Sunnanfari - 01.10.1896, Side 1
VI, 4 OKTOBER 1896
Þorvaldur á Þorvaldseyri.
Porvaldur Björnsson óðalsbóndi á Þorvalds-
eyri er fæddur í Stóradal undir Eyjafjöllum 18.
okt. 1833. Faðir hans var Björn sonur Por-
valds g-amla hrcppstjóra í Klofa á Landi (f. 1749),
Jónssonar í Klofa, Jónssonar í Gunnarsholti,
Örnólfssonar á Hellum, Snorrasonar, Bjarnasonar.
En móðir Porvalds Björsson-
ar var Katrín dóttir Magn-
úsar hreppstjóra á Leirum
undir Eyjafjöllum, Sigurðs-
sonar, Bjarnasonar sýslu-
manns í Skaptafellsþingi (f.
nm 1670 d. 1764), Nikulás-
sonar. Kona Þorvaldar í
Klofa og móðir Björns var
Margrjet dóttir Jóns sonar
sjera Bjarna Helgasonar í
Fellsmúla (d. 1773), en kona
sjera Bjarna var Ragnhild-
ur dóttir sjera Halldórs á
Hjaltastað, Eiríkssonar prests
í Kirkjubæ í Tungu, bróðir
Stepháns skálds í Vallanesi
Ólafssonar prófasts í Kirkju-
bæ, bróðir Odds biskups Ein-
arssonar prófasts í Eydölum
(d. 1626), Sigurðssonar. Koua
Jóns Jónssonar í Klofa og
móðir Þorvalds gamla var
Valgerður dóttir Jóns áPúfu, en móðir Jóns á
Púfu var Þorgerður systir sjera Bjarna í Fells-
múla, en móðir þeirra var Margrjet dóttir Bjarna
á Hóli, en móðir Margrjetar. var Vilborg dóttir
Grísla í Háholti Guðmundssonar prests í Gaul-
verjabæ (d. 1605), Gíslasonar sýslumanns á Mið-
felli í Hreppum (d. 1577), Sveinssonar, Hólm-
fastssonar.
Svo segist dr. Jóni Þorkelssyni hinum yngra
frá um ætt og uppruna Porvaldar.
Porvaldur ólst upp hjá foreldrum sínum á
Bergþórshvoli og dafnaði vel. Þegar hann var
17 ára rjeðst hann vistmaður til Skúla læknis
Thorarensen á MóeiðarhvoM og var þar í 2 ár
(1850—52). Eptir það var hann á ýmsum stöð-
um í Landeyjum sjálfs síns
maður um 10 ár. — Áþess-
um árum er það fyrst að
Þorvaldar er getið opinber-
lega, þar sem hann átti í
málaþrasi við mann einn í
Ijandeyjum, þá vel tvítugur,
og bar hærra hlut. Pótti
öMum sem Þorvaldur hefði
sýnt lögkænsku eigi alMitla
í þeirri viðureign, var hann
upp frá því um nokkurn
tíma kallaður „Laga-Valdi“,
og haldinn málafylgjumaður
mikill.
Árið 1863 hefst búskap-
arsaga Þorvaldar, er hann
setti bú saman á Núpakoti
undir Eyjafjöllum. Margar
sögur hef jeg heyrt um bú-
skap Þorvaldar, og þá eina, að
hann átti eina hryssu grá-
skjótta og 3 ær. — Mjer er
harla lítið kappsmál hvort svo hefur verið eða
ekki, hitt er meira um vert, að Þorvaldur var
blásnauður er hann byrjaði búskap sinn á Núpa-
koti, en græddist bráðlega fje í löndum og laus-
um aurum, enda leið ekki á laungu áður en á-
býlisjörð hans bar þess órækan vottinn, að bóndi
og húskarlar hans hafa einatt risið árla úr
rekkju.