Lögberg - 04.10.1956, Síða 4

Lögberg - 04.10.1956, Síða 4
4 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 4. OKTÓBER 1956 Lögberg GefiS út hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA Utanáskrif ritstjórans: EDITOR IvÖGBERG, 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram The “Dögberg” is published by The Columbía Press Limited, 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada Printed by Columbia Printers Limited Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa PHONE 74-3411 Dr. Sigurður Nordal hyltur á sjötugsafmæli sínu Hinn 14. september síðastliðinn átti bókmentafræðingur- inn og ritsnillingurinn dr. Sigurður Nordal, ambassador Is- lands í Kaupmannahöfn, sjötugsafmæli, og var hann í tilefni þess hyltur af íslenzku þjóðinni svo sem vera bar, auk viður- kenninga frá fjölda vísinda- og fræðastofnana víðsvegar um Norðurálfuna, því landnám hans í ríki bókvísinnar er víð- kunnugt vegna skarpra, bókfræðilegra athugana hans, stíl- snildar og heilsteyptra, frumsaminna listaverka í smásagna- formi íturhugsuðum ritgerðum og leik. Dr. Nordal er einn hinna allra glæsilegustu forustumanna í ríki andans, sem íslenzka þjóðin hefir eignast, og er vonandi að honum endist enn lengi heilsa og líf til þess að auka á menningargróður hennar og styrkja hana í trúnni á tilveru- rétt sinn. Fyrir nokkrum dögum bárust ritstjóra Lögbergs í flug- pósti frá Reykjavík ummæli þau, sem hér fara á eftir um afmælisfagnað til heiðurs við dr. Nordal, en þar að lútandi bréf var dagsett hinn 16. september: / „Dr. Sigurður Nordal, ambassador íslands í Kaupmanna- höfn, varð sjötugur í fyrradag og í því tilefni efndi Almenna bókafélagið til hátíðarsamkomu í Þjóðleikhúsinu þá um kvöldið. Dr. Þorkell Jóhannesson háskólarektor ávarpaði heiðursgestinn, og síðan fluttu 14 leikarar þætti úr verkum Nordals, Þulu, Ferðina, sem aldrei var farin, Þjóðarþing á Þingvelli, Kafla úr Hel, og að lokum fyrsta þáttinn úr leik- ritinu Uppstigningu. Þessu næst kvaddi Gunnar Thoroddsen borgarstjóri sér hljóðs og bað menn hylla afmælisbarnið og var það gert með ferföldu húrrahrópi. Dr. Sigurður Nordal sagði að lokum nokkur orð. Þjóðleikhúsið var þéttskipað og meðal gesta voru forsetahjónin. — Afmælisrit kom út og heitir Nordæla, afmæliskveðja til Sigurðar Nordals sjötugs. Útgefandi er Helgafell, ritnefnd skipuðu fjórir háskóla- kennarar, og í ritið skrifa fjölmargir íslenzkir fræðimenn. Mikill fjöldi vísindamanna og fræðastofnana sendir Nordal þar árnaðaróskir sínar. — Þá hefur Almenna bókafélagið tilkynnt, að það hyggrst gefa út úrval úr verkum Nordals. í afmæliskveðju, sem einn af nemendum Nordals, prófessor Jón Jóhannesson skrifar, minnir hann m. a. á það í hvaða farveg störf Nordals hafi einkum fallið. Annars vegar hafi hann reynt að skýra fyrir okkur, löndum sínum, margt hið bezta í íslenzkri menningu og hlúð eftir mætti að þeim menningararfi, sem hann telur hafa veitt okkur rétt til tilvistar sem sjálfstæðrar menningarþjóðar. Hins vegar hafi hann lagt mikla stund á að kynna erlendum þjóðum íslenzka menningu og nú síðustu árin hafi aukastörf hans nálega ein- göngu beinst inn á þær brautir. Hann hafi því í rauninni verið sendiherra okkar erlendis í tvenns konar skilningi. í ávarpi Rithöfundafélags íslands segir m. a.: Þegar hafa þrjár íslenzkar kynslóðir fylgzt með starfi yðar og notið þeirrar hamingju að sjá ísland vaxa af verkum yðar.“ Árið, sem dr. Nordal gegndi sendikennaraembætti við Harvard-háskólann heimsótti hann oss Vestur-íslendinga, og var einn hinn allra kærkomnasti fulltrúi íslenzku þjóðarinnar, sem hingað hefir komið; hann átti hér marga aðdáendur áður en hann kom, en sá hópur stækkaði að mun við heim- sóknina; þeim, sem á hlýddu, mun seint úr minni líða erindi það, hið kyngimagnaða, er dr. Nordal þá flutti í Fyrstu lútersku kirkju, og þeir eru líka margir, sem aðnjótandi urðu þjóðræknislegrar hjartastyrkingar við hina mergjuðu ritgerð hans í Tímariti Þjóðræknisfélagsins, sem enn lýsir af vítt um byggarlög vor Vestmanna oss til örvunar og yndisauka. Dr. Nordal kom, sá og sigraði. Vinir hans vestanhafs árna honum sjötugum allra hugsanlegra heilla. Dr. Sigurður Nordal er Húnvetningur í húð og hár, fæddur á Eyjólfsstöðum í Vatnsdal 14. september árið 1886, og við landnám Ingimundar hins gamla, er hann tengdur órofaböndum. Frétt-ir fró Gimli, 1. október, 1956 Gimli Women’s Institute félagið hafði fund 20. septem- ber í Skautaskálanum. — Fjórtán meðlimir sóttu fund- inn, og tíu gestir frá Good Neighbours félaginu á Gimli. H. J. L. Ludlow, lögmaður frá Winnipeg, flutti ræðu um “Laws for Women,” og svar- aði mörgum spurningum. Fé- lagið er þakklátt Mr. Ludlow fyrir komuna. Ákvörðun bor- in fram af Mrs. J. Menzies, var samþykkt, þess efnis að biðja fylkisþingið að gera allt sem í þess valdi stendur, til að stuðla að stofnsetning stærri skólahéraða. Um $90.00 höfðu komið til styrktar Cancer Institute á “tag day”, sem félagið stóð fyrir, 15. september. Ýms störf voru af- greidd á fundinum. Fundur- inn endaði með kaffidrykkju að vanda. Fyrir veitingum stóðu Mrs. G. Arnold, Mrs. R. Bryson, Mrs. J. Wright og Mrs. Cooms. ---0---- Gimli Kinette félagið hafði fund 17. september að Falcon Cafe. Voru tuttugu meðlimir og einn gestur á fundi. Frá- farandi forseti, Mrs. Lil Sig- mundson, gaf skýrslu um störf á liðnu ári; hafði félagið látið $250.00 til Kinsmen Club. Mr. Mickey Beouchemen, forseti Kinsmen Club, setti þessar fé- Kveðjuljóð Til séra Braga Friðrikssonar og frú Katrínar Eyjólfsdóttur Flutt í kveðjusamsæti, sem þeim var haldið að Lundar 18. september 1956. Þið komuð hingað heimalandi frá með hjörtun full af kærleiksyl og gæðum. Þá beztu heimsókn fólkið muna má, og minnast skyldi oft í ljóði og ræðum. Svo kær og dýrmæt koman ykkar var, er kæruleysið ríkti á andans leiðum. Hér enginn var sem leiðarljósið bar og leitt oss gat á mannlífs skuggaheiðum. Og þegar sýndist mörgum fleiri en mér, að margt hér væri fjarri góðu lagi. Þá varstu kosinn til að koma hér og kenna oss að lifa, séra Bragi. Þú átt svo sterkan vilja og þrótt í þér til þess að starfa og kristindóminn glæða. Þú tókst við stjórn á höfuðlausum her og honum sýndir veg til lífsins hæða. Vor aldni lýður þakkar- ávalt -þér þær indælu og mörgu gleðistundir. Þín kæra minning ævarandi er, unz ævisól í vestri gengur undir. 1 öllu falli satt að segja er bezt, ég segi hiklaust eigin reynslu mína, að ég hefi aldrei áður fundði prest, sem eins vel rækti helga skyldu sína. Víst er þeim bezt, er stíga hér í stól að standa vel á góðra presta línu. Það tekur meira en aðeins klerk í kjól að komast upp að hámarkinu þínu. Þín góða kona lagði líf sitt við þitt líf og starf sem allra bezt hún kunni. Þar áttu stoð sem stendur þér við hlið og styður þig í allri baráttunni. Frú Katrín er á fléstum sviðum fær og fyrirmyndarkona að allra dómi. Þá verðskulduðu virðingu hún fær að vera kölluð stéttarinnar sómi. Ó, að við hefðum getað haft það lán að hafa ykkur mörgum árum lengur í stað þess skilja og vera ykkar án að óskum vorum misjafnlega gengur. Þið kjósið nú að kveðja Vesturheim, Þó kosti góða hafi til að bjóða. Ég skal það lá þótt langi ykkur heim til landsins kæra og vinafjöldans góða. Nú heimtar Island ykkur heim til sín og heitan faðminn móti ykkur breiðir. Við hörmum sárt að samferð okkar dvín og söknum unz að dauðinn burt oss leiðir. Við biðjum Guð að gjalda þúsundfalt, að gleði og blessun yfir ykkur streymi. Af hjartansrótum þökkum alt. Já, alt. Guð almáttugur faðmi ykkur og geymi. V. J. Guliormsson lagskonur í embætti fyrir næsta ár: Forseta, Mrs. Frances Barker; varaforseta, Mrs. Önnu Kristjánsson; skrifara, Mrs. Pat Foster; fé- hirði, Mrs. Sheilu Dalman; — fréttaritari fyrir mánaðar- blaðið, Mrs. Marie Arnason. Það var ákveðið að hafa framvegis, fundi þriðja mánu- dag í hverjum mánuði að Falcon Cafe. ----0---- Safnaðar-kvenfélagið f r á Fyrstu lútersku kirkjunni í Winnipeg og Dr. V. J. Ey- lands, prestur safnaðarins, heimsóttu Betel 20. september með rausnarlegar veitingar og glaðningu fyrir vistfólkið- Séra Bragi Friðriksson var gestur á heimilinu þennan dag, og tók hann á móti hin- um góðu gestum. Dr. V. J- Eylands flutti fróðlega og skemtilega ræðu. Einnig tal- aði séra Bragi nokkur vel valin orð að vanda. Svo var skemt með söng og samræð- um. Allir höfðu ánægjulega stund. ----0---- Laugardagskvöldið 22. sept- voru séra Bragi Friðriksson og Framhald á bls. 5 "Bef’el" $180,000.00 Building Campaign Fund ---1—180 —160 —140 ADDITION to Betel Building Fund Valdimar Bjðrnson, 2914 ___ 46 B- Avenue South, Minneapolis, Mio*! ’ U.S.A.....................f5°' Mrs. Vigdfe Hanson, 2635Hampden Crt., Chicago l’* ^ 111., U.S.A...............*5U' Mrs. John Stefánsson, Elfros, Sask. Given in memory of Tryg^vi Johnson, Baldur, Manitoba . A. S. Barlal Ltd. (Funeral Hom 843 Sherbrook Street, . Winnipeg, Manitoba ...... Make your donations i° "Betel" Campaign Fund. 123 Princess Street. Winnipeg 2.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.