Lögberg - 12.09.1957, Blaðsíða 8

Lögberg - 12.09.1957, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 12. SEPTEMBER 1957 Rússar óttast, að Kaspíahaf sé að þorna Vainsborð þess lækkar öri með hverju ári. Úr borg og bygð Til kaupenda Lögbergs: Gerið svo vel og athugið nafnmiðann á Lögbergi; hann segir til, fram að hvaða tíma, að greitt hefir verið fyrir blað- ið. Um leið. og ársgjaldið kemur á skrifstofuna er kvittað fyrir það með því að breyta ártalinu á miðanum. Lögbergi kæmi vel að fá öll áskriftagjöldin greidd fyrir- fram. ☆ — DÁNARFREGN — Sigríður Johnson, kona Magnúsar Johnson, 333 Scotia Street hér í borginni, lézt á fimmtudaginn, 5. sept., 65 ára að aldri. Foreldrar hennar voru hin kunnu frumherja hjón, Pálmi og Guðrún Lárus- son. Flutrtist hún með þeim tveggja ára vestur um haf og settist fjölskyldan að á Gimli. Foreldrar hennar eru bæði látin, faðir hennar fyrir nokkrum vikum. Þau hjónin Sigríður sáluga og Magnús bjuggu lengi í Riverton, en síðastliðin 15 ár í Winnipeg. Auk manns síns lætur hún eftir sig tvo sonu, Pálma og Hjálmar; þrjár dætur, Mrs. William Mitchell, Mrs. Gor- don Boyd, og Mrs. Theo Wilkie; ellefu barnabörn; enn fremur fjóra bræður, Sigur- stein, Hjálmar, Benedikt og Brynjólf; Lárusson; tvær systur, Mrs. Ósk Hjörleifsson og Önnu Lárusson. Útförin var gerð á mánu- daginn frá Bardals og lút- ersku kirkjunni á Gimli. Hún var lögð til hinztu hvíldar í Gimli-grafreit; séra Sigurður Ólafsson flutti kveðjumál. ☆ Mrs. Alex Jónasson frá Wabowden, Man., dvelur í borginni um þessar mundir hjá dóttur sinni og tengdasyni, Mr. og Mrs. Ray Bates, Bell Rose Apts. ☆ Magnús G. Guðlaugsson frá White Rock, B.C. leit inn á skrifstofu Lögbergs síðast- liðna viku- Lesendur blaðsins kannast við hann af ágætum greinum hans, er birzt hafa í blaðinu. Hann kom á bíl sín- um og heimsótti á leið sinni börn sín í Peace River og dóttur sína í Edmonton. Hann fer til Nýja-íslands; æsku- heimili hans var að Mæri ná- lægt Gimli. ☆ Mrs. Lára Sigurdson, Tre- vere Apts., er nýkomin úr skemmtiferð til Vancouver og Victoria, B.C. ☆ 3930 Marine Drive, West Vancouver, B.C. Sept. 3rd 1957. To the Ediíor of Lögberg: — In the list of donations to Höfn which appeared in your paper two weeks ago I failed to mention that the $2.00 do- nations were for 1957 Mem- bership cards in the Icelandic Old Folks Home Society. — Would you correct this for me by some such notice as this: — All $2.00 donations men- tioned in the last list of dona- tions to Höfn were for 1957 Membership Cards in the Icelandic Old Folks Society. Thank you, Emily Thorson, Treas. ☆ Tilvalin afmælisgjöf Gleðjið vini ykkar, þá er ekki fá Lögberg, með því að senda þeim blaðið í afmælis- gjöf eða jólagjöf, þegar þar að kemur. STJÓRNIN BORGAR BRÚSANN Campbellstjórnin í Mani- toba hefir nú gengist inn á að greiða tvær miljónir og átta hundruð þúsundir dollara til Disrarelibrúarinnar, sem lögð skal yfir Rauðá undan Point Douglas; lengi vel var stjórn- in með öllu ófáanleg til að láta yfir miljón dollara. bæjar- stjórnin í Winnipeg hefir tekið tilboði þessu með þökk- um, en Mr. Campbell hefir krafist þess að vinna hefjist þegar í stað við brúargerðina; veitir þetta að sjálfsögðu enga smáræðisatvinnu, en slíkt kemur sér vel. KAUPIÐ og LESIÐ — LÖGB.ERG! MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol. Heimili 686 Banning Street. Sími SUnset 3-0744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. Allir ævinlega velkomnir Um 5000 Ungverjar líflótnir síðan í byltingartilrauninni Framhald af bls. 1 verið dregið fyrir rétt síðustu þrjá mánuðina en fjóra fyrstu mánuðina eftir uppreistina. Ekki hefir verið getið um, að neinn hafi verið sýknaður. Sérstakar ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að veikja rétt hinna ákærðu. Sir Hart- ley Shawcross skýrði frá því, að kúgunin ykist fremur en úr henni drægi. „Maður hefði getað ímyndað sér, að ástand- „Það hefir nú verið opinber- lega játað,“ segir nefndin, „að markmið Kadar-stjórnarinnar er að ráða með ofbeldi niður- lögum þeirra, sem enn standa gegn henni.“ I fyrstu reyndist kommún- istunum erfitt að hrinda á- formum sínum í framkvæmd, þar sem dómararnir dæmdu aðeins í léttar refsingar. Með fullri hörku var þeim skipað að beita þyngstu ákvæðum laganna til hins ýtrasta. Enginn sýknaður. Jafnvel eftir þetta létu dóm- ararnir ekki til leiðast. Var þá gripið til þess ráðs að setja á stofn alþýðudómstóla, sem látnir voru endurskoða dóm- ana. Dómstólar þessir voru skipaðir einum lögfræðingi og þrem „áreiðanlegum“ rauð- liðum, sem valdir voru af handahófi. Ábyggilegar tölur, sem hin- ir vestrænu lögfræðingar könnuðu vandlega, leiddu eftirfarandi í ljós: Allt að 5000 manns hafa verið teknir af lífi síðan októ- beruppreistin brauzt út. Af fyrrverandi föngum, sem sleppt var úr haldi, meðan uppreisnin stóð yfir, hafa 13,000 verið teknir höndum aftur og 20,000 til viðbótar verið varpað í fangelsi. Helmingi fleira fólk hefir Kaspíahafið er að þorna upp. Yfirborð þess hefir verið að lækka í marga áratugi eða jafnvel heila öld. Nú er hægt að finna gamalt fjörumál þess langt fyrir ofan vatnsborðið, og það sem einu sinni var botn þessa auðuga hafs, er nú að finna langt frá núverandi vatnsborði. Það er eftirtektarvert, hvað vatnið hefir stórlega minnkað síðan 1929- Frá því ári hefir yfirborð þessa stærsta stöðu- vatns í heimi lækkað um tvo og hálfan metra og uppþorn- unin virðist halda áfram í vaxandi mæli. Það svæði, sem þornað hefir, er orðið þrjátíu þúsund ferkílómetrar, eða sem næst þriðjungurinn af flatarmáli Islands. Orsakirnar fyrir slíkri þorn- un Kaspiahafs eru margar, en fyrst ber að telja mikla hækk- un á meðalhita yfir árið á svæðinu umhverfis Kaspia- hafið og á Volgusvæðinu, sem hefur afrennsli í vatnið. Á síðustu hundrað árum hefur meðalhitastig hækkað um 1 Vz stig, sem svarar til þess að af- rennsli Volgu hefir minnkað um 10 til 15 af hundraði, en það er mjög afdrifaríkt, því að úr Volgu koma tveir þriðju hlutar af því vatni, sem í Kaspiahafið fer. Auk þessa, sem hér er talið, hefir orku- verabygging við Volgu og önnur fljót, sem renna í vatn- ið, hindrað rennsli í það, svo talið er að vatnið sé á þann hátt rænt 580 rúmkílómetrum árlega af vatni sem annars myndi hafa runnið í það. Afleiðingarnar alvarlegar Afleiðingarnar af uppþorn- uninni eru mjög alvarlegar. Víða í norðurhluta hafsins hafa siglingar stöðvast vegna grynninga, sem komið hafa þar sem áður var skipgengt. Til þess að halda gömlum siglingaleiðum opnum er lagt í mikinn kostnað við uppgröft með dýpkunarskipum. Þar sem Volga rennur í Kaspía- hafið eru fiskibæir, sem um aldaraðir hafa verið vel settir til styrjuveiða, en nú komast ið batnaði eftir því sem mán- uðurnir líða,“ sagði hann, „en sú er ekki reyndin." „Hinir ákærðu eru leiddir fyrir dómstólana án þess að fá fyrirfram nokkrar upplýsing- ar um ákæruna og án nokkurs tækifæris, sem heitið geti, til þess að halda uppi málsvörn fyrir sjálfan sig.“ „Ný tilskipun hefir nú verið gefin út og felur hún í sér réttindaskerðingu hinna á- kærðu manna. Fyrir þeirra hönd mega nú aðeins koma fram lögfræðingar, sem taldir eru upp á ákveðnum lista. Hér er því um hreinan skrípaleik að ræða.“ —VISIR, 20. júlí bátarnir ekki þar að landi vegna gryninga og fiskiveið- arnar frá þessum stöðum eru smám saman að leggjast nið- ur. Þar að auki hafa fiskimið- in eyðilagst, og það svo ört, að á nokkrum undanförnum ár- um hefir aflinn minnkað um helming frá því sem áður var. 90% af allri siyrju Hér er um að ræða geysi- mikil verðmæti og afla sem skiptir þúsundum lesta árlega, því 90 prósent af allri styrju, sem veidd er í heiminum, kemur úr Kaspíahafinu. Nú er þessum dýrmæta fiskistofni hætta búin og þar með hinum heimsfræga rússneska kaviar (styrjuhrognum), enda er með hverju ári sem líður erfiðara að fá kaviar í Moskvu. Sulfat- saltframleiðslan í Kara Bogas- víkinni hefir einnig stórlega minnkað vegna uppþorunar. Rússneskir vísindamenn hafa ætlað að þornun hafsins valdi rýrnun, sem nemur 1 mill- jarðri rúblna árlega í þjóðar- tekjum Sovét-Rússlands. Eyðimörkin sígur að Lækkun yfirborðs Kaspia- hafsins hefir einnig í för með sér mikla loftlagsbreytingu í héruðunum umhverfis það. Landið í kring þornar og skrælnar og heitir vindar frá Asíu, sem frekar eru orsök en en afleiðing af uppþornuninni, blása nú tíðar yfir þessi land- svæði og valda skrælnun gróðurs og á eftir kemur eyði- mörkin. Siífla yfir Kaspíahafið Ýmsar uppástungur hafa komið fram um það hvernig megi stöðva þetta óheillavæn- lega náttúrufyrirbæri. Sú til- laga, sem talin er nýtilegust er sú, að gera stíflu yfir norð- anvert Kaspíahaf, þar sem vatnið er 450 kílómetra breitt, eða svipuð vegalengd og frá Vestfjörðum til Austfjarða í loftlínu. Vatnið er þarna grunnt, aðeins 3,5 metra djúpt að meðaltali. Á þessum garði eiga svo að vera hlið fyrir skipaumferð og járnbrautar- teinar. Þessi framkvæmd yrði til þess að vatnsborðið í nyrðri hluta vatnsins myndi hækka, en á hinn bóginn myndi syðri hluti Kaspiahafsins verða enn verr úti, grynnka til muna. Höfundur þessarar tillögu er rússneski haffræðingurinn B- A. Apollov. Á eynni Artema fyrir aust- an Baku hefir verið gert geysi stórt líkan af Kaspiahafinu og þar glíma vísindamenn og tæknifræðingar við þetta erf- iða úrlausnarefni. Rússneskir vísindamenn eru allir sam- mála um það, að eitthvað v^rð ur að gera til þess að hindra að Kaspiahafið þorni upp, en hvernig verði farið að því er enn óráðið. —‘VÍSIR, 29. júlí

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.