Lögberg - 30.05.1957, Síða 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 30. MAÍ 1957
Lögberg
Gefið út hvern firntudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
303 KENNEDY STREET, WINNIPEG 2, MANITOBA
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 303 Kennedy Stree, Winnipeg 2, Manitoba
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Skrifstoíustjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram
“Lögberg’* is published by Columbia Press Limited,,
303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Manitoba, Canada
Printed by Columbia Printers
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
PHONE 93-8931
Feta í fótspor feðra sinna
Við kosningar þær til Sambandsþings, er senn fara í hönd,
bjóða sig fram af hálfu Liberala tveir menn, sem vissulega
feta í fótspor feðra sinna, en það eru þeir Harold St. George
Stubbs, er leitar kosningar í Winnipeg North Centre kjör-
dæminu, og W. J. Wood, er leggur Selkirk kjördæmi sér
undir fót. Hinn fyrnefndi er sonur stjórnmálamannsins þjóð-
kunna, fyrrum dómara og fylkisþingmanns Lewis St. George
Stubbs; frambjóðandinn er fæddur í bænum Birtle hér í
fylkinu hinn 12. dag nóvembermánaðar 1912. Hann stundar
málafærslu hér í borg við góðum árangri; útskrifaðist í lög-
vísi af háskóla Manitobafylkis 1936 og hlaut þá heiðurs-
pening úr gulli fyrir frábæra námshæfileika og ástundan
við nám; ári síðar öðlaðist hann málafærsluréttindi.
Mr. Stubbs gekk í flugherinn 1941 og gerðist þar brátt
flugforingi; hann hefir látið sig mannfélagsmálin miklu
skipta og þótt þar jafnan liðtækur forustumaður; hann er
maður rökvís og ágætlega máli farinn; að hann myndi reynast
hinn nýtasti maður á þingi þarf eigi að efa.
Mr. Stubbs á við harðsnúinn keppinaut afli að etja þar,
sem í hlut á Stanley Knowles með langan og merkan þing-
feril að baki, en hann er einn hinn allra mesti áhrifamaður
C.C.F.-flokksins utan þings sem innan.
Mr. W. J. Wood, frambjóðandi Liberala í Selkirk kjör-
dæminu, er sonur Bert Woods, þingmanns kjördæmisins, sem
lézt í fyrra og gat sér góðan orðstír á þingi; hann rak bíla-
verzlun og búskap að Teulon, en slíkt gerir áminstur sonur
hans líka; frambjóðandinn nýtur mikilla vinsælda í héraði
og hefir um langt skeið tekið giftudrjúgan þátt í opinberum
mannfélagsmálum; hann er enn maður á bezta aldri og lík-
legur til góðra og margháttaðra athafna í framtíðinni; slíkir
menn eiga erindi á þing og verðskulda almenningsfylgi.
1 Selkirk kjördæmi mun glíman einkum verða háð milli
Mr. Woods og Mr. Bryces, er leitar endurkosningar fyrir hönd
C. C. F.-sinna.
*★ ★ ★
Ánægjuleg kvöldstund
Síðastliðið mánudagskvöld bauð Mr. Allister Stewart,
C.C.F.-sambandsþingmaður fyrir Winnipeg North Centre
kjördæmið, blaðamannafélaginu The Canada Press Club til
ríkmannlegrar veizlu í salarkynnum Moores hér í borginni,
þar sem hvorki skorti gleði né góðan fagnað. Mr. Stewart
bauð gesti sína velkomna, en að því búnu tók formaður
klúbbsins, W. J. Lindal dómari við fundarstjórn og rakti í
fáum, en skilmerkilegum dráttum tildrögin að stofnun klúbbs-
ins og þátttöku hans síðar á vettvangi opinberra starfsmála.
Leiðtogi C.C.F.-flokksins, Mr. M. J. Coldwell, flutti mergj-
aða og snjalla ræðu, er fjallaði að mestu um innflutning fólks
til Canada og nauðsynina, sem til þess bæri, að búið væri
sem allra viturlegast undir komu þess, varðandi atvinnu og
viðunandi húsnæði. Mr. Coldwell fór fögrum orðum um þann
menningarlega skerf, er hin ýmsu þjóðarbrot í þessu landi
hefðu lagt á borð með sér, og hvatti þau í fylztu alvöru til að
vernda móðurm^l sitt og menningarerfðir þeim sjálfum og
kjörlandinu til blessunar; var ræðunni fagnað hið bezta.
Mr. Coldwell hefir háð langa og stranga baráttu í þágu
mannúðarmálanna hvar, sem leið hans hefir legið í þessu
landi, en hingað fluttist hann frá London árið 1910. Hann er
skólakennari að sérmentun og gaf sig lengi að kenslustörfum;
í ræðu sinni lét Mr. Coldwell þess getið, hve mikilvægt það
væri að fá hingað hrausta innflytjendur, en við ættum
einnig að veita viðtöku heilsubiluðu fólki, sem ekki ætti tök
á lækningu í 'heimalöndum sínum.
Framfarir í vísindum seinustu
tuttugu órin
Á seinustu tveimur áratug- Lið æ fullkomnari. Má þar
um hafa verið gerðar meiri og
merkilegri uppgötvanir, en
nokkru sinni áður. Það má
rpeð sanni segja að á þessum
árum hafa vísindin gert heims
byltingu. Þeir, sem fæddir eru
upp úr aldamótum, lifa nú í
heimi sem er gjörólíkur því,
sem þá var. Hér skal nú sagt
frá nokkrum þeim vísindaleg-
um afrekum, sem mest hafa
stuðlað að þessu.
Bóluselning við mænuveiki
Margir munu telja að á sviði
læknavísindanna sé merkust
uppgötvun dr. Salks, bólu-
setning við mænuveiki. Hún
var fyrst reynd árið 1953.
Tveimur árum seinna var haf-
in allsherjar bólusetning í
Bandaríkjunum og síðan í
ýmsum öðrum löndum. Og nú
er svo komið að margir telja
að sigur sé unninn á þessari
illkynjuðu og vondu veiki.
Sljörnusjáin mikla
Á sviði stjörnufræðinnar
hafa orðið stórstígar fram-
farir og má þær helzt þakka
200 þumlunga breiðu stjörnu-
sjánni, sem kennd er við Hale
og tók til starfa á Palomar
1948. Þessi mikla stjörnusjá
getur skyggnzt svo langt út í
geiminn, að vegalengdin nem-
ur rúmum billjónum ljósára.
Sjónvarpið
Þessi uppgötvun var í raun-
inni fyrst gerð 1884, en var þá
ekki framkvæmanleg. Miklar
endurbætur voru gerðar á
henni 1920, en það var þó ekki
fyrr en 1939 að fyrst var farið
að sjónvarpa frá New York.
Árið 1950 var sjónvarpið vin-
sælasta dægrastytting í Banda
ríkjunum og hefir síðan farið
sigurför víða um lönd.
Ratsjá
Það er um ratsjána eins og
sjónvarpið, að frumhugmynd-
in að því er ekki ný af nál-
inni. Árið 1886 sýndi Heinrich
Hertz fram á, að radíó-bylgjur
gætu endurkastast frá föstum
hlutum. En það var þó ekki
fyrr en 1930 að sjálf ratsjáin
kom til sögunnar. Það var
stríðið, sem ýtti mjög undir
hugmyndina, því að það var
ekki lítils virði fyrir skip á
þeim tímum að geta „séð“ í
myrkri. — Uppgötvun þessi
bjargaði .óteljandi mannslíf-
um á styrjaldarárunum. Að
stríðinu loknu var hún tekin
til almenningsnota og eru nú
flest skip útbúin með ratsjá.
Sjálfvirkar reiknivélar
Fyrsta sjálfvirka reiknivél-
in var tekin í notkun í Massa-
chusetts Institution of Tegn-
ology árið 1942. Vakti hún
mestu furðu, því að engu var
líkara en að hún hefði manns-
vit. Síðan hefir komið hver
reiknivélin af annarri og orð-
nefna Eniac, sem getur reikn-
að 5000 dæmi á einni sekúndu.
Þessar vélar munu hafa hina
stórkostlegustu þýðingu fyrir
mannkynið, því að nú er hægt
að leysa á nokkrum mínútum
svo flókin dæmi, að menn
hefði þurft marga mánuði til
þess að leysa þau.
Skordýraeiiur
Hið alkunna skordýraeitur
DDT fannst fyrst árið 1874, en
hvarf þegar í gleymsku aftur.
Það var ekki fyrr en árið 1939
að svissneskur efnafræðingur
rakst á upplýsingar um sam-
setningu þess, og gerði til-
raunir með það. Heimsfrægt
varð þetta eitur 1944 þegar
tókst með tilstyrk þess að
stöðva pest í Neapel. Síðan
hefir DDT reynzt bændum
mjög þarft við útrýmingu
alls konar skordýra, sem leggj
ast á gróður og ávexti. Síðan
hafa margar fleiri tegundir
komið, sem reynzt hafa vel í
baráttunni við skordýr og ill-
gresi. Má nú segja að land-
búnaðurinn hafi tekið efna-
fræðina í þjónustu ^ína, þar
sem notkun þessara lyfja er.
Undralyfin
Fyrsta undrameðalið, sulfa-
nilamid, kom fram á sjónar-
sviðið 1936. Reyndist það þeg-
ar mjög gott gegn lungna-
bólgu, barnsfarasótt, blóð-
eitrun, kirtlaveiki oð ýmsum
öðrum sjúkdómum. — Síðan
komu önnur sulfa-meðöl.
ADDITIONS
to Betel Building Fund
From Piney, Man. Communify
Raffle of Quilt ..$86.00
Whist in individual
homes ........... 29.75
Dance ............ 70.00
Lunch ............. 18.44
$204.69
-0-
Rannveig and Joseph
McLennan,
Riverton, Manitoba
In loving memory
dear son, Lourence James
McLennan.
$20.00
of our
Penicillin, sem orðið hefir
frægast allra undralyfja,
fannst fyrst 1928, en svo liðu
15 ár áður en farið væri að
nota það að nokkru ráði. Um
1940 komu svo streptomycin,
chloromycetin, aureomycin,
terramycin og flfeiri meðul
gegn sóttkveikjum. Þetta eru
hin svokölluðu fúkkalyf.
Corlisone
Það var í apríl 1949 að ýms-
‘um læknum var sýnd merki-
leg kvikmynd. Fyrst sýndi
myndin 14 sjúklinga, sem voru
svo lamaðir af liðagigt, að þeir
máttu sig varla hreyfa. Síðan
kom mynd af þeim nokkru
síðar, þar sem þeir gátu farið
allra sinna ferða, gengið upp
stiga og jafnvel dansað. Þeir
höfðu verið læknaðir með
Framhald á bls. 5
"Betel" $180,000.00
Building
Campaign Fund
—,—180
—160
——$145,998.25
-120
—100
-80
—60
—40
—20
Make your donaíions to the
"Betel" Campaign FuncL
123 Princess Street,
Winnipeg 2.
Vote CCF
RE-ELECT
Slanley
KNOWLES X
in Winnipeg North
Centre
ON JUNE 10
Phone SPruce 5-2518
Authorized by
Howard McKelvey
Official Agent