Lögberg - 07.03.1957, Síða 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 7. MARZ 1957
Lögberg
GefiO út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
303 KENNBDT STRÉBT, WINNIPEG 3, MANITOBA
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 303 Kennedy Street, Winnipeg 3, Manltoba
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Skrifstofustjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram
The "Lögberg” is published by The Columbia Press Limited,
303 Kennedy Street, Winnipeg 3, Manitoba, Canada
Printed by Columbia Printers Limited
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
PHONE 93-9931 ____
GUÐMUNDUR G. HAGALÍN:
i
Eimreiðin,
OKTÓBER—DESEMBER 1956
Að þessu sinni hefst Eimreiðin með langri, mergjaðri og
skilmerkilegri ritgerð um Sigurð Nordal sjötugan eftir Þór-
odd Guðmundsson frá Sandi; um ritgerðina er það eitt að
segja, að hún sýnist ótvírætt bera af því öllu, sem um Nordal
var ritað og sagt í tilefni afmælisins, og er það þó í sjálfu sér
éhginn barnaleikur, að rita um mesta snilling íslenzku þjóðar-
innar síðan Snorri leið.
Inngangsorð áminstrar ritgerðar eru á þessa leið:
„I æsku minni heyrði ég talað um Sigurð Nordal eins og
grískan guð eða einn af Ásum, sem stiginn var ofan af vizk-
unnar helga fjalli, eða komjnn frá Mímisbrunni, þar sem
hann hafði orðið fyrir dýrlegum vitrunum og drukkið mjöð
morgun hvern af veði Valföður. Þrungirin af mannviti og
ofurmannlegum glæsileika kom hann á fund fólksins í átt-
högum mínum og bauð því að drekka úr horninu góða hina
römmu veig.“
Nokkru áður en ritgerðinni lýkur kemst höfundur hennar
svo að orði:
„Margt hefir þó gerzt ólíklegra en Eyjólfsstaðir í Vatnsdal
yrðu síðar meir eitt af helgisetrum íslands af því að þar leit
Sigurður Nordal fyrst dagsins ljós; um þann stað gæti margan
Islending framtíðarinnar átt eftir að dreyma og sjá fyrir sér
ungan dreng, er seinna meir tefldi fram íslenzkri menningu
að fornu og nýju gegn tignustu andans verðmætum stórþjóð-
anna og sýndi hinum mentaða heimi fram á, að Helga í ösku-
stónni stóðst samanburð við konungsdæturnar, þoldi þá raun,
sem'á hana var lögð; hitt er þó ekki minna um vert að gegnum
brim og boða á tímans hafi skuli Sigurði hafa tekizt að varð-
veita bersýni augans og barnið í sál sinni, undrunina yfir
dásemdum tilverunnar, trúna á eilífa framför mannsins, lífið
og guð.“
í ljóðformi liggur ekki mikið eftir Sigurð Nordal, þótt alt
sé það fágað og frumlegt í hugsun; greinarhöfundur vitnar í
Þulu eftir hann, sem hefst með þessu erindi, og er meira en
algengur skáldskapur:
„Gekk ég upp á hamarinn,
sem hæst af öllum ber,
hamingjuna hafði ég í hendi mér,
björt var hún sem lýsigull
og brotþætt eins og gler
— ég henti henni fram af
þar sem hengiflugið er.
Víða flugu brotin, en víðar hugur fer.“
Kjari^yrta og tímabæra ræðu flytur Eimreiðin að þessu
sinni eftir ritstjóra sinn Guðmund G. Hagalín, þar sem gengið
er djarflega til verks og flett er vægðarlaust ofan af stór-(
syndum rússneskra kommúnista; ræðan nefnist „Ef stað-
reyndir ráða því ekki hvar vér stöndum . . . , og eftirgreind
ummæli taka af öll tvímæli um innihald hennar:
„Ungverjaland flýtur í blóði frelsisunnandi sona og
dætra, blóði saklausra barna. Þar fremja Rússar þeim mun
hörmulegri níðingsverk en Tartarahersveitir liðinna alda,
sem þeir hafa stórvirkari dráps- og kúgunartæki, og svívirði-
legust eru níðingsverk þeirra fyrir þæt sakir, að þau eru
framin í nafni friðar og frelsis. Ungverjar eiga ekki aðeins
skilið að hljóta virðingu vor íslendinga og alla þá hjálp, sem
vér getum í té látið; heldur ber oss að gjalda þeim hjartans
djúpa þökk fyrir það, að þeir hafa sýnt öllum heiminum, að
ekki einu sinni nútíma áróðurstækni, ekki öll hin margvís-
legu kúgunar- og njósnatæki, sem einvaldar eiga nú yfir að
ráða, ekki einu sinni erlendur her, búinn alls konar vígvélum,
megnar að koma í veg fyrir, að þjóð, sem ann sjálfstæði sínu
og frelsi, heimti rétt sinn og leggi líf sitt að veði. Og þó ung-
verska þjóðin verði nú á ný heft í fjötra eftir djöfulleg múg-
morð kúgaranna rússnesku, þá verðum vér að trúa því, að
Fréttir frá ríkisútyarpi íslands
Framhald af bls. 1
17. FEBRÚAR
Norðan átt var um allt land
í gær og snjókoma nema
sunnanlands, þar var bjart-
viðri. Frost var eitt til fimm
stig um allt land en kaldast
tíu stig á Möðrudal.
☆
Kvenfélagið Hringurinn í
Stykkishólmi minntist 50 ára
afmælis síns með hófi í fyrra-
kvöld. Félagið hefir starfað
mikið að líknar- og menning-
armálum og gengizt fyrir
námsskeiðum í hjúkrun, garð-
yrkju og hannyrðum. Einnig
hefir það gefið fé og muni til
Stykkishólmskirkj u.
☆
18. FEBRÚAR
Verkfall háseta á kaupskipa
flotanum hefst á miðnætti í
nótt hafi samningar ekki tek-
izt fyrir þann tíma. — Sátta-
fundur var boðaður kl. 17 í
dag.
☆
Enn eru miklir samgöngu-
erfiðleikar í Borgarfirði. Frá
Borgarnesi er fært bílum að
Gljúfurá og vestur fyrir
Langá,* en annars staðar í
héraðinu eru vegir tepptir.
Akfært er milli Reykjavíkur
og Akraness, fyrir Hvalfjörð,
og frá Akranesi er fært fyrir
Hafnarfjall að Skeljabrekku,
og jafnvel mun fært að
Hvanneyri.
☆
Kirkjumálaráðherra Dana
hefir boðið séra Bjarna Jóns-
syni vígslubiskupi og konu
hans að heimsækja dönsku
kirkjuna. Að því boði standa
einnig Boldil Begtrup fyrrum
sendiherra Dana í Reykjavík
Við Vesturgluggann
Tileinkað Ólafi kaupmanni Hallssyni
Sá ég skip á sólarhafi
sigla byr í skýjatrafi,
í Atlantshafsins öldukafi.
Yzt við morgunbjarmans rönd
einn ég sat á auðri strönd.
Skyldi verða heill, ei hálfur,
hafskip lífs míns eiga sjálfur.
sigla frjáls um allar álfur.
I andans ríki nema lönd.
ófarinna ævileiða
ég þá sigldi um hafið breiða.
Kunni áttir eyðiheiða, '
inn á fegurt draumalönd.
öldur kváðu á auðri strönd,
fjarst í vestri framtak bíður.
Framhjá tíðin óðum líður.
Vesturálfu faðmur fríður
fagnar þinni iðjuhönd.
Sé ég skip í sólarhafi
sigla hljóð í skýjatrafi,
yfir hafsins öldukafi.
Úzt við kvöldsins skýjarönd
enn ég sit á auðri strönd.
Reyndi að verða heill; ei hálfur.
Hafskip lífs míns átti sjálfur,
sigldi frjáls um ýmsar álfur.
í andans ríki nam ég lönd.
Þakka ég fögnuð fyrri daga.
Framtak var mitt líf og saga,
samræmt yndi ljóða og laga.
Laga, er engin héldu bönd,
þó einn ég sæti á auðri strönd.
Aldnir reyna örlög bitur.
Æskan þrátt við stýrið situr.
Hverfa íslenzk ljóð og litur,
lönd og skip með seglin þönd.
Á ævidegi eins og vorum,
allt mér finnst í sömu sporum.
Þótt á æðri öfl vér skorum
allt vill fara sömu leið.
Eftir stuttrar stundar skeið,
skyggir nú á láði og legi.
Litir hverfa, hallar degi.
íslenzk tunga í Vesturvegi
vakir hljóð hjá öldnum meið.
S. E. Björnsson
/
hennar frelsissól mui síðar Ijóma yfir hina fögru sléttu, trúa
því með skáldinu, að
Sú þjóð, sem veit sitt hlutverk, er helgast afl um heim,
eins hátt og lágt má falla fyrir kraftinum þeim.“
Umboðsmaður Eimreiðarinnar vestan hafs er Davíð
bóksali Björnsson, 763 Banning Street, Winnipeg, Manitoba.
og stjórn Dansk-Islandsk Sam-
fund.
☆
Kvenfélagið Keðjan á Fá-
skrúðsfirði minntist nýlega 50
ára afmælis síns með hófi-
Félagið hefir frá öndverðu
beitt sér' fyrir líknar- og
menningarmálum. Formaður
félagsins er nú Kristín Jóns-
dóttir, en aðalhvatamaður að
stofnun félagsins var Margrét
Sigfúsdóttir.
ADDITIONS
Betel Building Fund
Frá Árborg, Manitoba
Mr. & Mrs.
S. Wopnford, $50.00
Mr. & Mrs.
Kjartan S. Bjornson, 10.00
Mr. & Mrs.
Ted Olafson, 1.20
Mr. & Mrs.
Björn Sigvaldason, 50.00
Mr. & Mrs.
Björn A. Einarson, 10.00
Mr. & Mrs.
Andres Fjeldsted, 25.00
Mr. & Mrs.
Bill Baumgartner, 2.00
Mr. & Mrs.
Magnús G. Borgfjord, 10.00
-------------0----
Frá Winnipeg, Manitoba
Mr. & Mrs. George Sigmar
Ste. 11, Lindal Apts., $50.00
Sigrún Sigmar
Ste. 24, Lindal Apts., 50.00
--------------0----
Mrs. H. Bergsteinsson,
Craik, Sask., $25.00
In loving memory of my
late husband, Hjörtur Berg-
steinsson.
"Betel" $180,000.00
Building
Campaign Fund
---—180
—160
Make your donatlons to tb*
"Betel" Campaign Fund,
123 Prlncee* Street,
Winnlpeg 2.