Lögberg - 04.10.1956, Blaðsíða 2
2
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 4. OKTÓBER 1956
Fréttabréf fró ríkisútyarpi íslands
— 23. SEPTEMBER 1956 —
Fyrri hluta vikunnar, sem
leið var hægviðri hér á landi
og yfirleitt úrkomulítið, en
miðvikudag, fimmtudag og
föstudag var allhvöss og hvöss
austanátt og rigning, snjóaði í
fjöll og norðanlands var
slydda á láglendi. Nú er kom-
in hæg norðanátt og hefur
kólnað, en annars var hlýtt í
veðri sunnanlands alla vik-
una, stundum óvenjuhlýtt.
☆
Utanríkisráðherra Canada,
Lester B. Pearson, kemur í
opinbera heimsókn til íslands
á morgun ásamt konu sinni,
og er gert ráð fyrir, að flug-
vél ráðherrans lendi á Kefla-
víkurflugvelli kl. 15. Sendi-
herra Canada hér, Chester A.
Rönning, er hingað kominn til
að taka þátt í heimsókn ráð-
herrans, og auk þess verður í
föruneyti hans Ray Crepault
fulltrúi í utanríkisráðuneyt-
inu í Ottawa. Utanríkisráð-
herra heldur gestunum veizlu
annað kvöld, á þriðjudags-
morgun heimsækir Pearson
forseta íslands, forsætisráð-
herra og utanríkisráðherra, en
fer síðari hluta dags í boði
utanríkisráðherra til Þing-
valla. — Á þriðjudagskvöld
heldur forseti íslands gestun-
um veizlu að Bessastöðum. Á
miðvikudagskvöld tekur utan-
ríkisráðherra Canada á móti
gestum að Hótel Borg og héð-
an fer hann heimleiðis undir
miðnætti þá um kvöldið. I
þessari opinberu heimsókn
kemur ráðherrann fram sem
fulltrúi ríkisstjórnar sinnar og
lands, en eigi sem sérstakur
sendimaður Atlántshafsráðs-
ins.
☆
Samningar um verzlunar-
viðskipti milli Islands og
Sovétríkjanna fara nú fram í
Reykjavík og mun ljúka í
þessari viku. Rússneska samn-
inganefndin kom á sunnudag-
inn var til Reykjavíkur. For-
maður hennar er Finagenov,
forstjóri innflutningsdeildar
utanríkisviðskiptaráðuneyt-
isins í Moskvu. Pétur Thor-
steinsson ambassador íslands
í Moskvu, varð rússnesku
sendinefndinni samferða, og á
sæti í íslenzku samninga-
nefndinni, sem skipuð er 11
mönnum. Formaður hennar er
Þórhallur Ásgeirsson ráðu-
neytisstjóri viðskiptamála-
ráðuneytisins.
☆
í fyrradag var sú breyting
gerð á skipun húsnæðismála-
stjórnar, að bætt verður í
hana tveimur mönnum, svo að
þar skulu eiga sæti sjö menn
í stað fimm manna áður. Ráð-
herra tilnefnir þrjá menn úr
húsnæðismálastjórninni til
þess að hafa á hendi stjórn
allra framkvæmda á vegum
hennar eftir nánari fyrirmæl-
um í reglugerð.
☆
í gær bættist íslenzka flot-
anum stærsta skipið, sem Is-
lendingar hafa eignast. Það er
16,700 lesta olíuskip, er Sam-
band íslenzkra samvinnu-
félaga og Olíufélagið hafa
keypt, og var það afhent nýju
eigendunum í Nynashamn í
Svíþjóð í gær. Erlendur Ein-
arsson forstjóri SIS tók við
skipinu, og kona hans, Mar-
grét Helgadóttir, gaf því
nafnið Hamrafell. Skip þetta
var smíðað í Þýzkalandi árið
1952. Skipstjóri verður Sverrir
Þór, áhöfnin 40 menn, allt Is-
lendingar, en auk þeirra verða
á skipinu fyrst í stað fjórir
norskir sérfræðingar. Skipið
hefir að undanförnu verið í
siglingum með óhreinsaða
olíu og verður því að taka 3
til 4 farma af hálfhreinsaðri
olíu áður en unnt verður að
byrja flutninga á benzíni og
gasolíu hingað til lands. —
Hamrafell er væntanlegt til
heimahafnar sinnar, Hafnar-
fjarðar, í desembermánuði. —
Hamrafell er sjöunda skip
SÍS, en Olíufélagið á helming
í Hamrafelli og Litlafelli.
Skipadeild Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga á 10
ára afmæli um þessar mundir,
fyrsta skip hennar, Hvassa-
fell, kom til landsins 27.
september 1946.
☆
Áburðarverksmiðjan í Gufu
nesi hefur nú starfað í 2 V2. ár,
svo að telja má að reynslu-
tíma hennar sé lokið, og af-
köstin hafa orðið meiri en ráð
var fyrir gert. Við það var
miðað í upphafi, að ársfram-
leiðslan yrði örugglega 18,000
lestir, en á fyrstu átta mánuð-
um þessa árs hafa veríð fram-
leiddar 14,500 lestir og með
sömu meðalframleiðslu til
ársloka yrði ársframleiðslan
nærri 22,000 lestir, eða 22%
meiri en verkfræðingarnir
ábyrgðust. Meðal annars af
þessum ástæðum hefir heppn-
ast þrátt fyrir sívaxandi til-
kostnað og hækkandi verðlag,
að selja áburðinn á verði sem
er sambærilegt við verð á
sams konar áburði erlendis.
Gjaldeyrisútgjöld við bygg-
ingu og stofnun verksmiðj-
unnar voru 75 miljónir króna,
en starfsemi verksmiðjunnar
hefir þegar sparað landinu 65
miljónir króna í erlendum
gjaldeyri, og virðist mega
reikna gjaldeyrissparnað ár-
lega frá næstu áramótum 30
miljónir króna. Hér er um að
ræða köfnunarefnisáburð, —
þann áburð, sem íslenzkur
jarðvegur þarfnast mest af, en
einnig er hér þörf mikils fos-
fórssýruáburðar. Næsta stigið
í áburðarframleiðslumálunum
hér hlýtur því að verða bygg-
ing fosfórverksmiðju, og
stjórn Áburðarverksmiðjunn-
ar hefir sótt um leyfi til að
mega ráðast í þá framkvæmd.
Undirbúningsathuganir sýna,
að viðbótarverksnjiðja, til
fosfatframleiðslu, myndi kosta
35 miljónir króna, þar af 15
miljónir í erlendum gjaldeyri.
Undirbúningur og smíði verk-
smiðjunnar myndi taka tvö ár,
svo að fyrsti áburðurinn
þaðan yrði tilbúinn til notk-
unar fyrir bændur árið 1959,
ef strax yrði hafizt handa.
☆
Samkvæmt skýrslu veiði-
málastjóra var laxveiðin í
sumar minni en í meðallagi. 1
fyrra var hins vegar miklu
meiri laxveiði en venjulegt er,
þá veiddust 25,000 laxar, en
nú munu hafa veiðzt um
þriðjungi færri. Laxinn í
sumar var hins vegar yfirleitt
vænni. Hann gekk nú seinna
í árnar en endranær vegna
vorkulda, og langvarandi
þurrkar torvelduðu veiði. Lax
og silungur 'er nær eingöngu
notaður innanlands. Nokkuð
var þó flutt út af laxi í sum-
ar, til Bretlands, og meira
verður sennilega selt úr landi
síðar á árinu. Þá hefur nokk-
urt magn af niðursoðinni
murtu úr Þingvallavatni verið
sent til Bandaríkjanna. —
Unnið var í sumar að fiski-
rækt í mörgum ám, laxastigar
gerðir og lax og silungur
merktur. Eldisstöðvar störf-
uðu með svipuðum hætti og í
fyrra og hafa nokkrar nýjar
eldistjarnir verið teknar í
notkun í sumar.
☆
Nokkrir íslenzkir togarar
seldu í síðustu viku í Þýzka-
landi, á fimmtudaginn seldu
þar þrír fyrir samtals nær því
270,000 mörk.
☆
Haustslátrun er nú hvar-
vetna hafin og verður slátrað
fleira fé en í fyrra. Á haust
mun hafa komið af fjalli nær
því hálf önnur miljón sauð-
fjár. Réttir voru í vikunni,
sem leið.
☆
Hvalveiðivertíðinni í Hval-
firði er nýlega lokið og hafði
hún staðið 123 daga. AIls
veiddust í sumar 440 hvalir.
Fjórir bátar stunduðu veið-
arnar.
☆
Dreifing mænusóttarbólu-
efnis um landið er hafin, og
annast Lyfjaverzlun íslands
dreifinguna. Ætlunin er, að
bólusetja fyrst í stað sem allra
flest börn á barnaskólaaldri.
Bóluefnið, sem er mjög dýrt,
verður greitt úr ríkissjóði.
☆
Á fjárlögum þessa árs eru
veittar 50,000 krónur til sér-
nárns í læknisfræði, sam-
kvæmt úthlutun landlæknis.
Landlæknir hefir nýlega út-
hlutað styrk þessum og hlutu
hann, 25,000 krónur hvor, þeir
Bjarni Jónsson dr. med.,
Reykjavík, til að leggja stund
á heilaskurðaraðgerðir með
sérstöku tilliti til slysaáverka
á höfði, og Valtýr Bjarnason
læknir, nú við nám í Banda-
ríkjunum, til að leggja stund
á svæfingafræði og blóð-
bankastörf.
☆
Sjötta þing Landssambands
framhaldsskólakennara var
sett í fyrrakvöld í hátíðasal
Menntaskólans í Reykjavík og
sækja það rúmlega 30 full-
trúar. — Landsfundur Kven-
réttindafélags íslands var
settur í Reykjavík í gær.
☆
Norræna tónlistarhátíðin
var haldin í Helsingfors 4. til
11. þ. m., en hún var síðast
haldin í Reykjavík 1954. Af
hálfu íslenzkra tónskálda
sóttu hátíðina þeir Jón Leifs
og Skúli Halldórsson. Þar
voru flutt verk eftir mörg
tónskáld.
Listdansflokkur frá Ráð-
stjórnarríkjunum hefir að
undanförnu sýnt í Þjóðleik-
húsinu við mjög mikla að-
sókn. Aðgöngumiðar að sjö
sýningum seldust á skammri
stundu. Síðasta sýnihgin er á
þriðjudagskvöld. Héðan fer
flokkurinn til Danmerkur. —
Þá hafa verið hér á ferð tón-
listarmenn frá Sovétríkjunum
og haldið tónleika í Reykja-
vík, á Akureyri og víðar, og
loks var hér þriggja manna
nefnd frá félaginu VOKS, for-
maður Norðurlandadeildar
þess félags, forseti skógrækt-
ardeildar háskólans í Moskvu,
og varaforseti Moskvuháskóla.
Ivanoff varaforseti Moskvu-
háskóla flutti fyrirlestur í há-
skólanum um æðri skóla í
roff forseti skógræktardeildar
Moskvuháskóla kynnti ser
einkum skógrækt hérlendis-
Hann afhenti forsætisráð-
herra nokkur kílógrömm af
trjáfræi að gjöf til Islendinga-
☆
Leikfélag ísafjarðar sýndi
jeikinn Kjarnorku og kven-
hylli eftir Agnar Þórðarson.
Sýning þessi var í tilefni af 40
ára leikafmæli Brynjólfs J°"
hannessonar, og hann lék þar
eitt aðalhlutverkið í leiknum-
Brynjólfur var einn af stofn-
endum Leikfélags ísafjarðar-
☆
í fyrra var háður í Reykja-
vík landsleikur í knattspyrnU
við Bandaríkjamenn. íslend-
ingar unnu. Þá þegar var um
það talað, að íslenzka lands-
liðið sækti Bandaríkjamenn
heim að ári liðnu, og er su
för nú ráðin. íslenzku knatt-
spyrnumennirnir fara til
Bandaríkjanna 5. október 0g
koma aftur 16. október. Flug-
her Bandaríkjanna flytur
hópinn fram og aftur ókeyPlS-
Leiknir verða þrír leUor
vestra, hinn fyrsti í FíladelflU
7. okt., annar í Baltimore 1^-
okt. og hinn síðasti í NeW
York 14. október. í síðasta
leiknum keppa íslendingar
við lið frá ísrael, sem
verður í keppnisför í Banda-
ríkjunum. í íslenzka landslið-
inu verða átta Akurnesingar
og þrír Reykvíkingar.
☆
Þjóðleikhúsið frumsýnir á
næstunni leikritið Spádómin11
eftir Tryggva Sveinbjörnsson-
☆
Á dag fer fram í Reykjavík
úrslitaleikurinn í fyrstu deiid
á íslandsmótinu í knatt-
spyrnu. Reykjavíkurfélögm
Valur og K.R. keppa um
meistaratitilinn.
☆ >.
Sigurður Skafield ópernu-
söngvari lézt í Landsspítalan-
um aðfaranótt föstudags sJ->
sextugur að aldri.
Unga stúlkan við unnusta
sinn: — „Hefurðu talað við
pabba?“
Hann: — „Já, ég sagði hon-
um að ég gæti ekki lifað án
þín — og þá sagðist hann vera
reiðubúinn til þess að kosta
útför mína“.
Fjallagrös í pósti beint fró
ÍSLANDI
Sendið oss $2.00 og vér skulum senda yður í pósti,
yður að kostnaðarlausu,
500 grömm
fyrsta flokks ísl. Fjallagrös (Skæðagrös).
MAGNÚS TH. S. BLÖNDAL H.F.
Vonarstræti 4 B, Reykjavík
Firmað stofnsett 1887 Klippið út þessa auglýsingu
Ráðstjórnarríkjunum. Neste- ,Uma .