Sunnanfari - 01.10.1895, Síða 7

Sunnanfari - 01.10.1895, Síða 7
31 kominn, kom kona frá næsta bæ, sem ætlaði að spyrja hann ráða viðvíkjandi einhverjum öðrum kvilla. En áður en hún bar upp erindi sitt, heils- aði hún öllu heimilisfólkinu — nema lækni og presti — með kossi, þar á meðál holdsveiku stúlk- uni. Sagan er eflaust sönn. Frásagnir dr. Ehlers í ofannefndri skýrslu og i Berlingatíðindum um seinni ferð hans til Islands eru yfir höfuð að tala heldur gætilega skrifaðar að mínu áliti, og mega Islend- ingar — hvað sem öðru liður — kunna honum þakkir fyrir baráttu hans gegn holdsveikinni, þess- ari voðalegu landplágu, sem menn hingað til hafa hirt svo litið um. Oskiljanlegt er það þar á móti, að alþingi skuli hafa felt frumvarp stjórnarinnar um stofnun holdsveikisspítala. Hv. TÍl holdsveikisspftala stofnunar á Islandi er nú staðhæft að Frakkar sé þegar búnir að skjóta saman allmiklu fé. Samganngurnar Nú kvað vera afráðið að leigja gufuskip, en ekki kaupa, til ferða næsta ár. Skip þetta er sænskt og heitir »Vesta« og er eign »Suðursænska gufuskipafélagsins« i Málmey, en það félag stendur undir stjórn »sameinaða gufu- skipa félagsins« danska. Nokkuð á að byggja skipið um. Og guð láti á gott vita. Dr. Ehlers; síðan 25. Sept. hafa nú verið að homa út frásagnir hans um ferð hans á Islandi í shmar, og er ekki séð enn fyrir endann á þeim greinum. Hinn 12. Oktober siðastliðinn andaðist á Frið- riksbergi eptir langvinnan lasleik Carl Gottlieb Ernst Senstius, fyrrum verzlunarstjóri á Skagaströnd og seinna við verzlun á Blönduósi, rúmlega fim- tugur að aldri. Senstius var fæddur í Kaupmanna- höfn, en kom til Islands tæplega tvitugur og dvaldi þar fram undir 30 ár. Hann var vinsæll og vel látinn i Húnavantnssýslu fyrir viðfeldni sina, greið- vikni og samvizkusemi, og munu því margir Hún- vetningar minnast hans með hlýjum hug nú, er þeir frétta lát hans. Hann var jarðaður í Assistents- kirkjugarði á Norðurbrú 18. Oktober; séra Sophus Muller, prestur við »Kjöbenhavns Sygehjem«, þar sem hinn látni hafði búið seinustu árin, hélt lag- lega ræðu yfir honum. o. p. ísland og England. í Daily Chronicle hefir staðið grein um ís- land, er mælir með landinu sem ferðalandi; sé það holt fyrir sjúka menn, einkum lungnaveika. Blað þetta ætlar og að íslenzka verzlunin dragist smámsaman frá Dönum og til Englendinga, enda standi England betur að vígi að reka hana. Benedikta Arnesen-Kall er dáin 27. Sept. þ. á. 82 ára gömul. Hún var dóttir Páls rektors Arna- sonar málfræðings, en Páll var bróðir Valgerðar konu Gunnlaugs sýslumanns Briems; Benedikta var skáld gott; hún var á Islandi 1867 og ritaði um þá ferð sína, og bar jafnan hlýjan hug til þess lands. — Hinn 19. Okt. andaðist og Pétur Arnesen bróðir hennar (f. 1815), er fyrrum hafði verið héraðsfógeti í Flökkubjörgum. „Sameiningin“, mánaðarrit til stuðnings kirlcju og kristindómi Islendinga, geiið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi í Vesturheimi og prentað í Winnipeg. Ritstj. Jón Bjarna- son. Verð í Vesturh. i dollar árg., á Islandi nærri því helm- ingi iægra: 2 lcr. Mjög vandað að prentun og útgerð allri. 10. árg byrjaði í Marts 1895. Fæst í bókaverzlun Sig. Krist- jánssonar í Reykjavík og hjá ýmsum mönnum víðs vegar út um alt land. ,,Heimskringla“, útbreiddasta (2500 eintölc) og stærsta isl. blað í heimi kemr út í Winnipeg, Man. í Heimskringlu-húsinu að 653 Pacific Ave, hvern laugardag, 24 dállcar tölublaðið. K.ostar jf2 Árg., 7 kr. í Danmörku, 6 kr. á íslandi. ,,Öldin“, mánaðarrit, 32 dálkar hvert hefti, lcemr út einu sinni á mánuði. Kostar jtl, 3 kr. 60 au. í Danmörku, 3 lcr. á ís- landi. — Allir kaupendr »Heimskringlu« fá »Öldina» ókeypis. — Ritstjóri beggja þessara blaða er hr. Eggert Jóhannsson. Nikolai Jensen’s skraddarabúð í stór- og smákaupum Kjöbmagergade 53, 1. Sal (beint á móti Regentsen) Kjöbenhavn K. óskar framvegis að skipta við íslendinga. Sýnis- horn af vörum send ókeypis. Forngripir úr gulli, silfri, messing, bronce, fílabeini, útskorn- ir gripir úr tré, velgerðir fornir drifnir söðlar, höfuðleður og reiðar, íslenzk frímerki, íslenzkt silfurberg kaupir og borgar háu verði S. Verdier, Dstergade 4, Kjöbenhavn. Tveir íslendingar, sem vilja búa saman, geta frá 1. Nóvember næstkomandi feingið fæði (ís- lenzkan mat eptir komu haustskipa) og húsnæði gott hjá ur.dirskrifuðum í Birkegade 4, 2 Sal. Hittist heima kl. 4—5. P. V. Davíðsson. Stj örnu-heilsud rykkur. Stjörnu-heilsudrykkurinn skarar frain úr alls konar „Lífs-Elixír“, sem menn alt til þessa tíma bera kensli á, bæði sem kröptugt læknislyf og sem ilmsætur og bragðgóður drykkur. Hann er agætur læknis- dómur, til að afstýra hvers konar sjúkdómum,

x

Sunnanfari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.