Kirkjublaðið - 01.10.1892, Síða 16

Kirkjublaðið - 01.10.1892, Síða 16
192 aö sjer umsjón og fjárhald kirkjunnar, álíti biskup undirbúningínu löglegan. Hjer kemur til greina, bvort íullnægt er 1. gr. laga 12. maí 1882, um umsjón og tjárhald kirkna með skriflegri ylirlýsingu sóknarmanna, sem geíin er beima, en ekki á safnaðarfundi. I sam- bandi við það mál stendur bygging nýrrar kirkju í Keílavík, sem haíi sameiginlegan sjóð við Útskálakirkju. Nokkur samskot munu þegar fengin, Fulltrúi Brautarholtssafnaðar flutti erindi um viðreisn hinna fyrverandi Kjalarnessþinga (Brautarholts- og Saurbæjarsókna) í sjerstakt prestakall. Það er alvarlegt áhugamál beggja sóknanna, en stendur á uppbót úr landssjóði til Mosfellsprestakalls. Skólamáli Vestur-Islendinga var hreift, og tók prófastur að sjer að senda í nafni fundarins áskorun til presta og safnaða í prófasts- dæminu að gefa til skólans, og var ályktað að það samskotamál skyldi rætt og framkvæmt á næstu safnaðarfundum. Fundurinn itrekaði samþykktir sínar í fyrra um lestur heilagr- ar ritningar. Engar sjerstakar framkvæmdir munu enn hafa orðið í þá átt, nema svo lítið í St.aðarprestakalli. Rllnólf«l• Runólfsson, trúboðinn lúterski í Mormónalandinu, sem getið var í Kbl. í fyrra og biskup minntist á síðasthaldinni synodus, fær væntanlega 600 dollara styrk til kirkjubyggingar og 200 dollara árslaun frá helzta lúterska kirkjufjelaginu í Ameríku; hann á og í vændum að fá prestvígslu hjá því fjeiagi, að því er hann sjálfur skrif'ar biskupi í sumar. I söfnuði hans eru 60—70 Islendingar, sem flestir munu áður hafa verið Mormónar. Þessi enska kirkjudeild hefir þannig eigi síður en kirkjufjelag- ið íslenzka vestra álitið mann þennan styrksverðan, og starfahans heíir opt verið getið til góðs í hinu merka lúterska blaði »The Workmanni,sem sumum prestum hjer á landi mun kunnugt. Við þessa nýjustu fregn kann að virðast minni ástæða til að styrkja þennan litla lúterska söfnuð landa vorra í Utah; þó mun hann enn á ylirstandandi ári vera mjög hjálparþurfandi, að því er Runóifur skrifar, og ætti því hjálpin hjeðan að heiman, sem væntanl. verður eitthvað svolítið, þótt hörmulega ári, helzt að koma sem fyrst. Sjera Pjetur Maack Þorsteiiisson að Stað í Grunnavík drukknaði á heimleið úr kaupstað 8. f. m., skammt undan lándi, að sögn, og kennt um svipvindi. Sjera Pjetur heitinn var fæddur 28. marz 1869, varð kandídat og vígðist til þessa brauðs síns 1884. Hann lætur eptir sig ekkju, Vigdísi Einarsdóttur, og 4 ungbörn í sárri fátækt. Sameinlngin, mánaðarrit hins ev. lút. kirkjufjel. Isl. í V.-h. 12 arkir, 7. árg. Ritstj. sr. Jóíi Bjarnason í Winnipeg. Verð hjer 2 kr. Hjá bóks. Sig. Kristjánssyni í Kvík o. fl. víðsv. um land. Sæbjörg, mánaðarblað með myndum, 1. árg. Ritstj. sr. O. V. Gíslason. Send bjargráðan., hjer 1 kr. 60 a., erl. 2 kr. Afgr.st. Isaf. RITSTJÓKI: ÞÓRHALLUB BJABNARSON. Prentað i íeafoldar prentsmiöju. Reykjavik. I8ii2.

x

Kirkjublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.