Sunnanfari - 01.06.1913, Blaðsíða 4

Sunnanfari - 01.06.1913, Blaðsíða 4
44 ráðsmaður Vestur-amtsins var hann um nokk- ur ár, bæjarfulltrúi og eigi fá ár á ísafirði, eftir það, er hann hafði látið af embætti, — sýslunefndarmaður í Gullbringusýslu um hríð og oddviti í Bessastaðahreppi o. s. frv. Þrjár sjóðstofnanir, eru það sérstaklega, er Sk. Th. hefir verið við riðinn : I. Þegar málaferlunum miklu var lokið, stofnaði hann 1000 ára afmælissjóð Eyja- fjarðar, með 1000 kr. gjöf. Sjóðnum er ætlað er tímar líða að efla íþróttalífið þar nyðra, og að vísu um land alt, fegra ýmsa staði í Eyjafirði o. fl. II. er sjóður ekkna og barna ísfirðinga, er í sjó drukkna. — Til voru að vísu frá embættistíð Stefáns sýslum. Bjarnarsonar 3—400 kr., eða þar um bil, sem látið var verða frumvísir sjóðsins, en annars á sjóðurinn að mestu, ef eigi öllu, Sk. Th. vöxt sinn og viðgang að þakka. Hefir sá sjóður nú yfir 20 ár, styrkt eigi allfáar ekkjur sjódrukknaðra manna. III. Sjóður gamalla formanna í Norður-ísa- fjarðarsýslu, sem stofnaður var eftir til- lögum Sk. Th., af frekum 1000 kr., er kaupfélag ísfirðinga átti afgangs, er það hætti, og borgað hafði verið hverjum sitt, auk arðsins, er það á hverju ári hafði greitt félögum sínnm. Þau Sk. Th. og kona hans eiga alls 12 börn á lífi (eitt hefir dáið): Unni, gifta Halldóri lækni Stefánssyni. Guðmund (lækni í Kaupmannahöfn). Skúla (stud. jur. í Rvík). Porvald (í Ameriku). Kristínu, Katrínu, Jón, Ragnhildi, Botla, Sigurð, Sverri og Maríu, öll heima hjá for- eldrum sínum. Eftir því, sem sá, er þetta ritar, hefir bezt vit á, hefir Sk. Th. verið einhver hinn skýr- asti samtíðarmanna sinna hér á landi. — Áhuga- og atorkumaðnr, sem gengið hefir framan að öllu, með góðu eða illu. Allra manna viðkvæmastur fyrir því, ef honum virðist maður eða málefni órétti beitt, enda skapmikill, en þó lengstum stiltur vel. Hvers- dagsgæfur og fáskiftinn mjög, heimasælinn og eigi mannblendinn. Úr því réttist þó við nánari kynningu, enda er maðurinn eigi dramblátur nema við stórbokka. Ritfær er hann vel og ræðufær með afbrigðum á sinn hátt. Veldur því eigi svo mjög málsnild, þótt oft komist hann vel að orði, heldur rök- vísi og sannfæring um málstað sinn. Mælska hans á hvergi betur heima en í þingsalnum. — Hætt við að hann verði helzt til fastheld- inn við efni fyrir þá, sem ekki eru allvel heima í því. Og jafnvel á þinginu nýtur hann sín varla, nema hann fái eitthvað stórt til þess að tala um. En þá bera líka aðal- ræður hans í aðalmálunum af öllu öðru, sem þar er sagt nú, að skýrleik og festu. Að öllu samanlögðu er maðurinn einn hinna helztu og einkennilegustu manna, er fengist hafa við íslenzk stjórnmál á síðari tímum. / A. B. Liflát Friðriks og Ag’nesar. Ár 1830 hinn 12. Janúar var hinn reglulegi dóm- ari og fógeti í Húnavatnssýslu, Blöndal sýslumað- ur, ásamt undirrituðum tilkvöddum vottum, stadd- ur á par til áður ákveðuum aftökustað í svonefndu þingi á leyti nokkru í námunda við eyðijörðina Ranhóla og er þaðan víðsýni mikið í allar áttir. Á leyti þessu hefir á undan, í stað aftökupalls, verið varpað upp moldarstjett ferstrendri og er hún 8 álnir á hvern veg, grindur eru gerðar í kring með staurum, sem reknir eru í jörðina og eru negldar slár milli peirra. Á stjettinni er stokkur dreginn rauðu klæðu og hökuskarð í hann öðru megin. Á pessum stað eru stefndir komnir 140 bændur úr næstu bygðum og standa peir kringum aftökustað- inn í þremur hringum. Regar allt var svo undir- búið, las fógetinn upp á aftökustaðnum allramildi- legastann hæstarjettardóm uppkveðinn 25. Júní f. á. í máli pví, sem af hálfu rjettvísinnar var höfðað gegn bandingiunum Friðrik Sigurðssyni frá Kata- dal, Agnesi Magnúsdóttur og Sigríði Guðmunds- dóttur frá Illugastöðum m. fl. fyrir morð, brennu og pjólnað m. m., og eru pessir 3 menn dæmdir til að hálshöggvast og höfuðin að setjast á stjaka. Síðan var lesið upp allrahæzt brjef til amtmannsins yfir Norður- og Austuramti íslands frá 26. Augúst f. á. pess efnis að fyrnefndri Sigríði Guðmundsdóttur sje allramildilegast gefin upp líf- látshegning sú, sem hún var dæmd í með fyrr- nefndum hæstarjettardómi, gegn því, að hún sje settívinnuundirstrangri gæzlu í typtunarhúsinu í Kaupmannahöfn, en að þvi er snerti hina tvo aðra, dæmdu Friðrik Sigurðsson og Agnesi Magnúsdólt- ur skuli hæstarjettardómurinn óraskaður standa. Sakamennirnir Friðrik Sigurðsson og Agnes Magn- úsdóttir voru í dag fluttir úr varðhaldinu á af- tökustaðinn, og fylgdu þeim á aftökustaðinn þeir

x

Sunnanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.