Sunnanfari - 01.02.1902, Side 8

Sunnanfari - 01.02.1902, Side 8
Annan dag þings gerðist, það er nú skal greina. Svartaþoka var á, og þingvöllurinn troðfullur af fólki. Fógeti stígur upp á steininn, og tekur til að lesa það, er þinglýsa skyldi. Sló þá í þögn, og litu allir upp til hans. Snæbjörn stóð rétt hjá steininum og studdist fram á staf sinn. Fógeti las margt og mikið. Þá lýsti hann og því og gerði þingheimi' kunnugt, að Olafur Tóm- asson í Hvalbæjarþorpi hefði fengið bygging fyr- ir Nesi og væri réttur leiguliði þeirrar jarðar, með- an hann lifði, og ekkja hans eftir hans dag. Þeir, sem næstir stóðu, sáu, að Snæbjörn ná- fölnaði í framan, er hann heyrði þetta, og þreif báðum höndum um stafinn, eins og hann ætlaði að detta. Því næst hratt hann þeim frá, er næst- ir stóðu, og ruddist fram að fógeta. En þá kunni enginn frá að segja greinilega, hvað gerðist; með svo skjótri svipan varð það, og þokan niðdimm. Þeim bar engum saman; en það eitt er vist, að fógeti steyptist niður af steininum og ofan á þá sem næstir stóðu. Og blóðbogi bunaði tir stóru sári í vinstri síðunni á honum. Nú varð þröng á þingi, og lítið um stjórn eða ráðdeild. Þeir urðu óðamála og lieyrðist ekki orðaskil. Þar til er Ásbjörn Guttormsson, sent var einn lögréttumaðurinn, kaflaði liátt, að höndla skyldi vegandann. Nokkrir ruku á stað. og enn fleiri á eftir. En enginn vissi almennilega, í hvaða átt Snæbjörn hafði haldið; hann hafði og viðbragðið, og þok- an kom honum að góðu liði. Þeir Ieituðu fram og aftur um hlíðina og hálsana næstu. Einu sinni kallar einhver, að nú heyri hann járnið á stafnum hans Snæbjarnar skeila við grjótið. Snæ- björn hafði snúið húninum niður á staf sinum, svo ekki sæist för eftir broddinn, og lét þokuna geyma sín. Ferðarolla konferenzráðs Dr. Magn. Stephensens 1825- 26. (Frh). Febr. 19....... Brá mér . . . út til jústizráðs Hammerichs stuudarkorn og til gullsmiðs [Arna] Sivertsens, bróðursonar síra Brynjólfs. Þennan dag hljóp norskur hlaupari fyrir peninga allan Friðriks- bergsskógargangveg (allóe) í gegnum fjórum sinnum fram og aftur á Y2 klukkutíma; tók 2 mórk fyrir hvern, er fekk að sjá og keypti þar til biliet. Mælt er að prinsar og prinsessur væru þar og hér um 15,000 karla og kvenna úr staðnum. Þá inr, fóru aftur, bar hver annan í þeirri geysimannþröng alla Vesturbrú inn fyrir Vesturport. Eg var ei þar. Hann býðst til að hlaupa héðan til Korsör, sem eru 14 mílur, og hiugað til baka á 12 klukkutímum fyrir góðan betaling; er lítill vexti og matrós. Febr. 20.......Kom til mm urtakramari Larsen og captaine Muus. [Febr. 21. M. St. segir útlenaar fréttir, og að specia standi nú »221 = 2 rbd. 10l/2«]. [Febr. 22.—24. M. St, fer ei út sökum handa- veiki, heldur er »arresteraður inni, frábægt útferð og fuudi stórmenna, á hverju mér þó nú mjög ríður, þar svo áliðið er orðið«]. Bókverzlan ísafoldar hefir til sölu þessar nýjar bækur: Vestan hafs og austan. þrjár sögur eftir Einar Hjörleifsson. Rvík i-yoi. Heft i*/2 kr., í skrautbandi 2*/2 kr. ísland um aldamótin. Ferðasaga sumarið 1899. Eftir Fr. J. Bergmann. Heft 2 kr., i skrautbandi 3 kr. Reikuingsbók handa börnum. Eftir Ögmund Sigurðsson. L Fjórar höfuðgrein- ar. Rvík 1900. Bundin 75 a. Hulduíólkssögur. Úrval úr safni Jóns Arnasonar. Rvík. 1901. 1 kr. 20 a. í bandi. Ritstjóri Björn Jónsson. ísafoldarpreDtsmiðju.

x

Sunnanfari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.