Lögberg - 14.02.1957, Síða 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 14. FEBRÚAR 1957
Lögberg
GefitS út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
303 KENNEDY STREET, WINNIPEG 3, MANITOBA
Utanáskrift ritstjórans:
EfiITOR LÖGBERG, 303 Kennedy Street, Winnipeg 3, Manitoba
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Skrifstofustjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram
The “Lögberg” is published by The Columbia Press Limited,
303 Kennedy Street, Winnipeg 3, Manitoba, Canada
Printed by Columbia Printers Limited
Authorized as Second Class Mall, Post Office Department, Ottawa
PHONE 93-9931
Innfrak úr ræðu,
sem ELMAN GUTTORMSON, M.L.A.. flutti við setningu
Manitobaþingsins hinn 30. janúar síðaslliðinn.
Háttvirti þingforseti:
Vandamálin, sem skapast hafa af völdum náttúruaflanna
í kjördæmi mínu og þröngvað kosti bænda og búaliðs éru
mörg, og þarfnast skjótra úrbóta; á mörgum búgörðum innan
vébanda kjördæmisins hefir þannig hagað • til, að uppskera
hefir þar hvorki fyrirfundist til sölu né fóðurs, en þar, sem
svo er ástatt, koma vitanlega ekki til greina örðugleikar við
korngeymslu, né heldur spurningin um verðlag.
Griparæktin hefir heldur ekki átt sjö dagana sæla, þar
sem vitað er að verð sláturgripa hefir lækkað um helming
síðan 1951. Og þannig er ástandið nú, að alt það, sem bændur
þurfa að kaupa hefir hækkað von úr viti með hækkandi verð-
lagshorfur framundan.
Mér er það ljóst hverjum vanda það sé bundið, að blanda
sér inn í starfrækslu frjálsra markaða eða géra tilraun í
slíka átt; þó get ég ekki lokað augunum fyrir hve óviðunandi
það sé ef bændur verða nálega einu einstaklingarnir í þjóð-
félaginu, er af hálfu hins opinbera, lítillar sem engrar af-
komutryggingar njóta.
Auðveldlega má segja, að aðgerðir til úrbóta séu ófram-
kvæmanlegar; en það er engan veginn jafnauðvelt að sætta
sig við þá staðreynd, að sú vara, sem á markað kemur til
framboðs hafi í öfugu hlutfalli lækkað í verði við þá verð-
bólgu, sem grípur jnn í alt, sem framleiðandipn þarf að kaupa.
Ég fer ekki fram á neina öímusu, enda hefi ég óbifandi trú á
því, að hver sé sinnar gæfu smiður og fái ráðið fram úr þeim
vanda, s.em að höndum ber. Ég gat ekki að því gert, að fyllast
undrunar, er ég leit yfir tímaritið Livestock Review frá í
fyrra, þar sem meðal annars er svo að orði komist:
„Manitobafylki naut þess vafasama heiðurs, að hafa fram-
leitt þá lélegustu sláturgripi, er til markaðs komu á árinu.“
Jafnvel þó áminst staðhæfing væri einungis hálfur sann-
leikur eða eitthvað innan við það, er hún svo alvarleg, að alt
sem á þingsins valdi og bænda stæði til að afsanna hana,
myndi á sínum tíma margborga sig.
Það, sem ég þegar hefi sagt um kornrækt og gripafækt,
nær einnig til annarrar framleiðslu á bændabýlum og mætti
í því sambandi minna á eggin, eða þann regin mun á verðlagi,
er bændur fá fyrir egg sín, og húsmæður, sem kaupa þau,
þurfa að greiða. y
En það eru ekki bændur einir, sepi súpa seyðið af sí-
hækkandi verði framleiðslunnar; það nær jafnframt til fiski-
manna og þeirra, sem gefa sig að dýraveiðum, því þar ríkja
einnig öfug hlutföll milli framleiðsíukostnaðar og söluverðs;
þessu til sönnunar nægir að vitna í verðlag á skinnum af
vatnsrottum.
Hásætisræðan inniheldur mörg löggjafarnýmæli, sem
verða munu íbúum þessa fylkis til ómetanlegra hagsbóta,
svo sem um bætta og nýja þjóðvegi, stórauknar fjárveitingar
til mentamála, einkum í þeim héruðum þar, sem þörfin er
mest, og mun slíkum ráðstöfunum alment fagnað verða; þá
vekur hásætisræðan einnig vonir um, að stórfeldar og rót-
tækar framfarir séu þegar hafnar og í þann veginn að hefjast
á norðursvæðum fylkisins, þar sem lítt notuð og lítt kunn
auðæfi bíða nytjunar bæði í jörð og á; og framtaki fylkis-
stjórnarinnar eiga fylkisbúar það að miklu leyti að þakka,
hve nú er að rísa upp eitt af öðru hvert risafyrirtækið
norður þar.
Við búum í affarasælu fylki, sem við öll elskum og dáum;
sæmd þess og sæmd okkar falla í einn og sama farveg; við
þurfum ekki að leita langt yfir skamt til að sannfærast um
þá blessun, sem fylkið hefir látið okkur falla í skaut; en
framundan bíða átök, sem okkur öllum ber að inna af hendi
með fögnuði.
Ég er mér þess nú meðvitandi, að löggjöf sú, sem lögð
verður fram á þessu þingi miðar að því, að fullnægja þörfum
fylkisbúa í heild framur en vissra stétta eða landshluta, og
þannig skyldí ávalt farið að.
Mér er það ljóst, að í St. George kjördæmi þörfnumst við
Additions to Betel Building Fund
Correcied lisiing from
January 17, 1957 issue.
Mr. & Mrs.
Steinthor Gudmunds,
3039 Hilíeygass Avenue,
Berkeley 5, Cal. $50.00
In loving memory of
Nikulás and Anna Ottenson,
Winnipeg, Manitoba,
Erlendur and Ólína Erlendson,
Geysir, Man.
John Stefanson,
Blaine, Washington.
Sigfús Brynjólfsson,
San Francisco, California.
W. S. (Sid) Edwards,
San Francisco, California.
Mrs. Antoninette Kaufman,
Berkeley, California.
Mrs. S. O. Thorlakson,
San Carlos, California.
----0----
Frá Gimli, Maniloba
Kinsmen club of Gimli $670.00
This brings the Kinsmen’s
Club of Gimli total donations
to $3,602.74, for which the
Betel committee is sincerely
grateful.
Mr. & Mrs. Óli Narfason
Mr. & Mrs. G. E. Narfason
Mr. G. N. Narfason $100.00
Gimli Icelandic
Library 100.00
Mr. G. B. Magnússon 50.00
In memory of Hannes
Kristjánsson.
Miss Alma Tergesen
Box 9600, Selkirk 25.00
Mr. Sigmundur Josephson
88 — 4th Ave. Gimli 20.00
Mrs. Inga Peterson
(Betel) 15.00
In memory of Guðrún
Stefanson,
Glenboro, Manitoba.
Mr. B. J. Lifman,
Árborg, Man. 10.00
In memory of Hannes
Kristjánsson.
Mr. Petur Karowchuk,
Gimli 5.00
---0----
Frá Selkirk, Manitoba
Mr. S‘. A. Goodman $25.00
Mr. R. Stefanson 25.00
Mr. Steve Oliver 25.00
W. Indriðason 20.00
Mr. Gordon Waltersson 10.00
Mr. G. S. Sigurdson 10.00
Mr. Joe Stefanson 10.00
Mr. Stefan N. Stéfanson 5.00
-------------0----
Inga Halldórsson, Chicago
Eesther Siddons, Los Angeles
Grace Johnson, Oakland
Thorun Hill, Oakland
Walter Thorlakson,
Oakland $100.00
Given in loving memory of
Bréf til ritstjórans
Leslie, Sask., 6. febr. 1957
Góði vinur, Einar Páll:
Til þess að láta þig vita, og
eins til að sanna þér, að ég er
ekki ennþá steindauður, sendi
ég þér miða þennan og vísur
á blaði. Allt gengur sinn
vana veg. Árferðið eitt hið
allra bezta að ég man. Upp-
sker&n mikil og nýting góð,
en korn fraus illa svo að verð
þess er mun lægra en síðast-
liðið ár. Heyföng mikil og
allar skepnur gengu vel
undan sumrinu og gangverð
þeirra á markaðnum þolan-
legt, sérstaklega á lömbum en
ég er kindabóndi heilmikill
eða þykist vera, fyrir utan
allt annað.
Hér set ég vísu um skáldið,
er orti ljóðin til biskups Is-
lands:
Páll er ljóða og lista karl
lipur fróðarunnur.
Hans er óður einatt snjall,
enda að góðu kunnur.
Um sjálfan mig sagði ég
nýlega:
Ellislitinn alstaðar og ér að
krokna,
andlega sem útbrent skar og
er að slokna.
Sé þig kannske um þingið.
Þinn einl.
Ásgeir Gíslason
margra hluta, margra umbóta, en mér er það líka engu síður
ljóst, að við öeskjum einskis líks á kostnað annara.
Ég þakka yður, herra þingforseti, góðvild yðar í minn
garð hér í dag; öll þau mörgu ár, sem þér hafið •setið í þessum
þingsölum, hefir starfsemi yðar mótast af virðuleik og rétt-
sýni; þessu jafnframt þakka ég þingmönnum yfirleitt, um-
burðarlyndi þeirra við mig sem nýliða á þingi.
our mother Petrína (Mrs.
John) Thorlakson who was
one, on a committee of five
women, who orginally con-
ceived idea of a home for the
aged, which came to be
known as “Betel.”
----0---
Frá Winnipeg, Maniloba
Mr. & Mrs. G. Baldwinson,
983 Dominion Street, $50.00
Mrs. Ben Heidman,
Ste. 1,
628V2 Notre Dame Ave. 25.00
í minningu um hjartkæra
foreldra Kristján og Arnínu
(Þorláksdóttur) iSigurdson, og
bróður Thor Sifurdson.
Mr. & Mrs. Ben Heidman
Ste. 1,
628V2 Notre Dame Ave. 10.00
I kærri minningu um
Mr. & Mrs. Lúðvík Holm.
"Beter' $180,000.00
Building
Campaign Fund
---—180
—160
—140
Make your donalions to the
"Betel" Campaign Fund.
123 Princess Street,
.Winnipeg 2.
The Management and Staff of
CANADA SAFEWAY LIMITED
Extends Greetings to the National League