Lögberg - 17.05.1956, Page 1
SAVE MONEY!
use
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In V* Lb. Tins
Makes the Finest Bread
Available at Your Favorite
Grocer
SAVE MONEY!
use
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In y4 Lb. Tins
Makes the Finest Bread
Available at Your Favorite
Grocer
68. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 17. MAÍ 1956
NÚMER 20
Lánveiting til
gasleiðslu
Viðskiptamálaráðherra sam
bandsstjórnar, Mr. Howe,
hefir tilkynt í þinginu, að
stjórnin hafi ákveðið að veita
Trans Canada Pipe Lines
Limited áttatíu miljón dollara
lán svo hefja megi nú í sumar
gaspípuleiðslu frá Alberta
áleiðis til Montreal; lánveit-
ing þessi nær til gasleiðslunn-
ar frá Alberta til Winnipeg;
áætlað er að pípulagningin
frá Alberta til Montreal kosti
$375,000,000.
Búist er við löngum og heit-
um umræðum á þingi um
áminsta lánsheimild; íhalds-
menn og C. C. F.-sinnar eru
andvígir heimildinni, en þing-
nienn Social Credit flokksins
hafa lýst yfir fylgi sínu við
stjórnina í málinu.
Laetur of embætti
Fylkisféhirðir og iðnaðar-
uaálaráðherra Campbellstjórn
arinnar í Manitoba, Ronald D.
Turner, hefir látið af embætti
°S tekst á hendur forstjóra-
stöðu við Central Northern
Airways. Mr. Turner hefir
setið á þingi sem einn af þing-
uiönnum Suður-Winnipeg
hjördæmisins og jafnan þótt
uaálafylgjumaður mikill; við
brottför hans úr ráðuneytinu
uiissir Mr. Campbell einn
sinna allra hæfustu ráðherra;
embættisafsögn Mr. Turners
hafði legið í loftinu um hríð
eg kom því í rauninni fáum
á óvart.
Kiörinn í mikilvægd
ábyrgðarstöðu
Bæjarstjórnin í Winnipeg
hefir kjörið Jack Blumberg
að formanni þeirrar nefndar,
er um samgöngukerfi Winni-
Pegborgar hinnar meiri ann-
ast með $6,600 árslaunum;
*heðnefndarmenn hans verða
G. Smerchanski og Cecil
• Joslyn, er fá í árslaun
*2,400 hvor um sig.
, ^r- Blumberg hefir átt sæti
* bæjarstjórn í nálega 36 ár
yrir 3. kjördeild og notið
meira kjörfylgis en flestir ef
ehki allir bæjarráðsmenn hér;
ann er málafylgjumaður
jhikill og hefir marga snarpa
hhdi háð fyrir hönd C.C.F.-
okksins; nú hefir hann látið
** bæ j arf ulltrúastöðunni og
Sagt skilið við flokk sinn.
Hvort aukakosning fari
ram í kjördeildinni er enn
ei,gi vitað, eða slíkt verði látið
1 a hinna venjulegu október-
kosninga.
Þingrof og nýjar
kosningar
Forsætisráðherrann í Sask-
atchewan, Mr. Douglas, hefir
rofið þing og mælt svo fyrir
að nýjar kosningar fari fram
hinn 20. júní næstkomandi;
stjórnarflokkurinn býður
fram þingmannsefni í öllum
kjördæmum, og slíkt hið
sama gera Liberalar og Social
Credit játendur. Um framboð
af hálfu íhaldsflokksins er
enn eigi vitað, eða hve mörg
þingmannsefni verði 1 kjöri.
Hyltur á fjölmennri
samkomu í
Grand Forks
Á söngsamkomu karlakórs
ríkisháskólans í N. Dakota
(The Varsity Bards), sem
haldin var í Grand Forks þ.
17. apríl, gerðist það, sem
sjaldgæft er talið í sögu há-
skólans, að kórinn söng ljóð
og lag eftir tvo af kennurum
skólans. Var hér um að ræða
kvæði dr. Richards Beck “An
Ever-Shinging Flame”, en
lagið við það hafði verið
samið af Prófessor Philip
Cory, háskólakennara í hljóm
listarfræðum. Var ljóði og
lagi tekið með miklum fögn-
uði, og höfundarnir hyltir ör-
látlega af hinum fjölmenna
áheyrendahópi, en um 1200
manns sóttu samkomuna.
Ofannefnt kvæði dr. Becks
var á sínum tíma prentað í
Lögbergi undir fyrirsögninni
“A Tribute to Our Heroic
Dead”, og hefir verið víðar
prentað, meðal annars í
kvæðasafni hans A Sheaf of
Verses (1952).
Safnast tiS feðra sinna
• 7z S- /9<r^
Síðastliðinn laugardag lézt
hér í borginni mannvinurinn,
•blaðamaðurinn og skáldið
Sigurður Júlíus Jóhannesson
freklega 88 ára að aldri,
fæddur að Læk í Ölfusi 9.
janúar 1868. Foreldrar hans
voru Jóhannes Jónsson og
Guðný kona hans; hann
var róttækur umbótamaður
á vettvangi mannfélagsmál-
anna, skáld gott, mælskumað-
ur mikill og snjall blaða-
maður; munu meðal annars
barna- og unglingaljóð hans
halda nafni hans lengi á
lofti. Góðtemplarareglan átti
traustan hauk í horni þar
sem Sigurður læknir var;
hann lætur eftir sig konu
sína, frú Halldóru Fjeldsted
Jóhannesson og tvær dætur,
Málfríði og Svanhvít, sem
báðar eru búsettar í Ottawa.
Útför þessa f jölhæfa og stór
merka samferðamanns var
gerð frá Bardals á þriðjudag-
Sigurður Júlíus Jóhannesson
inn; kveðjumálin flutti Dr.
Valdimar J. Eylands.
Minningargrein um Sigurð
lækni eftir ritstjóra Lögbergs
mun birtast í blaðinu við allra
fyrstu hentugleika.
Skreið hefur síðustu ár verið ein af
aðalútflutningsafurðum okkar
Er aðallega seld til Afríku-
landa og mest til Nígeríu
Skreiðarframleiðsla íslend-
inga hefur vaxið hröðum
skrefum á seinustu tveimur
áratugum. Hún nam aðeins
rúmlega 800 lestum 1935, en
varð nærri 79 þúsund smá-
lestir 1953, og yfir 50 þúsund
1954 og 1955, hvort árið um
sig.
Nánar tiltekið var fram-
leiðslan 841 smálest 1935,
komst upp í næstum 5 þús.
lestir 1937, en fór svo aftur
Vorið guðar á glugga
Guða létt á glugga minn
geislafingur vorsins kæra;
hugarvæng ég hefjast finn,
hjartans innstu strengi bæra
löngu þráðir , ljúfir ómar;
lífsins rödd að nýju hljómar.
Lifna fræ í mjúkri mold,
mildur andar blær um vanga;
grænu silki sveipast fold,
sólu kysstir lundir anga;
lyfta eikur höfðum háum
himni móti fagurbláum.
Vetrarkvíði vorið flýr,
vermir hjörtun söngvahreimur.
Andá mánnsins opnast nýr
yndisríkur dýrðarheimur: —
Sér í augum ungra blóma
eilífð himindjúpa ljóma.
RICHARD BECK
minnkandi næstu ár, og engin
1947 og 1948, aðeins 59 smál.
1949 og rúmlega 6,800 1951.
Hækkar svo úr 6,832 smál. ’51
upp í 14,715 árið eftir, og
tekur svo risastökk upp í
78,995 smálestir 1953, en er
53,293 1954 og 56,000 árið, sem
leið, talið til októberloka.
Það var 1952, sem Sam-
lag Skreiðarframleiðenda var
stofnað, en hér er um að ræða
frjáls samtök útgerðarmanna
og framleiðenda, er sér um
sölu og dreifingu skreiðar
fyrir meðlimi sína og hefur
frá stofnun þess verið stærsti
útflytjandi skreiðar á íslandi.
Er skreið nú orðin ein af aðal-
útflutningsvörum Islendinga
og hefur verið seinustu 3 árin.
Fer aðallega til Afríkulanda
Skreiðin er flutt út að lang-
mestu leyti til Afríku, eða
nánara tiltekið til Nigeríu,
brezku og frönsku Kamerun
og Gullstrandarinnar. Enn-
fremur fer nokkurt magn til
ítalíu, Finnlands, Svíþjóðar
og Bandaríkjanna, en lang-
mest af íslenzkri skreið er selt
til Nigeríu.
Fiskimálanefnd
átti frumkvæðið að því, að
farið var að verka skreið til
útflutnings, en Fiskimála-
nefnd var stofnuð með lögum
29/12 1934. Vann nefndin
Framhald á bls. 8
Söngskemmtun
Ung íslenzk söngkona, frú
Hanna Bjarnadóttir, er vænt-
anleg til borgarinnar innan
skamms og mun hún efna til
hljómleika í Fyrstu lútersku
kirkju 25. júní n.k. á vegum
Þjóðræknisdeildarinnar Frón.
Listakona þessi hefir undan-
farin ár stundað söngnám í
Hollywood, California hjá
frægum kennara, Mrs. Flor-
ence Lee Holtzman.
Frú Hanna er fædd og upp-
alin á Akureyri, dóttir hjón-
anna Bjarna M. Jónssonar og
Sigríðar Óslands, sem bæði
eru skagfirzk að ætt. Hanna
hlaut fyrst tilsöng í söng hjá
Guðrúnu Þorsteinsdóttur á
Akureyri og síðar hjá Sigurði
Birkis í Reykjavík, en þaðan
fór hún til Hollywood sumar-
ið 1953.
Haustið 1954 tók Hanna sér
ferð á hendur til íslands og
hélt hljómleika í Reykjavík,
ísafirði og Akureyri. Blaðið
Vísir hrósaði söng hennar
mikið og taldi það sjaldgæft
mjög að nokkur söngvari næði
slíkum tökum á list sinni á
fáeinum árum eins og frú
Hanna hefði gert. Laugar-
dagsblaðið lét svo ummælt, að
hana mætti hiklaust telja með
beztu söngkonum landsins.
Blaðið Verkamaðurinn á Ak-
ureyri tók í sama streng, og
öll blöðin voru sammála um
það að söngkonan hefði hrifið
alla, sem á söng hennar
hlýddu.
í næstu blöðum verður
skýrt frá væntanlegri söng-
skrá og öðru hljómleikum
þessum viðkomandi.
Ægilegar blóðs-
úthellingar í Algeríu
Blóðugir bardagar hafa
staðið yfir undanfarna daga
milli innfæddra Nationalista
og franskra hersveita og
mannfall orðið mikið af hálfu
beggja aðilja; í vesturhluta
Algeríu hafa uppreistarmenn
brent um fjörutíu bændabýli,
er Evrópumenn réðu yfir og
gert á fleiri sviðum mikinn
usla víðsvegar um landið.
Landsstjórinn hefir krafist
þess af frönsku stjórninni, að
hún sendi tafarlaust auknar
hersveitir til Algeríu til að
skakka leikinn.