Lögberg


Lögberg - 27.02.1958, Qupperneq 5

Lögberg - 27.02.1958, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 27. FEBRÚAR 1958 5 ■vw'W'ww'w w w vw'w'wwyr'ww'w'wsrw ÁnijeAHÁL LVENNA * - Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON Hafa konur efni á því að vinno úfi? i TÆL } LÆGSTU FLUGGJÖLD TIL ÍSLANDS í'rð. New York met5 viSkomu & ÍSliANDI • Á einni nóttu til Reykjavikur. RúmgóSir og þægilegir farþega- klefar, 6 flugliSar, eem þjálfaSir hafa veriS í Bandaríkjunum, bjóSa ySur velkomin um borS. • Fastar áætlunarflugferSir. Tvær ága'tar máltíSir, koníak, náttverSur, allt án aukagreiðslu með IAL. til NOREGS, DANMERKUR, SVÍÞJÓÐAR, STÓRA- BRETbANDS, ÞÝZKAUANDS. Upplýsingar í öllum ferSaslcrifstofum n s~~\ n ICEIANDICj AIRLINES / /~i _______ 15 West 47th Street, New York 36 PL 7-8585 New York . Chicago . San Franclsco Einn þriðji hluti allra þeirra, sem ráðnir eru hjá atvinnu- vegum í Bandaríkjunum eru konur. Nálega þrír fjórðu þessara kvenna (um 16 mill- jónir) eru giftar konur, eða hafa verið giftar. Rúmlega 2,5 milljónir þeirra hafa á fram- færi sínu börn undir skóla- skyldualdri, og 6,5 milljónir börn á skólaskyldualdri. Ná- lega fjórir fimmtu af konum með fjölskyldu hjálpa til við framfærslu fjölskyldunnar með vinnu sinni utan heimilis- ins, og margar þeirra sjá al- gerlega einar fyrir fjölskyld- unni. Eftirspurnin eftir konum til starfa í hinum ýmsu atvinnu- greinum hefur farið mjög vax- andi síðari árin. Atvinnu- skráning Bandaríkjanna telur að árið 1975 muni tala kvenna í atvinnulífinu verða komin upp í 29,395,000. Aðrir álíta að konur muni brátt fá tilboð um störf í nýjum og nýjum at- vinnugreinum, þar sem konur hafi ekki starfað fyrr og ó- hugsandi sé talið í dag, að konur starfi. 1 þeirri deild vinnuráðning- ar-ráðuneytis Bandaríkjanna, sem sér um ráðningar kven- fólks, liggja nú fyrir umsóknir um 600,000 skrifstofustúlkur. I nýlegu hefti af tímaritinu “Women’s Home Companion” er sagt frá einkaráðningastofu einni, sem sækir svo fast á í því efni, að fá kvenfólk til starfa, að hún verðlaunar um- boðsmenn sína á margvíslegan hátt, ef þeir geta fengið ná- búa sína og vini til þess að gefa kost á sér til starfa. Skortur er á stúlkurft til heimilisstarfa, svo að þúsund- um skiptir, en það er sjald- gæft mjög að nokkur gefi sig fram á ráðningarstofunum, sem óska eftir slíkum störfum. Kvenfólkið virðist ekki léngur hafa áhuga á hússtörfum, svo svo að þær stöður eru sjaldan fylltar. Fyrir tiltölulega fáum árum höfðu giftar konur ekki margra kosta völ í atvinnu- legu tilliti. Heimilisstörfin voru einu tækifæri þeirra. Samkvæmt rannsóknum, sem gerðar hafa verið á vinnu stöðum hefur það komið í ljós, að enda þótt kvenfólk sé yfir- leitt heilsubetra og langlífara en karlmenn, þá eru fjarvistir þeirra frá vinnu nálega helm- ingi tíðari en karlmannanna. Til þess liggja margvíslegar ástæður, en aðalorsökin mun þó vera það álag og óþægindi, sem af því leiða, að þurfa að skipta sér milli heimilisstarf- anna og starfsins utan heimil- isins. Margar konur verða að takast á herðar ábyrgðina gagnvart eiginmanni sínum, börnum og heimili annars vegar, og hins vegar ábyrgð- ina, sem á þeim hvílir af starf- inu utan heimilisins hjá ein- hverjum atvinnurekanda. — Einkanlega er það örugleikum bundið fyrir fullorðnar konur, að þurfa þannig að þjóna tveim herrum. Það er engan veginn svo auðvelt að skipta jafnsnögg- lega um hlutverk, eins og þær konur verða að gera, sem upp- fylla verða móður- og hús- móðurskyldur sínar árdegis, en standa svo kannski í stöðu einkaritarans á daginn og hverfa svo aftur til húsmóður- starfanna á kvöldin. Konur, sem hafa verið giftar í mörg ár, eru þar að auki líklegar til þess að hafa tamið sér ýmsa ákveðna siði og venjur, og það er þeim oft ógeðfellt að þurfa að taka við fyrirskipunum og kánnski aðfinnslum frá sér mikið yngri mönnum, sem þá og þá eru yfirboðarar þeirra í starfinu utan heimilisins. Það er mjög erfitt hlutverk að þurfa til lengdar að skipta sér milli tveggja starfa á einum og sama degi, einkanlega ef konan vill halda sömu reisn á heimili sínu og áður en hún tók að vinna utan þess, og þ^ð getur meira að segja hugsazt að hún dag nokkurn finni sig algerlega örmagna; það síðan orskað gremju og angur, þannig að hún verði manni sínum ekki jafn góður félagi og áður fyrrum. Taki hún hins vegar þá stefnu, að láta heimilið sitja á hakanum, þannig að þar fari allt í róðarí, getur það einnig leitt af sér angur og sjálfsásakanir. Verið getur að þú sért heilsuhraust, en ertu það sterkbyggð, að þú sért fær um að leggja á þig tvöfalt starf til langframa? Þú mátt vera þess minnug, að það eru ótal viðvik, sem bíða þín heima á heimilinu, þegar þú að lokum kemur heim frá starfi þínu. Verið getur að eiginmaðurinn hjálpi þér til við matartilbún- inginn og uppþvottinn og önn- ur heimilisstörf, en vafalaust verðurðu þess þó vör, að hann hlakkar sáralítið til uppþvott- arins og annars slíks, þegar hann kemur þreyttur heim úr vinnu sinni — og vera kann að þú verðir á það minnt, að hann giftist þér á sínum tíma ekki sízt vegna þess, að þú bjóst til svo dæmalaust góðar súpur og ýmiss konar smá- rétti, og bakaðir ljúffengar kökur, sem hann kunni að meta, — og að hann hafði ein- mitt ekki ímyndað sér að hann þyrfti að lifa á upphituðum leifum og ruðum í hjónaband- inu — og þar á ofan að annast uppþvottinn! Ráðfærðu þig því við mann þinn bæði fyrir og eftir, að þú hefir tekið að þér starf utan heimilisins. Verið getur að honum falli það ekki í geð; peningahyggjan má ekki verða til þess að varpa skugga á hjónbands- hamingjuna og heimilisfrið- inn. Annað er það, sem taka má með í reikninginn, en það er: hvað kostar það húsmóðurina raunverulega að vinna utan heimilisins? Þegar allt er reiknað, getur nefnilega kom- ið í ljós, að það sé dýrara að vinna úti en að láta það ógert. Þar kemur í fyrsta lagi til greina sífellt rýrnandi verð- gildi peninganna og hækkandi vöruverð. Einkanlega kemur þetta hart niður á þeim, sem eiga börn. Jafnvel þótt konur séu vel efnum búnar, eru það margar, sem halda áfram að vinna úti, eftir að þær eru giftar og hafa eignazt börn, og gera þær þetta af ótta við það, að þeim muni leiðast að vera einungis bundnar við heimilið. Flestar konur, sem þannig er ástatt um, hafa því efni á því, að kosta einkakennara fyrir börn sín og launa vinnukonur á heimilinu- Aðrar líta á starf- ið utan heimilisins sem tæki til þroska og aukinnar reynslu. En útgjöldin, sem þessar giftu konur verða að standa undir, eru tíðum hærri en launin, sem þær sjálfar fá á vinnustað sínum, þegar allt er reiknað. Hve mikið þarf gift kona raunverulega að innvinna sér til þess að standa undir útgjöldunum? Svarið er auð- vitað undir ýmsum aðstæðum komið. Mary Scott Welch segir eftirfarandi í greininni „Giftar konur í atvinnuleit“: „Hin persónulegu útgjöld þín verða í flestum tilfellum marg föld á við það sem þau þurfa að vera, ef þú starfar einungis heima á heimilinu. Kemur þar m. a. til greina fatnaður, snyrtivörur, hreinsun á fötum, skóviðgerðir, nælonsokkar, ferðalög, framlag til margs konar líknarstofnana og sam- skota á vinnustað, símakostn- aður, félagsgjöld, morgun-. verður og ýmislegt smávegis, er þú freistast tli að kaupa, þegar þú átt leið framhjá búð- um. Auk þessa kemur svo sitt- hvað, sem þú kaupir aukalega til heimilisins beinlínis vegna vinnu þinnar úti.“ Hún bendir ennfremur á, að hafi fólk barnagæzlu eða hús- hjálp sé konunni nauðsynlegt að vinna sér inn um það bil helmingi hærri upphæð en hún greiðir barnagæslunni eða vinnukonunni, til þess að útgjöldin vegna vinnunnar og launin standist á. 1 flestum tilfellum er enginn frádráttur vegna heimilisaðstoðar við skattaálagningu, en aftur á móti leggjast laun konunnar við laun eiginmannsins, þegar til skattauppgjörsins kemur, og skatturinn lagður á sam- kvæmt heildartekjum þeirra beggja. „Til þess að geta litið alveg raunsætt á málin,“ segir Mary Scott Welch, „verðurðu að leggja saman öll hin duldu út- gjöld vegna vinnu þinnar, og reikna síðan út, hve miklar tekjur þú verður að hafa til þess að standa undir þessum útgjöldum auk skattahækk- unarinnar.“ Eiginmaður einn skrifar: — „Konan mín fékk sér atvinnu utan heimilisins, en það borg- aði sig engan veginn. Þetta varð okkur dýrkeypt reynsla. Átta mánuðum eftir að hún byrjaði í starfi sínu, höfðum við lagt til hliðar 275 dali — minna en fjórðung þess, sem við höfðum áætlað. Upphæð sú, sem konan notaði til smá- innkaupa varð hærri en sam- anlögð upphæð, sem við greiddum í skatt, ferðakostnað og til morgunverða.“ — Hann segir ennfremur að matar- kaupin hafi orðið dýrari og maturinn þó ekki jafngóður og áður en hún byrjaði að vinna. Þar að auki hafi þau ekki not- ið heimilislífsins í jafnríkum mæli og fyrrum, börnin orðið sjálfbyrgingsfull og ódæl, og þess vegna komu hjónin sér saman um, að konan helgaði sig heimilinu eins og áður. Fólk, sem stofnar heimili tekur jafnframt iá sig ábyrgð af uppeldi barnanna. Það get- ur stundum verið erfitt starf og krafizt bæði þolinmæði, andlegs og líkamlegs styrk- leika, en það er skyldukvöð, sem allir verða að sinna. Mundir þú, kona góð, sem lest þessar línur, vera ánægð með það, að fela hverjum sem er umsjá barns þíns, meðan þú sjálf ert í vinnu þinni? Vandamálið verður að sönnu minna, ef þú ert svo heppin að hafa við hendina góða „ömmu“ þér til hjálpar, en foreldrar, sem eiga ekki þvílíku láni að fagna, eiga oft erfitt með að fá börnum sínum góða gæzlu. Að vísu eru alltaf undantekn- ingar í þessu efni- Flestar konur, sem vinna utan heimilisins og hafa börn á framfæri, munu finna til þess að atvinnan glepur fyrir umhyggju þeirra gagnvart börnunum. Þrátt fyrir vísinda legar framfarir“ eru hinir gömlu uppeldishættir enn í góðu gildi. Hin nýtízkulegu sjónarmið, að móðirin geti unnið utan heimilisins og jafnframt annazt heimili og fjölskyldu sína, taka sig að sönnu vel út á pappírnum, en í framkvæmd er þetta erfið- ara. Tapið er fólgið í rýrnandi manngildi og manndómi, og verður því ekki reiknað í töl- um, en á það hefur verið bent að grunsamlegt samband megi finna milli afbrota æskulýðs- ins og þess, hve algengt það er nú orðið að mæður vinni utan heimilanna. Það er ekkert áhlaupaverk og því síður vandalaust, að móta barnssálina, og það er verkefni, sem ekki má slá á frest fram yfir klukkan hálf- níu á kvöldin, þegar móðirin hefur afkastað erilsömu dags- verki. Svo síðla kvölds er litli lærisveinninn orðinn of þreytt ur til þess að veita móttöku hollum heilræðum og öðrum veraldarvísdómi, og því eru kvöldstundirnar ekki rétti tíminn til slíkrar mannræktar. Ef til vill er húsmóðurstarf- ið ekki mikils metið af sam- félaginu, en þó er það svo, að húsmóðurstaðan er einhver veglegasta og veigamesta staða hvers þjóðfélags, ef hún er rækt á réttan hátt. Þegar það er haft í huga, hve marg- siungið húsmóðurstarfið er, og hve margvísleg störf hver ein- stök húsmóðir þarf að kunna skil á og geta framkvæmt, verður ljóst, að húsmóður- starfið gerir meiri kröfur um hæfileika á ýmsum sviðum, en flest önnur störf í þjóðfélag- inu. Húsmóðirin hefur ekki aðeins það hlutverk, að hirða húsið og búa til mat, — hún skapar heimilið, og sérhvert heimili þarfnast umhyggju- samrar móður. Og húsmóðirin gerir meira en að hirða um börnin sín — hún elur upp og Framhald á bls. 8

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.