Lögberg - 04.10.1956, Qupperneq 1
SAVE MONEYl
use
LÁLLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In V4 Lb. Ttns
Makes the Finest Bread
Available at Your Favorite
Grocer
69- ÁRGANGUR
SAVE MONEY!
use
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In Ví Lb. Tlns
Makes the Finest Bread
Avallable at Your Favorite
Grocer
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 4. OKTÓBER 1956
NÚMER 40
## Hundrað ár
1 gærdag bauð prófessor
^innbogi Guðmundsson frétta
^nönnum að sjá litkvikmynd
Ur byggðum íslendinga vestan
b^fs, sem hann nefnir
»Hundrað ár í Vesturheimi".
^íðastliðið ár var liðin öld frá
uPphafi hinna svonefndu
Vesturferða íslendinga á 19.
öld 0g í tilefni þeirra tíma-
^óta efndi prófessor Finnbogi
til niyndatökuferðar um nær
sllar byggðir íslendinga í
anada og í Bandaríkjunum.
f.ar Kjartan Ó. Bjarnason í
Ur með honum. Á þessu ferða
agi heimsóttu þeir íslendinga
°g tóku kvikmyndir af þeim
s’jálfum, híbýlum þeirra og
ynasum stofnunum, sem þeir
starfa við eða standa sjálfir
tyrir.
^Yndir af staðháttum og
Pióðlífi vestra
í*ótt kvikmyndin fjall
P^stmegnis um Islending,
^stra, er hún ekki öll við þí
undin, heldur oVu felldir
ana nokkrir þættir, er sýn;
staðhætti og þjóðlíf í Banda
rikjunum og Canada. Ti
ssmis eru sýnd hverasvæðir
1 ^ellowstone Park og einnif
^rgar fallegar myndir frí
ettafjöllunum. Þá er einnij
rugðið upp lífi kúreka 0|
estamanna í hinu svonefnd;
tampede í Calgary.
. Hyrsti kafli kvikmyndar-
lunar er tekinn norður
bkagafirði sumarið 1954. Sýn-
h'^ann fjölskyldu, sem er a(
Uast til vesturfarará 19. aldai
Vlsu- Er sýnt er fjölskyldar
að selja búpening sinn o^
Uslóð og ríður síðan úr hlað.
lr óbrúuð vötn til strandar
a^an sem róið er frá landi :
u Hna til skipsins, sem er é
eip Vestur um haf.
. ótt ekki sé lengra liðið er
j,. ar siðan þeir prófessoi
lnnbogi og Kjartan, kvik-
ynduðu í Islendingabyggð-
Vestra, hafa ýmsir þeir ei
myndinni sjást, þegar safn-
z til feðra sinna. Má ti]
a^mis nefna meðal þeirra
^ aldin Sigurð Júlíus Jó-
^ annesson og Þorstein Þ. Þor-
einsson. Mun heimildagildi
yndarinnar því aukast þvi
meir sem tímar líða.
j,. nasstu viku mun orófessor
lnnb0gi hefja sýningar á
kv^ndinni hér á landi og
vaðst hann fyrst mundu sýna
satla a Sauðárkróki, en síðan
^erTl Vlðast um landið. Hyggst
na lnn meginkostnaði
m °§ §erð myndarinnar
y6 því að sýna hana hér og í
esturheimi, en kostnaðurinn
arð geysimikill.
í Vesturheimi"
Prófessor Finnbogi kvaðst
að lokum, vilja flytja ríkis-
stjórn íslands, Þjóðræknis-
félagi Islendinga í Vestur-
heimi og nokkrum einstakl-
ingum vestra, kærar þakkir
fyrir fjárhagslegan styrk til
þessa fyrirtækis.
—Mbl., 24. ágúst
_L__________
Norðmenn skerpa
fiskmat
Norska sj.ávarútvegsmála-
ráðuneytið hefir birt tilskipun
um mjög hert fiskimat á öll-
um sviðum. Skal nú allt metið,
hvaða verkun, sem viðhöfð er,
allt frá því fiskurinn kemur
upp úr skipi. I blöðum kemur
fram, að ekki hafi verið gripið
til þessara ráðstafana fyrr en
nauðsyn krafði. En tregða
fiskimanna, útvegsmanna og
fiskvinnslustöðva að vanda
vöruna sem mest hafi valdið
því, að ekki var til setunnar
boðið. Aldrei hafi verið nauð-
synlegra fyrir Norðmenn en
einmitt nú að varðveita orð-
stír norskrar gæðavöru er-
lendis vegna harðnandi sam-
keppni á fiskmarkaðinum.
Þess vegna megi aldrei þola,
að slakað sé neitt á kröfunni
um vöruvöndun. I skrifum
um þetta mál kemur í ljós, að
norskur saltfiskur hefir að
undanförnu sætt nokkurri
gagnrýni, m. a. munu heil-
brigðisyfirvöld á ítalíu hafa
stöðvað sölu á nokkrum
birgðum af norskum saltfiski
fyrir nokkru. Það sem eink-
um er nýtt í nýju reglugerð-
inni er, að allur nýr fiskur fer
undir mat, hvernig sem verk-
un hans á að vera háttað, og
síðan fer útflutningsvaran,
fullverkuð, einnig undir mat.
Stjórnin tilkynnir að reglur
þessar komi til framkvæmda
eins fljótt og unnt reynist um
land allt og verði hvergi
slakað á kröfunum.
Norðmenn leggja mikið
kapp á að tryggja sér skreið-
armarkaðinn í Nígeríu þar
sem þeir eiga í harðri sam-
keppni við íslendinga. Nýj-
asta skrefið til þess að efla
tengsl við þetta fjarlæga land
er, að norska utanríkisráðu-
neytið og norska útflutnings-
ráðið buðu heim 7 blaða-
mönnum frá Nígeríu til þess
að kynna þeim fiskifram-
leiðslu Norðmanna, einkum
skreiðarframleiðslu í blöðum
landsins og vekur ferð blaða-
mannanna mikla athygli
heima fyrir.
—TÍMINN, 26. júlí
Merkilegar
rannsóknir
I sumar hefur Rannsóknar-
ráð íslenzka ríkisins lagt
mikla áherzlu á segulmæling-
ar, enda eru þær mjög mikil-
vægar fyrir jarðfræðilegar
rannsóknir. Mæld er ná-
kvæmlega stefna segulsviðs-
ins í gömlum hraunlögum. I
sumar f^nnst á Austfjörðum
berg frá 30 mismunandi segul-
skeiðum, sem bendir til þess
að segulsvið jarðar hafi snúist
við að minsta kosti 30 sinnum
á meðan Island var að skapast.
Þeir Þorbjörn Sigurgeirsson
framkvæmdastjóri Rannsókn-
arráðs og Trausti Einarsson
prófessor unnu að mælingum
þessum. Þeir munu báðir
sækja alþjóðaráðstefnu berg-
segulfræðinga, sem haldin
verður í Lundúnum í nóvem-
ber. Unnið er að því að reisa
sjálfvirka segulmælingastöð
ekki alllangt frá Reykjavík og
er það þáttur í þeim rann-
sóknum, sem íslendingar gera
á jarðeðlisfræðiárinu. Brezkur
jarðfræðingur, dr. Walker frá
Lundúnaháskóla starfaði að
því í fyrra og aftur í sumar
að kortleggja basaltlögin á
Austfjörðum. Samkvæmt at-
bugunum hans má gera ráð
fyrir að basalthellan á Aust-
fjörðum sé meira en 8,000
metra þykk. Elzta bergið sem
hann hefur fundið þar, kemur
fram á Barðsnesi sunnan Við-
fjarðar, og í því fann hann
surtarbrandsleifar af trjá-
stofnum, sem standa þar upp
á endann allt að því fjögra
metra háir og upp í metra í
þvermál. Tré þessi eru lík-
lega frá fyrrihluta tertier-
aldar, það er að segja 40 til 60
miljón ára gömul.
Drs. Kenneth og
Robert Thorlakson
komnir heim
Þ e i r tvíbura-bræðurnir
Kenneth og Robert, synir Dr.
og Mrs. P. H. T. Thorlakson,
sem báðir voru brautskráðir í
læknisfræði frá Manitoba-
háskóla, hafa á þessu ári lokið
fimm ára framhaldsnámi í
skurðlækningum á Englandi,
og hvor um sig hlotið Degree
of Fellow of the Royal Col-
lege of Surgeons of England.
Dr. og Mrs. Kenneth Thor-
lakson komu heim fyrir
nokkru síðan, en Dr. og Mrs.
Robert Thorlakson á sunnu-
dagskveldið, ásamt dætrum
sínum, Carla Gay og Patricia.
Þeir læknarnir hafa nú
tekið að sér störf við Winnipeg
Clinic.
í heimsókn til
Washington
Canadiska útvarpið flutti
þá frétt á mánudagsmorgun-
inn, að utanríkisráðherra ís-
lands, Emil Jónsson, væri þá
nýkominn til Washington til
viðræðna við Mr. Dulles utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
og var þess jafnframt getið,
að horfur um samkomulag
milli ríkisstjórna beggja þjóða
varðandi setuliðið á Islandi og
varnarmálin væri nú betri og
bjartari en fyrst í stað eftir
stjórnarskiptin.
Úrslit þingkosninga
Á þriðjudaginn fóru fram
almennar kosningar til fylkis-
þingsins á Newfoundlandi, og
féllu úrslit k þann vegJ að
Liberalstjórnin undir leiðsögn
Smallwoods forsætisráðherra,
var endurkosin með því nær
einhliða þingmeirihluta, hlaut
32 þingsæti af 36. íhaldsmenn
fengu fjögur.
Fundur ótjón þjóða
Síðastliðinn mánudag hófst
í London fundur átján þjóða,
er mest not hafa af siglingum
um Suezskurðinn, og var sam-
þykt, að ráði Edens forsætis-
ráðherra Breta, að stofna not-
endasamband, er trygði öllum
hlutaðeigendum jafnan að-
gang að þessari mikilvægu
siglingaleið; fimtán þjóðir af
þeim átján, er fundinn sóttu
gengu í sambandið, en þrjár
vildu eigi ákveða sig að svo
komnu máli, þar á meðal
Pakistan.
!
Rikisforseti lótinn
Síðastliðinn laugardag lézt
af sárum í Gorges sjúkrahúsi
við Panamaskurðinn Ana-
stasio Somoza lýðveldisforseti
í Nicaragua, sextugur að aldri,
mikilhæfur stjórnmálaforingi;
nokkrum dögum áður, er
hann var staddur á skemti-
samkomu skamt frá höfuð-
borginni, Managua, var skotið
á hann sjö skotum og særðist
hann þá holundarsárum; ame-
rískir læknar gerðu á honum
uppskurði, en alt kom fyrir
ekki; árásarmaður hans var
skotinn til dauðs á staðnum.
Boðin Senatorsstaða
Að því er fregnir frá
Ottawa herma, hefir forsætis-
ráðherrann, Mr. St. Laurent,
boðið fráfarandi leiðtoga
íhaldsflokksins, Col. George
Drew sæti í efri málstofu
sambandsþingsins; — hvort
hann gengur að boðinu er enn
eigi vitað.
Sambandskosningar
r • r é
i juni
Á blaðamannafundi, sem
haldinn var í Ottawa í lok
fyrri viku, gaf forsætisráð-
herrann, Mr. St. Laurent það
nokkurn veginn ótvírætt í
skyn, að sambandskosningar
myndi fara fram í júnímánuði
næstkomandi, sennilega seinni
part mánaðarins; kvað hann
kjósendum jafnaðarlegast um
það leyti árs hægast um vik
til þess að neyta kosninga-
réttar síns.
Frá stjórnskipulegu sjónar-
miði séð gæti stjórnin setið
við völd einu ári lengur, en
sú hefir verið ófrávíkjanleg
venja Liberalstjórnarvalda að
leita álits kjósenda ári fyr en
hið lögboðna kjörtímabil
rynni út.
Mr. St. Laurent nýtur enn
ágætrar heilsu, og má því víst
telja, að hann hafi með hönd-
um leiðsögn flokks síns í
næstu kosningum.
Mr. St. Laurent hefir lýst
yfir því, að þing muni ekki
koma saman fyr en í janúar.
Leiðtogi til
bróðabirgða
Á framkvæmdarnefndar-
fundi, sem haldinn var ný-
lega í Ottawa, var Mr. Earl
Rowe kjörinn leiðtogi Ihalds-
flokksins til bráðabirgða, eða
ftam að þeim tíma, er flokks-
þing kemur saman, sennilega
í desember til þess að velja
eftirmann Col. Drews. Mr.
Rowe hefir lengi setið á þingi
og gegndi ráðherraembætti í
stjórnartíð R. B. Bennetts;
hann er 62ja ára að aldri og
er talinn í hópi hinna nýtustu
samþingismanna sinna.
Að því er ráða má af blaða-
ummælum víðsvegar um
landið, bendir flest til þess, að
fylgi Mr. Diefenbakers til
flokksforustunnar fari vax-
andi jafnt og þétt.
Fundinn fjallgarður
Ástralski sjóherinn hefir til-
kynt að mælingaskip flotans
“Barcoo” hafi fundið áður
óþektan neðansjávar fjallgarð
í Kyrrahafi. Fjallgarður þessi
er um 200 mílur austur af
New South Wales og að
meðaltali 1,800 metra hár. —
Ekki mun hann hættulegur
siglingum, því hæsti tindurinn
er 3,650 metrum undir yfir-
borðinu.