Sunnanfari - 01.06.1913, Side 1
SUNNANFARI
XII, 6.
REYKJAVIK
*
JUNIMAN.
1913
*tPl
Skúli Thoroddsen
ritstjóri og alþingismaður
er fæddur í Haga á Barðaströnd 6. Jan. 1859.
Foreldrar lians voru Jón skáld Þórðarson
Thoroddsen, sýslu-
maðurí Barðastrand-
arsýslu og síðar í
Borgarfj.sýslu, og
kona hans, Kristrún
Ólína Þorvaldsdóttir
Sívertsens í Hrapps-
ey. Ur latínuskólan-
um var hann útskrif-
aður í Júní1879 með
lofseinkunn. Lassíð-
an lögfræði við Hafn-
arháskóla og tók
fullnaðarpróf í henni
í Jan. 1884, sömu-
leiðis með Iofseink.
Svo er sagt i palla-
dómabók Garðsstú-
denta frá þeim tíma,
að hann hafl þótt
gáfumaður mikill, en
lítt við alþýðuskap
(danskt) sökum þess,
hve ríkt var í hon-
um íslenzkt eðli og skoðanir gjörbótamanna.
En um þær stóð þá yfir liin snarpasta orra-
hríð þar í landi og stúdentalíf með fjörugasta
móti. Mun það hafa átt drjúgan þátt í því,
að brýna áhuga Sk. Th. á opinberum málum,
ekki síður en margra annara jafnaldra lians
við háskólann. Þess er jafnframt getið, að
liann haíi þá þegar verið orðinn ræðumaður,
og játar daninn það sjálfur, sem skrifað hefir,
að hezt muni sú ræða hans hafa verið, sem
mest gekk í berhögg við danskinn.
Pá er Sk. Th. hafði lokið embættisprófi,
gegndi hann um hríð málfærslustörfum í Rvík,
og var settur þar yfirdómsiögmaður. En þeg-
ar sama haustið lét hann af því starfi, með
því að hann var þá
settur sýslumaður í
ísafj.sýslu og bæjar-
fógeti á ísafirði frá
1. Sept. 1884, og síð-
an skipaður í það em-
bætti. Þaðsatnahaust
kvæntist hann The-
ódóru Guðmunds-
dóttur prests Einars-
sonar á Breiðabóls-
slað á Skógarströnd,
hinni mestu ágætis-
konu og skörungi,
og mun það einmælt,
að fáar konur hér á
landi hafi staðið svo
vel við hlið manni
sínum í blíðu og
stríðu sem hún.
Þegar vestur kom,
tók Sk. Th. þar við
öllu í óreiðu eftir
Fensmark, og varð
því — auk almennra embættisanna — að bæta
við sig skýrslugerð að öllu, að heita mátti,
yfir alla 5 ára embættistíð Fensmarks, auk
þess, að ransaka og dæma sakamælið gegn
honum. En er því sleppti, hlóðust brátt á
hann ýms trúnaðarstörf, meiri og minni háttar.
Þannig veitti hann forstöðu »kaupfélagi ís-
firðinga« frá stofnun þess (1888), fyrst ásamt
þeim Gunnari alþm. Halldórssyni i Skálavík