Alþýðublaðið - 28.09.1960, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 28.09.1960, Blaðsíða 1
41 árg. — Miðvikudagur 28. sept. 1960 — 219. tbl. Byrja fyrr á he um EINS og .áður hefur verið skýrt frá, hefur strætisvagna- stjórum borizt bréf frá Eiríki Ásgeirssyni, forstjóra SVR, þar Sem óskað er eftir að vinnu- tíminn lengist á sunnudögum og stórhátíðisdögum. Strætis- vagnastjórar hafa nú kosið nefnd til viðræðna um þ.etta mál. Tilmælin um lengingu vinnu tímans eru komin fram vegna ákveðinna starfshópa, sem þurfa mikið á ferðum vaga- anna að halda á helgidögum og stórhátíðum. Eins og nú er hag að byrja vagnarnir að ganga klukkan 9 á sunnudagsmorgna, én beðið er um að það byrji að ganga klukkan sjö. Sams konar ósk er komin fram, hvað snerti'r stórhátíðir, en þá er óskað eftir að akstur byrji .kl. 11 f. h. í stáð'kí. 2. Samkvæmt samningum við bæinn eru vagnstjórar skyld- ugir ti-1 að taka aukavinnu, sé hún nauðsynleg.. I þessu til- felli er. það meining. vagnstjóra að um lengingu vinnutímans sé að ræða, og þurfi að semja um hana sérstaklega, eins og hefur verið gert í líku tilfell- úm. Báðir aðilar munu hafa fullán hug á að ná samkomu- lagi um þetta og mun það að fílkindum verða á næstunni. | Sá skilningur, að ekki sé um ! aukavinnu að ræða í þessu til ! felli virðist hafa orðið ofan á hjá vagnstjórum, því á fundi | á þriðjudagi'nn í fyrri viku var samninganefndin kosin. Hana skipa Ólafur Jónsson, Ásgeir Grímsson og Hafsteinn Þor- geirsson. Það vekur athygli við þessa nefndarkosningu, að engir af fulltrúum tíundu deildar Starfsmannafélags Reykjavíkurbæjar hjá SVR eru í nefndinni Spurt i mesta me si a síðu: Hvernig væri Einar i krínólíni ? Ambassador- inn nefndar- formaburinn FORMADUR brezku nefnd- arinnar, sem mun ræða við fulltrúa ríkiss4jórnar(nnar vegna Iandhelgisdeilunnar, verður ambassadorinn í Rvík, Mr. Stewart. ALÞÝÐUBLAÐIÐ hef ur nú fengið nánari fregn ir um það hvernig vinnu brögð kommúnistastjórnar innar í Dagsbrún voru í síð ustu viku, er stjórnin var að reyna að þvinga menn þá, er skrifuðu undir kröfu um allsherjaratkvæða greiðslu til þess að falla frá fyrri afstöðu sinni. Var það einkum Guðmundur J. Guðmundsson, er fór á vinnustaðina og hafði í hót unum við verkamenn. Á einum vinnustað, sagði Guðmundur við verkamenn, er skrifað höfðu undir áskorunar lista um allsherjaratkvæða- greiðslu: „Hvernig Vogið þið ykkur að skrifa undir svona lista.“ Stöðvaði Guðmundur alla vinnu á þessum stað og þegar verkstjórarnir ætluðu að láta hefja vinnu á ný, sagði' Guðmundur: „Eg hef fullt vald til þess að stöðva hér vinnu eins lengi og mér sýnist.“ Lét Guðmundur yfirleitt mjög dólgs lega. Ýmsum kann að þykja það undarlegt, að menn skuli blikna fyrir kommúnistastjórn inni í Dagsbrún, þegar hún reynir að hræða menn frá fyrri afstöðu sinni'. En verka- menn, sem skrifa undir áskor- un um allsherjaratkvæða- greiðslu reikna ekki með að verða fyrir ofsóknum þess vegna. En þegar kommúnista Framhald á 14. síðu. ÞH) horfið á eftir manni, sem er að leggja af stað 12 mílna ferðalag — beint niður. Þetta er Banda ríkj am aöuri nn Joe Kittingar, sem við þetta tækifæri setti heimsmet í fallhlífarstökki. — Hann stökk út úr loftbelg. Áður en hann opnaði falllilífina, féll hann með 400 mílna hraða! UM ellefu leytið í gærkvöldi var slökkviliðið kvatt að hús- inu númer 39 við Bergstaða- stræti. Þar hafði gleymst pott- ur á eldavél og var mikill réylc- ur í húsinu þegar að var kom- ið. Skemmdir urðu engar, nema smávægilegar af reyk. - ggt

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.