Alþýðublaðið - 11.09.1960, Side 11

Alþýðublaðið - 11.09.1960, Side 11
og leit við. Að baki mér sá ég bílljós. Þeir eltu mig enn! „Ahmed, hvaða leið á ég að fara?“ Eg hristi hann til, en hann svaraði mér ekki, hann stundi aðeins veikt. Eg hafði ekki tíma til að spyrja hann aftur. Eg beygði til hægri og bað til guðs um að hjálpa mér að komast út á ströndina. En mér skjátlaðist. Eg hef aðeins verið komin um það bil hundrað metra, þegar ég kom að hárri girðingu. Bak við hana blikaði á ljósin í Tangier, þar var öryggið sem ég leitaði að, svo nærri og þó svo óendanlega fjarri. Hvar voru Ted og hans menn? Hvað var að? Eg vissi hver var að baki mér. Óvinurinn! Og þeir voru ekki heldur langt að baki mér! Eg heyrði hróp og köll til þeirra. Þá stökk ég út úr bílnum og hljóp áfram og fætur mínir sukku í mjúkan hvítan sand- inn. Eg varð móð og ég fékk blóðbragð í munninn. Hjarta mitt hamraði í brjósti mér og ég gat ekki meira. Að baki mér heyrði ég , plopp-plopp-plopp, það var fótatak hlaupandi manns. Ljóskastari féll á mig og hélt mér fanginni. Eg stundi hátt, . en ég hljóp áfram. Og loks var ekki hægt að gera meira. Þarna var runna- þykkni og ég henti mér til jarðar. Eg fann hvernig kjóil- inn minn rifnaði og sokkarn- ir mínir tættust í sundur. Eg reis á fætur og hljóp á ný. Ted! Ted! Hvar ertu? Eg gat ekki kallað til hans. Eg hljóp beint í fangið á einhverjum manni! 12. Eg reyndi að slíta mig burt. Eg opnaði munninn til að veina og það var tekið fvrir munninn á mér. Eg var hjálp- arlaus. Það var hvíslað í eyra mér. „Sylvia! Það er ég, Ted! Ertu með formúluna?! Fljótt!“ Ted! Eg sleppti takinu í hönd hans, ég var ekki leng- ur hrædd. Eg kinkaði kolli við bringu hans. ,Já, í sokknum1. „Guði sé lof! Niður bakk- ann þarna. 'Vertu þar!“ Hann sleppti mér. Fætur mínir brugðust mér og ég féll til jarðar. Rétt hjá mér heyrði ég að Ted hvíslaði hást: „Allt í lagi! Skjóttu! En ekki til að drepa, mundu það! Skjóttu yfir höfuðin á þeim!“ Eg skildi að við vorum um- kringd á alla vegu. Það glampaði og small í byssum. Ted kom til baka og kraup við hlið mér. Hann tók aðra hönd mína milli sinna. „Er nokkuð að ástin mín?“ „Ekki núna. Þú ert hjá mér. En það lá við að • ■ að þeir næðu mér.“ „Eg veit það.“ Hann var bitur. „Það brást eitthvað. En það getur beðið. Við verðum að losa okkur við vinina þarna uppi.“ Það hvein kúla yfir höfð- um okkar. Eg lagðist niður og dró Ted að hlið mér. „Þessir menn, Ted .. er það óvinurinn?“ „Rétt er það! En þeir eiga eftir að hörfa eftir augnablik það er ég viss um. Þegar þeir skilja hvað það er, sem bíður þeirra hér. Þeir vilja ekki frekar en við, að þetta verði alþjóðlegt!“ Eftir fáein augnablik hætti skothríðin. Ted reis á fætur og leit niður á ströndina. Svo hló hann. „Eg hafði á réttu að standa. Þeir eru farnir, hafa farið þangað sem þeir komu. Þeir bjuggust víst ekki við að hitta okkur hér.“ Eg klifraði líka upp og leit upp eftir veginum. Eg sá tvö rauð Ijós, það var allt sem sást eftir af bílnum. Allt í einu mundi ég það. Eg leit á Ted: „Ahmed! Þjónn Venize- losar! Hann er í bílnum, Ted. Hann er særður! Við verðum að gera eitthvað fyrir hann!“ „Við gerum okkar bezta, en þú skalt ekki treysta á það. Eg geri ráð fyrir að þeir hafi tekið hann með, ef hann þá var lifandi. Þeir eiga á- reiðanlega eftir að spyrja hann margs.“ Veslings Ahmed. Eg von- aði að hann væri látinn. Það var ekki víst að hann hefði haft með sér litla pillu eins og ég. Ted blístraði lágt og kall- aði út í myrkrið: „Morgan?“ „Já, foringi?" var svarað einhvei’s staðar út frá. „Taktu menn með þér og gáðu að því hvort allt sé í lagi á ströndinni. Þú veizt hvað við eigum eftir ógert. Ef allt er í lagi skaltu hleypa einu skoti af! Flýttu þér nú.“ Eg heyrði marga menn hreyfa sig milli trjánna. Svo kom hópur manna í ljós og hélt áfram niður eftir strönd inni. Aftur talaði Ted: ,Cox?‘ „Hér, herra.“ Eg hrökk við, röddin var svo nálæg okkur. En ég sá ekki neinn. „Þegar ég og konan komum upp á ströndina, verðið þið að dreifa ykkur,“ sagði Ted. „Þið hafið ykkar fyrirskipan- ir. Bíðið þangað til að þið sjáið rakettuna. Þessu er lok- ið, þegar hún er komin á loft og þá verður allt við það sama þangað til að þið fáið næstu skipanir. Skilið?“ „Skihð, herra.“ Frá ströndinni heyrðist eitt skot. Ted tók í höndina á mér. „Komdu nú, Sylvia. Það eru aðeins fáeinar mínútur unz þessu er lokið.“ Það kom maður til okkar, þegar við komum niður á ströndina. Eg sá móta fyrir Bentleynum og nokkrum mönnum sem stóðu umhverf- is hann. Eg starði á manninn, sem stóð frammi fyrir okkur. Hann var í svörtum fötum og andlit hans var htað svart. Hann var eins og negrasöngv- ari. Það var tunglsljós núna og ég sá hann mjög greini- lega. Eg leit á Ted og fékk annað áfall til. Hann var eimi ig litaður svartur og hann bar sams konar klæði og hinn maðurinn. Hvítan í augum hans ljómaði og glampaði og’ ég varð hálfskelkuð, þó svo ég vissi að þetta var Ted. Maðurinn, sem Ted hafði kallað Morgan, sagði: „Við getum ekkert gert fyrir mann inn í bílnum, herra. Dauður. Það var líka það þezta fyrir hann.“ Ted kinkaði kolli. „Senni- lega. Setjið tvo menn á strönd ina hérna þar sem girðingin tekur enda. Við viljum ekki láta koma okkur aftur á ó- vart. Ekki vegna þess að ég búizt við að þeir hætti á að slást opinberlega.“ Hann leit á úrið sitt, en vísarnir lýstu í hálfrökkrinu. „Við höfum fimm mínútur til stefnu, ef þeir eru stundvísir. Eftir að við erum farin, eigið þið að bíða eftir rakettunni. Þegar þið sjáið hana, er ykkur ó- hætt að fara. Þá er þessu verki lokið og lífið gengur sinn vanagang aftur. Þakk- aðu mönnum þínum frá mér. 'Verkið var vel af hendi leyst. Eg skal skýra frá því í Was- hington.“ 22 „Þakka yður fyrir, herra.“ Maðurinn snérist á hæl og gekk að bílnum þar, sem hin- ir biðu. Ted leit aftur á úrið sitt. „Fjórar mínútur til stefnu, Sylvia. Svo förum við.“ Eg þrýsti mér að honum. Mér fannst ég svo óendan- lega örugg. Loksins var þetta voðalega ævintýri á enda. „Hvað skeður svo?“ spurði ég. Hann tók utan um mig. „Eg vona að það verði það síðasta í þessu máli, sem kemur þér á óvart. Eftir fáeinar mínút- ur er öllu lokið og nú er bezt að þú látir mig fá formúl- una.“ „Snúðu þér undan!“ „Allt í lagi.“ Eg rétti hon- um blaðið og hann lagði það í veski sitt. „Þetta var léttir,“ sagði hann. „Þetta hefur verið gíf- urleg áhætta. Eg held að ég sé orðinn of gamall til að standa í svona nokkru, þó ég sé ekki nema þrítugur. En við skulum ræða það seinna. Sjáðu þarna Sylvia, sérðu merkin?“ Eg leit í áttina sem hann benti í og mikið rétt, þar sá ég smá ljósglampa. „Merkjamál,“ útskýrði Ted. Hann stafaði fyrir mig: M a r t r ö ð ■ „Martröð! Það erum við! Eg get sagt þér það núna, Sylvia, að þetta verk var kallað á merkjamáli og dul- máli: „Hernaðaraðgerð —• Martröð.“ „Ekki er það sem vitlaus- ast,“ viðurkenndi ég. „Þetta hefur allt verið eins og’ mar- tröð. En ég skil það samt ekki ennþá.“ Ted tók um handlegg núnn og ýtti mér að vatninu. — Bylgjurnar féllu letilega upp á ströndina. Eg hafði ekki séð skóna mína og mér fannst vatnið hálfkalt. Eg var hálf- rugluð. „Segðu mér ekki að við eig um að synda til Englands,“ sagði ég. „Það væri helzt til of mikið fyrir mig.“ Hann beygði sig og kyssti mig á kinnina. „Nei, nú áttu að fá að fara með kafbáti. Hér kemur gúmmíbáturinn. Við erum að fara héðan.“ Við stóðum þegjandi með- an báturinn nálgaðist í næt- urmyrkrinu. Það voru tveir menn í honum. Eg heyrði aftur amerískar raddir. Það var dásamlegt. Ted óð lengra 1 út í vatnið og kallaði eitt-f hvað. Eg heyrði lágt svar. — Svo kom Ted til baka. „Kom þú, ég skal bera þig!“ Hann lyfti mér upp og bar ' mig að bátnum, sem hoppaði og flaut eins og korkur á sjónum. Eg tók um háls hans, ‘ fullkomlega ánægð með allt og alla. Það var ekkert sem gæti komið mér á óvart hér eftir. Eg hefði ekki einu sinni' deplað augunum, þó hann hefði sagt mér að við ættum að fara með geimfari til Mars! 'Sterkar hendur lyftu mér upp í bátinn og Ted kom á eftir. Svo hreyfðist bátur- inn út eftir flóanum. Eg þrýsti mér að Ted og starði hrifinn á kafbátinn fram und an. Við lögðum upp að hon- um. Ungur liðsforingi hjálp- ' aði mér um borð og niður brattan stiga inn í einhvers konar turni. Ted gekk á eftir mér. Eg heyrði að hann sagðl við liðsforingjann. „Sendið rakettuna upp núna. Menrj mínir bíða á ströndinni. Svo skulum við koma okkur héð- an!“ „Allt í lagi, herra!“ Ted hlaut að vera mjög þýð ingarmikill maður. Allir hlýddu honum. Mér var fylgt niður í smáklefa. Það var löng mjó koja með fram ein- um veggnum og ég settist. Fyrst þá fann ég hve dauð- þreytt ég var. Ted kom inn, hann var búinn að þvo sér í : framan. Hann leit umhverf- is sig og brosti. „Það er báif þröngt hérna inni? En þetta er bezti klefinn. Klefi skip- stjórans.“ Hann tók upp vasabókina sína og breiddi úr pappírn- um. Pappímum sem Venizelos hafði látið mig fá. Eftir augnablik andvarpaði hann og lagði hann aftur í veskið. — „Þetta er gríska fyrir mér,“ sagði hann, „en sérfræðingar okkar hljóta að skilja það. Það er að segja, ef Venizel- os hefur ekki verið að leika á okkur. „Það held ég ekki,“ sagði ég, „hann trúði því, að ég væri Bertha Pangloss. Og ég sagði honum allt, sem hafði skeð. Þegar ég hafði lokið máli mínu, kinkaði hann kolli. — „Þér tókst það, elskan mín, og það mátti ekki seinna Hreingerningar Sífni 19407 TVÍFARINN HENNAR ★ eftir Helen Sayle AlþýðijþJaðið ,-r— ll..s.opt.l960 Jfí

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.