Lögberg - 14.02.1957, Side 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 14. FEBRÚAR 1957
5
■ýTw
AHUeAMAL
rVCNNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Bréf fró Foam Lake, Sask.
Frú Ingibjörg Jónsson,
ritstjóri Kvennasíðu Lögbergs
303 Kennedy St.,
Winnipeg, Man.
Kæra vinkona,
Um leið og ég endurtek
góðar óskir þér til handa með
morgundeginum, þá sendi ég
þér ofurlítinn böggul, sem ég
bið þig að njóta vel um af-
mælið þitt. Svo eru hérna fá-
einar línur, sem ég hef haft í
hyggju um tíma að senda þér
— blaðinu á ég við. — Ekki
eru þær nú margar, en ég
vildi biðja ykkur, annaðhvort
ykkar hjónanna, að gera svo
vel að taka það í blaðið, ef það
getur farið gjaldfrítt í það.
Nýlega hefi ég fengið fallega
mynd „að heiman“, af Elli- og
hjúkrunarheimilinu Grund. —
Það myndi kosta ærna pen-
inga að birta hana í blaðinu,
en mér kom til hugar, að ýms-
ar góðar taugar hafa komið til
okkar frá Dönum.
Frú Lára Bjarnason er
sagt — ábyggilega — að hafi
átt upphafsþáttinn í Betel.
Þau séra Sigurbjörn Á. Gísla-
son og kona hans frú Guðrún
Lárusdóttir áttu upphafsþátt-
inn að Elliheimilinu á Grund,
Reykjavík, Islandi, og sonur
þeirra, Gísli Sigurbjörnsson,
er þar umsjónarmaður. Ungur
maður, er kom frá íslandi fyr-
ir fáum árum, sagði í Varí-
couver, að Gísli veitti heimil-
inu forstöðu með afburða
góðri reglusemi og prýði í hví-
vetna. — Amma Gísla og móð-
ir frú Luðrúnar Lárusdóttur
var frú Kristín kona séra
Lárusar Halldórssonar, en þær
frú Lára og Kristín voru
systur og danskar í móðurætt.
Ósköp þykir mér vænt' um
að • sjá Betel-listann núna í
blaðinu. Mér þykir líka vænt
um að sjá fallega skrifið, sem
ritstjórinn gerir úm Sigurð
Júlíus Jóhannesson; sömu-
leiðis heiðurinn, sem frú
Jakobínu Johnson veittist.
Þau eru mörg falleg ljóðin
hennar og þýðingar ágætar, og
er það nú ekki vandalaust. En
henni er vafalaust létt um
ljóðagerðina.
Þetta er nú orðið mikið
lengra en ég ætlaði.
Með beztu óskum til ykkar
beggja og þákklæti fyrir alt
gott, er ég þín með vinsemd,
Rannveig K. G. Sigbjörnsson
Hamingjuóskir . . .
til íslendinga í tilefni af 38. ársþingi Þjóðræknis-
félagsins,|sem haldið verður í Winnipeg,
18.—20. febrúar 1957.
ARMSTRONG GIMLI FISHERIES, LTD.
J. M. DAVIS, Manager
SPruce 4-2534
592 SARGENT AVE. WINNIPEG, MAN.
5Ve//s 3,lower Shop
NELL JOHNSON - BARBARA STEFANSON
FRESH CUT FLOWERS - CORSAGES
WEDDING BOUQUETS - FUNERAL DESIGNS
GIFT NOVELTIES - POTTED PLANTS
OUR MOTTO: Quality and Service
700 NOTRE DAME AVENUE
(Opposite Matemity Pavilion)
Phone SPruce 4-5257 Res. SPruce 4-6753
Fréftabréf frá ríkisútvarpi íslands
Framhald af bls. 1
eru nú 54 félög víðsvegar á
landinu aðilar a?j því. Fyrstu
árin var baráttan fyrir kosn-
ingarétti og kjörgengi kvenna
aðalmál félagsins, en viðfangs-
efni þess hafa verið fleiri, þar
á meðal barnavernd og skóla-
mál. Félagið hefir eflt Minn-
ingar- og menningarsjóð
kvenna, sem stofnaður var af
dánargjöf Bríetar Bjarnhéð-
insdóttur og eru nú um 300
þúsund krónur í sjóðnum. —
Félagið hefur útvarpsdagskrá
annað kvöld í tilefni af af-
mælinu, og á morgun verður
opnuð sýning í Bogasal Þjóð-
minjasafnsins og sýnd þar
nokkur verk íslenzkra kvenna
í bókmenntum, myndlist og
listiðnaði. Sýningin verður
opin til þriðja næsta mánaðar.
☆
Útgerðarráð Bæjarútgerðar
Reykjavíkur hefur samþykkt
að sækja um fjárfestingarleyfi
til að byggja frystihús. Er
ætlunin að það verði 2.200 fer-
metrar að flatarmáli á tveim-
ur hæðum og afköstin verði
50 lestir af flökum á átta
stunda starfsdegi, auk þess,
sem unnt verði að framleiða
allt að 40 lestum af ís á sólar-
hring.
☆
28. JANÚAR
Austan aftakaveður með
snjókomu gerði sunnanlands í
nótt og hreyfðist lægðin, sem
olli því norður yfir land í dag.
Miklar samgöngutruflanir eru
sunnan- og suðvestanlands
vegna ófærðar. Hellisheiði er
lokuð; mjólkurbílalest er á
leiðinni um Krísuvík til
Reykjavíkur. Keflavíkurleiðin
varð ó^ær og sama má segja
um Hvalfjarðarleiðina, en þar
er nú verið að reyna að bæta
úr. Gert er ráð fyrir éljagangi
og skafrenningi í Reykjavík
og nágrenni í nótt. Austan-
veður gerði einnig á Akureyri
í morgun og gekk þá sjór yfir
suðurhluta Hafnarstrætis. En
í veðrinu festi lítinn snjó og
komast áætlunarbílar og
mjólkurbílar allra sinna ferða
um héraðið og Vaðlaheiði, og
Öxnadalsheiði var ágætlega
fær í gær a. m. k.
☆
Ríkisútvarpinu hafa borizt
að gjöf frá Ríkisútvarpinu i
Tékkóslóvakíu tékknesk þjóð-
lög og verk eftir Dvorak og
Smetana, leikin af tékknesk-
um hljóðfæraleikurum og er
þetta um þriggja klukku-
stunda útvarpsefni. — I stað-
inn mun Ríkisútvarpið senda
ríkisútvarpi Tékkóslóvakíu ís-
lenzk þjóðlög.
☆
í fyrrinótt varð kona úti á
Keflvaíkurflugvelli, hét hún
Nanna Arnbjörnsdóttir, 23
ára að aldri, til heimilis að
Laugavegi 46A í Reykjavík.
Mál þetta er í rannsókn.
☆
Heildarframleiðsla mjólkur-
samlaganna á landihu nam s.l.
ár 58,828,608 kílógrömmum, og
er það 4880 lestum meira en
árið 1955. Nýtt mjólkurbú tók
til starfa á árinu: Mjólkurbú
Kaupfélags Austur-Skaftfell-
inga. Á landinu öllu eru nú
starfandi 10 mjólkurbú.
— Hljóð í réttarsalnum,
öskraði dómarinn, hljóð! Sex
menn hafa þegar verið dæmd-
ir án þess að nokkurt orð hafi
heyrzt af framburði þeirra.
HAMINGJUÓSKIR . . .
til Islendinga í tilefni af 38. ársþingi Þjóðræknis-
.félagsins, sem haldið verður í Winnipeg,
CRESCENT AFURÐIR ERU GERILSNEYDDAR
MJÓLKIN, RJÓMINN OG SMJÖRIÐ
CRESCENT CREAMERY LTD.
SUnset 3-7101
542 SHERBURN ST. WINNIPEG
Winnipeg 's
CITY
HYDRO
• has grown into o $55,000,000 utility from on originol investment of
$3,500,000.
a is entirely self-supporting.
• has helped the toxpayers by contributing over $12,000,000 to the
Generol Fund of the City since 1938.
• poys full municipol toxes and a foir shore of the City's general overheod
expenses.
• hos soved citizens of Winnipeg millions of dollors through low electric
rotes and helped moke Winnipeg the industriol centre of Western
Conodo.
Offices: 55 Princess St.
Showrooms: Portoge, east of Kennedy