Lögberg - 28.02.1957, Side 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 28.' FEBRÚAR 1957
3
og erfiði gerðu þeir sér jörðina
undirgefna, og með vopnum
gáfna sinna og mannkosta
ruddu þeir sér til rúms meðal
framandi þjóða, og reyndust
þar svo liðtækir, að ekki varð
hjá því komist að veita þeim
athygli og kveðja þá til hinna
vandasömustu starfa. Og sæti
þeirra hafa hvarvetna reynzt
vel skipuð.
Þjóðræknisfélag Islendinga
í Vesturheimi hefir tekið sér
það hlutverk á hendur, að
vernda og viðhalda þeim arfi,
sem landnemarnir íslenzku
fluttu vestur um haf, og niðjar
þeirra hafa síðan ávaxtað
drengilega og dyggilega. Með
því hefir félagið tekizt á
hendur mikla ábyrgð og mik-
inn vanda, en starf þess um
áratugi hefir sýnt, að það er
vandanum vaxið.
Tímarnir breytast, nýir
starfshættir og ný v^ðhorf
koma með nýjum tímum, ein
kynslóð tekur við af annari.
Því lögmáli hlýtur félags-
skapur yðar að lúta sem aðrir.
En allt um það helzt mark-
miðið óbreytt: verndun hins
íslenzka arfs með þeim hætti,
sem bezt hentar hverjum
tíma. Þetta starf er síður en
svo eingöngu unnið fyrir
Vestur-íslendinga eina, það er
engu síður unnið fyrir okkur,
sem búum heima á gamla
Fróni, og úr undarlegum steini
má sá Islendingur vera gerður,
sem ekki fagnar því starfi og
vill rétta því hjálpandi hönd.
Að endingu flyt ég Þjóð-
ræknisfélaginu og þingi þess
alúðarkveðju, og óska því og
öllum Islendingum vestan
hafs farsældar og heilla í
störfum sínum.
Steindór Steindórsson
frá Hlöðum.“
Tel ég sjálfsagt að þingið
vilji votta Steindóri kennara
þakkir og senda honum kveðj-
ur sínar í tilefni af þessu at-
hyglisverða og vingjarnlega
bréfi.
En við höfum ekki aðeins
fagnað gestum frá íslandi,
heldur hafa og ýmsir á meðal
vor farið til íslands á árinu.
Þetta fólk hefir dvalið þar
lengri eða skemmri' tíma, og
komið svo aftur hingað vestur
flytjandi með sér fróðleik og
velvildarhug til ættlands og
erfða. Björn Sigurbjörnsson
og Helga kona hans fóru í
’ skyndiheimsókn til Islands í
fyrrasumar, og sömuleiðis þær
Ingibjörg Bjarnason, og Helen
Jósephson. Hefir þetta fólk
sýnt fagrar litmyndir frá ferð-
um sínum, og flutt erindi víðs-
vegar fólki til fróðleiks og
ánægju.
Forseti var einnig staddur á
íslandi um fimm vikna skeið í
fyrrasumar. Enda þótt sú ferð
væri farin einkum í kirkju-
legum erindum, flutti hann
víða ávörp og kveðjur frá
Þjóðræknisfélaginu. Þjóð-
ræknisfélag íslendinga í
Reykjavík hélt honum og
konu hans kveðjusamsæti
skömmu áður en þau lögðu af
stað heimleiðis, og samdægurs
flutti hann erindi í Ríkisút-
varp Islands, þar sem hann
mælti m. a. á þessa leið:
„Allmikill fjöldi Vestur-
íslendinga heimsækir Island á
hverju ári, mörgum þar vestra
er ísland enn landið helga,
sem stendur í ljómandi minn-
ingu æskuáránna. Þeir sem
koma hingað að vestan finna
ekki lengur það land eða þá
þjóð, sem feðurnir töluðu um
á frumbýlingsárunum vestra.
Þeir námu landspildu í Can-
anda, og nefndu Nýja-ísland.
Nú skilst mönnum, sem koma
hingað, að Nýja-ísland er ekki
í Canada, það er hér. „Sjá, allt
er orðið nýtt,“ má vissulega
segja um þetta land, framfarir
þess á sjó og landi og í lofti.
Þessu fagna íslendingar vest-
an hafs. Við, sem hér höfum
dvalið í sumar þökkum fyrir
allan kærleika og gestrisni,
sem við höfum notið hér; við
biðjum góðan Guð að blessa
Island og íslendinga; við biðj-
um þess að andlegur þroski
þjóðarinnar megi ávalt hald-
ast í hendur við hina tækni-
legu þróun, og að hér megi
ávalt verða gróandi þjóðlíf
með þverrandi tár, sem þrosk-
ast á guðsríkisbraut.“
Þegar vér nú nemum staðar
á Kambabrún þessa þjóð-
ræknisþings, er það margt
sem fyrir augun ber í íslenzku
félagslífi hér vestan hafs.
Margt bendir til þess að ein-
staklingsframtaks 1 a n d a n s
njóti sín nú ekki síður en áður.
Ýmsir af þjóðflokki vorum
hafa rutt sér braut til al-
mennrar viðurkenningar og
velgengni. En skrá yfir allt
slíkt tilheyrir fremur annála-
ritun, en skýrslu forseta Þjóð-
ræknisfélagsins, og skal því
ekki farið frekar út í það mál
hér. En sem kunnugt er, er nú
annáll ársins prentaður í
Tímariti félagsins, og annast
dr. Beck það starf.
Það hefir verið sagt um
okkur Vestur-Islendinga að
við skemmtum okkur vel á
mannfundum okkar og félags-
þingum, en að við tökum mál
okkar ekki mjög föstum tök-
um, og leggjum ekki mikið í
sölurnar yfirleitt málum okk-
ar til framdráttar. Nú er vissu-
lega ekkert athugavert við
það að menn skemmti sér vel,
og ég vona að við gerum það
einnig á þessu þingi, og á
samkomum þeim sem standa í
sambandi við það. En við
verðum einnig að horfast í
augu við veruleikann í starfs-
málum okkar og stefnumiðum.
Ef þetta félag á að halda á-
fram að svara tilgangi sínum,
þá verður það að vakna af
værum blundi undanfarinna
ára, og hrista af sér slenið og
doðann. Ýmis aðalmál félags-
ins verður að taka til ræki-
legrar yfirvegunar. Það þarf
að hefja nýja sókn í útbreiðslu
og fræðslumálum. Það þarf að
vekja ýmsar deildir félagsins
til nýs lífs og athafna. Það
þarf að stofna nýjar deildir á
nokkrum stöðum þar sem
landar eru orðnir fjölmennir,
en engin þjóðræknisleg starf-
semi er fyrir hendi. Það þarf
að efla fræðslustarfsemi deild-
anna, einkum kennsluna í ís-
lenzku. Tímarit félagsins er
gefið út með vaxandi halla á
hverju ári, og er það nú orð-
inn óþarflega þungur ómagi á
félaginu. Þetta rit er talið með
beztu tímaritum, sem út er
gefið á íslenzku, og Gísli Jóns-
son ritstjóri þess, hefir vissu-
lega haldið í horfinu að því er
snertir innihald og allan frá-
gang ritsins. En til þess að
ritið geti borið sig þarf að
auka útbreiðslu þess eða
hækka verðið, nema hvoru-
tveggja sé. I þessum og öðrum
málum má þetta þing ekki láta
sér nægja faguryrtar og há-
fleygar fundarsamþykktir,
eins og stundum vill brenna
við hjá okkur. Ef sverð þitt
er stutt, þá gakktu feti framar
í orustunni, var sagt forðum.
I því spakmæli felst áminning,
sem er tímabær og okkur öll-
um nauðsynleg hugvekja.
Nú er það í móð að skipta
um stjórn, eða að minnsta
kosti um stjórnarformann.
Slíkt hefir skeð á árinu bæði
á íslandi og Bretlandi, og tel
ég sjálfsagt að félag vort vilji
fylgja dæmi þessara þjóðlanda
áður en þessu þingi lýkur. En
um leið og ég lýk þessari síð-
ustu forseta-ræðu minni, vil
ég þakka meðnefndarfólki
mínu í stjórn Þjóðræknisfé-
lagsins fyrir ágæta samvinnu.
Ég býð ykkur öll velkomin
til þessa þings. Einkum vil ég
minnast og bjóða velkomna þá
tvo menn, sem lengst eru að
komnir til þessa fundar, annar
úr austri og hinn úr vestri.
Sá sem að austan kom og situr
nú ársþing Þjóðræknisfélags-
ins í fyrsta sinn, er prófessor
Haraldur Bessason, eftirmað-
ur Finnboga prófessors við
háskóla þessa fylkis. Félagið
hefir áður boðið hann og fjöl-
skyldu hans velkomin. Nú
bjóðum við hann velkominn
til þessa þings, og gleðjumst
yfir því að hann hefir þegar
tekið sæti fyrirrennara' síns,
sem var varaskrifari félagsins,
er hann hvarf í burtu héðan.
Á því stutta tímabili sem
prófessor Bessason hefir dval-
ið hér hefir hann skapað sér
vinsældir og traust manna, og
gera menn sér glæsilegar von-
ir um starf hans og framtíð
hér á vesturvegum.
Hinn maðurinn, og sá sem
að vestan kom, hefir reyndar
komið úr þeirri átt áður og
setið á þingum vorum. Er það
séra Eiríkur Brynjólfsson frá
Vancouver. Hann er hér
staddur sem fulltrúi deildanna
vestur við haf. Við fögnum
honum ekki aðeins vegna hans
sjálfs, heldur sem fulltrúa
samverkamanna vorra þar
vestra. Að hann er hingað
kominn er talandi vottur um
áhuga og fórnarlund deild-
anna, sem hann er fulltrúi
Business and Professional Cards
Minnist BETEL í erfðaskrám yðar' SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hrelnir. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- viö, heldur hita frá aC rjúka út meö reyknum.—SkrifiC. simiö til KELLY SVEINSSON 625 WaU St. Winnipeg Just North of Portage Ave. SUnset 3-3744 — SUnset 3-4431
$3.00 per House Call EXPERT TECHNICIAN 24-HOUR PHONE SERVICE B.E.M. Television & Radio Service PHONE SPruce 5-2875
S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLÚLOID BUTTONS 324 Smilh Si. Winnipey PHONE 92-4624
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH 60 Loutso Street Slmi 92-6227 A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Streét Selur llkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaöur sá bezti. Stofnaö 1894 SPruce 4-7474
Van's Electric Ltd. 636 Sargenl Ave. Authorized Home Appliance Dealers GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL McCLARY ELECTRIC — MOFFAT SUnsel 3-4890
EGGERTSON FUNERAL HOME Dauphin. Maniioba Eigandi ARNI EGGERTSON, Jr.
Dr. P. H T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary’s and Vaughan. Winnipeg Phone 92-6441
SPruce 4-7855 ESTIMATES free J. M. Ingimundson Re-Roofing — Asphalt Shingles Insul-Bric Siding Vents InstaUed to Help EUminate Condensation 632 Simcoe St. Winnipeg, Man.
Office Phone Res. 92-4762 SPruce 2-6115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BUILDING Office Hours: 4 p.m.—6 pjn. and by appointment.
Muir's Drug Store Ltd. J. CLUBB FAMILY DRUGGIST SERVING THE WEST END FOB 27 YEARS SPrnce 4-4422 Ellice & Home -i.
PARKER, TALLIN, KRIST- JANSSON, PARKER AND » MARTIN BARRISTERS — SOLICITOR8 Ben C. Parker, Q.C. (1910-1951) B. Stuart Parker, Clive K. Tallin, Q.C., A. F. Kristjansson, Hugh B. Parker, W. Steward Martin 5th fl. Canadian Bank of Commerce Building, 389 Main Street Winnipeg 2, Man. Phone 92-3561
Dr. G. KRISTJANSSON 102 Osbome Medical Bldg. SPruce 4-0222 Weston Office: Logan & Quelch SPruce 4-5818 Res.: SPruce 4-0118
Thorvaldson, Eggertson, Bastin & Stringer Barristers and Solicitors 209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg. Portage and Garry St. PHONE 92-8291 S. A. Thorarinson Barrister and SoHcitor 2nd Floor Crown Trust Bldg. .364 MAIN ST. Office Phone 92-7051 Heimaslmi 40-6488
J. J. Swanson & Co. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigla hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgC, bifreiBaábyrgS o.s. frv. Phone 92-7538 Dunwoody Saul Smith & Company Chartered Accountants Phone 92-2468 100 Princess St. Winnipeg, Man. And offices at: FORT WILLIAM - KENORA FORT FRANCES - ATIKOKAN
CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Office: Res.: SPruce 4-7451 SPruce 2-3917 Arlington Pharmacy Prescription Specialist Cor. Arlington and Sargent SUnaet 3-5550 We collect light, water and phone bills. Post Office
fyrir, og þannig verðugt dæmi til eftirbreytni. Starfið er margt, en eitt er bræðrabandið. Treystum því bræðraband- ið. Göngum heilir til starfa. The Business Clinic Anna Larusson — Florence KeUett 1410 Erln Street Phone SPruce 5-6676 Bookkeeping - Income Taz Insurance
\
Á