Alþýðublaðið - 16.08.1960, Page 14

Alþýðublaðið - 16.08.1960, Page 14
£ramhald af 4. síðn. nú hetja „hins gamla varðar“ í flokknum, sem átti marga fulltrúa á þinginu. Þó að Eis- enhower væri frambjóðandi hins. frjálslynda arms flokks- ins árið 1952 og ynni yfir- gnæfandi sigur yfir Robert Taft, talsmanni gamla varð- arins, hefur hin rótgróna í- haldssemi í afstöðu forsetans til félags- og efnahagsmála síðan komið svo skýrt í Ijós, að Taft — sem þó gerði sér Ijóst, að hann var uppi um miðja 20. öld — virtist blátt áfram vera frjálsyndur. Það var Nixon, vara-forseti, sem hafði forustuna um greftr ■un Eisenhower-tímabilsins. Eins og ailar gerðir Nixons stjórnaðist þessi af slungnum, pólitískum útreikningi. íhalds samur Eisenhower, með sín óviðjafnanlegu áhrif á fólk í báðum flokkum, getur unnið kosningar í USA. En enginn annar íhaldsmaður mundi hafa möguleika á að vinna þær milljónir „óháðra“ og demókrata, sem repúblikanar — minnihluta-flokkur í USA — þurfa til að sigra. Vegna mikillar ásóknar frá Nixon var hin íhaldssama stefnuskrá, sem samin var af stefnuskrárnefnd, er gamli vörðurinn hafði meirihluta í, umsamin til að svara gagn- rýni Nelsons Rockefellers, ríkisstjóra í New York, þann- ig að Nixon hefði betri sigur- möguleika í New York og öðr- um iðnaðarfylkjum. Það var Iíka af þessum sökum, að Nix- c n krafðist Henry Cabot Lodge, sendiherra USA hjá Sameinuðu þjóðunum, sem vara-forsetaefnis. Sá, sem Eis- enhower vildi fá í það sæti, var Robert Anderson, fjár- málaráðherra, sem forsetinn metur mikils, vegna þess, að Anderson deilir með honum hrifningunni af jafnvægi tekna og gjalda í fjárlögum ríldsins, en hann kom aldrei til greina. Það er þó að finna lærdóm ikanar fyrir báða flokka í hylli þeirri, sem forsetinn nýtur enn. Hún stafaði upprunalega af hlutverki hans í síðari heimsstyrjöldinni, en í dag virðist hún fyrst og fremst byggj ast á því, að nafn hans er tengt tilrauninni til að tryggja friðinn. Það geta því reynzt mistök — og þau mis- tök, sem Kennedy er líklegri til að forðast en Nixon — að heyja kosningabaráttuna, eins og hún væri barátta við herra Krústjov. Sennilega sigrar sá frambjóðandinn, sem gefur fólkinu mesta von, en ekki um að hann geti staðið sig vel í ófrjóum skattyrðum við Rússa, heldur um að hann geti komið á árangursríkum samningaviðræðum við þá. Hermann Framhald taf 3. síðu. nýju, munum við snúa okkur til stjórnar Bandaríkjanna og heimtum þá vernd, sem við eigum kröfu á, — sam- kvæmt samningi. Ef því er neitað, ætti ekki að þurfa að tyggja í þessar þjóðir hvert hlyti að verða okkar næsta skref.“ Enn spyrja menn: Af hverju lét Hermann ekki fylgja þess- ari stefnu, þegar Bretar réð- ust fyrst inn í landhelgina, og hann var sjálfur forsætis- ráðherx-a? Hvaða annmarka sá forsætisráðherrann Hermann Jónasson á þessari stefnu, sem hinn ábyrgðarlausi stjórn arandstöðumaður Hermann nú ekki vill sjá? Það er augljóst hverjum heilvita manni, að Bandaríkin grípa ekki til vopnaviðskipta við Breta út af íslenzku land- helgisdeilunni, en mundu sennilega óska eftir úrskurði einhvers aðila eins og Haag- dómstólsins, áður en þeir svöruðu slíkri ósk. Þetta skilja Tímamenn eins vel og aðrir. Ef farið væri að ráðum Tímans, mundi það gerast fljótlega, að ísland yrði varn- arlaust og gengi úr Atlants- hafsbandalaginu. Varnar- keðja hinna frjálsu ríkja væri rofin, en fslendingar ættu hvergi höfði sínu að að halla nema hjá Sovétríkjunum. — Landhelgismálið væri jafn ó- leyst eftir sem áður. Þetta er þá stefna Tímans í utanríkismálum íslendinga. Og þetta er nákvæmlega það sem Sovétríkin vilja, og ís- lenzkir kommúnistar vinna leynt og ljóst að. Þessi stefna kom nú síðast fram £ nafnlausri grein í Tím anum, en allar líkur benda til, að þetta hafi verið hið síðasta, sem Þórarinn ritstjóri Þórarinsson skrifaði, áður en hann fór úr landi á Iaugar- dagsmorgun. Og hvert skyldi hann hafa farið? Austur til Sovétríkjanna í boði stjórnarvalda þar eystra — að því er sagt er. Rússar hafa löngum kunn- að að hlúa að sínum, ekki sízt með góðum ferðaboðum. Síldarskýrslan Framhald af 16. síðu. Unnur, Vestmannaeyjum 1601 Valafell, Ólafsvík 4900 Valþór, Seyðisfirði 2885 Vattarnes, Eskifirði 995 Ver, Akranesi 1894 Víðir n„ Garði 5444 Víðir, Eskifirði 7269 Víkingur, Bolungarvík 1445 Víkingur II., ísafirði 1.411 Viktoría, Þorlákshöfn 999 Vilborg, Keflavík 2955 Vísir, Keflavík 1212 Vonin II., Keflavík 4981 Vonin II., Vestm.eyjum 1417 Vörður, Grenivík 4976 Þorbjörn, Grenivík 9215 Þórkatla, Grindavík 5121 Þorlákur, Bolungarvík 6560 Þorleif. Rönvaldss., Ólafsf. 3356 Þórsnes, Stykkishólmi 3568 Þorsteinn, Grindavík 1263 Þórunn, Vestmannaeyjum 1504 Þráinn, Neskaupstað 5113 Örn Arnarson, Hafnarfirði 2630 tMHHMMMUMHMHMIUWWnmMtMWWtmtMMHMUUtnMMHMUVHMWMMMMtWtl íídárstúlknahappdrættið Undirrituð óskar eftir að taka þátt í síldarstúlknahapp- drætti Alþýðublaðsins, sem dregið verður í 15. september næstkomandi. (Vinningur: 2000 krónur.) Ég heiti: ............................................... Heimilisfang mitt er: ................................... Ég vinn núna á söltunarstöðinni:......................... Söltunarnúmer mitt er; ........................'......... (undírskrif Athug'ið: Með heimilisfangi á blaðið við þann stað þar sem hægt verður að ná til eiganda seðilsins eftir 15. september. Merkið umslagið: Síldarstúlknahappdrætti. nwwwwwwnnwwwtuvwwnvwuwv ai/mnwMMVWwvwwwwwwwwiwi 14 16. ágúst 1960 — Alþýðublaðið Blysavarðstolan er opin allan sölarimnglnn Læknavörður fyrir vitjanir er ásama stað-kL 18—8. Sími 15030. o-----------------------« Gengisskráning 2. ágúst 1960. Kaup Sala £ 106,74 107,02 US $ 38,00 38,10 Kanadadollar 39,00 39,10 Dönskkr. 551,70 553,15 Norsk kr. 533,00 534,00 Sænsk kr. 736,05 737,95 N.fr. franki 775,40 777,45 Sv. franki 882,65 884,95 V-þýzkt mark 911,25 913,65 o .............. —o Ríkisskip. Ilekla er væntan- leg til Rvíkur ár- degis á morgun frá Norðurlönd- um Esja er vænt- anleg til Rvíkur árdegis í dag að vestan úr liringferð. Herðubreið er á Austfjörðum á norðurleið. Skjaldbreið kom til Rvíkur í gærgær frá Vestfjörðum. Þyr ill er á Austfjörðum. Herjólf- ur fer frá Vestmannaeyjum kl. 22 í kvöld til Rvíkur. Bald ur fer frá Rvík í kvöld til Sands, Ólafsvíkur, Grundar- fjarðar, Stykkishólms og Flat eyjar. Skipadeild SÍS. Hvassafell er í Stettin. Arnarfell er í Onega, fer það- an væntanlega 20. þ. m. Jök- ulfell fór í gær frá Cuxhaven til Moss, Gautaborgar, Khafn ar og Rostoek. Dísarfell fer í dag frá Gufunesi til Norður- landshafna Litlafell fer í dag frá Vopnafirði, fer þaðan til Hjalteyrar og Rvíkur. Helga- fell fór 13. þ. m. frá Neskaup staö til Aabo o2 Helsingfors. Hamrafell er væntanlegt til Reykjavíkur 17. þ m. Eimskip. Dettifoss kom til Rvíkur 14/8 frá Antwerpen. Fjall- foss fer frá Árhus í dag til Rostoek, Stettin og Hamborg- I ar. Goðafoss fór frá Rvík í morgun til Akraness og þaðan til Hull, Rostock, Helsing- borg, Gautaborgar, Osló og Rotterdam Gullfoss fór frá Rvk 14/8 til Khafnar. Lagar- foss er á Akureyri Reykja- foss fór frá Hamina 11/8 til Leith og Rvíkur. Selfoss fer frá New York 18—19/8 til Rvíkur. Tröllafoss fór frá Hull 13/8 til Rvíkur. Tungu- foss hefur væntanlega farið frá Ábo í gær til Ventspils og Reykjavíkur. Verndið dýr gegn meiðslum og dauðt með því að hirða vel um girð ingar og skilja eigi vírspotts eða vírflækjur eftir á víða vangi. — Samband Dýra verndunarfélags íslands. Samúðarspjöld Minningar- sjóðs Sigurðar Eiríkssonar og Bryndiísarminning eru aí greidd í Bókabúð Æskunn- ar. Styrktarfélag vangefinna: — Minningarspjöld félagsina fást á eftirtöldum stöðum í Reykjavík; Bókabúð Æsk- unnar, Bókabúð Braga Bryr jólfssonár, Bókaverzlun Snæbjörns Jónssonar, Verzl uninni Laugavegi 8, Sölu- turninum við Hagamel og Söluturninum í Austurveri. -o- Minningarkort kirkjubyggingarsjóðs Lang holtssóknar fást á eftirtöld- um stöðum: Verzl. Anna Gunnlaugsson, Laugavegi 37. Langholtsvegi 20. Sólheimum 17. Vöggustofunni Hliðar- enda. Bókabúð KRON, Banka stræti Silungsveiðimenn, kastið ekki girni á víða- vang. Það getur skaðað bú- smala. — Samband Dýra- verndunarfélags íslands. Frá Mæðrastyrksnefnd. Skrifstofa nefndarinnar er flutt á Njálsgötu 3 Sími 14349. Tilkynning frá Tæknibóka- safni IMSÍ. — Yfir sumar- mánuðina frá 1. júní til 1. sept. verður útlánstími og lesstofa safnsins opin frá kl. 1-7 e. h. alla virka daga nema laugardaga kl. 1-3 e.h. Frá Rafnkelssöfpuninni. Til viðíbótar þeirri heildar upphæð, sem þegar hefur ver ið birt, heíur Rafnkelssöfnun inni borizt um hendur forseta íslands, lierra Ásgeirs Ásgeirs sonar, 1900 króna gjöf frá dr Árna Helgasyni, ræðismannl íslands í Chicago og konu hans. Söfnunarnefndin þakk- ar af alhug þessa höfðinglegu gjöf. F. h. Rafnkelssöfnunar- innar — Björn Dúasön Frá skrifstofu borgarlæknis. Farsóttir í Reykjavík vik- una 24.—30. júlí 1960 samkv. skýrslum 27 (29) starfandi lækna Hálsbólga 64 (63) Kvefsótt 111 (102). Iðrakvef 10 (27). Inflúenza 4 (5). Hvot sótt 1 (1). Kveflungnabólga 8 (10). Taksótt 1 (1) Skarlats- sótt 1 (1). Munnangur 5 (1). 19.30 Erlend þjóðlög. 20,30 Erindi: Um fisk rækt (Gísli Ind- riðason). 20.55 Píanótónleikar: Anna Áslaug Ragnarsdóttir. 21.30 Útvarps- sagan: „Djákn- inn í Sandey.“ 22.10 íþróttir. 22.25 Lög unga fólksins. LAUSN HEILABRJÓTS: 19 ára

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.