Sunnanfari - 01.06.1913, Page 3

Sunnanfari - 01.06.1913, Page 3
43 bjó hann til 1908, er hann flutti hingað til Reykjavíkur. Alþingismaður er Sk.Th. fyrst kosinn í Júní 1890 við aukaþingkosningu í Eyjafirði, að Jóni Sigurðssyni á Gautlöndum látnum. Var þá Einar heitinn Ásmundsson í Nesi þar í kjöri á móli honum. Hefir hann jafnan síðan þingmaður verið. — Var kosinn fyrir Ísaíj,- sýslur og kaupstað 1892, og jafnan síðan end- urlcosinn af ísfirðingum, og í alvarlegustu kosningahríðinni, sem hér hefir orðið (1908) gerðist jafnvel enginn til þess, að bjóða sig fram á móti honum þar vestra. Brátt gerðist hann hinn atkvæðamesti þing- maður og hefir verið það jafnan síðan. Má geta þess t. d., að hann hefir verið kosinn í fjárlaganefnd, óslitið, á hverju einasta fjár- lagaþingi, síðan hann varð þingmaður. Má fara fljólt yfir sögu þingstarfa lians, því að það mun alþýðu kunnast um manninn. I fám orðum má segja, að hann hafi hneigst þeim mun meira að lýðvaldsstefnu, inn á við, og sjálfstæðisstefnu út á við (gagnvart Dön- um), sem fleiri árin hafa yfir hann liðið. Svo sem kunnugt er, var hann einn sjö- menninganna í millilandanefndinni, og var hann þá sá eini íslendinganna, er ágreinings- atkvæði gerði. í breytingartill. þeim, er hann gerði við nefndarfrumv., var þegar lagður grundvöllurinn til stefnu frumvarpsandstæð- inga 1908. Og þegar sú stefna varð svo rækilega oían á við kosningarnar um haustið, sem kunnugt er orðið, var það meira en furða mörgum manni, að liann skyldi eigi vera kjörinn ráðherra af hálfu meiri hlutans. Auðvitað er enginn kominn til þess, að segja það, hvernig hann hefði gefist til þess starfa, en hann hafði fyrst og fremst skapað ástand- ið, cins og það var, og var honum því bæði rétt og skylt að taka við því, eins og það var. Af þessu varð þó eigi, hinsvegar hélt nær, að hann yrði gerður að ráðherra á þinginu 1911, er Björn heitinn Jónsson lét af embætti, en konungur nefndi þó til Kristján Jónsson. Er það mál svo upplýst af þingræðum þá, að vorkunnarlausl verður síðari tíðar mönn- um að átla sig á því, og skal þvi eigi farið frekar út i það hér. — í innanlandsmálum hefir Sk. Th. sérstaklega borið hag verk- manna- og húsmannastéttarinnar fyrir brjósti, sbr. lögin um greiðslu dagkaups verkamanna í peningum, sem hann var frumkvöðull að. Sama er að segja um lánveitingar úr lands- sjóði til hús- og þurrabúðarmanna, og átt hefir hann hlut að því, öðrum fremur, að hús- og þurrabúðarmenn geta nú sezt að í hvaða bæjar- eða sveitarfjelagi sem er, — þurfa eigi, eins og áður, að eiga neitt undir náð hreppsnefnda, né heldur að sanna að þeir eigi ákveðna fjáreign. — Þá er og vist- arbandsleysingin honum að þakka, flestum fremur, og hefir það verk verið misjafnlega þakkað, bæði honum og öðrum, sem fyrir því beittust. Benda má á það, að áður en landbúnað- arfélagið hófst, átti hann frumkvæðið að því, að tekið var að veita lán úr landssjóði til jarðabóta. Kvenréltindamálið hefir hann eigi livað sízt látið sér ant um, bæði í blaði sínu og á þingi. Bar hann t. d. fram á þinginu 1891 samskonar frumvajp um jafnrétti karla og kvenna til embætta, sem H. Hafstein bar fram fyrir fám árum og þá náði loks fram að ganga. Var þá horfin mesta mótspyrnan, og hlaut H. Hafstein þakkarávörp fyrir. Fáir munu peir, ef nokkrir eru, sem eru öllu gagnkunnugri atvinnuvegum þessa lands en Sk. Th., þar eð hann hefir bæði verið embættisinaður, rekið bátaútveg, átt og part í þilskipi, verið sveitabóndi og ennfremur, sem fyr segir, lagt stund á blaðamensku, bókagjörð og bókasölu að mun, og ennfrem- ur rekið verzlun, sem um nokkurra ára skeið var ein af stærstu verzlunum á ísafirði. Kjör- um verkmanna og hús- eða þurrabúðarstétt- anna, munu og fæstir kunnugri en hann. Ritstjóri wÞjóðviljansd hefir Sk. Th. nú þeg- ar verið á 27. árið, og er blaðið nú næst- elzta blað landsins. Auk þess hefir hann geíið út þrjú smáblöð um tíma; »Fram«, »Sköfnung« og »Norður-ísfirðing«. — Amts-

x

Sunnanfari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.