styrkur til þess
vegna öruggs stuðnings og
ástúðar af hálfu Peter Towns-
end offursta.
Ég er innilega þakklát fyrir
umhyggju þeirra, er hafa
jafnan beðið þess, að ég mætti
verða hamingjusöm.“
Allir dást nú að kjarki og
skyldurækt prinsessunnar,
þótt allir séu ekki sammála
um að nauðsynlegt hafi verið,
að hún fórnaði þannig lífs-
hamingju sinni. Ekki er lík-
legt, að hún giftist úr þessu,
fyrst hún fékk ekki að njóta
þess manns, er hún hefir borið
tryggð til í fjölda mörg ár.
Þannig lýkur sorgarsögu
prinsessunnar. 1—
Rétt þegar ég er að ljúka
við þessa grein, heyri ég yfir
útvarpið, að eitt helzta blað
Frakklands segi, að kona, eins
og Margaret prinsessa, er
lætur skyldur sínar við ríkið
sitja í fyrirrúmi fyrir tilfinn-
ingum sínum, sé hæf til að
skipa háa stöðu, svo sem land-
stjóraembættið í Canada.
Verkfræðingur nokkur við
Kaliforníu-háskóla, — Gerald
Hassler að nafni, — hefur
fundið upp nýja aðferð við
framleiðslu á neyzluvatni úr
sjó, hefur hann tekið til fyrir-
myndar aðferðir mannslíkam-
ans við slíka efnaskiptingu.
Segist hann brátt geta fram-
leitt tæki, sem framleiðir 8000
lítra af ferskvatni á sólar-
hring.
Auðvelt
að njóta
sjúkrahúss
umönnunar
með
BLÁA
KROSSINUM
Enginn veit nær sjúkdóm
ber að — verið viðbúin með
Bláa Krossinum.
Aðal markmið Bláa
Krossins er að veita
nauðsynlega sjúkrahúss
aðhlynningu — fremur
en afla dollara.
INNRITIST STRAX!
Kostar nokkra skildinga á
dag. Fullnaðar upplýsingar
hjá næsta Blue Crss
umboðsmanni
eða næstu M.H.S.A.
skrifstofu.
MANIT0BA H0SPITAL SERVICE ASS0CIATI0N
116 EDMONTON ST. 201 SECURITY BLDG.
WINNIPEG BRANDON
Phone 92-2181 Phone 3563