Kirkjublaðið - 01.03.1897, Blaðsíða 6

Kirkjublaðið - 01.03.1897, Blaðsíða 6
38 urheimsmönnum með þeirra vigamóð i öllum möguleg- um framförum og oss fámennum,fátækum íslendingum. Jeg skal þvi eigi fara lengra út í þann samanburð. En ó- hætt ætti að vera að bera saman íslendinga i Vestur- heimi við Islendinga hjer heima. Þeir koma þangað ííestir sem fátækir innflytjendur, eiga að ryðja sjer braut í ókenndu landi með allt öðrum lifnaðarháttum en hjer heima gjörist, og í einu orði byrja á nýrri og strangri baráttu fyrir tilverunni. En jafnframt þvi sem þeir kljúfa fram úr ótal erfiðleikum, koma þeir á hjá sjer öíi- ugum fjelagsskap til varðveizlu trú og kristindómi, reisa kirkju eptir kirkju, halda útkristilegu tímariti fieiri árutn áður en það er byrjað hjer álandi, og haldakirkjuþing á hverju ári i fleiridaga, þarsemmætabæði prestar ogkjörnir fulltrúar safnaðanna, þar sem fiuttir eru fyrirlestrar, rætt um kirkjumál öll og hafðar frjálsar umræður um fieiri efni, allt á meðan Island á ekki annað kirkjuþing en sýnódus, þar sem reyndar biskup og amtmaður, prófastar, prestar og prestaskólakennarar koma saman að undangeng- inni guðsþjónustugjörð í dómkirkjunni, en samkoman stendur jafnaðarlega ekki nema litla stund úr degi, og lítið eða ekkert er gjört annað en að skipta peningum rnilli uppgjafapresta og prestaekkna. Að vísu eru einnig haldnir hinir svokölluðu hjeraðsfundir í prófastsdæmun- um, en þeir eru i mesta lagi svo sem ný bót á gamalt fat. í stuttu máli, á sama tíma sem stórkostlega mikið hefir verið gjört i kirkjulegum efnum af því litla broti þjóðarinnar, sem til Vesturbeims er komið, hefir allthjer heima legið í hinum sömu kaldakolum. Hver sem vill sannfærast um, að svo sje, og að framfarirnar sjeu eng- ar, þrátt fyrir talsvert skraf um framfarir, þarf ekki annað en lesa hjeraðsfunda-skýrslurnar, sem prentaðar hafa verið með smáletri í Kirkjublaðinu. Sje nú þetta satt, sem jeg ætla að með engu móti verði vefengt, að kirkjulegt líf hafi verið og sje með miklu rneiri dáð hjá Vesturíslendingum en hjer heima, þá sje jeg ekki að til þess verði fundin nokkur önnur orsök en sú eina, að þeir hafa verið með öllu lausir við afskipti land- stjórnarinnar af kirkjumálum sinum, þar sem kirkjan

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.