Sæbjörg - 01.08.1892, Page 4
119
SÆBJÖRG.
120
10. gr.
Bjargráðanefndin skal halda almennan
fund í septembermánuði, og nefndarfundi í
janúar og maimánuði og þegar formaðurinn
eða */s nefndarmanna álita þess þörf.
11. gr.
Bjargráðanefndirnar skulu sem mest út-
breiða þekkingu og nytsemi allra þeirra
bjargráða, sem nú eru kunn, og síðar kunna
þekkt að verða. Haíi einhver maður í þeim
sjópláss-hreppi fundið upp nýbreytni á veiði-
aðferð, eður einhverju því, er að einhverjum
sjávarverkum eður sjávarútbúnaði lýtur, sem
betra virðist en það, er áður hefur tíðkað
verið, skal neíndin tilkynna það bjargráða-
deildinni, við fyrsta tækifæri. Skýrslur um
afia á hverri vertíð skal hún gefa bjarg-
ráðadeildinni, eptir því sem hún bezt getur,
í vertíðarlok. Aðrar skýrslur, er deildin
kann að óska, skulu nefndirnar senda for-
manni deildarinnar.
12. gr.
Bjargráðanefndin skal birta allar skýrslur,
sem bjargráðadeildin sendir henni, á næsta
almennum fundi.
13. gr.
Bjargráðanefndarmenn veita viðtöku öllum
gjöfum og gjöldum til sjómannasjóðsins og
afhenda gjaldkera, gegn kvittun, og skulu
þau tillög vera sjerstakur sjóður fyrir hvern
sjópláss-hrepp, sem verja skal eptir ákvörðun
nefndarinnar eða nefndanna, með meiri hluta
atkvæða.
14. gr.
Meðan stjórn málefna hinna íslenzku sjó-
manna er eigi sjerstaklega skipuð með lög-
um, verður engin samþykkt bjargráðaneínda
eður bjargráðadeilda gildandi, nema gagnvart
þeim fjelögum, er undir hana hafa skrifað,
og þó því að eins að hún eigi komi í bága
við lög, eður aðrar samþykktir.
II. Bjargráðadeildir.
15. gr.
I hverri bjargráðadeild skal vera einn maður
úr hverri bjargráðanefnd, hvers sjópláss-
hrepps, sem bjargráðanefndin hefur til þess
kosið. Bjargráðadeildin kýs sjer formann
og ritara til 3 ára i senn. Gjörðabækur og
ritföng deildarinnar borgist samkvæmt reikn-
ingi af sjómannasjóðum hvers bjargráðadeild-
ar sjópláss-hrepps.
I fyrsta sinni, er bjargráðadeildarfundir verða
haldnir samkvæmt lögum þessum, skulu þeir
vera haldnir á þessum stöðum:
á Vestmanneyjum fyrir Vestmanneyjar
- Krossi í Landeyjum fyrir Rangárvallasýslu
- Eyrarbakka fyrir Arnessýslu
í Hafnarfirði fyrir Kjósar og Gullbr. og Rvík
á Brákarpolli fyrir Borgarfjarðarsýslu
í Olafsvík fyrir Snæfellsnessýslu
á Isafirði fyrir Isafjarðarsýslu
og Strandas.
- Blönduós fyrir Húnavatnssýslu
- Sauðárkrók fyrir Skagafjarðarsýslu
- Akureyri fyrir Eyjafjarðarsýslu
- Húsavik fyrir Þingeyjarsýslu
- Seyðisfirði fyrir Norður-Múlasýslu
- Eskifirði fyrir Suður-Múlasýslu
- Djúpavog fyrir Austur-Skaptafellssýslu.
i Vík fyrir Vestur-Skaptafelssýsiu
Elsti deildarmaðurinn skal setja hvern
fund og stýra kosningunum í fyrsta sinni.
16. gr.
Hver bjargráðadeild skal halda einn aðal-
fund fyrir 15. dag októbermánaðar árlega,
og aukafundi þegar helmingur bjargáða-
nefnda óskar þess. Formaður deildarinnar
kveður til fundar með hæfilegum fyrirvara,
birtir samkomustað og stund, og helztu fund-
armálefni.
17. gr.
I þóknunarskyni skulu deildarmenn fá af
sjómannasjóði 2 kr. fyrir hvern dag, sem
þeir eru frá heimili síriu vegna fundanna,
og skal hver bjargráðanefnd greiða fulltrúa
sínum þetta gjald af tekjum sjóðsins.
18. gr.
Formaður bjargráðadeildarinnar skal sjá
um, að allt það, sem fram fer á deildarfundi
verði nákvæmlega bókað. Hann skai varð-
veita gjörðabækur deildarinnar og önnur
skjöl.
19. gr.
A hverjum deildarfundi skal formaðurinn
leggja fram skýrslur urn tekjur og gjöld
sjómannasjóðanna.