Kirkjublaðið - 01.10.1892, Síða 6

Kirkjublaðið - 01.10.1892, Síða 6
1*2 heyja hernað þegar A þá er ráðizt saklausa, og hvað á þá að segja? Það er og ekkert vafamál, að sannur hetju- skapur og aðrar dyggðir geta lýst sjer í stríðum, enda þótt ranglát sjeu; en það rjettlætir þau engan veginn sjálf.1 Sjötta boðorðið er höf. fjölræddast um. En það, sem höf. þar fer að tala um, snertir boðorðið sjálft ekki nema að litlu leyti eða mjög óbeinlinis. Sjötta boðorðið bannar að drýgja hór, og Lúter skýrir það á þann hátt, »aðvjer eigum að lifa hreinlega og siðlega í orðum og gjörðum, og hver hjón eigi að elska og virða hvort annað*. Hvað rangt getur verið við þetta, er ekki gott að sjá. Það er rjett, að öll hjónabönd eiga að byggjast á persónulegum kærleika; ella eru þau ekki siðferðisleg í orðsins sanna skilningi. Það er því siðferðislega rangt að stofna hjú- skap af öðrum hvötum, og það er mjög vítavert, hve ljettúðugir menn opt eru með að bindast hjúskap. Það er ekki forsjá manna að þakka, þótt opt rætist furðanlega úr slíkum hjónaböndum. En þegar hjónabönd mistakast, þá er ætíð mikið vandhæfi á, hvernig að skal fara. Sje einhver misskilningur eða lítilsháttar misklíð milli hjóna, getur það optast lagast með góðu. Jafnvel stór brot eru opt fyrirgefin, ef hið seka bætir ráð sitt. En þegar ósam- lyndi milli hjóna er orðið svo mikið, að engin von er um sættir, þá er ekki um annað að gjöra en að slíta hjú- skapnum. Samkvæmt lögum þeim, sem gilda í flestum prótestantiskum löndum, er hjónum frjálst að skilja, þeg- ar svo stendur á, enda er slíkt í samræmi við anda krist- indómsins. En siíkt hlýtur ætíð að skoðast sem neyðar- úmeði. Það sýnist því öldungis þýðingarlaust að hafa aðganginn að hjónaskilnaði greiðari en er; enda er sá rjettur, sem menn hafa í þessu efni, tiltöiulega mjög sjald- an notaður; sýnir það, að hjer er ekki hart að farið. Hitt væri aptur ófært, að líða hjónum, hve nær sem er, að hlaupa hvort frá öðru, hvað lítið sem þeim kann að sinnast í svipinn, og lofa þeim svo viðstöðulaust að gipt- ast aptur öðrum. I borgaralegum efnum mundi slíkt opt 1) Já, það er sorglegt vanmáttarmerki kristindómsins, að stríð skulu þolast í »kristnum« ríkjum. Aths. ritstj.

x

Kirkjublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.