Lögberg - 09.10.1958, Síða 8
fi
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 9. OKTÓBER 1958
Úr borg og byggð
The Icelandic Canadian
Club will hold its first meet-
ing of the season Thursday,
October 16, at 8.30 p.m., in the
lower auditorium of the Uni-
tarian Church, Sargent anc
Banning.
An interesting program
will follow a short business
meeting. Mrs. Guðrún Skapta
son will give an intimate anc
casual talk on her visit to Ice-
land last summer, and a
promising young singer, Miss
Margaret Jonasson, will en-
tertain with vocal selection,
accompanied on the piano by
Mrs. W. Kristjansson.
☆
Mr. og Mrs. J. Ragnar
Johnson frá Wapah voru í
borginni á föstudaginn. Sögðu
þau að mjög grunnt væri í
Manitoba-vatni um þessar
mundir.
☆
Mr. Friðfinnur O. Lyngdal
er nýlega fluttur og er hið
nýja heimilisfang hans 470
Aubrey Place, Vancouver 10,
B.C.
— DANARFREGNIR —
Lúðvík Kristjánsson, 798
Banning Street, andaðist á
sunnudaginn 5. október, 71
árs að aldri. Hafði hann all-
lengi átt við vanheilsu að
stríða. Hann lifa kona hans
Gestný, þrjár dætur, Mrs. V.
Blondahl, Mrs. E. G. Brownell
og Mrs. W. B. Ewart; þrír
synir, Kristinn, Vilberg og Dr.
Gestur Kristjánsson. Útförin
var gerð frá Bardals á mið-
vikudaginn; séra Philip M.
Pétursson jarðsöng.
Lúðvík heitinn var gáfaður
maður og bókhneigður; hann
var hagmæltur vel og skemti
Islendingum oft með gaman-
vísum sínum. Ættaður var
hann frá Austfjörðum.
---0----
Valgarður Oddsson lézt á
sunnudaginn á Misericordia
spítalanum. Hann var 82 ára.
Til þessa lands kom hann frá
Hellisfjörubökkum í Vopna-
firði. Hann var húsamálari að
iðn. Útför hans fór fram frá
Bardals á miðvikudaginn. Dr.
Valdimar J. Eylands flutti
kveðjumál.
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands. Dr. TheoL
Heimili 686 Banning Street
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Allir ævinlega velkomnir
KAUPIÐ OG LESIÐ
—LÖGBERG
Fréttir frá Gimli, 6. október. 1958
☆
Mr. og Mrs. Einar Johnson
frá Steep Rock dvelja hjá
dóttur sinni hér í borginni
yfir vetrarmánuðina .
☆
Frú Ragnhildur Guttorms-
son hefir samið skáldsögu, er
hún nefnir Ian of Red River
og hefir Ryerson Press fengið
einkaleyfi til að prenta hana
í vor. Sagan fjallar um
skozka frumbyggja í Rauðár-
dalnum. Mun þessa skáld-
verks nánar getið, þegar það
kemur út.
☆
Mr. og Mrs. S. Benjamin-
son, er dvelja í Kirkfield Park
á sumrin, fóru síðastlðinn
mánuð til Little River, Calif.
til vetrardvalar, svo sem venja
þeirra hefir verið í mörg ár.
☆
VEITIÐ ATHYGLI
Kvenfélagskonur Sambands
safnaðar hafa sölu á íslenzk-
um mat á laugardaginn 25.
október frá kl. 2 e.h. til 5.30 í
neðri sal Unitarakirkjunnar
á Banning Street. Til boða
verður blóðmör, lifrapylsa og
rúllupylsa.
☆
ARDÍ S
The XXVI Edition Lutheran
Women’s League Year Book
Árdís is now ready. Copies are
75cts. each, available in Win-
nipeg at Mrs. B. S. Benson,
757 Home St. and Mrs. J. S.
Gillies, 971 Dominion Street.
☆
Shoppers Supper
The Women’s Association
of the First Lutheran Church
will hold a ‘Shoppers Supper’
in Eaton’s Assembly Hall,
Friday Oct. 17th from 6.00
p.m. to 8.30 p.m. Tickets avail-
able from all members and at
the door. General Conveners
are—Mrs. G. Finnbogason and
Mrs. Geo. Eby.
Dr. og Mrs. David F. Simp-
son í Detroit, Mich. í Banda-
ríkjunum, eignuðust dóttur
25. september s.l., sem heitir
Kathleen Sylvia. Þau fluttu
til Detroit s.l. júlí-mánuð og
er Dr. Simpson að verða sér-
fræðingur í “Orthopedic sur-
gery;” hann starfar og stund-
ar nám við Henry Ford Hos-
pital í Detroit. Mrs. Simpson
er dóttir Mr. og Mrs. Adolf L.
Holm á Gimli.
----0----
Miss Ingibjörg Jóhanna
Einarson og Allister Hope
Sólmundson voru gefin sam-
an í hjónaband í Lútersku
kirkjunni í Árnes, Man. 27.
september s.l. Séra John
Fullmer gifti. Faðir brúðar-
innar leiddi hana að altarinu.
Brúðarmeyjar voru — Mrs.
Robert Kristjánsson, Miss
Joan Murray og Ruth Sól-
mundson, systir brúðgumans;
Coleen litla Einarson, bróður-
dóttir brúðarinnar, var blóma
mey. Aðstoðarmaður brúð-
gumans var Raymond Sól-
mundson, bróðir hans. Til
sætis leiddu þeir Laurence
Einarson, bróðir brúðarinnar
og Robert Kristjánsson. Miss
Lorna Dolgon söng einsöng.
Við hljóðfærið var Mrs. Leifi
Peterson. Eftir giftingarat-
löfnina sátu um 200 manns
veglega brúðkaupsveizlu í
samkomuhúsinu að Árnesi
(Community Hall). Thor Sig-
urðsson var veizlustjóri.
Fyrir minni brúðarinnar
talaði Miss Lillian Peterson;
fyrir minni brúðgumans
mælti Sigmar Sveinsson. —
Brúðguminn þakkaði fyrir
óau bæði með mesta myndar-
skap. Alda litla Einarson
skemmti með einsöng í veizl-
unni. Eftir að staðið var upp
frá borðum var hafinn dans.
Brúðurin er hjúkrunarkona
að menntun, útskrifaðist frá
Winnipeg General Hospital
1957, og hefir starfað fyrir
“Public Health” deild í Sel-
kirk héraði. Hún er dóttir
Halldórs Einarssonar og konu
hans Clöru, látin 1945. Þau
bjuggu að Vatnsnesi í Árnes-
byggð. — Brúðguminn hefir
stundað nám við smíðaskóla
í Winnipeg um tveggja ára
skeið og mun útskrifast þaðan
að loknu námi. Foreldrar hans
eru Mr. og Mrs. S. G. Sól-
mundsson á Gimli. — Ungu
hjónin fóru brúðkaupsferð til
Detroit Lakes. Heimili þeirra
verður fyrst um sinn í Selkirk.
---0----
Mrs. Jóhanna Cooney frá
Winnipeg, ásamt fleiri gest-
um var við morgunmessu á
Betel í gær. Eftir guðsþjón-
ustuna afhenti Mrs. Cooney
Betel fallega og góða gjöf;
hún flutti ávarp og sýndi að
hlýr hugur fylgdi gjöfinni,
sem var hjólastóll, gefinn í
minningu um mann hennar,
Henry Cooney. Skjöldur er á
stólnum og er þar ritað: —
“Given by Jóhanna Cooney,
In loving memory of Henry
Cooney, Died Oct. 8th, 1954.”
Betel þakkar Mrs. Cooney
innilega þessa mætu og hugul
sömu gjöf.
Mrs. Krislín Thorsieinsson
Ef allt okar andstreymi
væri látið í eina sameiginlega
hrúgu, sem síðar skyldi skipt
þannig, að allir fengju jafnt,
mundu flestir verða fegnir að
fá aftur sinn fyrri skerf.
☆
Eftir að ég hitti hana
Gunnu, get ég hvorki neytt
svefns né matar.
Ertu svona agalega skotinn?
— Nei, ég er staurblanktur.
Á laugardaginn 20. sept.
voru þau Fríða Johnson
(Hólmi), Los Angeles, Calif.,
og Mr. Gavin Boyd, Van-
couver, B.C. gefin saman í
hjónaband í Columba Presby-
terian Church hér í bæ af
séra McPhee. Brúðurin er
fædd og uppalin í Argyle-
byggð, átti heima í Winnipeg
í mörg ár og nú síðast í Los
Angeles, Calif. Brúðguminn
er vel þekktur lögmaður hér í
Vancouver. Á eftir gifting-
unni var haldin vegleg brúð-
kaupsveizla á heimili Mr. og
Mrs. Thorsteins Johnson, en
hann er bróðursonur brúðar-
innar, og voru þar saman
komnir náustu ættingjar brúð
hjónanna til að samgleðjast
þeim og óska til hamingju.
Heimili Mr. og Mrs. G.
Boyd verður að 2649 Quebec
St., Vancouver, B.C.
----0----
Hér í Vancouver býr margt
fólk, sem áður hefur átt heima
í Argyle-byggðinni. Er þá að
sjálfsögðu ekkert sem gleður
okkur meir, en að hitta gesti
hingað komna frá gömlu
byggðinni okkar kæru, og ef
tækifæri gefst að bjóða þeim
heim. Vil ég í því sambandi
nefna eitt heimili, þar sem
slíkir gleðifundir eiga sér oft
stað, en það er hið fallega
heimili þeirra Mr. og Mrs.
Óli Stefánsson, Puget Drive,
og eru þau hjón samtaka í
því að taka vel á móti gestum
sínum og láta þeim líða vel.
Á mánudaginn 22. sept.
bauð Mrs. Ó. Stefánsson til
sín nokkrum konum til mið-
degisverðar í tilefni af því,
að Mrs. Jakobína Nordal frá
Winnipeg og Miss Fríða John-
son, Los Angeles, Calif. voru
nýkomnar hingað til Van-
couver, og voru að sjálfsögðu
heiðursgestir þessa móts.
En þetta varð meira en „mót,“
heldur nokkurs konar brúðar-
veizla, þar sem Fríða hafði
gift sig þá rétt fyrir helgina,
að öllum óvörum. Varð þetta
því hinn mesti gleðifundur,
og glatt á hjalla. Yndislegar
veitingar voru fram bornar og
konurnar töfðu fram eftir deg
inum og skemmtu sér ágæt-
lega.
Þessar konur voru þarna
viðstaddar:.— Mrs. Jakobína
Nordal, Mrs. G. Boyd, Mrs.
Agnes Evans, Mrs. Esther
Pentlord, Miss Eleanor Ste-
fánsson, Mrs. L. J. Hallgríms-
son, Mrs. J. Johnson (Hólmi),
Mrs. Chris Eyford, Mrs. Ingi-
björg Eggertson, Mrs. Margrét
Carter, Mrs. Delphine Tabo-
lotney, Mrs. Dóra Enns, Mrs.
Emily Lewis, Mrs. John
Frederickson, Mrs. Ó. Stefáns-
son og Mrs. G. Jóhannesson.
----0----
Frú Kristín Guðmundsdótt-
ir frá Reykjavík, Islandi, hef-
ur dvalið hér hjá systur sinni
og tengdabróður, séra E. S. og
Mrs. Brynjólfsson síðastliðinn
mánuð. Hún fer heim næst-
komandi fimmtudag. — Við
þökkum henni komuna og
óskum henni góðrar ferðar og
heimkomu.
Guðlaug Jóhannesson
Fréttir frá Vancouver, B.C
s.l.
„Stór-ísland" markmið íslenzkra
kommúnista
Færeyskt blað skrifar um sameiningu íslands, Færeyja
og Grænlands.
Einkaskeyti til VÍSIS.
Kaupmannahöfn í morgun.
Dimmalætting, málgagn
Sambandsflokksins færeyska,
hefir ritað í forustugrein um
fyrirætlanir færeyskra og ís-
lenzkra kommúnista um að
koma á ríkjasambandi Fær-
eyja, íslands og Grænlands.
Kemst Dimmalætting svo
að orði um þetta, að Erlendur
Patursson, sem er foringi
færeyskra sjómanna og einnig
formaður Lýðveldisflokks
Færeyja, hafi samvinnu um
þetta við íslenzka kommún-
ista. Tilgangurinn með sam-
vinnunni við íslenzka komm-
únista sé að losa Færeyjar
undan yfirráðum Dana, og ef
til vill sé ætlunin að koma
hinu sama í kring, að því er
snertir Grænland. Þegar svo
verði komið, að þessi lönd hafi
sagt skilið við Danmörku,
verði þau sameinuðu íslandi.
Dimmalætting bendir á í
þessu sambandi, að eina blað-
ið, sem Erlendur Patursson
hafði samband við, þegar
hann var fyrir skemmstu á Is-
landi, hafi verið málgagn ís-
lenzkra kommúnista, Þjóð-
viljinn. Ennfremur segir hið
færeyska blað, að Lúðvík
Jósefsson sjávarútvegsmála-
ráðherra og Erlendur Paturs-
son hafi tekið upp stefnu
„Stór-lslands“ (Pan-Island-
isme), og sé fyrsta takmarkið
að kljúfa Færeyjar frá Dan-
mörku og að því búnu senni-
lega Grænland ,og verði þessi
lönd þá sameinuð íslandi!
—VÍSIR, 5. ágúst
Heimsins bezta
munntóbak
KAUPIÐ og LESIÐ
—LÖGBERG!