Lögberg - 12.09.1957, Side 5

Lögberg - 12.09.1957, Side 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 12. SEPTEMBER 1957 5 WV"^V r AHIIGAMAL IWCNNA * " Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON Hvað hefir Þjóðræknisfélagið gert? MINNING ARORÐ: Þorsteinn Þ. Þorsteinsson skáld og rithöfundur (Morgunblaðið, 20. júní 1956) Þann 25. marz í vetur voru liðin 38 ár frá því að Þjóð- ræknisfélag íslendinga í Vesturheimi var stofnað. Is- lendingar hafa myndað hér æðimörg félög, en þau hafa fæst orðið langlíf. Það eitt að Þjóðræknisfélagið verður senn fertugt virðist benda á, að það hafi verið reist á traustum grundvelli, og að það hafi átt á að skipa trygg- um og ötulum forvígis- mönnum. Ekki hefir félaginu ávalt blásið byr í segl né starf þess verið metið að makleikum svo sem ofanskráð spurning gefur til kynna, en henni er varpað fram í tíma og ótíma. Sannleikurinn er sá, að það gengur kraftaverki næst hve miklu þetta félag hefir áork- að, svo litlu fé, sem það hefir átt yfir að ráða, og ekki marg- mennara en það er. Það er ekki úr vegi að rifja hér upp hver tilgangur félags- ins er og minnast lítillega á starf þess á liðnum árum. Síefnuskráin: 1. Að stuðla að því af fremsta megni, að Islendingar megi verða sem beztir borgar- ar í hérlendu þjóðlífi. 2. Að styðja og styrkja ís- lenzka tungu og bókvísi í Vesturheimi. 3. Að efla samúð og sam- vinnu meðal íslendinga aust- an hafs og vestan. Þetta er göfugt verkefni og virðist sem allir Islendingar ættu að geta sameinast um það. Félagið hefir myndað deild- ir í meginbyggðarlögum Is- lendinga og á þingi þess 1938 var félagið, sem nú nefnist Icelandic Canadian Club, stofnað. Útgáfa Tímarit félagsins er talið með beztu tímaritum, sem gefin hafa verið út á íslenzku. Baldursbrá: Barnablað gefið út í sex ár. Saga íslendinga í Vestur- heimi. Hóf útgáfu þessa verks. Vegna fjárskorts félagsins hlupu aðrir góðir menn undir bagga. History of Iceland eftir próf. Knut Gjerset. Lagði fram $1000,000 til prentunar þessa rits, sem er það ítarlegasta um þetta efni á enskri tungu. Iceland Thousand Years gefið út í samfélagi við Ice- landic Canadian Club. Lögðu stjórnarnefndarmenn til mik- ið af efni bókarinnar. Félagið hefir síðustu tvö árin veitt íslenzu vikublöðun- um $250,000 fjárstyrk. íslenzkukennsla Félagði hefir frá upphafi gengist fyrir því að börnum yrði kennd íslenzka, þó hefir dregið mikið úr því starfi á síðari árum vegna nemenda- skorts. — Útvegaðar voru kennslu- og lesbækur frá ís- landi, og hefir félagið forða af þeim bókum fyrir þá, sem vilja notfæra sér þær. Fyrir atbeina félagsins var íslenzk tunga um langt skeið námsgrein á námsskrá mið- skóla Manitobafylkis. Og frá upphafi félagsins hélt það stöðugt vakandi málinu um íslenzkukennslu við Manitoba háskólann, og fyrstir til að leggja fram fé til þeirrar stofnunar voru meðlimir fé- lagsins og fyrst komst skriður á það mál, þegar einn af stofn- endum félagsins og gjaldkeri þess í fjölda mörg ár lagði fram þriðjung þess fjár, sem áætlað var þá að til þyrfti. Söngkennsla Um nokkurra ára skeið hafði félagið með höndum söngkennslu; kenndu kunnir söngstjórar börnum og ungl- ingum söng; ennfremur var söngur æfður í sambandi við laugardagsskólann. —FRAMHALD ★ Pilsin orðin styttri Frá fyrsíu sýningu haustsins í París Tízkuhús Jean Patou varð fyrst til að sýna umheiminum, hvernig vetrartízkan 1957 á að vera. Það sem var mest áberandi á sýningunni var, að pilsin eru nú orðin stutt, þau skrölta rétt um hnéskelina, og eru kjólarnir breiðari um axlirn- ar en áður, líkt og pýramídar í laginu. Patou lætur mittislínuna verða „eðlilega“ og undir- strikar hana ekki á nokkurn hátt. Skinnhúfur með slaufu undir hökunni, sem litu út eins og geimfarshjálmar, voru mjög áberandi. Mikið var um kápur, sem fóðraðar voru með skinni, m. a. var kvöldkápa úr svörtu tafti fóðruð með apaskinni. Kvöldhattarnir voru kassa- lagaðir alsettir slaufum. „Lína“ Patou er látlaus og slétt á dagkjólunum, en kvöld- kjólarnir eru aftur á móti í- burðarmiklir og með víðum pilsum. Klukkulaga, mjög víð, en fislétt pils voru mest áber- 27. maí fór fram að Völlum , í Svarfaðardal útför Þorsteins Þ. Þorsteinssonar eða Þ. Þ. Þ., eins og hann var allajafna nefndur meðal Vestur-Islend- inga, en hann andaðist að Gimli, Man., Canada, á Þor- láksmessu s.l-; þess hafði ég séð getið í vestanblöðunum ú sínum tíma. Að skrifa um skáldskap Þ. Þ. Þ. í stuttu máli er vanda- samt verk, þó hér skuli gerð dálítil tilraun til þess og verð- ur það því skáldið en ekki maðurinn Þ. Þ. Þ., sem grein þessi fjallar um. Þess má þó geta að Þorsteinn og Zophon- ías Þorkelsson verksmiðju- eigandi í Winnipeg voru bræðrasynir, báðir úr Svarf- aðardal, en Zophonías er mörgum að góðu kunnur hér austan hafs, síðan hann dvaldi hér fyrir fáum árum og ritaði ferðasögu sína, er hann nefnir Ferðahugleiðingar, og út var gefin í tveim bindum í Win- nipeg 1944. Eitt af fyrstu kvæðum Þor- steins, sem ég hefi fundið í blöðum og tímaritum, er kvæðið Austurþrá, í Óðni 1907, þar segir m.a.: Ó, Island, mín sál á þér heima hjá! Þótt hyrfi ég til Guðs, þér ættjörð frá, þér aldrei að eilífu ég gleymdi. Ég finn ég er hold þínu holdi af, og hjarta mitt slær því blóði af, sem að því frá æðum þér streymdi. Segja má að þarna komi fram sá grunntónn, sem ein- kennir rifverk Þorsteins í bundnu sem óbundnu máli, en það er ættjarðarástin, hún gengur eins og rauður þráður andi í stuttu kvöldkjólunum, sem voru slaufum stráðir. Yfirleitt má segja, að slaufun- um hafi verið komið fyrir á öllum ómögulegum og mögu- legum stöðum — niðri við fald inn, í mittinu — aftan á bak- inu og alls staðar, bæði á dag- og kvöldkjólunum. Patou virðist reyna að gera allt, sem í hans valdi stendur til að draga athyglina að stuttu pilsunum og hnjám kvenfólksins. — Slaufurnar eru látnar vera eins konar vegvísir til hnjánna. Einn af kvöldkjólunum, úr svörtum knipplingum, var svo alsettur slaufum, að úr fjar- lægð var engu líkara en að hann væri úr f jöðrum og dún. Síðu kvöldkjólarnir voru úr lamé, brókaðe eða mynstruðu silki, voru flestir öklasíðir, — nokkrir voru síðari að aftan. í gegnum verk hans. Hann var skáld í þjóðlegum stíl. Rit Þorsteins Þ. Þorsteins- sonar prentuð í bókarformi eru þessi: Ljóðaþæt.tir, Winnipeg 1918. Heimhugi (ljóð), Reykjavík 1921. Kossar, Sögustíll, Reykja- vík 1934. Vestmenn, Reykjavík 1935. Ævintýrið frá íslandi til Brazilíu, Rvík 1937—’38. Saga Islendinga í Vestur- heimi I.—III., Rvík og Winnipeg 1940—’45. Björninn úr Bjarmalandi, Winnipeg 1945. Kapparíma, Akureyri 1947. Lilja Skálholt, Akureyri 1947. Vorinngöngudaguf, (Sér- f prentað úr Tímariti Þjóð- ræknisfélagsins), Winnipeg 1950. (Ekki til á Landsbóka- safninu). Saga, Misserisrit I.—VI. árg. Winnipeg 1925—’31. Fíflar I.—II. (tímarit), Winnipeg 1914—1919. I ljóðabókinni Heimhugi, sem Þorsteinn Gíslason gaf út og fyrr er nefnd, eru mörg ágætiskvæði, en lítinn hljóm- grunn fékk höfundur þeirra meðal lesenda, og svo var ætíð með Þ. Þ. Þ., að hann naut aldrei þeirrar viðurkenningar í lifenda lífi, sem honum bar með réttu. Hann fór sínar eigin • leiðir eins og fleiri. Tímarit hans Saga, er hann gaf út í Winnipeg og fyrr er getið, er eitt þjóðlegasta tíma- rit íslenzkt, er vér eigum og dýrmæt eign bókamanna- Þorsteinn Þ. Þorsteinsson var mesti hagleiksmaður í dráttlist og er mér sérstak- lega minnisstæð mynd hans af Vilhjálmi Stefánssyni. Það er auðséð að þar hefur lista- maður haldið á penna, svo mér kemur Gröndal ósjálfrátt í hug. Tvívegis kom Þ. Þ. Þ. hing- að til lands. 1 fyrra skiptið árið 1920, eftir 19 ára dvöl vestan hafs, og í síðara skiptið árið 1933 og dvaldi þá hér í nokkur ár, unz hann hvarf aftur alfarinn vestur um haf. Við brottför hans frá Win- nipeg 1933 orti Sigurður Júlíus Jóhannesson, skáld, til hans nokkrar vísur, þar segir m. a.: Farðu sæll til heimahaga, heila þökk fyrir liðna daga: ljóðadís og listagyðja lífi þínu frægðar biðja. Þó að flest sé þoku vafið þeim, sem leggur út á hafið! Heim af fleytu ferðatraustri fagni móðir þér í austri. Og nú er Þorsteinn kominn í þriðja sinn til gamla Fróns, og 1 þetta skipti fyrir fullt og allt. Lífið var honum að mörgu leyti andstætt, og er það að vísu gömul saga, sem er ávallt ný. Ónefndur maður orti eftirfarandi vísu: Að lifa er bál að bæla í brjósti og tál í sál. Að yrkja’ er að meta og mæla muna síns gull og stál. (Lögberg er góðfúslega beðið um að endurprenta þessa grein). Stefán Rafn. „Og frændsemin skal brúa saman löndin" Framhald af bls. 4 læg, heit og fangvíð guðstrú hans og trúnaður við allt hið bezta og fegursta í kirkjusögu og kristnihaldi þjóðarinnar. 1 fáum orðum sagt, hjá honum, eins og í lífi og starfi annarra hinna fremstu íslenzkra kirkjulegra leiðtoga beggja megin hafsins, renna þjóð- ræknin og trúræknin í sama farveg. Hann slær kröftuglega á þann streng í snjallri og andríkri kveðju, „Heilindi og hugsjónarlíf“, sem hann sendi Ungmennafélögum íslands á 50 ára afmælishátíð þeirra 30. júní síðastliðinn, og prentuð er í nýútkomnu júlíhefti Kirkjuritsins. Þar farast hon- um meðal annars þannig orð, og þau eiga einmitt erindi til okkar Islendinga utan ætt- jarðarstranda: „Heilindi í starfi og hug- sjónarlíf eiga að vera blessun og styrkur æsku íslands og Ungmennafélögum. Hver sem vinnur af alhug til gagnsemd- ar landi sínu, verður snortinn af heilögum anda kærleikans. Það er rétt og satt er skáldið kveður: En sá, sem heitast ættjörð sinni ann mun einnig leita Guðs og nálgast hann.“ Ég veit að þessi orð eru töluð beint út úr hjarta heið- ursgestsins okkar, biskupsins; því vil ég gera þau að loka- orðum mínum, og mælist til þess, að við hugfestum þau og hugleiðum. 1 nafni Þjóðræknisfélagsins þakka ég herra biskupinum og föruneyti hans hjartanlega komuna og óska honum og fylgdarliði hans heilla og blessunar. Af hálfu Þjóð- ræknisfélagsins bið ég hann ennfremur fyrir kærar kveðj- ur heim um haf til Forseta ís- lands, heiðursverndara fé- lagsins, til ríkisstjórnarinnar og þjóðarinnar allrar. Þær óskir og kveðjur ber ég fram í anda orða skáldsins: „Og frændsemin skal brúa saman löndin.“

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.