Lögberg - 31.01.1957, Síða 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 31. JANÚAR 1957
5
ÁtiUeAMÁL
rVENNA
* ' Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Barnaspítalinn í Winnipeg
Þeir sem lagt hafa leið sína
til Almenna spítalans síðustu
tvö árin, hafa undrast yfir að
sjá hinar miklu byggingar,
sem þar voru að rísa, einkan-
lega hefir hinn nýi barna-
spítali vakið athygli vegfar-
enda. Hann er á Bannatyne
Avenue, rétt fyrir austan Al-
menna spítalann; er byggður
í fjórum álmum frá mið-
byggingunni, er vísa í höfuð-
áttir, þannig að auðveldast er
að veita sólskini og hreinu
lofti inn í herbergin. Svo sem
á öðrum nýtízku byggingum
' eru gluggarnir afarstórir,
sumar rúðurnar ljósgrænar
til að varna ofbirtu. Eins og
nú er títt virðist byggingin á
mismunandi hæðum, sums
staðar þremur, fimm eða sex,
eftir því hvaðan á hana er
litið. Byggingunni var lokið
fyrir áramót, utan og innan,
og hún útbúin með öllum nýj-
ustu tækjum til rannsókna,
lækninga og hjúkrunar. Hún
var opnuð með mikilli viðhöfn
á sunnudaginn 2. des. s.l., en
sjúklingarnir og starfsfólkið
frá gamla barnaspítalanum á
Aberdeen Ave. við Rauðána,
ekki fluttir þangað fyrr en á
þriðjudaginn 11. des. 1 milli-
tíðinni fékk almenningur að
skoða þennan þriggja miljón
dollara nýja barnaspítala, og
er talið að um 10,000 manns
hafi notað tækifærið. Og er
það engin furða því fólkið
sjálft kom á stofn þessum víð-
fræga barnaspítala, sem nú er
talinn hinn bezti og fullkomn-
asti í Vestur-Capada. Einkan-
lega eru það konur bæjarins,
sem hér hafa átt hlut að máli.
Sumir borgarbúar hafa
haldið að bæjarráðið eða
fylkisstjórnin starfræktu
barnaspítalann eða hann væri
einkaeeign, en það er ekki
rétt. Spítalinn er starfræktur
af Children’s Hospital Asso-
ciation. Getur hver og einn,
sem er þessari þörfu stofnun
vinveittur tilheyrt félaginu,
meðlimagjald aðeins $3.00 á
ári. 1 framkvæmdarnefndinni,
sem kosin er á ársfundi, eru
ekki fleiri en 30 manns, og
ber nefndin ábyrgð á starf-
rækslu spítalans og söfnun
fjár honum til framfærslu.
Er það fé aðallega fjárfram-
lög frá álmenningi. Bærinn og
fylkið veita og árlegan fjár-
styrk, ennfremur Community
Chest. Þá ber ekki sízt að
geta kvenfélaganna Children’s
Hospital Guilds, sem frá upp-
hafi og stöðugt afla fiár á
ýmsan hátt fyrir spítalann,
enda voru það konur sem
stofnuðu hann. Mikill hluti
stjórnarnefndarinnar e r u
konur, og forsetinn er Mrs.
A. M. Oswald.
Varðar mest til allra orða að
undirstaðan rétt sé fundin
Eins og haft er eftir Sókra-
tes, er upphaf og undirstaða
allra mála þýðingarmest, ekki
sízt þegar viðkvæm ungviði
eiga hlut að máli.
Upphaf Barnaspítalans í
Winnipeg var þetta: Fyrir
fimmtíu árum síðan vakti ung
einstæðingsmóðir yfir barni
sínu dauðvona. Hún var ný-
komin til þessa lands, kunni
ekki málið, og var yfirkomin
af örvæntingu. — Þá bjó í
borginni Mrs. Annie A. Bond.
Hún var af enskum ættum,
útlærð hjúkrunarkona og
þrautreynd á vísu Florence
Nikhtengale. Hafði þjónað við
h j ú k r u n í Zulu-stríðinu,
Afghan-stríðinu og á Egypta-
landi. Þessi reynsla hafði
þroskað samúð hennar með
bágindum og þjáningum ann-
ara, svo hún mátti ekki aumt
sjá. Að þessum stríðum lokn-
um flutti hin unga hjúkrun-
arkona úr landi sínu, Eng-
landi, til New Zealand. Þar
stofnaði hún fyrsta hjúkrun-
arkvennaskólann þar í landi.
Þar giftist hún Dr. J. H. R.
Bond og fluttist með honum
til Winnipeg 1893.
Þegar hún frétti um bág-
indi hinnar ungu móður tók
hún sjúka barnið heim til sín
og hjúkraði því svo það komst
til heilsu aftur. Þannig byrj-
uðu þau hjónin að veita um-
komulausum börnum hjúkrun
og lækningu á 'heimili sínu og
héldu áfram því mannúðar-
starfi í mörg ár. Mrs. Bond sá,
að knýjandi nauðsyn var á
barnaspítala í borginni. Sjálf-
sagt með það fyrir augum að
mæður myndu fyrst og fremst
skilja þessa þörf, fór hún á
fund í Winnipegdeild Natiónal
Council of Women, útskýrði
málið og vakti áhuga félags-
kvenna. Þær stofnuðu deildir
(guilds), sem hófu þegar að
afla fjár til hins fyrirhugaða
spítala, með alls konar sölum:
bazars, blómasölu, tesölu o. s.
frv. Árið 1908 dóu 60 börn í
Winnipeg vegna vöntunar á
læknishjálp. Árið eftir var
ákveðið að stofna spítala í
þeim hluta borgarinnar þar
sem barnadauði var skæðast-
ur. Ekki var mikið fé fyrir
hendi, en konurnar keyptu
gamalt hús og breyttu því í
spítala. Það var opnað 6. febr.
1909. Til að byrja með var þar
ein hjúkrunarkona, einn
sjúklingur; þakið lak og tekið
Gifts fro Betel
Dr. R. Beck—two books—
Blessuð sértu sveitin mín and-
Svipmyndir af Suðurlandi.
Guðjón Danielson, Árbdfg,
Man., 1 bag of potatoes.
Jónas Björnson, Betel, 1
case of Bartlett pears and 1
case of apples.
Mrs. Kristín Thorsteinsson,
Gimli, Bookcase.
Sæunn Björnsson,, Betel
$10.00.
Árdals Lutheran Ladies
Aid, $25.00.
Mrs. G. Jóhannesson, Van-
couver, B.C., $10.00.
Mrs. Halldóra' Jóhannesson
in memory of her husband,
Dr. S. J. Jóhannesson, $50.00.
Steve & Elsie Heigaard,
Buffalo, N. Y., in memory of
Mrs. Guðrún Sigurdson $10.00.
Mr. & Mrs. George Hanson
and George Hanson, Jr., in
loving memory of John
Holm, $11.00.
John Sigurdson, Foam Lake
Sask., In memory of John
Holm, $5.00.
I^elandic Ladies Aid,
Churchbridge, Sask. $10.00.
Mrs. G. Magný Helgason,
Winnipeg, $25.00.
Chrisimas Donaiions
María Stefánsson, Betel,
$5.00.
Canadian Ladies Auxiliary,
var á móti sjúklingum í eldi-
viðarskúrnum, en mannúðin
og manngæzkan var þarna að
verki, og af þessu frækorni
hefir sprottið stór laufguð eik.
Læknar veittu spítalanum
þjónustu sína ókeypis, og
fyrstu tólf mánuðina voru 282
börn tekin á spítalann, en 546
fengu læknisaðgerðir.
Konurnar hófu þegar undir-
búning til að stofna regluleg-
an spítala, og tóku árið 1911
það ráð, að leita fjársamskota
hjá almenningi. Var skilning-
ur fólks góður á hinni brýnu
spítalaþörf fyrir börn ein-
göngu, örlæti þess að
sama skapi. Árið eftir voru
fest kaup í 3Vfe ekru af landi
við Rauðána og spítalinn reist-
ur. Er nú hin hvíta viðar-
bygging þar löngu orðin víð-
fræg, hinn eini spítali þeirrar
tegundar milli Toronto og
Vancouver. Hafa sjúk börn
verið flutt þangað víðsvegar
að og fengið bót meina sinna,
því við spítalann hafa starfað
og starfa merkir sérfræðingar
í barnasjúkdómum.
Löngu var það vitað, að
þörf var á að reisa Barna-
spítala á ný, því eftir svo lang-
an tíma var spítalabyggingin
við Rauðána farin að láta sig
og orðin úrelt, en margt kom
í veg fyrir framkvæmdir,
fyrst kreppan og svo síðari
heimsstyrjöldin, en nú hefir
loks draumur þeirra er unna
Barnaspítalanum og velferð
barnanna ræzt. — Síðar mun
sagt nánar frá nýja Barna-
spítalanum og tilhögun við
hann.
Flin Flon, Man., $100.00. Also
individual presents for resi-
dents and'Matron of the Home
and treat for staff.
Annonymous, W i n n i p e g,
$25.00.
Mrs. Anna Thordarson,
Betel, $4.00.
Ladies Aid „Sigurvon“,
Husavick, Man., $25.00.
Henrietta Johnson, Betel,
$3.00.
Steinunn Valgardson, Betel,
$3.00.
Kristján Johnson, Betel,
$1.50.
Vinkona Betel, $6.00.
Beatrice E. Johnson, Win-
nipeg, $25.00.
Mr. & Mrs. Sigurður Guð-
mundsson, Gimli, in loving
memory of Dóra Davidson,
Died at Höfn, Vancouver,
$5.00.
Kristín Johnson, Gimli,
$5.00.
Mr. & Mrs. A. Sigurdson,
Foam Lake, Sask., In memory
of the late Mrs. Karítas Skafel
Mozart, Sask., $5.00.
Mr. & Mrs. C. Blile,
Oakland, Calif., in memory of
Mrs. Thorlakson, $10.00.
Orvind Skag., Oakland,
Calif., in memory of Mrs.
Thorlakson, $2.00.
Laufey Melsted and Mr. &
Mrs. Fred Hendler, San
Francisco, Cali., in memory of
Mrs. Carolina K. Thorlakson,
$10.00.
Mr. & Mrs. C. P. Lange, Jr.
E1 Cerreto, Calif.,
Mr. & Mrs. H. C. Berthelson,
Berkeley, Calif.,
Mr. & Mrs. Holger Berthel-
son, Berkeley, Calif.,
Mr. c& Mrs. Jens Berthelson,
Berkeley, Calif.,
Mr. & Mrs. Walter Berthel-
son, Walnut Creek, Calif., in
memory of Mrs. Carolina K.
Thorlakson, $25.00.
H. L. MacKinnon, Winnipeg
10 pounds peanuts.
The G. McLean Co. Ltd.,
Winnipeg, 5 pounds Scotch
Mints-
J. S. Gillis, Winnipeg,
Oranges & Chocolate bars for
all residents of Home.
Senior Ladies Aid, First
Lutheran Church, Winnipeg,
Assorted sweets and busfcuits.
Womens Association, First
Lutheran Church, Winnipeg,
Individual gifts of candy and
2 boxes of tangerines.
Dr. Warriner, Sandy Hook,
2 boxes apples.
Mrs. Kristín Thorvaldson,
Turkey.
Sigurður Johnson, Betel,
6 boxes tongerines.
G. F. Jónasson, Winnipeg,
2 Turkeys.
Lutheran Sunday school,
First Lutheran Church, Wpg.,
1 box apples, 30 pounds
Candy, 6 bundles tangerines.
Icelandic National League,
Gimli, Gifts of Candy to each
resident of Home.
/T
Arnes Ladies Aid, Arnes,
Man. Individual gifts of
Christmas treats for residents
of Betel.
Kinsmen, Gimli, Individual
gifts of treats for residents of
Betel.
Mr. & Mrs. Eric Stefanson,
Gimli, Box of tangerines.
H. P. Tergesen & Sons,
Gimli, Box of apples.
H. R. Tergesen, Ice cream
for Christmas Dinner.
Tip Top Méats, Gimli,
Hangikjöt for all; Oranges and
Chocolates for staff.
Mr. & Mrs. Olsen, Gimli,
Christmas Cake, Ice cream,
Rusks & Kringlur.
Mrs. Einarson, Arnes, 10
doz. eggs.
With kindest thanks to all,
S. M. BACHMAN,
Ste. 40, 380 Assiniboine Ave.
Winnipeg, Man.
Líf og lit-ir,
LJÓÐ eftir Ingibjörgu
Þorgeirsdóttur
Nýlega er komin á bóka-
markaðinn ljóðabók með
ofanskráðu nafni. Ingibjörg
Þorgeirsdóttir hefur áður
hvatt sér hljóðs á ritvellinum.
Birzt hafa eftir hana aljóð og
ritgerðir í blöðum og tíma-
ritum. Allt, sem hún ritar ber
vott um frjóa og skýra hugsun
og góð tök á máli og stíl. Og
hún hefur oftast eitthvað at-
hyglisvert að segja.
Nafnið á ljóðabók Ingi-
bjargar virðist vel valið.
Ljóðin erii lífræn og litrík.
Skáldkonan er draumlynd og
dulhneigð. Mörg ljóð hennar
eru um náttúru íslands og
ýmis fyrirbrigði hennar, og er
þar margt vel kveðið. Rit-
dómari einn þóttist finna rím-
galla nokkra í ljóðum Ingi-
bjargar. Lítið kveður að því,
en hún gerir stundum H að K,
eins og Norðlendingar tíðka,
og má vera, að það hafi ruglað
ritdómarann.
Þó að Ingibjörg sé hugsandi
kona, er hún þó í eðli sínu
kliðskáld (,,lyriker“), en jafn-
framt er húif hagorð vel.
Ýmsar vel kveðnar og hnittn-
ar vísur eru í þéssari bók, og
ætti skáldkonan að leggja
meiri stund á vísnagerð en
hún virðist hafa gert hingað
til. Ein lítil vísa getur stund-»
um sagt meira og verið meira
listaverk en langt kvæði.
Aftast í bók þessari eru ljóð
í óbundnu máli (ekki þó
,,atómljóð“), og eru þau ekki
óljóðrænni en mörg hinna
rímuðu ljóða. „Hi;aun“ og
„Með hvítum seglum“ þykja
mér þeirra bezt.
í stuttu máli: Það er óhætt
að mæla með þessari bók,
bæði hvað ytri frágang allan
og innihald snertir. Hér er um
að ræða eðlilegan og óþving-
aðan söng viðkvæmrar skáld-
sálar, sem elskar allt, sem er
fagurt og gott, og er því bók
þessi betur fallin til jólagjafa
en margt annað, sem meira
lætur yfir sér og auglýst er
með glamri og gífuryrðum.
Grétar Fells
—VÍSIR, 21. des.