Öldin - 01.04.1895, Síða 3

Öldin - 01.04.1895, Síða 3
ÖLDIN. 51 dýrkun) frá sfjmu uppsprettu og áhangend- ur suðurskólans og eru báðir þessir skólar því, að því ieyti, runnir af sömu rót.” Yfir lu'ifuð að tala eru Ceylonbækurnar framúr- skarandi að niðurröðunum til, en hinar Kínversku aftur f'yrir sína margmælgi. í sambandi við Jpetta er ef til vill ekki úr vegi að gera dálítinn samanburð á stærð Pali-ritanna* og Buddhabiblíunnar Kín- versku. Dr. Rhys Davis, sem hefir gert sér far um að komast að réttri niðurstöðu um stærð liinna lielgu rita suðurslrólans, sem menn alment höfðu haldið að væru svo feykileg, gefur álit sitt á þessa leið: Buddha-biblían (allar hinar ]prjár Pilaka suðurskólans, að undanskildum nr. 10 og 11 af' Khuddaka Nikaya, scm óvíst er hve löng er) með öllurn upptekningum, og Jieim bókum, sem innihalda útdrátt úr öðr- um bókum, hefir að eins nærri helmingi fleiri orð en biblían og ensk þýðing af henni mundi verða hér nm bil fjórum sinnum lengri.” Þetta er þá stærð hinna helgu rita suðurskólans, og dettur víst engum í hug að kalla hana feykiloga. En Jpegar farið er að skoða liinar helgu bækur norð- urskólans, sem eru undirstaða Buddhatrú- arinnar í Kína og Japan, þá kastar tólfun- um. Prof. Beal segir: “Það er álitið, að öll þau verk, sem Indverjar lögðu út á Kínversku, ásamt verkum lJiouen Thsang, séu hór um bil sjö hundruð sinnum stærri en Nýjatestamentið og má ]pað kallast feykilegt bókfell. Sem Japaníti get ég ekki að þvi gert, að vera upp með mér yfir því, að öll bók- fellin, sem kölluð eru “hinar helgu kenn- ingar hinna þriggja Karfa,” sem nú eru ^eymd í Indversku bókhlöðudeildinni í London, og sem er hið eina safn af þeirri i;egund í vesturlöndum, lcorá ekki frá Kína heldur Japan. Dr. Beal, sem hafði saman *) ‘Pali’, tungumól eitt, náskylt Sanskrit og ætla sumir, að hin htlgu fræði Buddha hafi yrst veriP rituð á því máli, og á því eru ritað- ar Knar lulgu bækur suðurskólans. þessar bækur, minnist á þær á þessa leið í formálanum fyiir bókaskránni, sem hann býr til fyrir indversku bókasafnsdeildina: “Þetta safn var gefið út að boði Wan-lieto Kínverjakeisara í lok sextándu aldar. Það var endurprentað í Japan á sjötta ári Nen- go-Im-po-tímabilsins, þ. e.: árið 1679 e. K., og seinna gefið út með formála, að konungs boði á dögum Feu-wa, eða árin 1681—1683. Þessi bók var flutt til Indíasaf'nsins í Lond- on í sjö stórum kistum og vel búið um þær með blýi og hálmi. Þessir sjö kassar inni- halda aftui’ til samans eitt hundrað hulstur og í hverju hulstri voru að meðaltali tutt- ugu bindi, og var því tala þeirra alls yfir tvö þúsund. Ef öllum þessum bókum væri raðað hverri ofan á aðra mundi stafi- inn verða um eitt hundrað og tíu fet á hæð. “Þetta safn,” segir sami höfundur á öðrum stað, inniheldur allar hinar helgu bækur, sem með tíð og tíma fiuttust frá Indlandi til Kína, og voru þær lagðar út, ásamt út- skýringum, innihaldslistum og registrum. Þetta er þá undirstaðan undir þekkingu vorri á Buddhism í Kína og Japan. Það er auðskilið, að þarf mörg ár til að rann- saka þetta mikla safn og komast að réttri niðurstöðu, um innihald þessara bóka, og hvort þær só nákvændega samkvæmar upprunaritum, sem þær eru þýðingar af. En eftir því að dæma sem þegar hefir ver- ið yfirfarið sést, að þær innihalda miklar og fróðlegar npplýsingar um vöxt og við- gang Buddhatrúar frá fyrstu tímum, ait frá þvi hún var einföld . og óbrotin trúar- játning, eins og húnvar fyrst framsett af höí'undi hennar, og þangaðtil hún kemur frain í hinum margfágaða búningi seinni- alda heimspekinnar. IV. Alirif Buddicairiiarinnar ú þjóðina.. Viðgangur Buddhatrúarinnar í Japan eyðilagði stórum glaðværð Japaníta, en um leið urðu þeir líka mikíum mun hygn-

x

Öldin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.