Lögberg - 19.04.1956, Síða 1
SAVE MONEYl
use
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In yA Lb. Tins
Makes the Flnest Bread
Avallable at Your Favorite
Grocer
SAVE MONEY!
use
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In y4 Lb. Tins
Makes the Finest Bread
Avallable at Your Favorite
Grocer
68. ARGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 19. APRIL 1956
NÚMER 16
Norrænir kirkjumenn fjölmenna í Skálholt til
900 ára hátíðar biskupsstóls á íslandi
Björgunarbáturinn Gísli J. Johnsen afhentur
Slysavarnafélagi íslands
Svíar munu gefa tvær kirkju-
klukkur
Einkaskeyti til Alþýðubl.
Stokkhólmi í gær.
Búizt er við að norrænir
kirkjumenn muni fjöl-
menna til Islands næsta
sumar til þess að vera
viðstaddir 900 ára afmæl-
ishátíð biskupsstóls í Skál
holti. Er jafnvel rætt um,
að sænskir klerkar leigi
sér skip til fararinnar.
Samtök presta í Stokk-
hólmi gengust fyrir íslands-
•kvöldi í Stórkirkjunni á
sunnudagskvöld að frum-
kvæði Manfred Björkquist
biskups.
Erindi um ísland
Helge Ljungberg, hinn nýi
Stokkhólmsbiskup, flutti er-
mdi, er hann nefndi Island.
sögulandið. Björkquist ræddi
Um kirkjuhátíð á Islandi í
Skálholti næsta sumar.
Kirkjukór Engilbrekskirkju
°g söngkonan Kerstin Lind-
Öðlast borgarréffindi
St. James, sem í háa
herrans tíð hefir verið undir-
borg frá Winnipeg og sveitar-
béfað, hefir nú öðlast borgar-
réttindi; voru þar að lútandi
skilríki afhent borgarstjóran-
um B. Findlay á þriðjudag-
mn í vikunni, sem leið, að
viðstöddu miklu stórmenni,
svo sem Campbell forsætis-
ráðherra, allmörgum þing-
mönnum og héraðshöfðingj-
um í grendinni.
Stjórnarskipfi á
Ceylon
Að nýlega afstöðnum kosn-
ingaósigri hefir Sir John
Katelawala, forsætisráðherra
í Ceylon, beðist lausnar fyrir
ráðuneyti sitt, og við af hon-
um tekið Solomon Bandara-
naike, er krefst þess að
Ceylon öðlist fullkomið sjálf-
stæði; hann er róttækur
vinstri maður og í algerðri
uiótsetningu við Sir John, sem
er í einu og öllu af hinum
gamla skóla.
berg Torlind fluttu íslenzk
lög eftir Þórarinn Jónsson,
Sigurð Þórðarson, Pál Kr.
Pálsson og Jón Leifs. Að
lokum var þjóðsöngurinn
sunginn.
Ætla að gefa kirkjuklukkur
Björkquist tilkynnti, að
Svíar ætluðu að gefa tvær
kirkjuklukkur í Skálholt.
Gefa prestar aðra en leik-
menn hina. Er mikill áhugi
hér á kirkjuhátíðinni í Skál-
holti. —Alþbl., 6. marz
Ssgir skilið við
flokk sinn
Mr. Bill Bullmore, Social
Credit þingmaður í Manitoba-
þinginu síðan 1953 hefir sagt
skilið við flokk sinn og kveðst
jafnt og þétt hafa verið að
fjrlægjast stefnu hans eftir
að hann kom á þing. Mr.
Bullmore situr á þingi fyrir
Dauphin-kjördæmið, og var
áður bæjarstjóri í Dauphin
um tíu ára skeið.
Mr. Bullmore féll það illa,
er hljóðbært varð að einhver
flokksbræðra hans hefði þegið
í kosningasjóð sinn fé frá öl-
gerðarhúsum fylkisins og
krafðist þess að fá að vita hið
sann í því efni, þó enn sé
það eigi upplýst að fullu;
hann hefir reynst hinn nýtasti
maður á þingi og vinnur von-
andi endurkosningu, er þar að
kemur þó undir öðrum
merkjum verði.
Rannsókn lokið
Konungleg rannsóknar-
nefnd, sem fyrir hönd Quebec
stjórnar hefir verið að kynna
sér afstöðu fylkisins gagn-
vart sambandsstjórn varð-
andi skattamálin, hefir nú
lokið störfum og lagt fram
álitsskjöl sín; er þar meðal
annars mælt með því, að
fylkisstjórn innheimti beina
skatta, svo sem persónulegan
tekjuskatt, skatt stóriðju-
fyrirtækja og erfðafjárskatt;
svo er ætlast til, að þetta nýja
fyrirkomulag nái jafnt til
allra fylkjanna eftir að þar
að lútandi löggjöf hefir öðlast
samþykki þeirra.
Horfinn heim
Georgi Malenkov, fyrrum
forsætisráðherra Rússa og nú-
verandi raforkumálaráðherra,
sem dvalizt hefir á Bretlandi
undanfarnar þrjár vikur til
að kynna sér rekstur orku-
stöðva þar í landi, er nú horf-
inn heim til Moskvu og kvaðst
hafa mundu samverkamönn-
um sínum í ráðuneytinu frá
mörgu að segja varðandi dvöi
sína í höfuðborg berzka veld-
isins og ferðalög út um landið;
kvað hann fyrirgreiðslu alla
verið hafa hina ákjósanleg-
ustu af hálfu brezkra stjórn-
arvalda og bar brezku þjóð-
inni söguna hið bezta.
Björgunarbáturinn Gísli J.
Johnsen var afhentur Slysa-
varnafélagi íslands í Gauta-
borg á laugardaginn var. Þau
hjónin, Gísli J. Johnson stór-
kaupmaður og kona hans
gáfu félaginu bátinn til björg-
unarstarfs í Faxaflóa og af-
hentu hann, en Henry Hálf-
dánarson skrifstofustjóri fé-
lagsins veitti hinni höfðing-
legu gjöf viðtöku fyrir hönd
félagsins.
Auk þeirra, sem þegar hafa
verið taldir, voru viðstaddir
afhendinguna M. Östberg
aðmíráll frá flotaþjónustu
vesturstrandarinnar sænsku,
yfirmaður björgunarfélagsins
norska, Hans Holter, og yfir-
maður björgunarfélagsins
sænska, Hans Hugo Hansson,
Julius Huttner, aðalræðis-
maður og margir félagar úr
íslandsvinafélaginu í Gauta-
borg.
Allur úr Alúmíníum
Báturinn er smíðaður hjá
'Djupvikskipasmíðastöðinni að
Tjörn. Hann er allur úr
alúmíníum. Lengd hans er 13
metrar og breidd 5,5 metrar.
Vér hans er 70 hestafla June-
Munktel dieselvél. Hefur
hann allan nýtízku björgunar-
útbúnað.
Kemur í góðar þarfir
Hinn nýi björgunarbátur
verður staðsettur í Reykjavík,
en slíkan björgunarbát hefur
Slysavarnafélagið ekki átt í
Reykjavík síðan 1952, er
björgunarbátur þess eyði-
lagðist við björgun úr sænska
skipinu Hanö, er strandaði
við Engey.
—Alþbl., 28. febY
Sáttatilraun
Dag Hammarskjold, aðal-
ritari sameinuðu þjóðanna,
er um þessar mundir í Pale-
stínu með það fyrir augum,
að reyna að koma á sáttum
milli Israelsmanna annars
vegar og Egyptalands og
annara Arabaþjóða hins veg-
ar, en milli þessara þjóðflokka
hefir sambúðin verið alt
annað en ákjósanleg upp á
síðkastið, og stundum bein-
línis slegist í mannskæðan
skæruhernað. Mr. Hammar-
skjold hefir þegar átt við-
ræður við stjórnarformenn
ísraelsríkis og Egyptalands,
sem vonandi er að beri ein-
hvern árangur, því ekki sýn-
ist nema litlu mega muna að
alt geti hlaupið í bál og
brand austur þar.
Forsetakjör
Nýkomin Reykjavíkurblöð
skýra frá því, að forsætis-
ráðuneytið hafi kunngert, að
forsetakjör fari fram þann 24.
júní næstkomandi.
Nokkurn veginn mun mega
víst telja, að núverandi for-
seti, herra Ásgeir Ásgeirsson,
verði kosinn gagnsóknarlaust.
Úfvarp frá Fyrstu lútersku kirkju
Árdegisguðsþjónustunni í Fyrstu lútersku kirkju verður
utvarpað næstkomandi sunnudag 22. apríl kl. 11 yfir
stöðina C.B.W.
Að kvöldi sama dags fer fram ungmennaguðsþjónusta á
ensku kl. 7 í stað hinnar venjulegu guðsþjónustu á íslenzku.
Vinsæl hjón og mæt eiga gullbrúðkaup
Mr. og Mrs. Ingi Brynjólfsson
Þann 15. janúar síðastliðinn áttu þau merkishjónin
Ingi Brynjólfsson og frú hans Susanna í Chicago gull-
brúðkaup, og var þess vegalega minst með samsæti á
heimili sonar þeirra og tengdadóttur, Mr. og Mrs. Ernest
Brynjólfsson, er sextíu gestir tóku þátt í; voru gullbrúð-
hjónin hylt á margan hátt með hlýyrðum, símskeytum
og gjöfum.
Ingi er sonur hinna kunnu hjóna, sem fyrir löngu eru
látin, Sveins Brynjólfssonar byggingameistara og Þór-
dísar frúar hans, en gullbrúðurin er dóttir Sigurðar
Christopherssonar, er grundvöll lagði að Argylebygð og
konu hans Carrie, dóttur Taylors, þess, er bezt reyndist
íslendingum hin fyrstu mannraunaár þeirra á Gimli.
Gullbrúðhjónin eiga sex börn, Ingu, Wilfred, Carrie,
Thordísi, Ernest Svein og Gladys, og eru þau öll búsett
í Chicago. — Lögberg flytur gullbrúðhjónunum innilegar
árnaðaróskir.
Sumardagurinn fyrsti
Nú gróandann vekur vorsins sál,
og vonirnar himin blár,
sólgeislum snert fær moldin mál,
og minnist við daggartár.
Sumarblærinn frá allri átt,
nú andar á kalinn svörð
og Harpa strengina bærir brátt
í bæn sinni og þakkargjörð.
Því sumarið unga suðri frá
sólvængjað kom í dag,
með æskuvonir og vaxtarþrá;
vorboðans hörpuslag.
Það geymir í vorhugans vermireit,
vorkvæði fegurst gjörð
um fylling tímans og fyrirheit,
um framþróun lífs á jörð. S. E. Björnsson