Sunnanfari - 01.09.1891, Blaðsíða 1

Sunnanfari - 01.09.1891, Blaðsíða 1
\n 50 anra árg., g m borgist fjrir \ $ 15. oktober. 0 u) 20 a. nusgin- 5) js málslina; 25 jj 0 anra smáletur. @ i \SSOaOSQG ISTr. 3 SEPTEMBER 1891 Vilhjálmur Finsen er fæddur í Reykjavík 1. Apríl 1823 og er sonur Olafs j firdómara Finsens, Hannessonar biskups, Finnssonar biskups, Jónssonar prófasts hins fróða í Hítardal, Haldórs- sonar prófasts í Reykholti, Jóns- sonar prófasts sama staðar, Böðvars- sonar prófastssama staðar, Jónssonar prófasts sama staðar (d. 1592), Einarssonar, Sig- valdasonar langa- lífs. J>að er stór- mennakyn. En Sig- valda langalíf ætlum vér Gunnarsson, en eigi son Illuga svarta eins og talið hefir verið, og ekki ætlum vér hann son Olafar ríku, en hann mun hafa verið með Birni og Olöfu og ætlum vér, að hann sé sá Sigvaldi Gunnarsson, sem er við skiptin eptir Björn 1467; styðst þetta og við það að Sigvaldi langalíf átti son, er Gunnar hét, svo að nafnið er í ættinni. Séra Jón Einarsson í Reykholti var bróðir Gizurar biskups. Voru þeir frændur drjúglyndir og hyggnir og horfðu þó ekki í alt; hófst þessi ætt með þeim bræðrum til metorða og hefir hún verið allþolin, því að jafnan hafa verið nokkrir afburðamenn í henni æ síðan og svo er enn. Finns nafnið er komið inn í Reykhyltingakyn frá Akramönnum á Mýrum og stafar frá Laga-Finni, er uppi var á 15. öld, og var vitur maður. En Hannes biskup nefndi sig fyrstur »P'insen« í þeirri ætt, en Hannesar nafnið er komið frá Hannesi lögmanni Eggertssyni (d. 1530). Vilhjálmur Finsen , útskrifaðist úr Bessastaðaskóla 1841 með bezta vitnisburði, og tók 1846 próf í lögum við Kaupmanna- hafnarháskóla, einnig með bezta vitnisburði; tveim árum síðar fékk hann heiðurspening há- skólans í gulli fyrir ritgjörð umGrágás, er prentuð er í Ann- aler for nord. Old- kyndighed. Hann var fyrst í rentu- kammerinu ogsíðan í íslenzku stjórnar- deildinni. 1851 varð hann sýslumaður í Kjósar- og Gullbringusýslu og árið eptir jafnframt land- og bæjarfógeti og þjónaði hann þeim embættum þangað til 1860. Frá því 1856 til 1859 var hann settur meðdóm- gj VlLHJALMUR FlNSEN.

x

Sunnanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.