Lögberg - 31.01.1957, Qupperneq 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 31. JANÚAR 1957
Lögberg
^ ' Geílð flt hvern fimtudag af
THE COLUMBIAi PRESS LIMITED
303 KENNEDY STREET, WINNIPEG 3, MANITOBA
Utanáskrift ritstjórans:
‘EDITOR LÖGBERG, 303 Kennedy Street, Winnipeg 3, Manitoba
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Skrifstofustjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram
The "Dögberg" is published by The Columbia Press Limited,
303 Kennedy Street, Winnipeg 3, Manitoba, Canada
Printed by Columbia Printers Limited
Authorizeil as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
___________________PIIONK »3-9931
Mannvinurinn og skáldiö
Sigurður Júlíus Jóhannesson
v.
Raddir hafa komið fram um það, að Sigurður Júlíus
hefði verið harðsvíraður byltingasinni, er í fátt eða ekkert
myndi hafa horft málflutnjngi sínum til stuðnings; slíkur
d<?mur á skapgerð hans er að minni hyggju á veikum rökum
bygður, og þótt hann að vísu sækti mál sín af kappi var það
síður en svo að honum stæði á sama um baráttuaðferðir;
hann hataðist við vígaferli af hvaða toga sem þau voru
spunnin, sannfærður um að í kjölfar þeirra sigldi ekkert
annað en ógæfa.
Byltingar án blóðsúthellinga, bloodless revolutions, eru
tiltölulega sjaldgæfar og með afleiðingum þeirra er venju-
legast tjaldað til einnar nætur; hinar, sem grafa dýpra um
sig og líklegar eru til frambúðaráhrifa, kosta geigvænlegar
blóðfórnir. Sigurði Júlíusi var þannig farið, að hann mátti
naumast blóðdropa sjá. Og hvernig í ósköpunum var þá unt
að hugsa sér hann í fremstu víglínu sem vægðarlausan
byltingarmann, þar sem fyrsti blóðdropaseytillinn varð að
helliskúrum?
konunnar fyrir samfylgdina, mætti annað hvort kalla þær
„Við,“ eða „Þú og ég.“ —
Sorg og gleði saman birtast —
svört sem myrkur, björt sem snjár
standa sín til hvorrar handar,
höfug blandast þeirra tár.
Gleðin sigrar, sorgin tapar,
saknaðsbundin flytur þökk
fyrir géhgna gæfudaga
Guði og henni sál mín klökk.
Skilnaðsstund: Hve margt og mikið
minninganna djúpi frá
birtist fyrir andans augum —
alt það sem er liðið hjá.
Sigurður Júlíus fæddist að Læk í Ölfusi hinn 9. dag
janúarmánaðar árið 1868. Var faðir hans Jóhannes Jónsson,
en móðirin Guðlaug Hannesdóttirfrá Hjalla í Ölfusi; heimil-
ið var fátækt að fé, en auðugt að mannúð og listrænum sér-
kennum; ungur vandist Sigurður Júlíus því að neyta síns
brauðs í sveita síns andlitis og gefa sig að hvers konar störf-
um, er til féllu, án hliðsjónar af væntanlegu endurgjaldi;
hann var vinnuglaður maður; iðjan var honum heilög þörf.
Sigurður Júlíus naut góðrar heilsu meginhluta sinnar
löngu ævi; aðeins hin allra síðustu ár, var eins og honum
smáféllist hendur; röddina þraut svo að segja með öllu, en
yrkjandi og skrifandi var hann að heita mátti fram í vertíðar-
lok og hélt vel minni. Hann kvaddi ástvini sína og samferða-
sveit hinn 12. maí síðastliðinn, en útför hans var gerð frá
Bardals að viðstöddu miklu fjölmenni þremur dögum síðar.
Dr. Valdimar J. Eylands jarðsöng og flutti áhrifamikla
minningarræðu.
Sigurður Júlíus var maður æskunnar þrátt fyrir sinn háa
aldur og |>ar af leiðandi var það einkar vel til fallið, að
æskumenn báru hann til moldar; með honum er hniginn í
val Miskunnsamur Samverji, sem engum verður auðgleymdur.
Aðalvopn Sigurðar Júlíusar voru tungan og penninn og
þeim beitti hann ósleitilega í þágu þeirra hugðarmála sinna,
er að hans dómi gengu lengst í áttina til mánnfélagslegra
umbóta; hann var vinnuvíkingur að hverju, sem hann gekk
og manna skylduræknastur um störf; hann var altaf að
hugsa og alltaf að skrifa; maður varð honum naumast svo
samferða á strætisvagni að maður eigi sæi hann með blýant
og blað, krotandi niður ljóðhendingar eða kjarnasetningar í
óbundnu máli, er leiftruðu um huga hans; vökusál hans var
alls staðar og ávalt að verki.
Heimili Sigurðar Júlíusar var kærleiksheimili, sem bar
nafn með rentu; hann minntist oft á það við mig hve mjög
hann hlakkaði til að koma heim eftir langan og þreytandi
erfiðisdag, heim í sitt ástúðlega umhverfi þar sem eindrægnin
skipaði öndvegi.
Sigurður Júlíus var afburða námsmaður; hann lauk 5. og
6. bekkjarprófi við Latínuskólann á einum vetri og vann
jafnframt að öllu fyrir sér; er vestur kom varð hann tíðum
að ganga undir próf til þess að öðlast læknisleyfi í hinum og
þessum ríkjum og fylkjum; öll sín próf stóðst hann með
heiðri, þó mesta prófinu, manndómsprófinu sjálfu lyki hann
í skóla lífsins við orðstír, sem aldrei deyr.
Svo sem ræður að líkum, barst Sigurði Júlíusi til um-
sagnar sægur mikill bóka, er hann jafnan minntist á sinn
listræna hátt; á ritdómum hans var sjaldnast mikið að græða
vegna ofgóðssemi í garð sumra höfundanna, svo sem er hann
gerði lárviðarskáld úr Jóhannesi Stefánssyni fyrir bók hans
“Love and Pride,” sællar minningar; bækur eru menn, eða
tíðum það lífrænasta, er í höfundum þeirra bjó, og þess
vegna fylgir því engin smáræðisábyrgð, að ritskýra þær svo
vel sé.
Á merkum tímamótum í ævi þeirra Sigurðar og frú
Halldóru voru þeim haldin virðuleg samsæti af þakklátri
samferðasveit, og árið 1941 sæmdi íslenzka ríkið Sigurð Júlíus
skáldalaunum. •
Formálsorðum að bók Sigurðar Júlíusar „Ljóð,“ lýkur
Steingrímur Arason með svofeldum orðum:
„Væri vert að athuga, hvað muni valda, að einstaka
maður endist óbilaður svona óralangan erfiðisdag. Segja
mætti mér að þar væri bjartsýni býsna öflugur hornsteinn.
Bjartsýni bygð á trú á lífið og síhækkandi þróun þess undir
óbrigðulli alvaldsstjórn. Bjartsýni bygð á því að geta litið
aftur án þess að ásaka sig fyrir að hafa svikið hugsjónir sínar
eða svikist um að vinna þeim af alefli. Slíkir menn þurfa
ekki að deyja til þess að komast inn í himnaríki. Það er innra
með þeim.“
Vísurnar, sem hér fara á eftir, eru að því er ég bezt veit,
þær síðustu, er Sigurður Júlíus orti; hann hafði ekki gefið
þeim nöfn, en vegna efnisins, sem í sér felur órofa þökk til
—EINAR P. JÓNSSON
Additions to Betel Building Fund
Frá Selkirk, Manitoba
Junior Lut. Ladies Aid $100.00
Margrét S. Anderson, 25.00
Mr. & Mrs.
Barney Kelly, 10.00
Finnur Finnson, 10.00
Christie Johnson, 10.00
John Sturlaugson, 10.00
Art Johnson, 5.00
Mr. & Mrs. H. Goodman
and Miss O. Goodman, 3.00
-------------0----
Frá Leslie, Sask.
Mrs. Jónasína
Abrahamson, $100.00
Mr. & Mrs. e
Oscar Gíslason, 50.00
Árni Hermannson
(Foam Lake), 50.00
Páll Guðmundson, 25.00
Mrs. B. Oxford & Son, 20.00
Leslie Icelandic
Ladies Aid, 15.00
Nordal Brothers, 10.00
Mr. & Mrs.
Finnur Sigurdson, 10.00
Mr. & Mrs.
Marino Hrappsted, 10.00
Mr. & Mrs.
Emil Sigurdson, 10.00
J. Josephson, 10.00
Mr. & Mrs.
John Goodman, 10.00
Mr. & Mrs.
Skúli F. Thorsteinsön, 5.00
Mr. & Mrs.
Th. Guðmundsson, 5.00
Marvin Kristjánson, 5.00
Julian Kristjánsson, 5.00
M. K. Hilts, 4.00
Axel Gíslason, 0 2.00
Frá Elfros, Sask.
Mrs. Helga Sveinbjörnson
and Sons,
Helgi and Harold, $100.00
In loving memory of Dr.
S. J. Jóhannesson.
Elfros Icelandic
Ladies Aid, $25.00
Mr. & Mrs.
Helgi Hornford, 25.00
Mr. & Mrs.
Rósm. Árnason, 25.00
Mr. & Mrs.
E. B. L. Stephanson, 20.00
Hjalti Helgason, 10.00
F. Helgason, 5.00
Jónína & Cleve
Bjarnason, 10.00
Mr. & Mrs.
Jóhannes Gíslason, 10.00
Jón Jóhannesson, 10.00
Mr. & Mrs.
S. G. Kristjánson, 10.00
G. J. Stefánson, 7.50
Óli Thomasson, 5.00
Sam Grimson, 5.00
Mr. &Mrs.
Ernest Newhám, 5.00
Mr. &Mrs.
Henry Bjornson, 5.00
Thor Bjarnason, 5.00
Mr. &Mrs.
Ernest Erickson, 5.00
Victor Eastman, 2.00
John Jónasson, 0 Frá Mozari, Sask. 2.00
Mr. & Mrs.
Thor Ásgeirson, $25.00
Jóhann Kristjánson, 25.00
Marino Sigurdson, 25.00
í minningu um móður sína
Mrs. Þóru Sigurdson.
Mr. & Mrs.
Finnb. Guðmundsson, $10.00
M. J. Skafel, 10.00
Einar Guðmundsson, 5.00
Mr. & Mrs.
Bjössi Arngríms, 5.00
Mr. & Mrs.
G. D. Grímson, 5.00
Mr. & Mrs,
J. R. Sigurdson, 5.00
Mr. & Mrs.
L. Johnson, 5.00
Mr. & Mrs.
John Grímson, 5.00
Mr. & Mrs.
Thor Josephson, 5.00
Mr. & Mrs.
0.,G. Johnson, 5.00
Mr. & Mrs.
Paul Thomasson, 5.00
Mrs. Sigurrós Josephson, 5.00
Mrs. Sigríður Arngrímson 5.00
Mrs. Margrét Austford, 5.00
Mr. & Mrs.
G. F. Guðmundsson, 5.00
Mr. & Mrs.
Joseph Hóseasson, 2.00
Bert Hóseasson, 2.00
Ingvi Grímson, 2.00
Óli Stefanson, 2.00
----0---
Imperial Oil Limited
100 Main Street, South,
Winnipeg, Manitoba, 500.00
---0----
Mrs. Kristín Holm
Ste. 12, Vinborg Apts.,
Winnipeg 10, Man., 15.00
-------------0----
Mr. & Mrs. W. F. Einarsson
130 Elm Park Road,
St. Vital, Manitoba, 25.00
------------0----
Mr. L. Guðmundson,
P.O. Box 783,
New Westminster, B.C. 10.00
KAUPIÐ og LESIÐ
— LÖGBERGl
"Befrel" $180,000.00
Building
Campaign Fund
---—180
—160
—140
Make your donations to the
"Betel" Campaign Fund,
123 Princess Street,
Wlnnipeg 2.