Öldin - 01.09.1893, Síða 7

Öldin - 01.09.1893, Síða 7
ÖLDIN. S7 eins og þér berið sakir innar kaþólsku. Ég hataði í þá daga páfann af allrl minni sál, eins og þér hatið Lúther, og ég bað til guðs að sá dagr mætti koma, að ég steypti anti- kristinum og snéri öllum hans játendum til ins sanna ijóss. Ég hefi ekki skipt um sannfæring siðan þá; en hitt hefi ég lært, að vegirnir eru margs konar þótt andinn só einn. Ég held fastlega. við trú mína, ina evangelisku, og er reiðubúinn að láta lífið á vígvellinum fyrir hennar sakir, ef það er guðs vilji. En ég virði kristins manns trú, enda þótt ólík kunni að vera minni eiginni að einhverju leyti, og ég veit að guðs mis- kunnsemi megnar að leiða sálir til lífsins, enda þótt fult só af hættum og villum á veginum. Earið nú, jungfrú af Emmeriz ; ég fyrirgef yðr að þér fylgið æsingum munkanna, og leitizt við að leiða drottins hermann frá bardaga hans fyrir ljósið. Farið í friði, barn mitt, og látið guðsorðog lífsreynsluna kenna yðr að treysta ekki dýrlingum, sem þó eru ekki nema syndar- ar eins og vér, né líkneskjum og hringum, sem ekki megna að leysa oss undan dómi ins æðsta. Ég þakka yðr, því þér hafið viljað vel, enda þótt þér væruð leiddar af bcrnskulegri fávizku. Fyrir mínu lífi meg- ið þér vera ókvíðnar; það er í hans hendi, sem veit til hvers hann ætlar mig.” Gústaf konungr var stórmenni þegar hann talaði þessi orð. Jungfrú Regína stóð nú þar niðrlægð og upphafin í senn af konungsins frábæra umburðai’lyndi. Ef til vill kom henni þá í hug svar hans til bæjarmanna í Frankfurt, er þeir beiddust að mega sitja hlutlausir hjá ófriðnum. “Afskiptaleysi,” kvað liann, “er orð, sem mér alls ekki líkar, sízt í bar- áttunni milli frelsis og áþjánar.” Hún var alin upp í hatri við annara trú, og gat því ekki skilið í því, hvernig unt væri að sama sverðið, sem steypti kyrkjunnar verald- lega valdi, gæti vægt til og beygt sinn odd gagnvart hennar andlegu yfirráðum yfir hjörtum og samvizkum. In tilfinninga- sjúka stúlka leit tárvotum augum upp á konunginn — þá fölnuðu kinnar hennar. sem rétt áðr loguðu allar af andans ákefð, og augu hennar störðu í dauðans ógn og angist á ið purpurarauða tjald fyrir kofi- ungssænginni. Oxenstjerna tók óðara cftir hennar skelfda augnaráði, enda hafði hann fyigt í frá upphafi hverri hreyfingu hennar með mun meiri grunseini en konungr. “Yðar hátign,” sagði hann á sænsku; “lítið vel í kring umlyðr, því að hér er eitthvað ílt á seiði.” Og án þess að bíða eftir svari, dró hann sverð sitt og gekk rakleitt að sæng- inni, sem var kostuleg gjöf borgaranna í Frankfurt, og hafði þó hetjukonungrinn skift dúnsængunum fyrir hrosshársdýilur og snarpa ábreiðu úr saxneskri ull, sama kyns og hermenn lians höfðu í vetrarher- búðunum. “Kyrt!” kallaði Regína, þvínærójálf- rátt, en það var um seinan. Oxenstjerna hafði skyndilega dregið til hliðar tjaldið og glórði þá í nábleikt andlit með dimm- um glóðaraugum undir síðri skinnhúfu. Nú dró hann betr frá og stóð þar þá heill munkr, sem spennti greipar um róðukross úr silfri. “Kom fram, verðugi pater,” sagði Oxenstjerna í háði. “Svo auvirði- leg staða sæmir ekki svo verðugum manni. Yðar verðleikr hefir valið óvenjulegan stað til kveldbænahalds.. Ef hans hátign leyfir það, skal ég útvega vðr fleiri tilheyrendr.” Ilann tók í klukkustreng og jafnskjótt ltom Bertel inn með tvo menn úr lífverðinum og lét sinn standa hvoru megin dyranna. Konungr rendi augum til Regínu og lýstu þau fremr sorg en reiði. Honum sárnaði mjög að svo ung og fríð mær skyldi vera í vitorði með svo ljótum fjörráðum. “Grið, yðar hátign, grið handa skrifta- föður mínum. Hann er saklaus !” hrópaði hún grátandi. “Lcyttr yðar hátign, að ég spvrji í yðar stað íáeinna spurninga ?” spurði Ox- enstjeroa.

x

Öldin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.