Alþýðublaðið - 11.09.1960, Síða 3

Alþýðublaðið - 11.09.1960, Síða 3
 Stúlkur! Hér UndirrituS óskar eftir að taka þátt í síldarstúlknahapp- drætti Alþýðublaðsins, sem dregið verður í 15. september næstkomandi. (Vinningur: 2000 krónur.) Ég heiti:................................................. Heimilisfiang mitt er: ................................... Ég vinn núna á söltunarstöðinni:.......................... Söltunarnúmer mitt er: ...........,....................... (undirskrift) Athugið: Með heimilisfangi á blaðið við þann stað þar sem hægt verður að ná til eiganda seðilsins eftir 15. september. Merkið umslagið: Síldarstúlknahappdrætti. iWWHWWmWWWWWWWtWWWWWW ÍBK og ÍBH leika I dag KEFLAVÍK, 10. sept. — A morgun, sunnudag, fara fram tveir knattspyrnuleikir á gras vellinum í Njarðvík. Leikirnir ei'u fyrst og fremst til ágóða fyrir völlinn, sem þarf mikils viðhalds, og hefur þessi háttur \ erið hafður á undanfarin ár. Fyrst leika á morgun kl. 3 Njarðvíkingar og Hafnfirð- ingar í 4. aldursflokki. Kl. 4 hefst aðalleikurinn milli meist araflokka ÍB Keflavíkur og ÍB. Hafnarfjarðar. Þess má geta, að ÍBH teflir fram mjög breyttu liði frá því sem verið hefur í sumar og munu margir af yngri leikmönnum Keflavík ur fá að spreyta sig í dag. ÁKSÆLSBIKARINN í tilefni af 10 ára afmæli Knattspyrnufélags Keflavíkur, sem er í ár, gaf Ársæll Jóns- son bikar, sem 3. aldursflokk ar Akurnesinga 0g Keflvíkingg skulu keppa um. Leika skal heima árlega og vinnur sá að- ili bikarinn, sem oftar hefur sigrað eftir þrjú ár. Þessum leikjum er nú lokið í sumar. Um fyrri helgi var leikið á Akranesi og sigraði þá 3. flokkur ÍBK með' 1,: 0. Um síðustu helgi var leikið hér í Keflavík og vann ÍBK aftur, — með 2 gegn 0. — H. G. Félagsdeild Junior Chamber á íslandi MÁNUDAGINN 5. septem- ber s.I. komu nokkrir ungir kaupsýslumenn saman í Þjóð- leikhúskjallaranum til að ræða stofnun félags í anda Junior Chamber í Svíþjóð, en þá hreyf ingu höfðu þeir kynnt sér og fengið áhuga fyrir að koma upp Iíkum félagsskap hér á landi. Ákveðið var að stofna félag- ið og því valin stjórn þá þeg- ar, en framhaldsstofnfundur mun verða innan skamms. Á fundinum mætti fulltrúi frá Junior Chamber sambandinu í Evrópu, hr. Liljenquist, og hvatti til stofnunar deildar á Islandi, gaf góðar leiðbeining- ar um stofnunina og ræddi við væntanlega félaga. í stjórn Keykjavíkurdeildar Junior Chamber voru kjörnir: Form. Ingvar Helgason verzlunarmaður, varaform. Pétur Pétursson, forstjóri Inn- kaupastofnunar ríkisins, og Er- lendur Einarsson, forstjóri SIS, ritari Haialdur Sveinsson for- stjóri Völundar. gjaldkeri Ás- rr.undur Einarsson, forstjóri Sindra, meðstj. Hjalti Pálsson framkv.stj. SÍS. í félagið gengu á þessum fundi 25 félagar og kusu sér laganefnd, sem skila á upp- kasti að lögum fyrir deildina og tillögur um nafn félagsins á framhaldsstofnfundi. í laga nefnd voru kosnir: Lesið Albýðubfaðið Sigurður Helgason, forstjóri Verzlanasambandsins, Ágúst Haffoerg, forstjóri Landleiða, Einar Ágústsson sparisjóðs- haldari. Vilhjálmur Jónsson, forstj. Olíufélagsins. Tilgangur félagsins er fyrst og fremst að efla kynni meðal ungra kaupsýslumanna bæði innanlands og erlendis og erlendis og vinna að auknum kunnugleika meðal félaganna á verzlunar- viðskipta og fjár- hagsmálum. Fullgildir félagar geta orð- ig allir menn sem eru í ábyrgð arstöðum fyrirtækja og stofn- ana, en verða þó að vera innan 40 ára aldurs. róðleg ferð um Keflavík- urflugvöll ! : FIMMTUDAG s.l. var frétta 50 riða straumi, sem keihur mönnum blaða og útvarps boð- ið suður á Keflavíkurflugvöll, og var ætlunin að flogið yrði norður á Langanes, og rat- sjárstöðin H2, skoðuð. Vegna s’æmra veðurskilyrða var ekki bægt að fijúga þangað, en í stað þess voru blaðamönnum sýnd helztu mannvirkin á flugvellinum. Til leiðsagnar var yfirmaður upplýsingaþjónustu vallarins. Major Keefe. Fyrst var skoðuð ratsjárstöðin ,,Rockville“, sem ei rétt hjá Sandgerði. Stöð þessi er ein af stöðvunum í rat- sjárkerfi fyrir varnir Norður- Atlantshafsríkjanna. Frá þeirri stöð er veitt öll almenn ílug- þjónusta. Stöðin er mjög full- komin, og má segja, að ekki nokkur flugvél geti verið á flugi í mörg hundruð mílna fjarlægð frá landinu, án þess að ratsjárkerfi stöðvarinnar viti af henni. Stöðin er búin þrem aðalrat- sjám, sem fyrir er komið í stórum gúmmkúlum, sem hald i£ er uppi með loftþrýstingi. Kúlur þessar eru til verndar ratsjánum, sem ekki mega verða fyrir neins konar hnjaski. Mikið starfslið er í stöð þessari. Eftir að hafa skoðað þessa stöð, var skoðuð hin nýja rið- breytistöð, sem sett var upp éftir að flugvöllurinn fékk raf magn frá Soginu, og er hlut- verk hennar að breyta hinum frá Soginu í 60 riða straum, en það er sá straumriðafjöldi, sem notaður er á Vellinum. Stöð þessi er mikið mannvirki, en við hlið hennar er hin gamla rafmagnsstöð, sem framleiddi áður rafmagn fyrir Völlinn. Síðan var skoðað hið nýja íþróttahús Vallarins, sem er mjög fullkomið í alla staði, .— Völlurinn í húsinu er mjög stór og hefur Handknattleíks- samband íslands fengið völlinn á leigu fyrir hið verðandi landslið í handknattleik, þar sem völlurinn hefur hina réttu stærð keppnisvalla, og er eini völlurinn á landinu, sem hef- u þá stærð. í íþróttahúsinu eru mjög góðir fata- og bað- klefar, og þar er mikill fjöldi allskyns íþróttaáhalda. í lok þessarar ánægjulegu ferðar, var skoðuð útvarps og sjónvarpsstöð vallarins. í þess ari stöð vinnur fjöldi manna, enda er þetta umfangsmikið fyrirtæki. Sjónvarpsstöðin starfar frá kl. 5 á daginn og’ til 12 á kvöldin, og sendir út íjöl- breytt efni til fróðleiks og skemmtunar. Yfirmaður tækni deildar stöðvarinnar er ís- lenzkur maður. Ferð þessi var mjög fróðleg, og gaf þó sérstaklega glögga hugmynd um hve mikla býð- ingu ísland hefur fyrir varnar kerfi NATO, og eins hve um- fangsmikið starf er rekið hér á vegum þeirrar stofnunar. - 11EHfifimíS»1 im 1 1L1W4WÆS 8 Ljil P S pJiM ÞVi AFRYJAR DANIEL EKKI? ÞAÐ hefur vakið athyg'li manna í sambandi við Akra- nesmálið, íað Daníel Ágústín- usson, fyrrverandi bæjar- stjóri, hefur ekkf áfrýjað þeim dómi setufógeta, að upp sögn Danels hafj verið full- komlega lögleg og hann setið í embætti í ólögum í heila viku. Daníel hélt þv frá upp- hafi fram sem aðalatriöi mál- staðar síns, að uppsögnin væri ólögleg. Þess vegna gerði hann það, sem enginn bæjar- stjóri hefur gert fyrr í sögu landsins, að neita að sætta sig við ákvörðun meirihluta og sat áfram. Þegar úrskurður er upp kveðinn, sem brýtur ger- samlega niður kjarnann í málstað Daníels, leggur hann árar í bát og áfrýjar ekki. Hann hefur vafalaust farið að ráðum sér vitrari manna, sem sáu að hann hafði gert fá- dæma lögleysu með því að neita að hlýða meirihluta bæj arstjórnar. Dómur fógetans var aðeins um þetta atriði, en fjallaði alls ekki um ákæruatriðin gegn Daníel eða liugsanlegar skaðabætur. Þess vegna strik aði dómarinn út úr málsskjöl um það, sem ekki kom efni dómsins beinlínis við. Daníel hefur því alls ekki verið hreinsaður af neinum sökum. Margir bæjarstjórar hafa farið frá á miðju kjörtíma- bili, þegar nýir meirihlutar mynduðust. Þeir hafa all|af vikið úr embætti þegar í stáð. Það er föst og eðlileg venja í þessum tilfellum, þar sem embættið byggíst á pólitísk um meirihluta, alveg eins og ráðherrar víkja strax, þegar samþykkt er á þá vantraust. Þetta á ekkert skylt við venju leg embætti, , Alþýðublaðið 11. sept. 1960 3

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.