Lögberg - 19.01.1956, Síða 1
HAGBORG
FUEL /SBfe
Sole Distributors
OILNITE LIGNITE COAL
' PHONE 74-5431
HAGBORG
FUEL /Safaf
Sole Distributors
OILNITE LIGNITE COAL
PHONE 74-3431
68. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 19. JANÚAR 1956
NÚMER 3
50 þúsund sjúklingar hafa legið á
Landsspítalanum á 25 úrum
Jöfn laun fyrir
sömu st-örf
I stjórnarboðskapnum, sem
lagður var fyrir sambands-
þing hinn 11. þ. m., er ráð-
gerð löggjöf, er tryggi konum
sömu laun og körlum fyrir
sams konar störf; er með
þessu stigið spor í rétta átt,
sem átt hefði að hafa verið
stigið fyrir löngu til að bæta
úr óverjandi misrétti; löggjöf
þessi nær til kvenna, er starfa
í þeim greinum, sem verka-
málaráðuneyti sambands-
stjórnar hefir umsjón yfir;
mælt er að ákvæði þetta nái
til 2,000 kvenna í Winnipeg og
73ja þúsunda í landinu öllu,
og mun nú ekki þurfa lengur
að efa að það fái framgang á
þingi.
Ræða eftir dr. Beck
í norsk-amerísku
jólablaði
1 jólahefti norsk-ameríska
vikublaðsins Duluih Skandi-
nav, sem út kemur, eins og
nafnið bendir til, í Duluth-
borg í Minnesota, birtist
meginmál ræðu eftir dr.
Richard Beck um Islands- og
Norðurlandaför þeirra hjóna
(“High-Lights of a Summer in
Scandinavia”), sem hann hafði
flutt á samkomum víðsvegar
í N. Dakota og Minnesota.
Meðal annars flutti hann
Umrædda ræðu á ársþingi
Sambands Bræðrafélaga í N.
Rakota (North Dakota Fra-
ternal Congress) í Fargo, og
var hún nýlega einnig birt í
fundargerð þess félagsskapar.
Á annað hundrað
bílar fastir í snjó
Um miðjan dag í gær
(11. des.) lokaðist vegurinn
til Keflavíkur og kom til al-
Varlegra umferðartruflana. í
gærkvöldi voru á annað
hundrað bílar fastir á ýmsum
stöðum á leiðinni frá Hafnar-
Hrði suður til Keflavíkur.
Sátu bílarnir ýmist fastir í
sojósköflum, eða gátu sig ekki
hreyft vegna stórhríðar og
skafrennings.
Áætlunarbílar, sem fara
4ttu frá Reykjavík eftir kl.
^iuim síðdegis í gær, fóru
ekki, en tveir stórir áætlunar-
þ'iar voru meðal þeirra, sem
Satu fastir í snjósköflunum.
Stórar jarðýtur voru sendar
ji hjálpar á leiðinni í gær-
þyöldi og var búizt við, að
j^pgt væri að brjóta bílunum
eið í nótt, ef veður færi ekki
Versnandi. Mikið af fólkinu,
Seui er í bílunum, er illa búið
°g nestislaust allt að heita má.
—TIMINN, 12. des.
Hundrað og
þriggja óra
John Lozenko, búsettur hér
í borg varð 103ja ára hinn 7.
þ. m., hann er fæddur í smá-
þorpi í grend við Kiew. Hann
er meðlimur í grísk-kaþólsk-
um söfnuði og sækir helgar
tíðir hvern einasta og einn
sunnudag; öldungi þessum
hefir naumast orðið misdæg-
urt svo vitað sé.
Tvö hundruð
óra afmæli
Nú eru liðin tvö hundruð ár
frá fæðingu hins ódauðlega
meistara í ríki tónanna, —
Mozart’s, og verður atburðar-
ins minst með sérstökum
Mozart-hljómleikum, s e m
Winnipeg Symphony Or-
chestra stofnar til í Winnipeg
Civic Auditorium hinn 26.
þ. m., kl. 8.40 að kvöldi. Mr.
Walter Kaufman stjórnar
hljómsveitinni.
Hinn víðfrægi tenórsöngv-
ari, Leslie Chaboy, verður
aðaleinsöngvarinn.
Aðgöngumiðar fást hjá
Symphony Box Office, öðru
k>fti í Hudson’s Bay búðinni.
Risavaxin fjórlög
Eisenhower forseti hefir
lagt fram í þjóðþinginu fjár-
lagafrumvarp stjórnarinnar
fyrir 1956, og er svo fyrir
mælt, að tekjur og útgjöld
standist á, er nemi í alt 65
biljónum dollara. Mr. Eisen-
hower fór fram á stóraukna
fjárveitingu til þeirra þjóða,
er nú væru önnum kafnar við
að verjast áróðri og yfirgangi
kommúnista í Asíu og Mið-
austurlöndum.
Ekki sá forseti sér fært að
mæla með lækkun skatta eins
og ástatt væri, en kvaðst vona
að slíkt mætti jánast áður en
langt um liði.
Þriggja daga fundur
Síðastliðinn föstu dag hófst
á Royal Alexandra hótelinu
hér í borginni ársfundur
Canadian Construction sam-
takanna, er stóð yfir í þrjá
daga; forsetinn, Mr. Malcolm,
framkvæmdastjóri Malcolm
Construction félagsins, hafði
fundarstjórn með höndum;
um 800 erindrekar úr cana-
dísku fylkjunum 10 sátu
fundinn og ræddu áhugamál
sín. Mr. Malcolm lét þess
getið í inngangsræðu sinni,
að byggingaiðnaðurinn í
þessu landi hefði í fyrra kom-
ist á hærra stig en nokkru
sinni fyr, eða hlaupið upp á
5 biljónir dollara.
í dag (20. des.) eru liðin 25
ár frá því að fyrstu sjúkling-
arnir voru lagðir inn á hand-
lækningadeild Landsspítalans.
en daginn eftir komu fyrstu
sjúklingarnir á Lyflækninga-
deildina. Þann 17. janúar
1931 tók svo röntgendeildin til
starfa. Á þessum 25 árum,
er fjöldi innlagðra sjúklinga í
Landsspítalanum orðinn 49,651
eða 1986 aðmeðaltali á ári, en
legudagafjöldinn er orðinn 1
milljón 363 þúsund 943.
í gær ræddu fréttamenn við
prófessorana Snorra Hall-
grímsson og Sigurð Samúels-
son, Sigríði Bachmann yfir-
hjúkrunarkonu og Georg Lúð-
víksson framkvæmdastjóra
ríkisspítalananna og skýrðu
þau fréttamönnum frá starf-
semi spítalans.
Þegar of lílill
Forustu að byggingu spítal-
ans höfðu íslenzkar konur.
Söfnuðu þær fé í bygginguna
og verður þeirra starf seint
fullþakkað. Upphaflega var
gert ráð fyrir að sjúkrarúmin
yrðu 92 alls í spítalanum, og
þótti mörgum ótrúlegt, að
þörf væri fyrir svo mikinn
fjölda sjúkrarúma. Um miðj-
an apríl 1931 voru öll rúmin
fullsetin og var þá farið að
bæta aukarúmum í sjúkra-
stofurnar, svo að í apríllok
voru sjúklingar 100 í spítal-
anum. Síðan var enn bætt við
rúmum og var þá meðaltals-
fjöldinn að hækka smátt og
smátt upp í 120 sjúklinga og
hélzt sá fjöldi þar til 17. apríl
1934, en þá bættist við ný
deild fyrir húð- og kynsjúk-
dóma með 15 rúmum. Meðal-
talssjúklingafjöldinn hélt þó
áfram að hækka nokkuð og
komst í 146,7 sjúklinga árið
1944, enda var þá búið að
gera að sjúkrastofum öll auka
herbergi, svo sem dagstofur
o. fl. Árið 1949 bættist nýja
fæðingadeildin við, og fjölg-
aði þá rúmum upp í 180, en
vegna aukarúma, sem einnig
eru stöðugt í notkun í fæð-
ingadeildinni, hefir meðaltals
fjöldi sjúklinga komizt upp í
191,5.
Stækkun spítalans
Að undanförnu hefir verið
unnið að stækkun Lands-
spítalans og er nú verið að
ljúka við að steypa upp kjall-
arann í hinni nýju viðbótar-
byggingu. Verður hún þrjár
hæðir og kjallari, allt að 30
þúsund rúmmetrar að stærð.
í nýbyggingunni verður rúm
fyrir 180 sjúkrarúm, en auk
þess verða þar rannsóknar-
stofur og röntgendeild. Áætl-
að er, að byggingin verði full-
kláruð eftir þrjú ár.
H j úkr unar kvennaskólinn
Gert er ráð fyrir að heima-
vistardeild Hjúkrunarkvenna-
skólans verði fullgerð að vori,
en óvíst, hvenær byggingu
kennsludeildarinnar verður
lokið og verður því kennslan
í skólanum að fara fram í fim-
leikasal skólans. Þegar Hjúkr-
unarskólinn flytur í hin nýju
húsakynni verður hægt að
fjölga sjúkrarúmum á efstu
hæð Landsspítalans og er ráð-
gert að koma þar upp barna-
spítaladeild með 30 til 40 rúm-
um, en auk þess fá aðrar
deildir spítalans þar húsnæði.
Sjúklingum fjölgar stöðugt
Snorri Hallgrímsson pró-
fessor, sem er forstjóri Lands-
spítalans, skýrði frá því að
sjúklingum færi stöðugt fjölg-
andi, þótt ekkert bættist við
af sjúkrarúmum, og til þess
að geta bætt við nýjum sjúkl-
ingum þyrfti að senda sjúkl-
ingana heim fyrr en æskilegt
væri. Kvað Snorri sjúkling-
ana hafa sýnt mikinn skilning
á þessum vandræðum. Þá
hefði það verið til bóta að
sjúkrahúsið Sólvangur í Hafn-
arfirði og Elliheimilið hefði
hlaupið undir bagga og tekið
á móti þeim sjúklingum, er
hefðu þurft á lengri sjúkra-
vist að halda.
Fimm deildir
í Landsspítalanum eru nú
fimm deildir: Handlækninga-
deild, lyflækningadeild, rönt-
gendeild, fæðingardeild og
húð- og kynsjúkdómadeild.
207 starfsmenn
í loks fyrsta starfsársins
voru starfsmenn alls 64, en nú
eru þeir 207. Hefir matráðs-
kona spítalans, Kristbjörg
Þorgbergsdóttir, starfað við
spítalann allt frá stofnun
hans, en auk þess hafa þrír
starfsmenn, ein hjúkrunar-
kona og tvær starfsstúlkur
starfað þar rúmlega 20 ár.
—Alþbl., 20. des.
Arni G. Eggertson, Q.C.
— SEXTUGUR —
Nú skal vísa vetri á bug;
veita hlýju í bæinn;
óska heilla, hreysti og dug,
helga Arna braginn.
Á nýju ári og næsta tug
nýtist allt í haginn.
Einum rómi, heilum hug
til hamingju með daginn.
Ævileið hann öruggt tróð;
áttir jafnan kunni.
Sextíu árum saman hlóð;
sókn í starfi unni.
í brotsjó tíða og brimi stóð
sem bjarg á alda grunni.
Með yl frá hjartans aringlóð:
hið æðsta í tilverunni.
Þegar eitt af öðru ber
er augað mælikvarði.
Húsbændanna hirðu sér
hver, sem ber að garði.
Verkamaður verður er
verkakaups með arði.
Því skal gleðjast heima, hér,
á Hertford “bóluvarði.”
Framtíð hylla mætan mann
mun í næsta þætti,
sextíu ára sæmd er vann
og samfélagið bætti.
Leti og svefn skal lýst í bann;
en ljóð með hörpuslætti,
látum vinir leika um hann
af lífs og sálar mætti.
10. janúar 1956 S. E. Björnsson