Lögberg - 19.01.1956, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 19. JANÚAR 1956
Úr borg og bygð
FRÓNS-fundur
Deildin Frón heldur al-
mennan fund í G. T. húsinu
á mánudagskveldið 23. janúar
n. k., kl. 8.15 e. h. Inngangur
verður ókeypis, en samskota
verður leitað. Allir eru boðnir
og velkomnir.
íslendingum hefir lengi
þótt gaman að skáldskap, ekki
sízt eins og hann birtist í sínu
alþýðlegasta formi, ferskeytl-
unni. Ferskeyttlur hafa verið
ortar um allt milli himins og
jarðar. — Þannig er til kynst-
ur af ástavísum, sjómanna-
vísum, grínvísum og skamm-
arvísum, svo aðeins nokkrar
séu nefndar. í þeirri von, að
fólk geti skemmt sér vi& að
rifja upp gamlar bögur og
kynnast nýjum, hefir Frón
efnt til vísnaleiks og verða
þessir þátttakendur:
Jónbjörn Gíslason
Páll Hallsson
Tryggvi J. Oleson
Heimir Thorgrimson.
Auk þess sem að ofan getur,
þá flytur séra Philip M.
Pétursson ræðu, en eins og
vitað er, þá er hann ágætur
ræðumaður. Má vænta hinnar
beztu skemmtunar af tölu
hans.
Vonast er til að félagsmenn
og aðrir vinir deildarinnar
fjölmenni.
—Nefndin
« *
Tvö herbergi með eldhúsi
til leigu að 704 Langside St.,
rétt hjá Notre Dame Ave.
Mrs. G. Eggeríson
☆
Á fundi Icelandic Canadian
Club, er haldinn var s.l. mánu-
dagskvöld, flutti Mr. Arilius
ísfeld mjög ítarlegt erindi og
sýndi kvikmynd um fuglalíf
í Manitoba. — Eftir fundinn
skemmtu menn sér og skegg-
ræddu yfir kaffibollunum.
☆
Hinn 22. desember lézt á
sjúkrahúsi í Vancouver Hall-
dóra Davíðsdóttir, nálega 77
ára að aldri, fædd 29. janúar
1878 á Jódísarstöðum í Eyja-
firði; foreldrar hennar voru
Davíð Kristjánsson og Sigrún
Bjarnadóttir ættuð frá Kamp-
felli í Eyjafirði. Halldóra kom
til þessa lands með móður
sinni og stjúpa, Sigurði Hall-
dórssyni árið 1900 og dvaldi
fyrstu 12 árin í Winnipeg þar
sem hún var yfirmatreiðslu-
kona á stóru hóteli, og að slík-
um störfum vann hún svo að
segja óslitið í þessu landi;
hún lætur eftir sig einn bróð-
ur, Júlíus- Davíðsson bygg-
ingameistara í Winnipeg og
þrjú systkinabörn; hin látna
naut alls staðar trausts hvar,
sem leið hennar lá. Útförin
var gerð hinn 29. desember.
Séra Eiríkur S. Brynjólfsson
jarðsöng.
☆
Síðastliðinn mánudag lézt á
Sunnybrooke sjúkrahúsinu í
Toronto Mr. R. C. Vernon,
vinsæll maður og vel metinn;
hann lætur eftir sig konu sína,
hina góðkunnu söngkonu,
Rósu Hermannsson — Vernon
ásamt tveimur dætrum; —
heimili fjölskyldunnar var að
Hiltz Avenue, Toronto. Út-
förin fór fram á miðvikudag-
inn; við kveðjuathöfnina var
stödd systir frú Rósu, frú
Björg ísfeld héðan úr borg-
inni.
☆
Þær Mrs. Lousie Gíslason
frá Morden og Mrs. Pauline
Sigurdson hér í borg, eru ný-
komnar heim úr vikuheim-
sókn til systur þeirra, Mrs.
Paul Halldorson í Chicago;
þær heimsóttu einnig í sömu
ferðinni Miss Petrínu Sigurd-
son hjúkrunarkonu við Fair-
view sjúkrahúsið í Minne-
apolis, en hún er dóttir Mrs.
Paulene Sigurdson.
☆
Mr. Pétur Rögnvaldsson frá
Reykjavík, sem dvalið hefir
hér síðan í haust og starfað
hjá T. EATON félaginu, lagði
af stað suður til Los Angeles
í gær og hyggst að hefja þar
innan skamms nám við
menntaskóla. Pétur er hinn
mesti efnismaður og líklegur
til góðs frama.
Jólagjafir
til elliheimilisins „HAFNAR"
Dr. P. Guttormsson, Wat-
rous, Sask...........$100.00
Dr. B. T. H. Marteinsson,
Vancouver, ..........$100.00
Scandinavian Business
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Allir ævinlega velkomnir
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 22. janúar:
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli á hádegi.
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Ársfundur safnaðarins mánu-
daginn 23. jan., kl. 8 síðdegis.
S. Ólafsson
☆
ST. STEPHEN'S
LUTHERAN CHURCH
— Silver Heights —
Eric H. Sigmar, Pastor
Services in St. James
Y.M.C.A., Ferry Road South
(just off Po'rtage).
Sunday Jan. 22nd:
Sunday School 9:45 A.M.
Worship service 11 A.M.
*
Langruth Lulheran Church
Langruth, Man.
Sunday, Jan. 22nd:
Worship Service at 7.30 p.m.
Eric H. Sigmar
Supply Pastor
Men’s Club, Vancouver $50.00
Victoria Women’s Icelándic
Club $50.00
Mrs. Halldóra Gíslason,
Wynyard, ................$25.00
í kærri minningu um Mr.
Gunnlaug Gíslason, Wynyard.
dáinn 6. október 1954.
Miss Ena Johannson, Van-
couver $25.00
í minningu um ástkæra
móður og föður, Mr. og Mrs.
Eggert Johannson.
Mr. og Mrs. S. Grimson,
Vancouver ............$10.00
Concordia Ladies’ Aid,
Churchbridge .........$10.00
Mr. Th. Isdal, Vanc. $10.00
Mr. Vasdal, Vanc., $10.00
Mrs. Salome Johnson, Van-
couver ................$5.00
Mrs. Helga Johnson, Van-
couver, ...............$5.00
Box of Apples, K. Kristjáns
son, Kelowna, B.C.
Turkeys, Mr. John Sigurd-
son, Mr. Vasdal.
Vínarterta, Mrs. Summers,
Mrs. Peterson.
Meðtekið með þakklæti,
Mrs. Emily Thorson
ICELANDIC CANADIAN CLUB
BANQUET AND DANCE
BLUE ROOM, MARLBOROUGH HOTEL
Friday, January 27th# 1956
PROGRAM
Guest Speaker Rev. Eric Sigmar
Violin Solo Lorraine Grescoe
Piano Solo Virna Whitly
Violin Selo ........ Lorraine Grescoe
COMMENCING—
Banquet 7:00 p.m.
Dance .......................9:00 p.m.
ADMISSION—
Banquet and Dance $2.50 per person
Dance $1.00 per person
Pianist Don Wright
LEN PATTENDEN’S ORCHESTRA
MINNING ARORÐ:
Kristján Sigurður Magnússon
Kristján var fæddur 17. des.
1895 á Mountain í N. Dakota.
Foreldar: Pétur Jóhannesson
Magnússonar, Jóhannessonar,
Magnússonar, Jónssonar,
Magnússonar, Gunnlaugsson-
ar, er allir bjuggu að Hóli í
Tungusveit í Skagafirði. —
Móðir Péturs hét Steinunn
Jónsdóttir frá Skarðsdalskoti
í Siglufirði.
Móðir Kristjáns var Kristj-
ana Benediktsdóttir, Jónsson-
ar bónda á Einarsstöðum í
Kræklingahlíð, en móðir
hennar var Ingibjörg Kristj-
ánsdóttir, Jónssonar bónda á
Hvassafelli. Foreldrar hennar
voru bræðrabörn. Kristjana
var skyld Jónasi skáldi Hall-
grímssyni.
Systkini Kristjáns eru:
Karl í Oakland, California
Sigurlaug, kona Davíðs Guð
mundssonar, Árborg.
Einar, bóndi í Framlesi.
Jósteinn í Árborg.
Guðmann, dáinn 1930.
Kristján sál. ólst upp í Fram
nesbyggð, en hann kom
þangað 1901. Faðir hans dó
1913, og bjó þá móðirin áfram
með börnum sínum. Kristján
gekk í 223. herdeildina 1916.
Hann veiktist og fór ekki á
vígvöllinn. Hann giftist Frið-
rikku Björndóttur Erlends-
sonar, 13. ágúst 1921. Þau
hafa lengst búið í Bjarna-
staðahlíð. Börn áttu þau þrjú:
Haraldur Karl, kvæntur og
búsettur vestur við haf.
Agnes, gift og býr á gamía
heimilinu.
Kristján Pétur, kvæntur,
og á heima vestur við haf. —
Barnabörn eru fjögur.
Kristján átti og starfrækti
um skeið sögunarmyllu. Hann
var prúðmenni, glaðlyndur og
skemmtinn, félagslyndur og
vinsæll, og drengur góður. —
Hann dó á sjúkrahúsi í Ár-
borg þ. 18. des. sl. — Jarðar-
förin fór fram frá lútersku
kirkjunni í Árborg. Séra
Bragi Friðriksson flutti
kveðjumál.
Eftirfarandi ljóð var lesið
við útförina:
Hér allra daga kemur kvöld,
sú keningn aldrei hrakin er,
hún hefur staðið öld af öld,
því ákvörðuð er stundin hér.
Hvort leiðin hér var góð
og greið,
grýtt eða hrjóstrug ferðatöf;
að eftir lífsins endað skeið,
er allra vegur búinn gröf.
Við þökkum samleið
sem er nú,
sjáum að enda runnin er.
Heimilið kveður þitt nú þú,
það einnig flytur kveðju þér.
Með trúleik ætíð verk þitt
vanst,
því vinnan jafnan ljúf þér var,
og ánægju þú ætíð fanst,
er unnið starf þess vitni bar.
Þig vinir syrgja og
vandamenn,
nú vegamótin nálgast ótt.
Þótt sól á lofti sjáist enn,
við segjum: Vinur, góða nótt!
Minninganna myndir
munu þínir kæru
ástvinirnir eiga
í andans ljósi skæru.
Fóstur-foldin fríða,
faðmi þig nú vefur,
blíð sem bezta móðir,
blund þér væran gefur!
B. J. Hornfjörð
Dönsku konungs-
hjónin koma flugleiðis
til íslands
Samkvæmt upplýsingum,
sem birtar eru í nýkomnu
blaði af danska blaðinu
Politiken, er sagt, að dönsku
konungshjónin ætli að ferðast
fljúgandi, þegar þau koma í
hina opinberu heimsókn til ís-
lands snemma í aprílmánuðí.
Talið er víst, að H. C. Han-
sen, forsætis- og utanríkisráð-
herra Dana, verði í fylgd með
konungshj ónunum.
Verður þetta í fyrsta sinn,
sem konungurinn ferðast flug-
leiðis eftir að hann krýndist
konungur Dana, og í fyrsta
sinn, sem hann heimsækir ís-
land sem þjóðhöfðingi. Hann
hafði áður á ríkiserfingja-
árum sínum þrisvar komið til
íslands, 1921 með foreldrum
sínum, 1933 á dönsku her-
skipi og 1938 komu krónprins-
hjónin, hann og Ingrid hing-
að til landsins. Tíminn, 12. des
Drewrys