Lögberg - 30.05.1957, Blaðsíða 7

Lögberg - 30.05.1957, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 30. MAÍ 1957 7 Æviminning Tryggvi Sigvaldason var fæddur að Lómatjörn í Grýtu- bakkahreppi við Eyjafjörð þann 26. ágúst 1863. Hann lézt að Elliheimilinu Betel á Gimli þann 14. september 1956, 93 ára gamall. Tryggvi kom til Canada árið 1893 og settist að í Baldur, Manitoba ári seinna; þar bjó hann alla sína daga í þessu landi utan fárra mánaða, á ævikvöldinu, sem hann dvaldi á Betel skömmu fyrir andlátið. Kona Tryggva var Guðný Karítas Friðbjörnsdóttir, lézt þann 24. febrúar 1922. Þau eignuðust þrjú börn, eitt dó í æsku. Þau sem syrgja foreldra sína eru: Mrs. O. R. Schultz til heimilis að Pilot Mound, Man., og Kristrún Guðný til heimilis að 352 Bartlett Ave., Winnipeg. Jryggvi heitinn var fæddur og uppalinn við Norður-íshaf- ið. Á barnsaldri vandist hann við blíðu og stríðu náttúrunn- ar. Hann fór snemma að berj- ast við ofurefli og sjá fyrir sér eftir getu. Á sumrin vann hann í sveit. Á haustin og veturna fór hann á hákarla- veiðar, sem var óefað erfið- asta sjósókn á Islandi á þeim tíma, og var til þess valið úr- valslið. Hákarlabátar voru um 30—40 tonna seglskip, mann- aðir 10—15 vöskum drengj- um, víkingar í anda og karl- menn að burðum. Aðbúnaður allur var óviðunandi, eftir því sem nú tíðkast, flestir höfðu með sér matarskrínu að heiman, sem endast varð legu- tímann, fleiri vikur í einu; saltkjöt og fiskur var matreitt á skipunum og kaffi á þeim öllum stundum. Þessi litlu skip sigldu út í íshafið um hávetur mönnuð hraustustu drengjum bygðarinnar. Þau lágu af sér veður, fárviðri, freyðandi sjó og blindöskubyl. Skipsmenn sóttu björg í bú upp á líf og dauða. Tryggi heitinn var einn af þessum. Eg hafði þá ánægju að heim- sækja Tryggva á efri árum hans. Samtalið barst oftast til æskustöðvánna. Við fórum á hákarlaveiðar, í svaðilfarir. Ég hef oft farið um þær slóðir, þar sem Tryggvi fiskaði, en á vélskipum við hinn bezta út- búnað, oft í slæmu veðri og stundum í undurfagurri sum- arblíðu. Maður varð að geta sett sig inn í kringumstæður Tryggva h. á yngri árum hans til að skilja manninn. Þótt hann væri þúsund mílur upp á hásléttum Ameríku, þá var hann oft á sjó í mismunandi veðri, — lundin samrýmdist þá hugsjóninni, hann stóð kannske við stýri og varðist brortsjó á bóg, líf hans og margra annara lá í hendi hans. 1 rauninni var hann kannske að súpa kaffi með góðum gesti, eða að ganga niður í búð á fögrum sólskinsdegi. Á yngri árum lagði hann fram alla krafta sína í baráttunni við náttúruöfl Norður-íshafs- ins, í nístandi kulda, ólgandi sjó, blindbyl, öskrandi stormi, við að bera björg í bú. Þegar veðrið var gott, var vakað dag og nótt og hamast við að eggja, draga og gera að. — Svona voru æskuárin. Þegar til Ameríku kom urðu kringumstæðurnar þægi legar og unaðsríkar. En mað- urinn hafði mótast lífsreynslu unglingsins og var stöðugt að berjast við íshafið. COPENHAGEN Heimsins bezta munntóbak Tryggvi heitinn naut þeirr- ar ánægju að heimsækja átt- haga sína 1930 eftir 37 ára útilegu. Skömmu seinna varð hann alblindur og fékk lausn frá embætti, sem hann hafði gegnt hjá C.N.R. járnbrautar- félaginu í rúm 30 ár. Það er mörgum erfitt að slíta sig upp úr átthögunum og hverfa til ókunnugs lands mállaus, taka upp nýja siði, ný vinnubrögð og nýjar lífs- venjur. Það er ekki öllum hent. Það reynir á manninn, krefst sjálfsafneitunar og óumræðilega mikillar sjálfs- stjórnar. Og hversu vel sem þetta tekst þá verður Iífsferill- inn alltaf mótaður reynslu unglingsins. Líf Tryggva h. var marg- breytt, ævintýraríkt og oft hrífandi þeim sem þektu hann bezt. Við þökkum fyrir lífsfylgd- ina og vottum aðstandendum samúð okkar. Jóhann Fredriksson P.S. Þess er óskað að viku- blaðið DAGUR á Akureyri endurprenti þessa dánar- minningu. Til Jóhanns Sæmundssonar Hreinn í lundu, heilráður, ívergi bundinn, sjálfstæður. Alla stundu einlægur, aldrei fundinn hlutdrægur. Snælands kuldinn upp þig ól ásamt hlýrri júní sól. Napurt kul frá Norður pól næddi um þín bernsku skjól. Kul það efldi kjarkinn þinn, kappi hleypti í unga kinn. Þrekið óx við þrældóminn, þrautir s^ópu manndóminn. Stæltust vöðvar, styrktist hönd, störfin þér ei reyndust vönd. Hugann engin bundu bönd, þú bjóst að kanna nýja strönd. Þú valdir leið í vestur, átt, vestur yfir hafið blátt. Nýjan heim þú hittir brátt, hvar þér kunnugt birtist fátt. En, það var eitt er þekktir samt, — og þurftir víst að leita skammt — að vinna hart, og vinna jafnt var þér fyrir löngu tamt. Starf er líf og líf er starf, lögmál það sem aldrei hvarf. Ekki saka þig um þarf þú að hafir spillt þeim arf. Hollvirkur á hverjum stað, og hverju sem var starfað að. Trúarjátning þín var það, þó hún væri ei fest á blað. Erfiðleika landnemans léztu verða sigurkranz, stærri og fegri en meðal- manns, merktan dyggðum eigandans. Júní sólar varminn var vafinn í þitt hugarfar. Höfðingslundin þín var þar þjónn, sem ei við neglur skar. Bæði um anda og efnis svið ótal mörgu veittir lið. Þér fanst þó ekki eiga við að það færi í dagblaðið. Ennþá starfar iðin mund, ennþá sporar fótur grund, ennþá berðu unga lund, elli þó að vaxi pund. Dagur langur orðinn er, ævi-sólin lækka fer. Vinlegt kveldið verði þér, vinur, það er ósk frá mér. Lárus B. Nordal Rússar hóta Islendingum Hér á eftir fara orðréttir kaflar úr grein í „Krasnaya Zvezda (Rauðu stjörnunni), málgagni rússneska hermála- ráðuneytisins, samkvæmt upp lýsingum Tass-fréttastofnun- arinnar. Greinin er skrifuð af B. Vronsky, og gerir hann að umræðuefni ræðu þá, sem ís- lenzki utanríkisráðherrann hélt nýlega í tilefni afmælis Atlantshafsbandalagsins. „ísland, sem er lítið eyland nyrzt í Atlantshafi, gerðist að- ili að hernaðarbandalagi, er beint var gegn Sovétríkjun- um og vinaríkjum þeirra. Is- lenzkt land hefur verið búið til notkunar fyrir bandaríska herinn, svo að hann geti með andartaks-fyrirvara notað það í árásarfyrirætlunum sínum gegn Sovétríkjunum og al- þýðulýðveldunum, og slík vopnuð árás af íslenzku landi kann að verða gerð gegn vilja íslenzku þjóðarinnar og jafn- vel íslenzku stjórnarinnar. Af- staðan sem (Guðmundur I.) Guðmundsson tók er í mót- sögn við ályktun Alþingis frá 28. marz 1956, þar sem þess var krafizt, að bandarískar hersveitir færu frá Islandi. Heimköllun bandarískra herja frá íslandi er eina leiðin til að tryggja öryggi þess. Þeir sem geta ekki eða vilja ekki skilja þetta og loka augunum fyrir áætlunum Bandaríkj- anna um að nota Island sem stökkbretti til árása á Sovét- ríkin, eru að gera hörmulega skyssu. Það er alkunna, að Sovétríkin ætla ekki að ráð- ast á neinn, en þau verða neydd til að greiða árásar- aðila og stöðvum hans, hvar sem þær eru, það högg sem nægir til tortímingar“. —Mbl., 13. apríl 37 íslendingum boðið í sérstæða kynnisför til Noregs Gert er ráð fyrir, að þeir feti „í fólspor Egils Skallagríms- sonar" Nokkur fylki og félög í Noregi hafa tekið sig saman og boðið .37 Islendingum í ferð um Vestur-Noreg dagana 13. til 23. júní n.k. Ferðin á að heita „1 fótspor Egils Skalla- grímssonar“ og verður farið um ýmiss héruð, sem hann og ættmenn hans dvöldust í um lengri eða skemmri tíma. Reynt verður að gera för þessa bæði fróðlega og skemmtilega og auðvitað verð- ur lögð áherzla á, að gestirnir kynni sér norskt atvinnu- og menningarlíf, en hafi þó Egils sögu í huga og tengi á þann hátt nútíð og fortíð: á þessum slóðum saméinast saga Islands og Noregs, og mætti ætla, að tilgangur fararinnar væri ekki sízt sá að minna á það„ á skyldleikann milli þessara frændþjóða og menningararf þeirra, sem runninn er af sömu rótum. — Er þetta í fyrsta skipti, sem efnt er til slíkrar farar og er hún því mjög sérstæð. Ferðin verður skipulögð á þann hátt, að gestirnir sjái sem mest af heimkynnum ís- lenzkra landnámsmanna í Noregi og er það von þeirra, sem að boðinu standa, að það styrki vináttuböndin milli frændþjóðanna tveggja. Þátt- takendur eiga að koma til Björgvinjar hinn 13. júní, en þaðan verður haldið tveimur dögum síðar norður í Sogn og Fjörðu, Sunnmæri og Ála- sunds, þar sem ferðinni lýkur sunnudaginn 23. júní. Mbl., 10. apríl PAUL W. GOODMAN (ALDERMAN), “I solicit your support and vote on June lOth for Mr. Stubbs. We need a voice in the Liberal government.” VOTE FOR Harold St. George Stubbs, Q.C. Liberal—North Centre The Liberal Government has Paid (approximately) $19,000,000 Family Allowances to resi- denls of Winnipeg North Centre, since inception. Paid (approximately) $10,000,000 Old Age Security to residents of Winnipeg North Centre since 1952. 1953 enacted “Fair Employment Practices Act”—banned discrimination. 1956 enacted “Equal Pay for Women.” Unemployment Insurance For Fishermen. Guaranteed Union Security. STUBBS HAROLD ST. GEORGE |x By authority Brian Folliott, offlcial agent, 959 Sherburn St. Your Committee Room Is 306 NOTRE DAME AVE. — PH. 93-7053

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.