Sunnanfari - 01.10.1896, Blaðsíða 3

Sunnanfari - 01.10.1896, Blaðsíða 3
27 Nú mænir allt dauðlegt á lífsins lönd frá lokuðum brautum, frá myrkum haugum, og harðgrýtið starir við hljóðan mar til himins með krystallsaugum. Mjer finnst það nú allt svo lítið og lágt sem lifað er fyrir og barist er móti, þó kasti þeir grjóti og hati og hóti við hverja smásál jeg er í sátt. Því bláloptið hvelfist svo bjart og hátt, nú brosir hver stjarna — þó vonirnar svíki, og hugirnir lyftast í æðri átt; sjálf eilífðin birtist í duftsins líki. Vjer skynjum vorn þrótt. Vjcr þekkjum í nótt vorn þegnrjett í ljóssins ríki. Hve voldugt og djúpt er ei himinsins haf og hásigldar snekkjur sem leiðina þreyta. Að höfninni leita þeir hvort sem þeir beita í horfið — eða þeir beygja af. En aldrei sá neinn þann sem augað gaf, — og uppsprettur ljóssins ei fundnar nje skýrðar. Með beygðum knjám og með bænastaf menn bíða við musteri allrar dýrðar — en autt er allt sviðið og harðlæst hvert hlið, og hljóður sá andi sem býr þar. Einar Benediktsson. Draumur. Nóttin kom, við hvílu mína’ hún áði og kossi þýðum drap á höfga brá; draumtjöld svört hún dró á himni’ og láði að dagsins baki, ekkert meir jeg sá; og lífsins háværð lengur mátti’ ei raska Ijúfum blund — hún deyði eyrum frá, dó sem stuna stormhvinsins í fjarska. Þannig lá jeg; heyrn og sjón mig svipti svefninn eins og liði jeg í dá, en hulan þá í helgri kyrð sjer lypti og himinhvolfið þótti mjer jeg sjá. Sólin brann þar myrkt í miðjum geimnum, misturbjarmi út um hvolfið lá, en stólpaský stóð yfir glóðar-eimnum. Það lögun bar í logafegurð sinni sem lögmálsguðinn fyr á Sínaí, líkt var sem úr augum eldur brynni, og ennið var sem þungbrýnt reiðarský; af fingri hverjum fleinaleiptur þutu, en fjærstu smellir sólargeymnum í með þrumubrest sem hráviði þá hrutu. En myndin breyttist. — Útlitið varð annað, auglitið varð gæskuríkt og blítt sem ástarsól þess alheim gæti spannað, svo ekkert týndist, hvers sem það var nýtt; mjallahvíta klæðin báru liti, krónu’ úr þyrnum höfuðið var skrýtt. Stjörnurnar þá brostu’ í gleðigliti. En myndin breyttist.— Líkt og honum leiddist líking holdsins, stólpinn sundur hraut, og þaðan einsog byigja ljóss hann breiddist í biikdýrð yfir gjörvallt himinskaut; líkt og þræddi’ hann alheiminn sem andi allt hann klæddi’ í Ijósi fegra skraut. Stjörnumergðin þá í dýrð sig þandi. Jeg sá ei meira; — saman hvolfið hrundi, og sama hulan fyrir augu bar. Önd mín hvíldist algleymis í blundi, eins og Ijósblik sýnin horfin var. En þegar sálin slíka strýkur strcingi, er stynja fram sem æðri heima svar, þeir óminn geyma’ og óma síðan leingi. Agúst Bjarnason. Nýjar bæknr. Ljóðmæli eftir Jón Olafsson. Þriðja út- gáfa aukin. Fylgir mynd. Eeykjavík 1896. ísaf. prsm. Yerð ] kr. 20 au., í skrautbandi 2 kr. „Saungvar og kvæði“ Jóns Olafssonar komu fyrst út á Eskifirði 1877. Síðan voru ljóðmæli hans aftur prentuð í Winnipeg 1892 og þá auk- in með því sem höf. hafði kveðið fram til þess tíma. En sú útgáfa glataðist að mestu leiti í eldsvoða þar vestra. Nú hefur hún verið end- urprentuð í Eeykjavík á kostnað Björns Jóns- sonar og er enn aukið þar við nokkrum kvæð- um. Mynd af höf. er framanvið bókina oghef- ur hún ekki tckist vel, en skrautbindið er mjög laglegt.

x

Sunnanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.