Lögberg - 24.10.1957, Side 3

Lögberg - 24.10.1957, Side 3
LÖGBERG, FIMMTUDAÓINN 24. OKTÓBER 1957 3 mín giftist bráðlega og mig langar til þess að allir geti hresst sig í giftingar-samsæt- inu.“ „Of miklir peningar,“ sagði Joe mótmælandi, en Corvin stóð upp um leið og sagði: „Bjórinn verður að vera góður bjór, og — þú mátt brugga 100 flöskur í viðbót, ef þú getur. Fyrir þessa viðbót mun ég borga þér við af- greiðsluna.“ Svo greip hann hendi Joe’s, sem sat undrandi og orðlaus, og hristi hana, og gekk svo til dyranna, leit yfir öxl sér og sagði hlæjandi: „Ég sé þig seinna, Joe.“ — Joe sat alveg yfirkominn við borðið, þangað til konan hans kom út úr eldhúsinu, þar sem hún var vön að bíða með börnin, þegar Joe hafði gesti. Joe leit upp og benti mjög al- varlega á peningana á borð- inu fyrir framan hann um leið og hann sagði: „Mig góður bruggari!“ Auðvitað var bjórgerð ólög- leg á þeim dögum, vegna breytinga, sem kölluð var 18. breyting grundvallarlaganna, sem bannaði bruggun og sölu á öllu áfengi. Samt var svo- kölluð heima-bruggun tals- vert algeng á meðal almenn- ings, því lögreglan, í flestum atriðum, skipti sér lítið um lögbrot af því tagi. Þetta átti sér líka stað, þó að bruggun og sala á áfengi færi fram í stórum stíl. 1 mörgum atrið- um lék lögreglan leikinn með lögbrotsmönnunum fyrir eig- in hagnað og mútur. Samt var það talsvert oft, að menn voru tæknir fastir og sektaðir fyrir slík lögbrot, en eins og alment var sagt, „voru slík at- vik aðeins lögreglunni til af7 sökunnar.“ Jafnvel þó Joe vissi vel, að bjórgerðin væri ólögleg, gerði hann sér litla grein fyrir því, að þessi löggjöf næði til hans. Skylda hans til að framleiða allar nauðsynjar fyrir fjöl- skyldu hans var yfirgnæfandi afsökun, og tilfinning háns um að vera góður bjór- bruggari. Bjórpöntun Corvins var af- greidd í tíma til heimilis hans. f kjallara undir húsi hans hafði hann látið gera fyrsta flokks veitinga-krá í smáum stíl. Veitingaborðið var hring- myndað borð fyrir framan eitt hornið í talsvert stórum sal í þessum kjallara, og fyrir innan þetta borð voru skápar, mjög vandaðir, sem fylltir voru af alls konar vínföngum. Salurinn sjálfur var nægilega stór fyrir hér um bil fjóra tugi manns, sem gátu dansað þar og skemmt sér við ýmsa leiki, á milli hressinganna við veitingaborðið. Joe var auð- vitað mjög hrifinnn af öllum þessum útbúnaði, og hafði hann því talsverða stærilætis- tilfinningu um það, að bjórinn hans skyldi vera notaður við slík atvik. Hann hjálpaði Corvin við það að koma bjór- flöskunum fyrir í kælinum, sem var lítið herbergi á bak við veitingaborðið- Þegar Joe var að búast til heimferðar, snéri Corvin sér alt í einu að honum og lagði hendina á öxl- ina á honum vinsamlega: — „Joe,“ sagði hann, „gætir þú nú ekki verið veitingamaður minn, á meðan á samsætinu stendur? Auðvitað mun ég borga þér vel.“ — Joe stóð sem þrumu lostinn og svb stamaði hanrT: „Ég veitinga- maður? — Engin góð föt!“ — Corvin hló: „Ég skal sjá um að þú hafir. ágætan veitinga- manns búning fyrir þetta tækifæri. Ég get fengið þá til láns.“ Joe fór heim til sín mjög hrifinn. Hann hafði tilfinn- ingu um það, að hann væri nú meira en góður bruggari, hann væri líka ágætur veit- ingaþjónn. Giftingarsamsætið fór vel fram og Joe leysti verk sitt vel af hendi, sem veitinga- maður. Hann hafði líka mikið yndi af því að heyra lofsyrði um það hve góður bjórinn væri, sem han veitti, og svo þegar gestirnir voru farnir að „finna á sér“ af áfenginu, sem einnig var Whiskey og vín, hafði Joe ágætt tækifæri til þess að auglýsa sjálfan sig. Hann hafði bruggað bjórinn, hann góður bruggari. Eftir þetta samsæti voru Joe allir vegir færir. Pantanir komu til hans úr öllum áttum, svo hann varð að kaupa fleiri áhöld fyrir bjórgerðina. Kjall- arinn hans varð of þröngur fyrir framleiðsluna, eða með öðrum orðum, svo fullur af flöskum og kerum, að valla var hægt að snúa sér þar við. Fyrir þær ástæður hafði Joe talsvert margar flöskur af bjór í eldaherberginu hans. Þessar birgðir notaði hann fyrir þá viðskiptavini hans, sem daglega sátu við bjór- drykkju í daglegu stofunni. í einu horninu á daglegu stof- unni, nálægt eldhúsdyrunum, stóð dálítið draghólf og í þessu draghólfi hafði Joe tals- vert mikið af smápeningum til þess að vera fær um að skipta stærri bankaávísunum, sem viðskiptamenn hans höfðu til þess að borga fyrir bjórinn, sem þeir keyptu. í fyrstu stakk Joe öllum peningum, sem inn komu í vasa sinh, en bráðlega sá hann að betra var að hafa alla innkomna pen- inga í þessu draghólfi. Svo á kvöldin, þegar öll viðskipti voru um garð gengin, tók Joe alla peningana inn í eldhúsið til konu sinnar og veifaði þeim yfir höfuðið á sér og hrópaði: „Miklir peningar í dag — mig góður veitingamaður!“ Kona hans var auðvitað glöð yfir þessum tekjum, en samt lét hún oft í ljósi, að hún væri hrædd við þessi við- skipti. Joe væri ekki nógu varkár. Og svo benti hún hon- um á það, að þetta væri í raun og veru alt ólöglegt. Joe hló: „Mig enginn klagar, — allir vinir!“ sagði hann og svo féll samtalið niður. Viðskipti Joe voru bezt eftir hádegi hvern dag og sérstak- lega góð hver vikulok og svo á sunnudögum. Altaf við og við, sættust nýir viðskiptavinir við vini Joe’s, sem gerðu sig kunna á þann hátt, að þeir íefðu meðmæli frá einhverj- um af þeim mönnum, sem Joe hafði haft viðskipti við, og Joe tók meðmælin góð og gild og seldi þeim bjór eins og öðr- um. \Svo var það eitt laugar- dagskvöld að tveir óþektir fé- lagar komu inn til hans og tóku sér sæti við eitt borðið, sem þeir fundu að var ekki upptekið- Þeir bentu Joe á pað, að þeir óskuðu eftir veit- ingum og lögðu 10 dollara á- vísun á borðið: „Við erum frá Detroit,“ sögðu þeir, „og við höfum komizt að því, að þú seljir góðan bjór. Látum okk- ur nú sjá, hvað þú hefir.“ Joe hikaði um stund, en svo sótti hann tvær flöskur af bjór, og fyllti glösin. Hann tók svo bankaávísunina og skipti henni á vanalegan hátt með peningum úr draghólf- inu og lagði svo afganginn af peningunum á borðið fyrir framan þessa félaga. Það var komið fram á nótt og Joe var nú aleinn með þessum félög- um. Hann upplýsti þá um það að tími væri kominn til þess fyrir hann, að loka stofunni, en þessir tveir menn virtust ekki vera á sama máli og Joe. Þeir óskuðu eftir meiri bjór og litu kímnislega hver til annars, um leið og þeir lögðu fram 5 dollara seðil. Joe varð við tilmælum þeirra og færði þeim tvær flöskur af bjór um leið og hann tók fimm dollara seðilinn með þeim tilgangi að skipta honum. En er hann gekk yfir að drag-hólfinu, þar sem hann hafði peninga sína, varð hann var við það, að þessir gestir hans fylgdu hon- um eftir, og er hann, snéri sér við, sá hann sér til mikillar, að báðir þessir menn voru vopnaðir, annar þeirra með skammbyssu, en hinn með togleðurs-kylfu. — „Þess ger- ist engin þörf að skipta þess- um peningum,“ sagði annar þeirra. „Við ætlum að taka peningana til láns frá þér.“ Svo greip hann seðilinn út úr hendi Joe, og um leið hratt sá, sem á togleðurs-kylfunni hélt, Joe til hliðar og gekk að pen ingaskú.ffunni og með fljótum tökum tæmdi hann skúffuna og stakk öllum peningunum í vasa sinn. Þetta skeði allt í ekki lána peninga!“ miðaði á brjóst Joe. Business and Professional Cards ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA í VESTURHEIMI ForseU: DR. RICHARD BECK 801 Llncoln Drive, Grand Forks, North Dakota. Styrkið félaglð með því að gerast meðllmir. Ársgjald $2.00 — Tímarlt félagslns frítt. Sendist til fjármálaritara: MR. GUÐMANN LEVY, 185 Lindsay Street, Winnipeg 9, Manitoba. Minnist BETEL í erfðoskróm yðor SELKIRK METAL PRODUCTS . Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- við, heldur hita frá aC rjflka út meC reyknum.—SkrifiC, simiC tll KELLY SVEINSSON 625 WaU St. Wlnnipeg Just North of Portage Ave. SUnset 3-3744 SUnset 3-4431 G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dlr. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributora of FRESH AND FROZEN FISH 60 Louise St. WHitehall 2-5227 S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPÖRATE SEALS CELLULOID buttons 324 Smiih St. Winnipeg WHitehaU 2-4624 Van's Electric Ltd. 636 Sargenl Ave. Authorized Home Appliance Dealers GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL McCLARY ELECTRIC — MOFFAT SUnsel 3-4890 A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur likklstur og annast um flt- farlr. Allur fltbönaður sá beztl. StofnaC 1894 SPruce 4-7474 PARKER, TALLIN, KRIST- JANSSON, PARKER AND MARTIN BARRISTERS — SOLICITORS Ben C. Parker, Q.C. (1910-1951) B. Stuart Parker, Clive K. Tallln. Q.C., A. F. Kristjansson, Hugh B. Parker. W. Steward Martin 5th 11. Canadían Bank of Commerce Buildlng, 389 Main Street Winnipeg 2, Man. WHitehaiI 2-3561 P. T. Guttormsson BARRISTER, SOLICITOR, NOTARY PUBLIC 474 Groln Exchonge Bldg. 1*7 Lombard Street Office WHitehaU 2-4829 Residence 43-3864 Thorvaldson, Eggeríson, Baslin & Stringer Barristers and Solicitors 209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg. Portage and Garry St. WHitehall 2-8291 SPruce 4-7855 ESTIMATES J. M. Ingimundson Re-Rooflng — Asphalt Shinglea Insul-Bric Sidlng Venta Installed to Help EUmlnate Condensation 632 Simcoe St. Wlnnipeg, Man. CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE. Managing Director Wholesale Distributora of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Offlce: Res.: SPruce 4-7451 SPruce 2-3917 Muir's Drug Store Lid. J. CLUBB FAMILY DRUGGIST SERVING THE WEST END FOR 27 YEARS SPruce 4-4422 EUlce & Home S. A. Thorarinson Barrlster and Sollcitor 2nd Floor Crown Trust Bldg. 364 MAIN ST. Office WHitehall 2-7051 Res.: 40-6488 FRÁ VINI THE MODEL FUR CO. D. MINUK, PROP. Fur Coats Made To Order. Repairing, Remodelling, Relining & Storing, and Sports Wear. Tel. WHitehall 2-6619 Res. JUstice 6-1961 304 Kennedy St. Winnlpeg, Man. Dunwoody Saul Smith & Company C-hartered Accountants WHitehall 2-2468 100 Princess St. Winnipeg. Man. And offices at: FORT WILLIAM - KENORA FORT FRANCES - ATIKOKAN The Business Clinic Anna Larusson Office at 207 Atlantic Ave. Phone JU 2-3548 Bookkeeping — Incorne Tax Insnrance „Eyddu ekki skoti á hann,“ sagði sá sem á kylfunni hélt, „það mundi vekja of mikla eftirtekt, sérstaklega þegar um litla upphæð er að ræða eins og þessa,“ hann klappaði á vasann, þar sem hann hafði látið peningana. Svo snéri hann sér snögglega að Joe og með miklum fimleika hitti hann á hausinn með kylfunni svo Joe féll niður á gólfið meðvitundarlaus. — —Niðurlag í næsta blaði Dr. ROBERT BLACK SérfræBlngur I augna, eyrna, nef og hálssjúkdómum. 401 MEDICAD ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Office WHitehall 2-3851 Res.: 40-3794

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.