Sunnanfari - 01.09.1894, Side 4

Sunnanfari - 01.09.1894, Side 4
20 Mig hryllir við Að líta fram á leynda braut. Látum lung gaysa Leiðir huldar Um lög mlns lífs, Hann landi nær! Svelli þá sær! Svelli unnir! Skal þó ei skelfast; Skunda ber fram! V. Eg er einn svo óttalega einn! því ekkert hjarta til er, sem mig skilur; Mig eigi vermir vonargeisli neinn. í vitund minni æðir kaldur bylur Og gleðistjörnur heljarmyrkrið hylur. Um grundu einn ég ráfa, rökkrið svart f»að ríkir hér og þar og sjónir dylur. Jeg leita’ að vini. Hjarta finn ég hart, Sem hlær að sorg og eigi veit né skilur, Að innra næði blindöskubylur. þ>ví verða dagar langir, leiðin ströng, Og ljós ég hvergi sé, er huggun flytur Mitt líf er eins og för um glæfragöng Og glæpska’ á öllum vegamótum situr Og um mig þyrlast blindhríðin bitur. Ég lifi einn og engin vinarhönd Af vitum mér mun dauðasvitann þerra Ég aleinn geng á auðri klettaströnd þ>ar aldrei dauðans bylgju náhljóð þverra. Og gnauðið ymur allt af verra og verra. Og Guð veit, hvar ég lendi lífs við grand f>vi leiðir mínar dimmu einn hann skilur; Hver veit nema þær liggi loks á eyðisand Og leiðið verði grængolandi hylur þ>ars líksöng kveði blindöskubylur. VI. Hvers vegna er mér í hjarta svo rótt? Harmurinn blundar á kolsvartri nótt. Aleinn ég stend hér og stari’ útí geim. Stormurinn þegir og náttkyrðin djúpa Dregur mig inn í draumanna geim. Sé ég nú myndir frá móðurstorð, Myndir svo þöglar, er tala þó orð. Orð sem ég þekki frá æskutíð Frá unaðardögum og sorgarstundum, Orð svo laðandi’ og angurblíð. þ>au tala um ástir og ástarslit, Úm æskuvonir og dauðans lit Um fagrar rósir og fölnuð strá, Allt fegrað og hjúpað í minningarbjarma, Sem vekur mér að eins viðkvæma þrá. Og vinur minn, sem ég vann og hlaut, En vann til að missa svo fljótt á braut! þ>ú svífur nú mitt í mynda fjöld Og mænir til mín þeim djúpu augum Er leiztu’ á mig hinnsta lífsins kvöld. Allt er að dimma, draumurinn þver, Draumsælan hverfur burt frá mér. Æ farið þið myndir svo fljótt á braut Mér finnst þá allt vera svo dimmt í hjarta. þ>ó þökk fyrir leiðslu þá er ég naut. Er þá allt hylling, hverful sýn, Hugarburður, sem kemur og dvín? Lífið sjálft kannske aðeins er Eintóm draumsjón og villiþoka? Sé svo þá stendur á sama mér! Friörih Friðrihson. Atli húnakonungur. Og dagur líður og dimmir geim — það dregur ský yfir suðurheim og blóðrauð sólin þar seig í hafið, í svarta myrkri er landið vafið og stráin nötra, því stormur hvín og stjörnur hyljast og máni’ ei skín. En brennur lýsa’ yfir blóðgan val og birtu slá yfir fjöll og dal, þar grætur barnið og bundna fljóðið, þar berjast hetjur og streymir blóðið því Húnar æða með báli’ og brand og brytja fólkið og eyða land. Um valinn dynur nú vopnaglamm og vísir Húnanna þeysir fram; á svörtum fáki um fagra grundu hann fremstur ríður með sverð í mundu og grasið sviðnar þars fákur fer og framar aldrei þar gróður er. Hann er ei fríður, með ótal ör, en eldlegt logar í sálu fjör, hann iðrast aldrei í hjarta hörðu og hóf ei þekkir í neinu á jörðu; hans rödd er konungleg, hörð og ha og hvelt hún glymur sem stálin blá.

x

Sunnanfari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.